Morgunblaðið - 27.06.1997, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.06.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FRETTIR FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 43 laust. En hann studdi mál sitt alltaf með tilvitnunum í bækur og rit sem hann taldi ábyggileg. Hann var mjög nákvæmur og vandvirkur eins og góðir efnafræðingar þurfa að vera og hann krafðist líka samskonar vinnubragða af öðrum. Ég bað Pál oft að lesa eitt og annað sem ég skrifaði um fiskveiðar, rannsóknir og málefni Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins. Þá gat ég treyst því að ekkert væri missagt í fræðunum. Ég sá Pál of sjaldan síðustu árin. En síðast þegar ég hitti hann var andinn hinn sami þótt líkaminn hefði látið á sjá. Ég kveð Pál Ólafsson með virðingu og votta hans nánustu samúð mína. Björn Dagbjartsson. Með Páli Ólafssyni er genginn einn af merkustu frumkvöðlum í efna- rannsóknum á íslandi. Hann var Vestfirðingur að ætt og ólst upp á ísafirði. Frá unga aldri kynntist Páll algengum sveitastörfum hjá_ afa sín- um og ömmu, þeim Páli Óiafssyni prófasti og Arndísi Pétursdóttur í Vatnsfirði og taldi Páll að sumardvöl- in hjá þeim heiðurshjónum hafi reynst honum gott veganesti. Strax á æskuárum var ljóst að Páll hafði miklar námsgáfur og var honum komið til mennta við Akureyrarskóla. Hann lauk svo stúdentsprófi bæði úr máladeild og stærðfræðideild. Hann hlaut stóran styrk til háskóla- náms í Kaupmannahöfn og lauk þar fyrstur íslendinga magisterprófi í líf- efnafræði með góðum vitnisburði. Ennfremur stundaði hann fram- haldsnám í lífefnafræði við Oxford- háskóla, vann við rannsóknir í fitu- efnafræði við Liverpool-háskóla og námsferð fór hann til Bandaríkjanna 1946-47. Á háskólaárunum vann Páll á sumrum við efnarannsóknir, bæði í Danmörku og hér á landi. Þar að auki stundaði hann um árabil nám í efnaverkfræði við bréfaskóla The Technological Institute of Great Britain. Páll var því ágætlega mennt- aður efnafræðingur og vel undir það búinn að taka að sér forstöðu Efna- rannsóknastofu Síldarverksmiðja rik- isins frá árinu 1938. Því starfí gegndi hann til ársins 1957, er hann og flöl- skylda hans fluttust til Reykjavíkur. Þar vann hann svo á rannsóknastofu Lýsis hf. 1957-1966, en þá réðst hann sem sérfræðingurtil Rannsóknastofn- unar fískiðnaðarins, þar sem hann starfaði sem deildarverkfræðingur frá 1976. Hann hélt þó áfram að vera verkfræðilegur ráðunautur hjá Lýsi hf. og Hydrol hf. um vinnslu, hreins- un og herslu lýsis. Páll lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1981. Eftir Pál liggur fjöldi ritsmíða, einkum í tengslum við rannsóknir hans í áranna rás og eftirlit með framleiðsluvörum í sjávarútvegi. Hann var sæmdur gullmerki Verk- fræðingafélags íslands árið 1984. Páll Ólafsson var rúmlega meðal- maður á hæð, myndarlegur á velli, sviphreinn og bauð af sér góðan þokka. Hann var hæglátur að eðlis- fari, lítið fyrir að láta á sér bera eða trana sér fram, en þeim mun traust- ari og áreiðanlegri í öllu þvi sem hann tók að sér. Hann hafði gott skopskyn og var skemmtilegur mað- ur að umgangast. Best mun hann þó sennilega hafa notið sín í fámenn- um hópi vina og skyldfólks. Páll var hamingjumaður í einkalífí sínu. Hann kynntist góðri og vel menntaðri konu, Björgu Hólmfríði Björnsdóttur, aðalgjaldkera og lækn- isdóttur frá Húsavík. Þau giftust árið 1944. Þau eignuðust tvö mann- vænleg börn, Sigríði Ásthildi meina- tækni og Ólaf rafeindaverkfræðing. Björg er smekkvís kona og snyrtileg og hið fallega heimili þeirra bar þess vott. Hjónaband Bjargar og Páls var ávallt mjög ástríkt og bar þar aldrei skugga á. Páli Ólafssyni efnafræðingi og fjölskyldu hans kynntist ég fyrst á Siglufírði fyrir meira en en fjörutíu árum, þegar við kona mín ásamt börnum okkar áttum þar heima um rúmlega tveggja ára skeið frá vori 1953 til hausts 1955. Ég vann þá að rannsóknum á_ árstíðabreytingum í hafinu norðan Íslands. Ég var þá ungur og óreyndur og leitaði oft til Páls, þegar mig vanhagaði um eitt- hvað sem snerti rannsóknir mínar og þáði af honum góð ráð. Hann var þá reyndur efnafræðingur og hafði verið forstöðumaður Efnarannsókna- stofu Síldarverksmiðja ríkisins í mörg ár. Hann var ávallt boðinn og búinn að liðsinna mér og traustari og ábyggilegri manni hef ég aldrei kynnst. Við urðum góðir vinir og sú vinátta hélst óbreytt meðan báðir lifðu. Björg og Páll voru mjög gestr- isin og samband fjölskyldna okkar var náið á árunum sem við bjuggum á Siglufirði. Æ síðan hefur haldist góð vinátta við þau mætu hjón. Ég mun ávallt minnast Páls Ólaf- sonar vinar míns með söknuði og virðingu. Ekkju hans og börnum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Unnsteinn Stefánsson. • Fleiri minningargreinar um Pál Ólafsson bíða birting- arogmunu birtast í blaðinu næstu daga. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÞORSTEINN SIGURÐSSON frá Blátindi, Vestmannaeyjum, sem andaðist fimmtudaginn 19. júní, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 28. júní kl. 14.00. Anna Jónsdóttir, Sigrún Þorsteindóttir, Sigurður Elíasson, Stefanía Þorsteinsdóttir, Viktor Helgason. t Okkar elskaði ELVARÞÓRODDSSON, Tunguvegi 5, Selfossi, sem lést af slysförum þann 22 júní, verður jarðsettur frá Selfosskirkju laugardaginn 28. júní kl. 15.30. Elín Tómasdóttir, Þóroddur Kristjánsson, Tómas Þóroddsson, Stefanía Þóra Jónsdóttir, Kristján Eldjárn Þóroddsson, Silja Hrund Einarsdóttir. Lokað Skrifstofur Flugfélagsins Atlanta ehf. verða lokaðar vegna jarðar- farar í dag, föstudaginn 27. júní frá kl. 14.00. Skógarteigur til minningar um Soffíu Jónsdóttur og Stein Stefánsson frá Neðri-Ási í Hjaltadal ÞANN 14. og 18. júní síðastliðinn voru gróðursettar 2.680 birkiplönt- ur í landi Neðri-Áss í Hjaltadal en sá atburður markar fyrsta skrefið í tilurð skógarteigs til minningar um Soffíu Jónsdóttur og Stein Stef- ánsson, fyrrum ábúendur í Neðra- Ási. Það eru afkomendur Soffíu og Steins sem að verkinu standa. í ár eru liðin 110 ár frá fæðingu Soffíu en hún fæddist 9. október 1887. Hún lést 13. febrúar 1969. Steinn fæddist 30. nóvember 1882 og lést 5. september 1954. Verðandi skógarteigur, sem er nálægt 5 ha að stærð, er í landi Erlings Garðarssonar, bónda í Neðra-Ási, sonar Svanhildar dóttur Steins og Soffíu. Þær birkiplöntur, sem gróðursettar voru að þessu sinni, eru upprunnar í Austurdal í Skagafírði, en fræi var safnað af 5 áhugaverðustu tijánum í Fögru- hlíð þar í dalnum. Fyrirhugað er að nota við skógræktina eingöngu trjáplöntur af skagfírskum upp- runa, með úrvali, kynbótum og klónun. Á næstu 5-10 árum er ætlunin að fullplanta í landið eftir því sem náttúruleg fræuppskera, kynbætur, klónun og aðrar aðstæð- ur gefa tilefni til. KÁRI Steinsson og Erling Garðarsson tóku hlé frá gróðursetning- unni og yljuðu sér á kaffisopa. Lögregla óskar eftir vitnum RANN SÓKNARDEILD lögregl- unnar í Reykjavík lýsir eftir vitnum að aðdraganda áreksturs sem varð sunnudaginn 1. júní sl., á gatna- mótum Miklubrautar og Grensás- vegar. Þar rákust saman Lada fólksbif- reið með skráningarnúmerinu R- 68723, sem ekið var suður Grensásveg eftir hægri akrein, og Volvo-fólksbifreið með númerinu R-4772, sem var ekið austur Mi- klubraut eftir hægri akrein. Öku- menn greinir á um stöðu umferðar- ljósa þegar áreksturinn varð. Féll af hjóli Rannsóknardeild lögreglunnar lýsir einnig eftir ökumanni sem átti aðild að umferðarslysi vestan við Njarðargötu miðvikudaginn 18. júní sl., um klukkan 16.20. Þar ók ung kona léttu bifhjóli austur Hringbraut eftir hægri ak- rein, en ökumaður á hvítum fólks- bíl, sennilega af gerðinni Saab, ók fram úr henni eftir vinstri akrein. Við bifreiðina var tengd aftaní- kerra sem slóst utan í hjól ungu konunnar með þeim afleiðingum að hún missti vald á ökutækinu og féll í götuna. Hún hlaut meiðsl og einnig skemmdist hjólið. Ökumaður bíls- ins hélt áfram ferð sinni eftir að atvikið átti sér stað. Lögreglan beinir þeim vinsamlegu tilmælum til hans að gefa sig fram við lög- reglu og gefa skýrslu um atburð- inn. LEIÐRÉTT AKOplast hf. ÓNÁKVÆMNI gætti í frétt Morg- unblaðsins í gær um verðlaunaaf- hendingu í verkefninu „Útflutn- ingsaukning og hagvöxtur" þegar AKOplast var sagt vera dótturfyr- irtæki Plastprents hf. en Plast- prent á helming hlutafjár í AKO- plasti. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Jarðhitagrein í GREIN um jarðhita í Tyrklandi, sem birtist í viðskiptablaði í gær, var ranglega sagt að dr. Hrefna Kristmannsdóttir væri deildarstjóri hjá Landsvirkjun. Hið rétta er að hún er deildarstjóri hjá Orkustofn- un. Hrefna er beðin velvirðingar á þessu ranghermi. Vinningaskrá Kr. 2.000.000 8. útdráttur 26. júní 1997. íbúðavinningur Kr, 4.000.000 (tvðfaldur) 14120 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200,000 (tvöfaldur) 21700 23462 33448 77329 Kr. 50.000 Ferðavinningur 2400 13512 27870 39490 64434 76442 3908 17407 32263 55695 65799 77544 Kr. 10.000 Húsbúnaðarvinningur 623 13082 23482 31576 38623 52941 64248 71200 1081 13175 25485 31845 40065 53478 64691 72224 2519 15444 26451 32662 40712 53815 65191 74982 3140 17084 28278 33116 41000 54267 65207 75233 3411 17234 28418 33253 41178 55377 65760 75605 5124 17473 28516 34538 41923 58972 66833 76150 5240 17522 28740 35418 46472 59993 67266 76171 8420 19338 29066 37088 48908 60783 67719 76593 8658 19352 29556 37554 49012 61434 67976 76881 10976 20458 30066 37571 49056 61676 69195 11021 20537 31193 37672 51115 62054 69851 12500 22437 31244 37719 51763 62244 70129 12502 23375 31334 38118 52558 63816 71193 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 517 10011 18846 29511 39423 47040 57231 71381 646 10185 19275 30203 40076 47135 58344 71472 660 10244 19662 30666 40806 47195 58419 71677 800 10314 20211 30714 41186 47704 58485 71694 1240 10352 20379 30740 41435 48110 58696 71766 2049 10420 21196 31237 41737 49597 59554 74489 2310 10779 21464 31267 41754 51031 59728 74972 2446 10862 21761 31598 41771 51064 59943 74985 3127 11084 22288 31860 41776 51267 60588 74993 4072 11231 22809 32901 41792 51427 60680 75340 4246 11721 22846 32915 41794 51834 61146 75745 4870 11727 23096 32948 42209 52087 61494 75853 5709 12346 23589 33054 42471 53078 62233 76386 5789 12603 23791 33206 42639 53337 62328 76683 5863 13387 24061 33393 42708 53449 62398 77122 5893 13601 24652 34473 42864 53625 63021 77192 6504 14015 24668 34748 43240 53750 63102 77292 6608 14315 26032 35498 43687 53989 64389 77382 7052 14548 26033 35532 43761 54257 64795 77953 7060 15343 26182 35550 44168 54353 65444 78051 7170 15412 26580 35578 44179 54438 65508 78266 8007 15691 26924 35715 44401 54503 66458 78950 8244 16184 27028 35774 44710 54532 66518 79031 8525 16190 27352 36533 44944 54574 67188 79154 8623 16575 27563 36890 45128 54674 67522 79264 8778 16625 27980 37330 45472 54850 67586 79633 8879 16642 28166 37379 45652 55153 68048 8929 16833 28219 37510 45702 56268 68518 9072 17584 28534 37667 45853 56287 70127 9385 18036 28634 37956 46001 56599 70404 9539 18124 29177 38309 46318 56704 70542 9979 18223 29373 39309 46639 56705 70755 Næsti útdráttur fer fmm 10. júlí 1997 Hcimtsífta á Intcrneti: Http://www.itn.is/das/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.