Morgunblaðið - 27.06.1997, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
h
Í
FRETTIR
BRIDS
Montccatini, Italíu
EVROPUMOTI
SVEITAKEPPNI
Evrópumótið í sveitakeppni er
haldið i Montecatini Terme á
Ítalíu, dagana 14.-29. júní.
ísland tekur þátt í opnum flokki
og kvennaflokki.
Tromphundarnir
voru ekki eins
verðlausir og sýndist
ÍSLENSKA liðið í opna flokkn-
um lét slæmt tap gegn Spáni á
miðvikudagskvöld ekkert á sig fá
og vann góðan sigur á Króatíu í
29. umferð í gærmorgun, 23-7.
Spilin í leiknum virtust ekki bjóða
upp á mikil tilþrif, en íslensku
spilararnir, einkum þó Guðmund-
ur Páll Arnarson og Þorlákur
Jónsson, náðu að nýta tækifærin
sem buðust. Þeir Guðmundur og
Þorlákur höfðu heppnina með sér
í þessu spili:
Austur gefur, allir á hættu
Norður
♦ 74
♦ D86
♦ 62
♦ ÁG10752
Vestur Austur
♦ D10532 ♦ G
¥754 ¥ G103
♦ G7 ♦ 1098543
♦ 983 ♦ KD4
Suður
♦ ÁK986
¥ ÁD92
♦ ÁKD
♦ 6
ur spilaði tígli, sem Guðmundur
drap með kóng, og spilaði laufi á
ás og trompaði lauf heim í þeirri
von að KD kæmi niður í laufinu.
En svo var ekki og spilið leit nú
hálf vonleysislega út.
En það var einn örlítill mögu-
ieiki eftir enn. Guðmundur Páll
spilaði tíguldrottningu og vestur
féll beint í gildruna. Tromphund-
arnir hans virtust verðlitlir og
ekkert betra við þá að gera en
trompa tökuslagi sagnhafa. Vest-
ur trompaði því tíguldrottninguna
en þá var spilið skyndilega unnið.
Guðmundur Páll yfirtrompaði,
trompaði lauf með ás, tók hjarta-
drottningu og spilaði hjarta á
kóng í blindum þar sem laufsla-
girnir biðu.
Dýrt dobl
A stórum bridsmótum eins og
Evrópumótinu má í öllum hornum
heyra spilara segja hver öðrum
hryllingssögur af eigin mistökum
og annarra. Ein sú mergjaðasta,
sem heyrst hefur í Montecatini
er eftirfarandi af frændum okkar
Svíum.
Svíar voru að keppa við Þjóð-
veija og fyrri hálfleikur hafði
ekki gengið sérlega vel. Og um
miðjan síðari hálfleikinn kom
þetta spil upp: Norður gefur,
enginn á hættu.
Norður
♦ -
¥ ÁKD103
♦ Á1097
♦ KD76
Vestur Austur
♦ ÁK10632 ♦ D98
¥ 62 ¥ G75
♦ DG643 ♦ K852
♦ -- ♦ G108
Suður
♦ G754
¥984
♦ --
♦ Á95432
Það vinnast 7 lauf í NS en leið-
in þangað er ekki greið og við
annað borðið lentu Svíarnir Björn
Fallenius og Mats Nilsland í slysi.
Nilsland opnaði á 1 hjarta með
norðurspilin, Fallenius sagði 2
hjörtu í suður og Tomasz Gotard
í vestur stökk í 4 spaða. Þá dobl-
aði Nilsland til að sýna góð spil
og Fallenius passaði. Til að bæta
gráu ofan á svartj bytjaði Nils-
iand á að spila ÁKD í hjarta,
Gotard trompaði, tók trompin
með svíningu gegnum suður og
spilaði tígli og Nilsland stakk upp
ás. Slétt staðið og 590 til Þjóð-
veija.
Við hitt borðið var sagnserían
ótrúleg, þar sem Peter Fredin og
Magnus Eriksson sátu AV og
Wolfgang Rath og Michael
Tomski NS:
Vestur Norður Austur Suður
PF WR ME MT
1 hjarta pass 1 spaði
2 spaðar 4 spaðar! pass pass!!
dobl!!! 4 grönd pass 5 lauf
pass 6 Iauf pass 7 lauf!!
Við annað borðið spiluðu þau
Nikica Sver og Pavo Marinkovic
3 grönd í NS og fengu 11 slagi.
En við hitt borðið komust Guð-
mundur Páll og Þorlákur alla leið
í 6 hjörtu í NS.
Vestur spilaði út tígli sem Guð-
mundur Páll tók með ás. Það lá
beinast við að reyna að fría spað-
ann, svo Guðmundur spilaði ás
og kóng í spaða en austur tromp-
aði og útlitið var ekki gott. Aust-
GUÐMUNDUR Páll Arnarson fékk hjálp andstæðinganna
þegar hann vann slemmu í leiknum gegn Króatíu í gær.
Morgunblaðið/GSH
Undirritaður hefur sjaldan ver-
ið jafn óspar á upphrópunarmerk-
in í sagnseríu á prenti. 2 spaðai'
Fredins voru eðlilegir, þrátt fyrir
spaðasögn suðurs, og norður var
því að reyna að sýna spaðaeyðu
með stökkinu í 4 spaða. Suður
var ekki með á þeim nótum og
nú gat Fredin passað niður 4
spaða. En hann hélt að suður
hefði verið að reyna að fæla AV
frá geimi með því að blekkisegja
1 spaða, og NS væru nú komnir
í vandræði. Hann doblaði því og
horfði svo á andstæðingana renna
sér í óhnekkjandi alslemmu. Þetta
spil kostaði Svíana 19 impa og
leikurinn tapaðist 10-20.
Islendingar græddu á þessu
spili í leiknum við Hollendinga.
Við annað borðið spiluðu Hollend-
ingar 5 hjörtu dobluð og unnu
með yfirslag, 750 til Hollands.
Við hitt borðið spiluðu íslendingar
6 lauf og fengu 940 fyrir og 5
impa.
Guðm. Sv. Hermannsson
I
1
I
I
i
í.
i
■!
I
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. júlí 1997 er 25. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 25 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 582,30
Vaxtamiði með 10.000 kr. skírteini = kr. 1.164,60
Vaxtamiði með 100.000 kr. skírteini = kr. 11.646,00
Hinn 10. júlí 1997 er 23. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 23 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.205,30
Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1997 til 10. júlí 1997 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
lnnlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1997.
Reykjavík, 21. júní 1997
SEÐLABANKÍ ÍSLANDS
Forstjóri íslenskrar erf ðagreiningar
Viðkvæmar persónulegar
upplýsingar ekki skráðar
KÁRI Stefánsson, forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar, segir að það sé ekki
rétt að fyrirtækið hafi í hyggju skrá
upplýsingar um blóðforeldra ætt-
leiddra barna né aðrar viðkvæmar
persónulegar upplýsingar um fólk,
eins og skilja hafí mátt á viðtali sem
birtist í Morgunblaðinu í gær við
Friðrik Skúlason, en þessir tveir aðil-
ar hafa tekið upp samyinnu um
skráningu á ættum ailra íslendinga. n
Kári segir að um misskilning sé
að ræða. Aldrei hafi staðið til að
skrá viðkvæmar persónulegar upp- Q
lýsingar enda sé það bannað sam-
kvæmt lögum. Eingöngu sé um að
ræða skráningu á ættfræðiupplýs-
ingum.
Andlát
ÞORÐUR
KRISTLEIFSSON
VIÐ frágang á andlátsfrétt um
Þórð Kristleifsson, menntaskóla-
kennara og söngstjóra, sem birtist
í Morgunblaðinu í gær, urðu þau
leiðu mistök að hluti fréttarinnar
féll út. Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum og birtir
fréttina á ný.
Þórður lést 24. júní, 104 ára að
aldri. Hann fæddist á Uppsölum í
Hálsasveit en ólst að mestu leyti
upp á Stóra-Kroppi, en foreldrar
hans fluttu þangað þegar hann var
fjögurra ára gamall.
Þórður var síðan við nám í skóla
sr. Ólafs í Hjarðarholti veturna
1913-1915 og _ við söngnám í
Þýskalandi og Ítalíu 1920-1927.
Næstu þrjú árin var hann stunda-
kennari í Reykjavík, en gerðist síð-
an kennari á Laugarvatni. Þar að
auki þjálfaði hann kóra víðs vegar
i:
i
um landið og gaf m.a. út söngva-
safnið Ljóð og lög. Starf hans að
söngmálum hafði mikil áhrif á al-
þýðusöng á íslandi.
Þórður Kristleifsson kenndi
þýsku í menntaskóla um árabil.
Hann var nemendum sínum minn-
isstæður sem mikilhæfur maður
og kraftmikill kennari.
Þórður var sonur Kristleifs Þor-
steinssonar á Stóra-Kroppi, fræði-
mannsins alkunna. Hann hvatti
föður sinn til starfa og gaf út rit
hans, sem nú eru meðal merkustu
heimilda um líf og störf Borgfirð-
inga seinni hluta 19. aldar og fyrri
hluta þeirrar tuttugustu.
Þórður var kvæntur Guðrúnu
Eyþórsdóttur, en hún lést árið
1983. Síðustu árin dvaldi Þórður
Kristleifsson að Droplaugarstöðum
í Reykjavík.
l
L
i
'
t:
j