Morgunblaðið - 27.06.1997, Side 46

Morgunblaðið - 27.06.1997, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ég þarf hjálp við heima- Ég vona að þú kunnir að Kallaðu á mig ef þú þarft verkefnið mitt... Aftur? meta þetta ... einhvern timann að reima skóna þína... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Simi 5691100 • Símbréf 569 1329 Verður íþróttadeild sjónvarpsins okkar áróðurstæki tóbaksframleiðenda? Frá Jóni Ármanni Héðinssyni: MARGIR urðu undrandi þegar íþróttadeildin tók að sér að senda út formúlu eitt keppnina frá Món- akó. Eins og vel mátti sjá er þessi keppni kostuð að langmestu af Marlboro-tóbaksfyrirtækinu. Risa- borðar og skilti með merki þeirra voru aftur og aftur á skjánum og í langan tíma. Samtals var því áróðri rækilega komið á framfæri. Nú hafa mál mjög víða skipast þannig, að allar auglýsingar frá tóbaksframleiðendum eru horfnar þegar íþróttir eru annars vegar. Hins vegar bregður nú svo við að ríkisrekið sjónvarp tekur að sér þennan óþverraáróður og gerir meira að segja út á almenning með „bæklingi" og merki Marlboro er þar vel sýnt. Allt er þetta hið versta mál og deildinni til háðungar, svo ekki sé meria sagt. Alkunna er hve oft hefur komist upp um auka- greiðslur varðandi svona mál. Því er það krafa mín, að öll gögn séu lögð fram og útvarpsráð geri full- komlega grein fyrir fjármögnun vegna þessa áróðurs Marlboro. Það er hörð krafa mín að þessu verði þegar í stað hætt. Við, sem höfum greitt til útvarpsins í marga tugi ára, krefjumst þess að alls enginn áróður sé hafður uppi fyrir einn mesta skaðvald nútímans eða tóbakið. Það er eins og íþróttadeild- in viti ekki um íslensk lög og hvað er að gerast t.d. í Bandaríkjunum og Englandi varðandi áróður gegn reykingum. Nú liggur það fyrir að mjög oft hefur íþóttadeildin gert góða hluti og hefur hæfa menn, þess vegna er þetta því undarlegra. Drengir góðir, þið eruð menn að meiri að hætta við þennan þátt. JÓN ÁRMANN HÉÐINSSON, Birkigrun 59, Kópavogi. Þakkir til Einars Bollasonar Frá Arnari Eggerti Thoroddsen: ÉG VIL í þessu stutta sendibréfi koma á framfæri kæru þakklæti til Einars Bollasonar fyrir frábærar lýsingar á leikjum NBA körfubolt- ans. Ég tel mig mæla fyrir munn allra aðdáenda þessa flaggskips bandarískrar íþróttamenningar þegar ég segi að ef Einars Bollason- ar nyti ekki við í lýsingum á leikjum þessum þá væri betur heima setið en af stað farið. Einari hefur tekist með sínum skemmtilegu lýsingum og hnyttnu athugasemdum að hefja NBA körfuboltann til vegs og virð- ingar hér á íslandi. Lýsingar hans einkennast ennfremur af alfræði- orðabókarþekkingu á öllu er við- kemur þessari íþrótt, jafnframt sem þær leiftra af ástríðu gagn- vart íþróttinni og verður það til þess að maður hrífst ósjálfrátt með. Veit ég til þess að fólk sem á engan hátt er áhugasamt um íþróttir, hvað þá körfubolta, hefur vaknað til áhuga um þessa spenn- andi íþrótt fyrir tilstuðlan eldmóðs Einars. Ég vil svo nota tækifærið hér í endann og þakka Einari kærlega fyrir góð störf og vonum við áhugamenn um NBA körfu- boltann að þau störf megi endast vel og lengi. Heill sé þér Einar. Þú átt heið- ur skilinn. Guð blessi þig. ARNAREGGERTTHORODDSEN, Fjarðarási 26,110 Rvík. Besta liðið valið? Frá Hlöðver Reyni Benjamínssyni: MIKIÐ HEFUR verið rætt um frammistöðu íslenska landsliðsins í knattspyrnu í undankeppni HM undanfarið, þar sem uppskeran telst vera ansi rýr. Liðið hefur aðeins skrapað saman þremur stigum í sex leikjum og gert aðeins tvö mörk. í framhaldi af slælegu gengi liðsins mætti e.t.v. spyija nokkurra spurn- inga: „Hvers vegna hefur landsliðs- þjálfarinn ekki not fyrir leikmann (Gunnar Oddsson, Keflav.j), sem kosinn var besti leikmaður Islands- mótsins í fyrra, bæði af leikmönnum og blaðamönnum? Er það vegna þess að leikmennirnir og blaða- mennirnir hafa ekkert vit á knatt- spyrnu? Heldur kannski landsliðs- þjálfarinn að það sé bara tilviljun að liðið sem Gunnar stjórnar eins og herforingi nú, er með fullt hús stiga eftir 6 umferðir sem af er mótinu? Myndi hann kannski velja Gunnar liðið, ef hann væri atvinnu- maður í knattspyrnu á Grænhöfða- eyjum? Og hvað um alla hina góðu „íslensku" leikmennina, sem tilbún- ir eru að fórna sér í leikjunum?" HLÖÐVER REYNIR BENJAMÍNSSON, Miðvangi 67, Hafnarf. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.