Morgunblaðið - 25.06.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
RAGNHEIÐUR Þorláksdóttir hjá Sögufélaginu segir krökkum úr Vinnuskólanum frá Gijótaþorp-
inu og sýnir þeim gamla mynd af húsi Sögufélagsins í Fischersundi. Við hlið hennar stendur Sig-
rún Sigurðardóttir, umsjónarmaður fræðsludagskrárinnar „Söguferð um miðbæinn“.
í fótspor
unglinga
á fyrri tíð
UNGLINGARNIR í Vinnuskóla
Reykjavíkur gera fleira en að reyta
arfa og raka. Fyrir utan þá hefð-
bundnu þjóðþrifavinnu er þeim
boðið upp á ýmsa fræðslu, eins og
t.d. söguferð um miðbæinn.
Krakkarnir sem hér sjást fyrir
utan hús Sögufélagsins í Fischer-
sundi voru einmitt í slíkri ferð í
gær. Miðbæjarröltið hefst við Ráð-
húsið og þaðan er gengið um
gömlu Reykjavík og fjallað um líf
og aðstæður unglinga í Reykjavík
fyrr á tímum. Röltinu lýkur síðan
í húsi Sögufélagsins hjá Ragnheiði
Þorláksdóttur.
Hún segir heimsóknir ungling-
anna afar ánægjulegar og þá mjög
áhugasama. Þeim þyki sérstak-
lega fróðlegt að koma í hús sem
stóð til að rífa á sínum tíma, eins
og raunin var með hús Sögufé-
lagsins.
Auk miðbæjarröltsins er fjórtán
ára unglingum í Vinnuskólanum
boðið upp á þrennskonar aðra
fræðsludagskrá, þ.e. ferð í Ás-
mundarsafn og þvottalaugarnar í
Laugardal, Jafningjafræðslu og
kynningu á fijálsum íþróttum.
Gönguskór
ÚTIVISTARBÚÐIIU
viö Umferöarmiöstööina
Sími; 551 9800 og 551 3072
Bæjarstjórn Selfoss
Lagt tíl að
byggður verði
héraðsháskóli
BÆJARSTJÓRN Selfoss hefur sam-
þykkt samhljóða að leita eftir því
við Háskóla Islands og menntamála-
ráðuneytið að byggður verði upp
héraðsháskóli á Selfossi. Haft verði
samráð við verkefnisstjórn verkefn-
isins Suðurland 2000, Samtök sunn-
lenskra sveitarfélaga og Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, sem skipi fulltrúa
í starfshóp vegna þessa verkefnis.
Sigurður Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar Selfoss, segir að samþykkt
bæjarstjórnar sé fyrsta skrefið í þá
átt að koma þessu verkefni í gang.
Hann segir mikinn áhuga á þróun
þessara mála. Bendir hann m.a. á
að í Fjölbrautaskóla Suðurlands séu
rúmlega 600 nemendur og fjöldi
kennara við skólann hafi háskóla-
menntun.
Áhersla á hagnýta
starfsmenntun
í greinargerð tillögunnar er vísað
til þess að Sveinbjörn Bjömsson, rekt-
or HÍ, hafi sett fram hugmyndir um
uppbyggingu héraðsháskóla og sótt
þær hugmyndir til annarra þjóða.
„í héraðsháskólum er boðin
skemmri starfsmenntun á háskóla-
stigi, endurmenntun, ýmis viðbótar-
menntun fyrir þá sem lokið hafa
framhaldsskóla og byijun á lengi-a
háskólanámi. Þessir skólar bjóða nám
með starfi og íjarkennslu. Þeir leggja
mesta áherslu á hagnýta starfs-
menntun og starfa náið með helstu
atvinnutækjum hvers héraðs. Þeir
þurfa einfaldari aðstöðu og búnað en
fagháskólar og rannsóknarháskólar
en gætu verið eðlileg viðbót við fram-
haldsskóla í öllum byggðum lands-
ins,“ segir í greinargerðinni.
Ekki er vitað til þess að fleiri
sveitarfélög hafi samþykkt sambæri-
legar tillögur um stofnun héraðshá-
skóla skv. upplýsingum sem fengust
í menntamálaráðuneytinu en þó hef-
ur komið fram vaxandi áhugi á
Austurlandi á að tengjast háskóla-
stiginu. Fluttu þrír þingmenn kjör-
dæmisins tillögu til þingsályktunar
á Alþingi í vetur um að komið verði
á fót upplýsinga- og fræðslumiðstöð
háskólastigsins í landsfjórðungnum.
Miðstöðin hafi m.a. það verkefni
með höndum að þróa víðtæk tengsl
við skóla og nám á háskólastigi,
miðli þeim til nemenda, almennings
og atvinnulífs á Austurlandi og stuðli
ennfremur að fræðslu og námi á
þessu skólastigi í fjórðungnum.
Töldu flutningsmenn tillögunnar lík-
legt að fljótlega væri hægt að byggja
upp stuttar háskólabrautir í tengsl-
um við framhaldsskóla á Austur-
landi. Tillagan kom ekki til endan-
legrar afgreiðslu á síðasta þingi
Olíustöðin í Hvalfirði
Framkvæmt fyrir
215 milljónirkr.
Vogum. Morgunblaðid.
ÍSLENSKIR aðalverktakar hófu í
vor framkvæmdir á vegum varnar-
liðsins við endurnýjun eldsneytis-
kerfis olíustöðvar Atlantshafsbanda-
lagsins í Hvalfirði.
Að sögn Friðþórs Eydals, blaða-
fulltrúa varnarliðsins, hafa íslenskir
aðalverktakar unnið við slík verkefni
undanfarin ár, en áætlaður kostnað-
ur við yfirstandandi framkvæmd er
215 milljónir króna og verklok eru
áætluð í febrúar á næsta ári.
6t»0ííf6$S0*
>ótoim womsoK
{ AUí Oý UÖtíiUHi
*»#»{»«
Fiskar í ám 0,2 vötnum er eóð bók
fyrir þá sem hafa áhuga á veiðiskap
Bókin Fiskar í ám og vötnum er óvenjuleg bók þar sem fj
er um íslenska ferskvatnsfiska. atferli þeirra og umhx erfi
Fjöldi Ijósmynda. teíkninga
og korta prýðir þetta fræðirit.
Nii gefst veiðimönnum *■■*- .mwíih
kostur a að skoða
kunnuglegan heim
frá nýju sjónarhorni. J.. I '&rÆ
sem ætti að vera tiltæk
í hverri veiðiferð.
LANDVERND