Morgunblaðið - 12.06.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 13
Staðsetning rúmfrekrar stóriðju í Eyjafirði kynnt á fundi héraðsnefndar
Aðeins Dysnes og Árskógs-
sandur koma til greina
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
SIGURÐUR J. Sigurðsson, bæjarfulltrúi á Akureyri, Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveit-
ar, og Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdasljóri héraðsnefndar, rýna í pappíra á fundinum á Hótel KEA.
ÁFANGASKÝRSLA I um framhald
staðarvalsathugana í Eyjafirði
vegna staðsetningar iðnaðarsvæða,
var lögð fram til kynningar á fundi
héraðsnefndar Eyjafjarðar í gær. í
niðurstöðum skýrslunnar er bent á
að aðeins tvö svæði við Eyjafjörð
komi til álita fyrir rúmfreka stóriðju,
Dysnes í Arnarneshreppi og svæði
ofan við Litla-Árskógssand í Ár-
skógshreppi. Umræða um stóriðju í
Eyjafirði hefur að mestu snúist um
álver og hafa erlendir Ijárfestar
m.a. skoðað landsvæði í firðinum
undir slíka starfsemi.
Verkefnisstjórn sem skipuð er
þremur mönnum, frá héraðsnefnd,
Byggðastofnun á Akureyri og mark-
aðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins
og Landsvirkjunar vann að gerð
skýrslunnar. Verkefnisstjórnin safn-
aði gögnum og átti m.a. viðtöl við
sveitarstjórnarmenn í þremur hrepp-
um þar sem svæði fyrir verksmiðju-
lóðir eru merkt á uppdrætti með
svæðisskipulagi Eyjafjarðar 1989-
2009.
Ágreiningfur í hreppsnefnd
I skýrslunni kemur fram að unnið
er að gerð aðalskipulags í Arnarnes-
hreppi og er ágreiningur meðal
hreppsnefndarmanna um það hvort
land við Dysnes skuli áfram skipu-
lagt sem iðnaðarsvæði fyrir orku-
frekan iðnað. Á meðan sá ágreining-
ur er óleystur er ekki talið skynsam-
legt að leggja í frekari kostnað við
framhald staðarvalsathugana á þeim
stað.
Dysnes er þó talið hafa ýmsa
kosti umfram Árskógssand með til-
liti til staðsetningar stóriðju en Ár-
skógssandur kemur vel til álita sem
valkostur, a.m.k. fyrir ákveðna teg-
und stóriðju. Verkefnisstjórnin mat
stöðu forathugana fyrir þessi svæði
og áætlaði kostnað við frekari stað-
arvalsathuganir. Við Dysnes er gert
ráð fyrir kostnaði upp á 5,5 milljón-
ir króna en áætlun um staðarvalsat-
huganir á Árskógsströnd sem þarf
til að lyfta þeim stað á sambærilegt
þekkingarstig og Dysnes er gert ráð
fyrir kostnaði upp á 16 milljónir
króna.
Nýir útreikningar á
loftmengun
Nýir útreikningar voru gerðir á
loftmengun fyrir 200.000 tonna álver
á Dysnesi og sýna niðurstöðurnar
mun minni mengun nú frá stóru ál-
veri við Dysnes en fyrri útreikning-
ar, m.a. vegna strangari krafna heil-
brigðisyfírvalda um leyfilegt útblást-
ursmagn. Þá taldi verkefnisstjómin
æskilegt að gerð yrði viðhorfskönnun
meðal íbúa Eyjafjarðarsvæðisins til
að kanna hug þeirra til stóriðju við
Dysnes eða á Árskógsströnd. Rann-
sóknarstofnun HA gerði könnunina
en niðurstöður liggja ekki fyrir.
Andrés Svanbjömsson, yfirverk-
fræðingur markaðsskrifstofu iðnað-
arráðuneytisins og Landsvirkjunar er
formaður verkefnisstjómarinnar en
með honum í stjóm eru Björk Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri hér-
aðsnefndar, og Valtýr Sigurbjamar-
son, framkvæmdastjóri Byggðastofn-
unar á Akureyri. Töluverðar umræð-
ur urðu í héraðsnefnd um skýrsluna
og framhald málsins.
Matvælavinnsla - stóriðja
í þeirri umræðu kom m.a. fram
hvort hægt væri að ræða um fjárfest-
ingaverkefni í matvælavinnslu sam-
hliða umræðu um stóriðju. Andrés
sagði það sína skoðun að stóriðja á
Dysnesi eða Árskógssandi þyrfti ekki
að skaða matvælaframleiðslu á Akur-
eyri. Víða erlendis væru þessar at-
vinnugreinar reknar saman og nefndi
hann Sviss sem dæmi. Hins vegar
væri hægt að hafa áhrif á þá ímynd
í báðar áttir.
Kristján Snorrason, oddviti Ár-
skógshrepps, og Jóhannes Her-
mannsson, oddviti Arnameshrepps,
sögðust ekki hafa áhuga á að keppa
um staðsetninguna. Uppbygging
stóriðju kæmi öllu svæðinu vel. Jó-
hannes sagði þó ljóst að meirihluta-
samþykkt íbúa þyrfti fyrir staðsetn-
ingu stóriðju í hreppnum. „En það
er ekki góður kostur að 200 manna
byggðarlag geta stoppað stóriðju-
framkvæmdir á svæði þar sem búa
24.000 íbúar."
Varðandi framhald málsins, sam-
þykkti héraðsnefnd samhljóða að
verkefnisstjóm héldi áfram störfum
og að héraðsráð ynni einnig að mál-
inu milli funda héraðsnefndar.
Kristín Aðal-
steinsdóttir heiðruð
AKUREYRARDEILD Delta Kappa
Gamma hefur kjörið Kristínu Aðal-
steinsdóttur fyrstu konuna sem félag-
ið heiðrar og var athöfn haldin á Fiðl-
aranum af því tilefni.
Delta Kappa Gamma eru alþjóðleg
samtök kvenna í fræðslustörfum og
voru þau stofnuð í Bandaríkjunum
árið 1929. Deildir þess starfa víða
um lönd, á íslandi hófst starfsemin í
Reylqavík árið 1975 og 2. júní 1977
var stofnuð deild á Akureyri. Félagar
hennar héldu upp á tuttugu ára af-
mæli hennar með því að heiðra Krist-
ínu. Ákveðið var í tilefni tímamótanna
að heiðra á fímm ára fresti eina konu
sem skarað hefur fram út á sviði
mennta- og menningarmála á félags-
svæðinu enda samræmist það stefnu
þess að meta vel unnin störf.
Kristín hefur mikla reynslu af
skólastarfi, hún hefur kennt á öllum
skólastigum og stundað víðtæk rann-
sóknarstörf, einkum á sviði lestrar-
kennslu og sérkennslu. Árangur
þeirra rannsókna hefur hún birt í
fræðiritum og fyrirlestrum. Árin
1989-1993 hafði Kristín umsjón með
framhaldsnámi í sérkennslufræðum á
vegum Kennaraháskóla íslands og frá
árinu 1994 hefur hún starfað við
kennaradeild Háskólans á Akureyri.
Hún stundar nú doktorsnám við há-
skólann í Briston á Englandi.
Morgunblaðið/Kristján
Gallerí
Svartfugl í
Listagilinu
SVEINBJÖRG Hallgrímsdóttir,
myndlistarkona opnar um helgina
nýja vinnustofu og sýningaraðstöðu
sem fengið hefur nafnið Gallerí
Svartfugl í Listagilinu, Kaupvangs-
stræti 24 á Akureyri.
Vonast er til að þessi sýningarað-
staða verði góð viðbót við annars
fjölbreytt lista- og menningarlíf í
Listagilinu. Guðbjörg Ringsted,
myndlistarkona er fyrsti listamað-
urinn sem setur þar upp sýningu
en sýning hennar opnar laugardag-
inn 14. júní.
Gallerí Svartfugl er opið þriðju-
daga til laugardaga frá kl. 14.00-
18.00. Á myndinni er Sveinbjörg
Hallgrímsdóttir í galleríi sínu.
Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri
Trausti ráð-
inn fram-
kvæmda-
stjóri
GUNNLAUGUR Sighvatsson,
sjávarútvegsfræðingur, sem verið
hefur framkvæmdastjóri Rann-
sóknarstofnunar Háskólans á Ak-
ureyri hefur látið af því starfi og
hefur Trausti Þorsteinsson, fyrr-
verandi fræðslustjóri Norðurlands-
umdæmis eystra, verið ráðinn í
hans stað.
Trausti hefur langa reynslu sem
skólastjórnandi og hefur setið á
vegum stjórnvalda í ýmsum nefnd-
um sem fjalla um menntamál. Þá
var Trausti forseti bæjarstjórnar
Dalvíkur á síðasta kjörtímabili.
Hann mun taka við starfi fram-
kvæmdastjóra fljótlega.
Gunnlaugur Sighvatsson hefur
tekið við starfi framkvæmdastjóra
Hólmadrangs hf. á Hólmavík.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Laufáskirkju sunnudag-
inn 15. júní kl. 14.00. Messukaffi
á prestssetrinu á eftir.
Morgunblaðið/Kristján
RÓSA Kristín Júlíusdóttir, formaður Beta-deildar, og Kristín
Aðalsteinsdóttir, fyrsta konan sem félagið heiðrar.
Skólanefnd Akureyrar
Rætt við
alla um-
sækjendur
SKÓLANEFND fór á fundi sínum í
gær yfir þær umsóknir sem bárust
um starf skólafulltrúa Akureyrar-
bæjar og um stöður skólastjóra og
aðstoðarskólastjóra við Síðuskóla.
Á fundinum var samþykkt að
boða alla umsækjendur til viðtals og
afgreiða málið frá nefndinni á fundi
næsta mánudag. Þaðan fer málið
fyrir bæjarráð nk. fimmtudag og að
öllum líkindum til afgreiðslu í bæjar-
stjórn þriðjudaginn 24. júní.
Tvær umsóknir bárust um allar
stöðurnar þijár og sótti Sturla Krist-
jánsson um þær allar. Guðmundur
Þór Árnason sótti einnig um stöðu
skólafulltrúa og Ólafur B. Thorodd-
sen um stöðu skólastjóra Síðuskóla.
Þá sótti Sigríður Ása Harðardóttir
um stöðu aðstoðarskólastjóra við
Síðuskóla.
------»■ ♦ 4---
Umsóknir um
skólavist í VMA
Svipaður
fjöldi og í
fyrra
ALLS bárust rúmar 1130 umsóknir
um skólavisst í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri næsta skólaár en
umsóknarfrestur rann út þann 6.
júnl sl. Þetta er svipaður fjöldi og
sótti um skólasvisst I fyrra.
Flestir sækja um nám á uppeldis-
sviði eða 308, um nám á tæknisviði
sækja 284, á hússtjórnarsviði 224,
á heilbrigðissviði 185 og á viðskipta-
sviði 131.
Garðar Lárusson, áfangastjóri
VMA gerir ráð fyrir að umsóknum
eigi eftir að fjölga eitthvað en að
nemendafjöldinn í dagskóla verði
svipaður milli ára.
-----»-■♦■■♦--
Ekkert fékkst
upp í almenn-
ar kröfur
SKIPTUM í þrotabúi Hallar ehf.,
sem m.a. rak veitingastaðinn Sjall-
ann á Akureyri, er lokið en félagið
var tekið til gjaldþrotaskipta í októ-
ber á síðasta ári.
Skiptum lauk með úthlutunargerð
úr þrotabúinu en samkvæmt henni
greiddust 7,5 milljónir króna upp í
samþykktar veðkröfur að fjárhæð
tæplega 11,3 milljónir króna, eða
um 66%. Ekkert fékkst greitt upp 1
almennar kröfur er námu um 6,5
milljónum króna.
Hótel
Havpa
Akureyri
Gisting við allra
hæfi.
Þú velmr:
Fjörið í miðbænum.
Friðsældina í
Kjarnaskógi
eða lága verðið á
gistiheimilinu
Gulu villunni
gegnt
sundlauginni.
Sírni 461 1400.