Morgunblaðið - 27.06.1997, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Fékk nýtt
líf í svefn-
herberginu
KAMILLA Líf Ingimars, folald
sem að undanförnu hefur dvalist
í dýragarðinum við Slakka í
Laugarási, er hvers manns hug-
ljúfi að sögn Helga Sveinbjörns-
sonar forstöðumanns garðsins.
En þótt Kamilla Líf sé aðeins sjö
vikna gömul, er tilvist hennar í
raun lítið kraftaverk.
Skömmu eftir að folaldið leit
dagsins Ijós vildi hryssan, móðir
þess, ekkert með afkvæmið hafa
og var sjúkleika eða eymslum í
júgrum kennt um að sögn Helga.
Folaldið hafði þó fengið nokkr-
um sinnum að smakka á móður-
mjólkinni, sem talið er hafa orð-
ið henni til bjargar.
Augun tekin að fölna
„Þegar folaldið var nokkurra
daga gamalt var hringt í okkur
og okkur gefinn kostur á að eign-
ast það, tækist okkur að lífga það
við. Við brunuðum á staðinn og
þá var folaldið lagst, enda ekki
fengið næringu í tvo sólarhringa
og augun tekin að fölna. í raun
var ekkert annað að gera en lóga
henni.
Við tókum hins vegar til
bragðs að aka með skepnuna að
Slakka og hringdum í Ingimar
Sveinsson á Hvanneyri að ráði
dýralæknis okkar, því Ingimar
væri sérfræðingur í tilvikum sem
þessum. Ingimar gaf okkur upp-
skrift að sérstakri blöndu úr
barnaþurrmjólk, kúamjólk, kam-
illutei og matarsóda, sem við lö-
guðum með hraði.
Hjá okkur vinnur sænsk stúlka
sem þekkir vel til hesta og vildi
drífa folaldið beina leið inn í
svefnherbergi, sem við og gerð-
um. Fyrstu nóttina lá folaldið á
gólfinu við hliðina á rúminu og
fékk gjöf á tveggja tíma fresti.
Klukkan sex næsta morguninn
stóð síðan blessuð skepnan á
KAMILLA Líf hefur deilt vist-
arverum með kálfinum
Bláskjá seinustu vikur. Kálf-
urinn og folaldið fá sér blund
saman og eru að öllu leyti
hinir mestu mátar.
fætur og horfði í kringum sig,“
segir Helgi.
Vakt í 10 sólarhringa
Eftir dvölina í svefnherberg-
inu var búið um folaldið í nær-
liggjandi bílskúr. Ekki hafði
gengið vel að gefa dýrinu að
drekka úr pela en þess í stað var
notast við lokaða könnu með stút,
ætlaða börnum, og drakk folaldið
fyrrnefnda blöndu úr henni allan
tímann. Höfðu heimilismenn á
Slakka vaktaskipti og gáfu fol-
aldinu á tveggja tíma fresti í alls
tíu sólarhringa.
„Þetta heppnaðist að lokum
sem betur fer og nú er folaldið
laust í garðinum, töltir þar við
óskipta hrifningu gesta og er hið
sprækasta," segir Helgi.
Folaldinu var gefið nafnið Líf
í fyrstu, bæði vegna þess að
sænska stúlkan heitir Líf og
vegna þess að heimilisfólkið gaf
henni líf. Nafnið lengdist þó von
bráðar.eða í Kamillu Líf Ingi-
mars, með vísan í uppskriftina
góðu og Ingimar Sveinsson.
Miðborgarsamtök Reykjavíkur
um lokun Hafnarstrætis
Slæm áhrif á
rekstur verslana
MIÐBORGARSAMTÖK Reykjavík-
ur harma þá ákvörðun borgarráðs
að loka Hafnarstræti til austurs frá
Pósthússtræti að Lækjargötu og
áskilja sér allan rétt til hörku þegar
til lokunarinnar kemur. Fulltrúar
Miðborgarsamtakanna segja m.a.
að þessi lokun muni hafa alvarlegar
afleiðingar fyrir verslun og við-
skipti í miðborginni og sérstaklega
í Kvosinni og ennfremur að lokunin
muni setja samstarf samtakanna
og borgaryfirvalda í erfiða stöðu.
Fulltrúar Miðborgarsamtakanna
og verslunareigenda í Kvosinni
kynntu málflutning sinn á Hótel
Borg í gær og sagði Guðmundur
G. Kristinsson, formaður Miðborg-
arsamtakanna, m.a. við það tæki-
færi að hagsmunaaðilar í miðborg-
inni hefðu átt gott samstarf við
borgaryfirvöld frá síðastliðnu
hausti, m.a. við vinnu að deiliskipu-
lagi miðborgarinnar, og því hefði
fyrrnefnd ákvörðun borgarráðs
komið á óvart. „Við töldum að það
hefði náðst samkomulag um að
fresta öllum breytingum í miðborg-
inni þar til endanlega hefði verið
gengið frá deiliskipulaginu," sagði
hann, en í yfirlýsingu samtakanna
segir að ákvörðun borgarráðs um
lokun Hafnarstrætis setji samstarf
aðilanna í erfíða stöðu og sé í raun
skilaboð um að núverandi meiri-
hluti ætli að fara sínu fram án sam-
starfs eða samráðs við hagsmuna-
aðila í miðborginni.
Þá kemur fram í yfirlýsingunni
að ákvörðun borgarráðs um að setja
biðstöð SVR sunnan megin við
Hafnarstræti sé brot á núgildandi
deiliskipulagi, en þar sé gert ráð
fyrir að biðstöðin sé sömu megin
og vagnarnir. Rök núverandi meiri-
hluta fyrir lokun Hafnarstrætis
varðandi umferð gangandi yfir göt-
una byggist því á röngum forsend-
um.
Borgin setji sér
framtíðarskipulag
Einar L. Nielsen, eigandi verslun-
arinnar Rammagerðin, og Ágústína
Ingvarsdóttir, eigandi verslunarinn-
ar Veiðimaðurinn, segja að fyrri
reynsla sýni að lokun Hafnarstræt-
is til austurs valdi því að færri versli
í verslununum í kring. Þetta hafi
til að mynda komið berlega í ljós
þegar götunni var lokað í einn
mánuð í fyrrasumar á meðan á
framkvæmdum við biðstöð SVR í
Hafnarstrætí stóð.
Þá segir Ágústína að tími sé til
kominn að Reykjavíkurborg fari að
huga að framtíðarskipulagi í mið-
borginni, sem farið sé eftir, því eilíf-
ar breytingar á skipulagi borgarinn-
ar, fram og til baka, hafí einnig slæm
áhrif á rekstur fyrirtækja í borginni
þegar til lengri tíma sé litið.
FRÉTTIR
Þyrlan
sóttitvo
með höf-
uðáverka
Fjórðungsmótið á Kaldármelum
Dagrún með
gott forskot í
B-flokki
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
tvo menn með höfuðáverka í gær-
morgun og flutti þá á Sjúkrahús
Reykjavíkur. Hvorugur reyndist al-
varlega slasaður og eru þeir við
meðvitund í eftirliti á gjörgæslu.
Ástand þeirra er í jafnvægi.
Þyrlan var á leið á Eskifjörð til
að taka þátt í námskeiði í Slysa-
varnaskóla sjómanna og var nýlent
á Hornafirði til að taka eldsneyti
þegar tilkynning barst um að maður
hefði fallið sex metra ofan af vinnu-
palli við Skeiðarárbrú. Hann væri
með höfuðáverka og talinn alvarlega
slasaður. Virtist planki hafa brotnað
undan manninum þegar hann var
að hreinsa burt vinnupallinn.
Þyrlan sótti manninn og var á
leið til Reykjavíkur þegar önnur til-
kynning barst um að maður hefði
slasast á höfði við Nesjavelli eftir
að hafa fengið járnkarl í höfuðið.
Hafði hann verið að færa vír á spil-
tromlu í réttar skorður þegar svo
óheppilega vildi til. Þar sem sjúkling-
urinn frá Skeiðarársandi hafði ekki
reynst eins alvarlega slasaður og í
fyrstu var ætlað var hægt að setja
hann í sæti og taka hinn sjúklinginn
í börum. Var flogið með báða á
Sjúkrahús Reykjavíkur.
KEPPNI hófst á fjórðungsmótinu
á Kaldármelum með B-flokki gæð-
inga í gærmorgun. Eftir forkeppn-
ina stóð efst Dagrún frá Skjól-
brekku, hestamannafélaginu
Faxa, knapi Olil Amble með 8,66.
Annar varð Kveikur frá Ártúnum,
hestamannafélaginu Skugga,
knapi Alexander Hrafnkelsson,
með 8,43. í þriðja sæti varð Drómi
frá Hrappsstöðum, Snæfellingi,
knapi Vignir Jónasson, með 8,39
en Vignir tryggði sér sæti með
fjóra hesta í sextán hesta hópinn
sem mætir í fullnaðardóm í dag.
í ungmennaflokki varð efst for-
keppni Katrín Ólafsdóttir, Faxa, á
Hrafni á Höskuldsstöðum, með
8,32. Guðrún Elvarsdóttir, Hend-
ingu, varð önnur á Dropa frá Rauf-
arfelli, með 8,32 og íris H. Grettis-
dóttir, Glað, þriðja á Erni Orrasyni
frá Ásmundarstöðum, með 8,29. í
unglingaflokki varð í fyrsta sæti
Karen L. Marteinsdóttir, Dreyra,
á Manna frá Leirárgörðum, með
8,54. Sigurður I. Ámundason,
Skugga, varð annar á Torfa frá
Torfunesi, með 8,44 og Anna L.
Ásmundsdóttir, Dreyra, þriðja á
Tígli frá Skipanesi, 8,36. I barna-
flokki stóð efst eftir keppnina
Sara B. Bjarnadóttir, Dreyra, á
Strák frá Haukatungu, 8,40. Sóley
B. Baldursdóttir, Faxa, á varð
önnur á Frekju frá Eyri, með 8,32
og þriðji Emil Emilsson, Snæfell-
ingi, á Hörpu frá Ólafsvík, 8,31.
í dag hefst dagskrá klukkan
átta með fullnaðardómi á sextán
efstu B-flokksgæðingum en það
er sá fjöldi sem mætir í fullnaðar-
dóm í öllum flokkum. Næst koma
unglingarnir, þá ungmenni og
börn og endar á A-flokksgæðing-
um.
Undanrásir kappreiða hefjast
klukkan sautján, B-flokkur stóð-
hesta klukkan hálfátta og A-
flokks stóðhestar klukkustund síð-
ar og forkeppni í opinni töltkeppni
hefst klukkan hálftíu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar lendir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur með sjúklingana tvo.
7 6 skráð-
ir at-
vinnu-
lausir
„ÞAÐ ER auðvitað verið að
setja þessa menn beint á at-
vinnuleysisbætur,“ segir Jónas
Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, um
uppsagnir Granda hf. á 15 til
20 af sjómönnum fyrirtækis-
ins.
Að sögn Jónasar er atvinnu-
leysi sjómanna í Reykjavík
orðið töluvert. 76 hafi verið á
skrá fyrir og nú bætist heil
áhöfn við. „Við höfum haft
verulegar áhyggjur af þessu
máli varðandi Granda, því ef
við förum tvö ár aftur í tímann
er þetta þriðja áhöfnin sem fer
frá þeim. Það er svo sem ekk-
ert hægt að aðhafast í sjálfu
sér, en þetta er hrikaleg stað-
reynd.“
Aðspurður um atvinnuhorf-
ur segir hann að ástandið sé
ekki bjart. „Það er verið að
fækka skipum víðar en hér,
þannig að ég sé ekki að menn
fái nein störf til sjós.“
Andlát
JÓHANN G. MÖLLER
JÓHANN G. Möller,
fyrrverandi bæjarfull-
trúi á Siglufirði, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
hinn 25. júní sl., á
áttugasta aldursári.
Jóhann fæddist á
Siglufirði 27. maí 1918,
sonur hjónanna Christ-
ians L. Möller og Jónu
S. Rögnvaldsdóttur. Að
loknu gagnfræðaprófi
frá Menntaskólanum á
Akureyri 1934 starfaði
hann sem verkamaður
og síðar verkstjóri hjá
Síldarverksmiðjum rík-
isins. Hann sat í stjórn
SR 1959-71 og einnig í stjórn Lag-
metisiðjunnar Siglósíldar um skeið.
Hann var bæjarfulltrúi á Siglu-
firði fyrir Alþýðuflokkinn 1958-
1982, í bæjarráði 1962-74 og
1978-82 og forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar 1978-82. Hann sat í
fjölmörgum nefndum á vegum bæj-
arins og átti sæti í stjórn Lífeyris-
sjóðs starfsmanna Siglufjarðarkaup-
staðar um átta ára skeið.
Jóhann sat í stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga 1978-1982 og
var fulltrúi á fjórðungsþingum Norð-
lendinga í mörg ár.
Jóhann var í stjórn Verkamanna-
félagsins Þróttar 1957-63, ritari
V erkalýðsfélagsins
Vöku frá 1976 til 1994
og í trúnaðarmannar-
áði þess til æviloka.
Hann sat mörg þing
ASÍ, Verkamannasam-
bands íslands og Al-
þýðusambands Norð-
urlands. Þá var hann
og formaður Bygging-
arfélags verkamanna á
Siglufirði 1958-1974.
Jóhann var gerður að
heiðursfélaga verka-
lýðsfélagsins Vöku
1993. Hann var einnig
umboðsmaður Alþýðu-
blaðsins á Siglufirði
samfleytt í yfir hálfa öld.
Jóhann var meðal stofnenda
Knattspyrnufélags Siglufjarðar, for-
maður þess um árabil og auk þess
í stjórn Skíðafélags Siglufjarðar.
Hann var gerður að heiðursfélaga
KS 1992 og að heiðursfélaga Bridge-
félags Siglufjarðar 1991.
Árið 1983 var hann sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf sín að verkalýðs-, félags-
og sveitarstjórnarmálum.
Eftirlifandi eiginkona Jóhanns er
Helena Sigtryggsdóttir frá Hrísey.
Þau eignuðust sex börn en elsta
dóttir þeirra, Helga K. Möller, lést
árið 1992.
t
!
I
I
í
v
i
u