Morgunblaðið - 27.06.1997, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
LISTIR
MÖRÓUNBLAÐIÐ
Saga Ríkisútvarpsins
Fyrstu ein-
tökin afhent
Morgunblaðið/Þorkell
CHRIS Stott skáldar í tré á sýningxi trérennismiða.
Skáldað í tré
ÚTVARP Reykjavik nefnist bók eft-
ir Gunnar Stefánsson þar sem rakin
er saga stofnunarinnar í máli og
myndum frá upphafi til ársins 1960.
Bókin er rituð á vegum Ríkisútvarps-
ins en útgefandi er Sögufélag.
Ritnefnd skipuðu Andrés Bjöms-
son, fyrrverandi útvarpsstjóri, Pétur
Guðfinnsson útvarpsstjóri og Jón
Þórarinsson tónskáld. Á frétta-
mannafundi í gær voru fyrstu eintök-
in afhent ritnefndinni og gestum, en
þetta er jafnframt fyrra bindi bókar-
innar. Heimir Steinsson, fyrrverandi
útvarpsstjóri, stóð fyrir því á upp-
hafsárum sínum í stóli útvarpsstjóra
að láta rita sögu Ríkisútvarpsins og
sagði hann að sér hefði komið á
óvart að sagan hefði aldrei verið
fest á blöð og einnig að ekki væri
neitt bókasafn til í Ríkisútvarpinu.
í bókinni er sagt frá aðdraganda
og upphafi útvarps á íslandi og
hvernig stofnunin festist í sessi. Þá
er fjallað um pólitísk átök um út-
varpið og hljómsveitarmál og þá er
fátt eitt upptalið.
/ bókinni er hátt á annað hundrað
mynda og er blaðsíðufjöldi 420.
Prentsmiðjan Oddi sá um vinnslu
hennar og Halldór Þorsteinsson
hannaði kápu.
SÝNING á verkum trérenni-
smiða er nefnist Skáldað í tré,
stendur nú yfir í húsi Land-
græðslusjóðs. Alls eiga 19
rennismiðir rúmlega 200 verk
á sýningunni, sem jafnframt er
sölusýning og gestur sýningar-
innar er Chris Stott frá Eng-
landi. Trérennismiðir stofnuðu
með sér félag fyrir þremur
árum og fyrir tveimur árum var
haldin fyrsta handverkssýning-
in þar sem eingöngu var notað-
ur íslenskur smíðaviður. Þá
hvatti félag trérennismiða til
stofnunar Viðarmiðlunar Skóg-
ræktarinnar í fyrra til að leggja
meiri áherslu á þennan þátt
skógræktar og skógarnytja.
Félagið færði Viðarmiðlun
Skógræktarinnar Grenisvepp
að gjöf eftir Kristján Heiðberg
á sérstakri kynningu á fimmtu-
daginn og að loknum kaffiveit-
ingum brá Chris Stott sér á
rennibekkinn og sýndi gestum
VASI úr Hlyn eftir Jírislján
Heiðberg.
nokkrar aðferðir við renni-
smíði.
Sýningunni lýkur 29. júní.
Morgunblaðið/Þorkell
FJÓRIR útvarpssljórar samankomnir með hið nýja rit ásamt höf-
undi. Frá vinstri: Andrés Björnsson, Markús Örn Antonsson og
Heimir Steinsson, allir fyrrverandi útvarpssljórar, Pétur Guðfinns-
son útvarpsstjóri og Gunnar Stefánsson höfundur bókarinnar.
Draumurinn um stóra sinfóníuhljómsveit
TONLIST
Háskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Rakhmanínov
og Mahler. Einleikari: Richard Simm.
Stjómandi: Guðmundur Óli Gunnars-
son. Fimmtudagurinn 26. júní, 1997.
LÍKLEGA verður seint sett á
laggimar 100-120 manna sinfóníu-
hljómsveit, því mörgum þykir enn
nóg um að hér starfi 60-70 manna
sveit. Sú aðferð að slá saman
Sinfóníuhljómsveit íslands og
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,
gefur þeirri hugmynd byr undir
báða vængi, að stofna megi til stór-
tónleika af og til, með því að kalla
til starfa allt verkfært fólk við flutn-
ing meiriháttar tónverka. Þetta
gerði Paul Zukofsky og meðal ann-
ars flutti hann, með sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar, Titan sinfóníuna,
eftir Mahler, sem nú var á efnis-
skránni.
Tónleikarnir hófust á Píanókon-
sert nr. 2, eftir Sergej Rakhman-
inov. Konsert þessi er eftirlætisverk
margra píanóleikara, leikandi
skemmtilega samið fyrir píanóið en
bæði formið, úrvinnsla stefja og
samspil píanósins og hljómsveitar-
innar ákaflega einfalt. Það sem
þessi konsert hefur, umfram þann
þriðja (1909), sem er meistaraverk,
eru syngjandi falleg stefín, sem all-
ir kunna. Stefræn úrvinnsla er ekki
margbrotin og píanóið er oft undir-
leikari hljómsveitarinnar, eins og
t.d. í kynningu upphafsstefsins í
1. þætti. Þar af leiðir að útfærslan
fyrir píanóið er að miklu leyti brotn-
ir hljómar og reyndar er sú vinnuað-
ferð nær allsráðandi, t.d. fyrir
„vinstri höndina". Á móti brotnum
hljómum koma hamrandi hljóm-
klasar en þrátt fyrir tónefnislega
einhæfni er konsertinn glæsilegur
í hljóman. Richard Simm lék verkið
mjög vel og af öryggi, nokkuð blátt
áfram, sérlega í fyrsta þættinum.
Hægi þátturinn var fallega leikinn
og í candesunum sýndi Simm, að
hann er leikinn píanisti. Þrátt fyrir
ágætan leik vantaði þó á köflum
reisnina og kraftinn, til að halda í
við hljómsveitina, sérstaklega
„martellato" kraftinn í „maestoso“
niðurlagi konsertsins. Þama hefði
mátt stilla betur saman hljómsveit
og einleikara, því í raun er það
samspil hljómaskrautsins í píanóinu
og laglínunnar í strengjunum, sem
skiptir máli en blásturshljóðfærin
mynda aðeins hinn hljómræna bak-
grunn.
Titan sinfónían eftir Gustav
Mahler, sú nr. 1 , dregur undirtitil
sinn af nafni á skáldsögu eftir Jean
Paul Richter. Titan er dregið af
nafni á grísku risunum, sem nefnd-
ir voru Titanar og voru afkvæmi
Úranusar og Gaju (jarðarinnar)
Seifur, hálfbróðir þeirra sigraði Tit-
ana í orrustu og voru þeir fjötraðir
og keyrðir niður í Tartaros, ógnar-
djúp jarðarinnar og eins og Stein-
grímur Thorsteinsson þýðir söguna
„liggja þeir þar umkringdir eir-
veggjum og þreföldu náttmyrkri".
Titan sinfónían fjallar ekki um þetta
efni, en á þó nokkra samsvörun,
því margt í verki Mahlers er í raun
hugleiðing um tilveruna og dauð-
ann.
Sagan af Titönum er og túlkuð
sem barátta hinna ótömdu náttúru-
afla, sem Seifur hemur. í verki
Mahlers blandast saman barnaleg
gamansemi, fallegur leikur og smá-
legur ótti, sem síðar átti eftir að
plaga tónskáldið. Titan nafnið er
því aðeins notað vegna stærðar
verksins.
Guðmundur Óli Gunnarsson
stjórnaði af öryggi og mótaði t.d.
þriðja kaflann mjög fallega. í heild
gætti hann þess að ofgera aldrei í
hraða og hélt vel utan um verkið.
Guðmundur hefur á undanförnum
árum sótt sér reynslu og unnið vel,
bæði fyrir norðan og með ýmsum
hópum sunnan heiða og er þessi
vinna að skila sér, svo að það fer
að hylla undir, að við íslendingar
eignumst alvöru hljómsveitarstjóra.
Tónleikamir marka tímamót, er fá
menn til að horfa til framtíðar,
bæði varðandi hljómsveitarstjórann
Guðmund Óla Gunnarsson og að
stofnað verði til flutnings stórverka,
með fullskipaðri stórri sinfóníu-
hljómsveit af og til.
Jón Ásgeirsson.
Stykkishólmskirkja.
Tónleikar
feðgina
SUMARTÓNLEIKAR í Stykk-
ishólmskirkju á morgun, laug-
ardag, eru þeir fjórðu í tón-
leikaröðinni. Jósep Blöndal, yf-
irlæknir við st. Franciskus-
sjúkrahúsið í Stykkishólmi hef-
ur veg og vanda af þessum
tónleikum, en þeir eru haldnir
í tilefni af fímmtíu ára afmæli
hans. Með honum leika þijú af
börnum hans, þ.e. Björn,
kontrabassaleikari, Smári,
trommuleikari og Sigurbjörg
María, píanóleikari. Sjálfur
leikur Jósep á píanó. Auk þess
taka þátt í tónleikunum Daði
Þór Einarsson, skólastjóri Tón-
listarskóla Stykkishólms er
leikur á trompet og básúnu,
sonur hans, Kristjón, leikur á
trompet, Jón Svanur Pétursson
leikur á víbrafón og Hólmgeir
Sturla Þórsteinsson leikur á
píanó.
Efnisskráin verður blönduð
klassískri og léttri tónlist.
Aðgangur er ókeypis en fólki
er gefinn kostur á að styrkja
hljóðfærakaupasjóð Tónlistar-
skóla Stykkishólms.
Gítarleikur
í Húsafells-
kirkju
GÍTARLEIKARINN Símon H.
Ivarsson heldur tónleika á
morgun, laugardag, kl. 17, í
Húsafells-
kirkju. Á tón-
leikunum leik-
ur Símon
flamenco-
tónlist og mun
hann kynna
einkenni lag-
anna fyrir
áheyrendum.
Flamenco-
lögin sem
Símon leikur eru m.a. hinn til-
þrifaríki Bulerias, hið austræna
Fandango, tregablandið Sole-
ares og Colombian, ríkulega
litað af suður-amerískum
áhrifum, segir í kynningu.
Sýningarlok
hjá Jóni Inga
í Eden
JÓN Ingi Sigurmundsson opn-
aði málverkasýningu í Eden,
Hveragerði, 16. júní sl. Sýning-
unni lýkur sunnudaginn 29.
júní.
Sigrid
Valtingojer
sýnirí Japan
SIGRID Valtingojer, grafík-
listakona, opnar einkasýningu
1. júlí nk. í boði í Gallerís Heian
í Kyoto, Japan, en galleríið sér-
hæfír sig í sýningum á grafík.
Sigrid mun sýna 22 verk frá
sl. 10 árum; nýjustu tréristurn-
ar úr röðinni „Mantra“ og
myndir (ætingar) úr röðinni
„Landslag". Sum þessara verka
hafa þegar hlotið verðlaun á
grafíkbiennölum í Japan, segir
í kynningu.
Gallerí Heian er staðsett í
hjarta borgarinnar.
Símon H.
ívarsson