Morgunblaðið - 27.06.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.06.1997, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Lúpínuiðnaður á Suðurlandi II. Undanfarin þrjú ár höfum við Baldur Líndal efnaverkfræð- ingur, sem lést fyrir skömmu, unnið að undirbúningi verk- smiðju sem ynni úr lúpínuhráefni etanól, fóður, lífrænan áburð og beiskjuefni. Lúpínan er belgjurt og eru til mörg af- brigði af henni. Elstu minjar um nýtingu lúpínu eru frá 4500 f. Kr. frá Suður-Amer- íku, en þar fundust fræ í indíánagröf. Til eru veggmyndir frá því um 2000 f.Kr sem sýna lúpínu- plöntur bæði frá Miðjarðarhafinu og svo S-Ameríku. Fræ lúpínunnar eru afar næringarmikil, ámóta og sojabaunir og væri lúpínan aðal- fæðujurt mannkynsins ef ekki kæmu beiskjuefnin til. Beiskjuefnin eru alkaloidar og notar lúpínan þau til að veijast skordýrum og svepp- um. Tekist hefur að rækta sæta lúpínu en þá urðu mikil vandamál með sveppasýkingar. Bindur mikinn koltvísýring íslenska lúpínan er ættuð frá Alaska og barst hingað til landsins í eldspýtnastokk sem Hákon Bjarnason, fyrrverandi skóg- ræktarstjóri, tíndi í. Hún er að mörgu leyti sérstæð fyrir það að hún er t.d. margær. Hún safnar i forðarót á sumrin, sem hún notar svo á næsta ári til að koma sér upp. Þegar rótin er þrotin í júlíbyijun má slá hana, ef menn vilja losa sig við hana og þá deyr hún. Hún kemur upp með miklum krafti þegar í maí og ber fræ frá miðjum júlí út ág- úst. Það skiptir miklu máli hvenær frætekjan fer fram upp á það að fá sem mesta uppskeru. Við frætök- una er lúpínan slegin, en aðeins fræin hirt og ljárinn skilinn eftir. í Evrópu er lúpínan aðallega ræktuð vegna fræjanna og er þá um ein- æra lúpínu að ræða. Jurtin er plægð niður í jörðina. Hér hefur lúpínan verið notuð í landgræðsluskyni, enda vex hún við skilyrði þar sem engin önnur planta þrífst. Það myndast mikið köfnunarefni út frá rótum lúpínunnar, en hún bindur líka mikinn koltvísýring í jörðu, eða um 7 tonn á ári á hektara lúpínuak- urs. Það togast á mjög andstæð og sterk sjónarmið með notkun lúpín- unnar, en henni er auðvelt að halda í skefjum og þegar hún er búin að gegna sínu hlutverki þá er hægt að rækta t.d. skóg þar sem hann gat ekki áður þrifist. Etanólframleiðsla Upphaflega var það hugmynd okkar Baldurs að geija úrgangs- pappír frá Hollandi og eima með jarðgufu frá Krýsuvík. Úrgangs- pappírinn hækkaði hins vegar í verði svo það var ekki hægt. Þá var farið að leita eftir öðrum kolefnis- ríkum massa og beindist athyglin að lúpínunni. Mikil þróun hefur verið í geijunartækni á lífmassa og er núna t.d. í byggingu í Bandaríkj- unum verksmiðja sem nýtir úrgang af maísökrum og á að framleiða fóður og etanól. Lúpínuakur er ódýr í ræktun. Aðalkostnaðurinn er frækostnaður, en hann væri hægt að lækka veru- lega. Ræktunarkostnaður á hektara gæti verið um 15.000 kr. Hver hekt- ari gæti gefið af sér um 4 tonn af þurrefni á 20 ára tímabili. Upp- skerutíminn væri frá miðjum águst til loka októbers. Talið hefur verið að etanólverk- smiðjur þurfi að vera mjög stórar til að vera hagkvæmar. I okkar athugunum þá höfum við talið að Ásgeir Leifsson. LÍNURITIÐ sýnir áætlaðan bindingarhraða kolefnis í jarðvegi I lúpínusáningu á örfoka landi. Línuritið birtist í grein eftir Þor- berg Hjalta Jónsson og Úlf Óskarsson, í Skógræktarritinu 1996, og er birt með góðfúslegu leyfi höfunda. afköst hennar þurfi að vera um 50.000 tonn á ári, eða rúmlega 60.000.000 1. Á Suðurlandi er mikið af eyði- mörkum sem samt eru véltækt land. Samkvæmt mati sem við höfum fengið, þá er flatarmál véltækra eyðimarka á Suðurlandi frá Þor- lákshöfn til Mýrdalssands um 60.000 ha og sandamir undir Vatnajökli gefa um 40.000 ha til viðbótar. Um 4 kg þarf af þurrefni lúpínu til að framleiða 1 1 af etanóli, þ.a. 60.000 ha geta gefið 50.000 tonn. Ef etanólið er notað til íblöndunar við bensín þá verða tekin úr umferð um 3,5 kg af koltvísýringi fyrir hvern lítra af etanóli miðað við að bensíni sé brennt. Hver hektari Lúpínuakurs heftir þannig um 10 tonn af koltvísýringi og 60.000 ha þannig 600.000 tonn. Þetta er meira en samsvarar þeirri aukningu sem er að eiga sér stað og þau áform sem eru á leiðinni vegna orkufrekrar stóriðju. Þetta er ódýrasta koltvísýringshefting í heiminum af því hún kostar minna en ekkert. Afurðir verksmiðjunnar væntan- lega borga heildarkostnað við rækt- un og flutning hráefnis, gufuöflun, stofn- og rekstrarkostnað verk- smiðjunnar. Beiskjuefni úr lúpínu Þýskt fyrirtæki hefur stundað þróunarstarf á lúpínuafurðum í 20 ár. Það hefur fullhannað verksmiðju Hveragerði - Fóst- bræðrasaga hin nýja ÓHÆTT er að segja að töluverð- ir skruðningar hafi átt sér stað í bæjarmálapólitík Hveragerðis á yfirstandandi kjörtímabili. Ástæða þess að hin undarlegasta staða hefur komið upp í bæjarstjórn er tilhneiging tveggja bæjarráðs- manna, sem voru í meirihluta, að fara fram úr sjálfum sér. Það er með ólíkindum að slíkt skuli mögu- Iegt, en þessum tveimur töfra- mönnum tókst þó íþróttaafrekið í bili með því að mynda meirihluta bæjarstjórnar með meirihluta Sjálf- stæðisflokksins og minnihluta vinstra kvalræðisins. Síðan hafa meirihlutamenn innan minnihlut- ans reynt að stofna nýjan Sjálf- stæðisflokk í Hveragerði, og veit enginn hvort hann á að þjóna stofn- MikicS úrvfll df fallegum rúmfátnaði endunum einum eða leggja línurnar í lands- málapólitíkinni. Svikið loforð Víst er um það, að þær lítt skiljanlegu hræringar, sem átt hafa sér stað i bæjar- málapólitík Hvera- gerðis eru af manna- völdum, en hvorki jarðskjálftum að kenna eða yfirnáttúru- legum spennubreyt- ingum. Þegar Einar Mathiesen var ráðinn bæjarstjóri var það loforð tekið af honum að hann blandaði sér ekki í bæjar- málapólitíkina. Reyndar þá og líka fyrir kosningar var sérstaklega um það talað í hópi okkar sjálfstæðis- SkóUvOrðustig 21 Sími 551 4050 Reykiavtk. NY UNDIR- FATALÍNA SUMARTILBOÐ Gluggatjaldaefni 20% afsláttur ttL Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD, FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333. manna, að kjörnir full- trúar í bæjarstjórn réðu ferðinni í öllum ákvörðunum. Bæjar- stjórinn yrði starfs- maður okkar og ekki yrðu viðhöfð sömu vinnubrögð og á kjör- tímabilinu á undan, þar sem þáverandi bæjarstjóri réð ferð- inni. Fljótlega eftir að Einar tók við bæjar- stjórastarfinu fór að bera á því að hann Janus blandaði sér í bæjar- Bjarnason málapólitíkina og kom strax til árekstra milli þáverandi forseta bæjarstjómar, og Einars. Var því ljóst að bæjarstjór- inn ætlaði að hafa að engu þau ákvæði sem hann var ráðinn eftir. Til að tryggja enn frekar framgang sinna mála við að bijóta ráðningar- samkomulagið fékk hann bæjar- ráðsmennina Hafstein Bjamason og Gísla Pál Pálsson til liðs við sig við að sniðganga forseta bæjarstjómar. Ráðabruggið Þeir þremenningar, sem lögðust á móti oddvita sjálfstæðismanna, ákváðu að láta btjóta á mannaráðn- ingum, þar sem þeir vissu að hann hafði stífar meiningar í þeim efn- um. I upphafi árs 1996 voru þeir þremenningar byijaðir að undirbúa að koma forseta bæjarstjórnar frá. Um það era til vitnisburðir. Mér hefur borist vitneskja um að um Jónsmessuleytið í fyrra bauð Gísli Páll Pálsson til samkvæmis á heim- ili sínu. Þar voru flestir þeirra sem vora á framboðslista sjálfstæðis- manna við síðustu bæjarstjórnar- kosningar. Þegar leið á kvöldið losnaði um málbeinið hjá Hafsteini Bjarnasyni. Vitni urðu að því að hann orðaði þá að nú þyrftu þeir félagar ekki lengur á forseta bæjar- stjórnar að halda. Þeir ákváðu að halda friðinn fram yfír afmælishá- tíð Hveragerðis, en undirbúa að- gerðir um haustið, þ.e. að láta bijóta á mannaráðningum. Öll þessi framvinda var sett á svið af Einari bæjarstjóra, Gísla Páli og Haf- steini. Aðförin og ályktunin Á aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins Ingólfs seint í október gerðu þeir félagar tilraun til að kollvarpa stjórn félagsins og fella formann- inn. Á þann fund smöluðu þeir liði en höfðu ekki erindi sem eríiði. Stór meirihluti stóð vörð um félag- ið og á fundinum var samþykkt að skora á bæjarfulltrúana að hætta þegar samstarfi við H-listann. Að reka menn og aðra Þeir sem ekki hafa stutt valda- brölt Gísla Páls Pálssonar og Ein- ars Mathiesen hafa fengið að finna fyrir því. Gísli Páll ræður yfir elli- heimilinu Ási, sem á eignir upp á að minnsta kosti hálfan milljarð í Hveragerði, en samkvæmt laga- Vinnubrögð af þessu tagi dæma sig sjálf, seg- ir Janus Bjarnason, og eru ekki að skapi Hver- gerðinga. heimildum þarf það ekki að greiða full gjöld til bæjarins af sínum eign- um hér. Dæmi um hefndaraðgerðir Gísla Páls er m.a. mál Bjarna Krist- inssonar, pípulagningarmeistara, sem unnið hefur hjá Dvalarheimil- inu Ási í allnokkurn tíma. Honum var sagt upp störfum eftir fund hjá Sjálfstæðisfélaginu Ingólfl, þar sem samþykkt var að víkja þeim Gísla Páli og félögum úr félaginu. Bjarni situr í stjórn félagsins. Hann er eini starfandi pípulagningar- meistarinn í Hveragerði. Nokkrir vinna hjá Gísla Páli sem vilja ekki fórna lífsviðurværi sínu á bylting- araltarið. Aðrir hafa verið hiklaust reknir. Meðal þeirra sem hafa verið látnir taka pokann sinn eru Kjartan Björnsson, verktaki, Ólafur Leós- son, Röra- og Stífluþjónustunni ehf. og svo fyrmefndur Bjarni. Vitað er að verktaka var hótað, að ef hann segði sig ekki úr Sjálf- stæðisfélaginu Ingólfi fengi hann ekki vinnu hjá Dvalarheimilinu Ási. Hann skrifaði á listann. Fleiri fengu sömu hótanir. Þá er flestum Hvergerðingum enn í fersku minni þegar þeir ráku í hefndarskyni verkstjóra áhaldahúss bæjarins, undir því yfirskyni að verið væri að hagræða. Þurrabúðin En svo komu önnur atvinnumál til sögunnar, þar sem allt var greið- ara við afgreiðslu. Sumarið 1995 var að venju auglýst eftir afleysing- arfólki í sundlaug bæjarins. Meðal margra umsækjanda voru einstæð- ar mæður og atvinnulaust fólk sem hafði fjölskyldur á framfæri. Bæjarstjórinn Einar Mathiesen, mun hafa hátt í fimm hundruð þúsund krónur á mánuði. Það þykja góð laun fyrir fjölskyldu og svo fylgja eflaust fríðindi. Kona Einars Mathiesen var meðal þeirra sem sóttu um stöðu sundlaugavarðar. Hún fékk stöðuna en fjöldi umsækj- enda hélt áfram að búa að litlu. Gæfa og gjörvileiki Engum dylst að heilu hverfín eru ófrágengin í gatnagerð í Hvera- gerði, þar sem margir búa. En í málefnasamningi Gísla Páls við vinstri menn kemur fram, að mal- bika skuli heila götu í Hveragerði, Hverahlíð, en Dvalarheimilið Ás á flestar byggingar við götuna. Sé litið yfír eignalista dvalarheimilis- ins í Hveragerði, sem er samkvæmt lögum meira og minna á opinberu framfæri, eru Frumskógar 15, heimili Gísla Páls, 15,7 millj. að brunabótamati, Heiðmörk 36, heimili Einars Mathiesen, bæjar- stjóra, 9,4 millj. að brunabótamati, Varmahlíð 6, bústaður forstjóra Grundar, dóttur Gísla Sigurbjörns- sonar og móður Gísla Páls, 9,1 millj. að brunabótamati, Hverahlíð 4, bústaður ekkju Gísla Sigur- björnssonar, 33,5 millj. að bruna- bótamati, Hverahlíð 8, bústaður dóttur Gísla Sigurbjörnssonar, 5,8 millj. að brunabótamati. og Blá- skógar 15, bústaður dóttur Gísla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.