Morgunblaðið - 27.06.1997, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 27.06.1997, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Árni Elíasson fæddist í Helg- árseli í Garðsárdal í Eyjafirði 12. októ- ber 1904. Hann lést á Landspítalanum að morgni mánu- dagsins 23. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Elías Árnason og Sigurmunda Sig- mundsdóttir í Helg- árseli. Þau eignuð- ust tíu börn og komust átta þeirra á Iegg. Árni var sjö- unda barn hjónanna í Helgárs- eli. Fjóla á Syðra-Seli í Hruna- mannahreppi er ein systkin- anna á lífi. Látin eru Sigrún, Eiríkur, Líney, Sigurbjörg, Emma og Elín. Árni ólst upp í Helgárseli en flutti ungur suður og bjó þar síðan. Hann sótti um skeið sjó- inn frá Kotvogi í Höfnum og kynntist þá lífsförunaut sínum, Fanneyju Gunnlaugsdóttur, f. 7.9. 1914, d. 1.12. 1994. Þau gengu í hjónaband 11. nóvem- ber 1933 og eignuðust sjö börn. Þau eru: Hildur, f. 22.6. 1934, d. 15.8. 1934; Elías Hilmar, f. 25.11. 1935, k. Steinvör Sigurð- ardóttir; Gunnlaugur Örn, f. 15.2. 1939, k. Sólveig Helga- Hann fæddist norður í Eyjafirði, það var sveitin hans. Þangað fannst honum gaman að fara, þó ekki væri nema í huganum. Arka um Garðsárdal, þar sem hann þekkti hveija þúfu og hvern stein. Minnast þess þegar hann gekk um fjöllin á degi hverjum, allt haustið og færði björg í bú með því að skjóta ijúpu, sem var flutt í skip og seld til út- landa. Þá var vertíð, þúsundir fugla lágu í valnum og veiðimaðurinn lærði að umgangast náttúruna, elska dýrin og virða bráðina. Hann var frár á fæti og arkaði um ijöll og dal, sumar og vetur. Hann var dugmikill í vinnu og dró heldur ekki af sér í leik. Hann unni góðum félagsskap og var hvers manns hugljúfi. Þessi góði sonur Garðsárdals er fallinn frá. En verkin hans lifa og viðmótið gleymist ekki þeim fjöl- mörgu sem fengu að njóta. Eyja- íjörður varð ekki vettvangur Áma Elíassonar í starfi, hann fór suður á vit nýrra ævintýra, fyrst í Hrepp- ana, í vinnu til Líneyjar systur sinn- ar, svo suður í Hafnir. Sveitamaður- inn gjörðist sjómaður og sótti sjóinn af eljusemi. Það var sjaldnast dans á rósum að róa til fiskjar og hafið tók stundum sinn toll. Einu sinni átti Árni að fara í róður með félög- um sínum en var þrábeðinn að skipta um pláss í það sinn. Hann sá þá aldrei meir, því skipið kom dóttir; Guðrún Est- her, f. 13.8. 1940, m. Jón Haukur Baidvinsson; Ólafur Jón, f. 21.6. 1945, k. Þórunn Bernds- en; Ómar Þór, f. 9.11. 1950, k. Mar- grét Pétursdóttir; Svanhildur Ágústa, f. 25.10. 1955, m. Jón Baldvin Hall- dórsson. Barnabörn Árna og Fanneyjar eru 12 og barna- barnabörnin fjögur. Árni og Fanney fluttu frá Kotvogi að Gróttu á Seltjarnarnesi vorið 1936. Árni gerðist þar aðstoðarmaður vitavarðarins og gegndi því starfi í níu ár. Árið 1945 fluttu þau hjón upp á Nesið og Árni fór að vinna í frystihúsinu ís- birninum. Þar starfaði hann samfleytt í 34 ár. Hann tók virk- an þátt í baráttu verkafólksins fyrir bættum kjörum og var trúnaðarmaður starfsmanna í Isbirninum. Árni var virkur félagi í Verkamannafélaginu Dagsbrún og sat jafnan þing Alþýðusambands Islands. Utför Árna Elíassonar fer fre.m frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ekki aftur að landi. Þetta greyptist í hugann. Ungi norðanpilturinn, þessi myndarlagi maður, sá unga og glæsilega stúlku í Kotvogi, Fann- eyju Gunnlaugsdóttur. Hún var tíu árum yngri og lengi taldi hann sig ekki eiga möguleika á að ná ástum hennar. En hugirnir féllu saman og hjónaband þeirra átti eftir að verða fijósamt, hamingjuríkt og veita mörgum ánægju, langt út fyrir nánustu ijölskyldubönd. Búskapur varð ekki ævistarf Árna Elíassonar og ekki sjó- mennska, heldur fiskvinnsla. En áður fengu sjófarendur á Faxaflóa að njóta starfskraftanna. Ungu hjónin í Kotvogi fluttu í Gróttu á Seltjarnesi, þar sem Árni varð að- stoðarmaður vitavarðarins. Það var stríð í heiminum og tíðar skipaferð- ir í nágrenni Gróttu. Úr vitanum sást líka stundum til lögbijóta á sjó. Þeir hrukku í kút við að mæta sjónauka vitavarðarins í Gróttu þegar þeir brugðu sínum eigin á loft til að kanna hvort nokkur væri á verði í vitanum. Vitavörðurinn hló dátt í spaugsemi sinni. Og Grótta nýtur þess að hafa hýst Árna og fjölskyldu. Varnargarðarn- ir, sem hann hlóð þar gegn ágangi sjávar, eru fagurt vitni um dvölina. Hann var baráttumaður, hetja í Dagsbrún, trúnaðarmaður í ísbirn- inum í áratugi, fátækur sjálfur af veraldarinnar gæðum en ríkur í sálinni, ríkur að vinum, ríkur í einkalífi sínu. Þessu ríkidæmi sínu var hann ávallt tilbúinn að deila með öðrum. Það var nógu erfitt að afla fanga fyrir sitt eigið stóra heimili en samt alltaf hægt að rétta öðrum hjálparhönd, veita þeim skjól og jafnvel brauðfæða. Stundum þurfti að beijast af hörku fyrir bættum kjörum og fara í verkfall. Þá var hann í fylkingarbijósti, oft með félaga sínum og vini Guð- mundi J. Guðmundssyni. Saman fara þeir tveir nú yfir móðuna miklu, sem gæti talist táknrænt. Árni lést á útfarardegi Guðmundar, rúinn líkamlegum þrótti, sem hann hafði haldið til loka en heill í hugs- un og með sömu glettnina í svip. Á tjóríia áratug var drengurinn úr Garðsárdal hetja fólksins í ís- birninum. Hann barðist fyrir bætt- um kjörum þess en var um leið skemmtilegur félagi. Atvinnulífið færði honum aldrei auðlegð en hann bætti það sjálfur upp margfalt með gnótt hreinleika í hjarta og sál. Árið 1979 tók við nýr kafii í ævi Árna og Fanneyjar. Þau urðu hrók- ar alls fagnaðar meðal aldraðra í Furugerði 1 og sem fyrr traustir vinir vina sinna og leiðtogar í starfi og ieik. Lífskeðja þeirra tveggja var samofin og þegar hún féll frá fyrir þremur árum brotnuðu í honum bein. Þau greru en sálin hans aldrei. Minn kæri tengdafaðir er horfinn úr Furugerði og getur ekki lengur boðið mér „ijóma“ af örlæti sínu og gæsku. Hann var hjartahlýr, stefnufastur, kíminn og skemmti- lega stríðinn, gæðablóð og merkis- maður. Það var gott að vera í ná- vist hans. Hann var mér mikið. Jón Baldvin Halldórsson. Elsku tengdapabbi minn, Árni Elíasson. Núna er komið að því að kveðja þig. Það er svo stutt síðan að við þurftum að kveðja ástkæra eiginkonu þína, Fanneyju, sem lést fyrir tveimur og hálfu ári. Það var svo þung byrði fyrir þig að missa hana og mikill söknuður hjá okkur öllum í fjölskyldunni. Nú eruð þið bæði horfin frá þessu jarðlífi. Helst vildi ég fá ykkur til okkar aftur, ég sakna ykkar það mikið. En þótt þið séuð nú horfin getur enginn tekið þær minningar sem ég á um ykkur. Síðan Fanney dó hefur hug- urinn oft leitað aftur í tímann. Eg minnist til dæmis ferðalaganna okkar þegar við skruppum austur til Fjólu og alltaf var komið við í kaupfélaginu og eitthvað fallegt skoðað. Eins hugsa ég oft til ykkar þegar ég mætti ykkur á Vestur- landsveginum á leiðinni í Mosó í appelsínugulu Mözdunni ykkar. Þú sast alltaf teinréttur með hattinn og fylgdist vel með keyrslunni. Eins þegar við fórum í ferðalög og sváfum í tjaldi sem endaði alltaf með því að við Fanney fengum al- gjört hláturskast en það eru ógleymanlegar stundir. Þú varst með hangikjötið og vasahnífinn þinn sem þú skarst kjötið með af mikilli rósemi. Ef þú hefðir fengið hangikjötið og vasahnífinn á spítal- ann hefði það óheitanlega glatt þig. Þegar ég heimsótti þig um daginn snertir þú ekki matinn þinn. Þegar ég spurði þig hvers vegna þú borð- aðir ekki sagðir þú reiður: Þetta er ekki matur, þetta er baun ofan á baun. Þá las ég fyrir þig pistil úr dagblaði þar sem tíundað var hvaða matur var á boðstólum á þínum yngri árum. Súrsað kjöt, grautar og framvegis. Þá brostir þú breitt og sagðir: „Þetta er sko almennileg- ur _matur.“ Ég man líka þegar ég var fyrst að koma inn í íjölskylduna hvað mér þótti gaman að sögunum þín- um. Þú hafðir svo mikla frásagnar- gleði og ég naut þess svo innilega að hlusta á þig, elsku tengdapabbi minn. Eins þykir mér svo dýrmætt þegar þú sagðir mér frá bernsku þinni á þinn rólega hátt. Þú varst alltaf svo fylginn þér. Eins vil ég þakka þér hvað þú varst góður afi sem var svo dýrmætt og var metið af miklu þakklæti. Heimilið ykkar Fanneyjar var svo litríkt og kær- leiksríkt, þar átti ástkæra tengda- mamma mikinn þátt. Það var svo mikill missir þegar hún féll frá. Elsku bestu tengdaforeldrar mín- ir, ég kveð ykkur og þakka góðum Guði fyrir að hafa notið þeirrar ánægju að kynnast ykkur. Ég votta ástkærum eiginmanni mínum, systkinum hans, barnabörnum og tengdabörnum samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Þórunn. Sem ég horfi á lítinn son minn leika sér hérna á gólfinu fyrir fram- an mig hér í útlöndum, kemst ég ekki hjá því að velta því fyrir mér hvort hann muni eiga eins langa og viðburðaríka ævi og hann afi átti. Það er svolítið skrýtið fyrir okkur börn tækni- og tölvualdar að kveðja þá kynslóð sem upplifað hefur þvílíkar breytingar á einni öld að maður getur aldrei búist við því að reyna nema hluta af öllu því sem hún hefur séð og heyrt. Því hefur það verið ómetanlegt að fá að þekkja afa og ömmu þegar maður er kominn á fullorðinsár, fengið að verða smám saman vinur þeirra og getað fræðst um gamla tímann frá fyrstu hendi, sem gerir allt mun raunverulegra en þegar maður les sögubækur. Afi á „Nesinu“ var einstaklega ljúfur afi, þolinmóður og alltaf með kímnigáfuna á réttum stað. Hann var líka meinstríðinn, stríddi á góð- látlegan hátt og það er sem mér finnist að sá eiginleiki hafi erfst beint í næstu kynslóðir svo ekki verður um villst. Mér er minnis- stæður Hæðarendi, ævintýralega húsið þeirra afa og ömmu sem stóð á Nesinu. Það var furðulegt í laginu og þar úði og grúði af alls kyns furðulegu dóti bakatil og var þar sannur ævintýraheimur fyrir okkur krakkana að fá að grúska í. Lóðin fyrir utan var líka skemmtileg með útsýni yfir ljöruna og sjóinn, en í dag sæist sjálfsagt ekki til sjávar af þeim stað fyrir nýbyggingum. Afi gantaðist úti á lóð með okkur krökkunum, sýndi okkur kartöflu- garðinn sinn sem var næsta heilag- ur og gaf okkur rabbarbara úr reitnum þeirra ömmu. Það var hann sem að kenndi okkur krökkunum að senda fingurkossa og grípa þá sem sendir voru til baka og mér þykir það sérstaklega ljúft að afi var einmitt að reyna að kenna eins árs syni mínum að senda sams kon- ar kossa vikunni áður en við fjöl- skyldan lögðum af stað í þetta ferðalag til útlanda. Afi og amma voru gift í rúm 60 viðburðarík ár og við sem erum rétt að byija hjúskap hljótum að óska þess að fá að eiga eins langar og góðar samvistir. Þau skilja eftir sig stóra og sérlega samheldna fjöl- skyldu. Það er með kæru þakklæti sem ég kveð hann afa minn Árna, ég trúi því að nú séu þau amma aftur sameinuð einhvers staðar á góðum stað. Hvíl í friði, afi minn. Guðný María og fjölskylda. Nú er hann kæri afi minn og einn af bestu vinum mínum búinn að kveðja þetta jarðneska líf. Afi var í alla staði yndislegur. Það var alltaf stutt í grínið hjá þér. Fram á síðustu stundu hlógum við saman að einhveijum fyndnum atvikum sem höfðu á dagana drifið. Afi var líka fullur af lífsþrótti og vilja. Hann var sannur harðjaxl. Eg segi ykkur frá einu fyndnu atviki. Ég, afi og pabbi minn ákváðum einn dag að fara í veiði. Við skruppum upp í Hvammsvík. Pabbi tók stól með ef afi skyldi þreytast á að standa við vatnið. Þetta endaði hins vegar þannig að ég var sá sem gafst upp og settist á stólinn, en afi stóð og ætlaði sko að veiða. En ég var hins vegar löngu búinn að gefast upp. Þetta er bara eitt fynd- ið atvik sem ég man um mig og afa. Kæri afi, þú munt alltaf skipa stóran sess í lífi mínu. Ég mun ávallt eiga yndislegar minningar um þig. Megi Guð geyma þig og vernda. Ég vil líka votta föður mín- um og systkinum hans innilega t Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, AÐALGEIR SIGURGEIRSSON bifreiðastjóri, Skólagerði 2, Húsavík, lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga þ: iðjudaginn 24. júni. Bergþóra Bjarnadóttir, Bjarni Aðalgeirsson, Sigurður Aðalgeirsson, Sigrún Aðalgeirsdóttir, Guðrún Björg Aðalgeirsdóttir, Sigurgeir Aðalgeirsson, Sigríður Aðalgeirsdóttir, Sveinn Aðalgeirsson, Þórhalla Sigurðardóttir, Sigurhanna Salómonsdóttir, Baldur Baldvinsson, Erla Bjarnadóttir, Héðinn Helgason, Martha Brandt, barnabörn og barnabarnabörn. ÁRNI ELÍASSON samúð mína. Megi Guð geyma ykk- ur öll og styrkja. Ivan Þór Ólafsson. Árni gerðist aðalfélagi í Verka- mannafélaginu Dagsbrún 15. febr- úar 1945 og var síðan Dagsbrúnar- maður með stórum staf allt til hinsta dags. Virkur félagi sem ótrauður og hiklaus lagði fram sinn skerf í baráttunni fyrir bættum hag verkafólks. Á fyrstu tveimur áratugum Árna í Dagsbrún voru verkföll og vinnu- deilur tíðari en síðar gerðist og Árni var styrkur liðsauki á slíkum tímum, hvort sem var við verkfalls- vörslu eða önnur trúnaðarstörf fyr- ir félagið og málstaðinn. 1946 að- eins ári eftir að Árni gekk í Dags- brún skráði hann sig á verkfalls- vakt. 1947 var mjög hart og erfitt verkfall. Þá var Reykjavík togara- bær og mikill afli beið löndunar. Allir Reykjavíkurtogararnir sigldu til ísafjarðar og voru losaðir þar við hörð mótmæli Dagsbrúnar. 1952 verkfall, 1955 sex vikna verk- fall sem gekk mörgum nær og ekki vil ég síður minnast framlags Árna í verkfallinu 1961 þegar stór mál náðust í höfn og grunnurinn var lagður að Styrktarsjóði Dagsbrún- ar. Sjóðurinn sem er besta og oft eina baktrygging Dagsbrúnar- manna þegar veikindi eða slys ber að í lífi manna. Ég efast um að nokkur geti í dag gert sér grein fyrir hve erfiðar þess- ar löngu og stríðu vinnudeilur voru, ekki hvað síst barnmörgum fjöl- skyldum þegar menn háðu baráttu þumlung fyrir þumlung til að ná fram réttindum sem nú þykja svo sjálfsögð að flestir halda að þau hafi verið til staðar allt frá árdögum íslenskrar verkalýðshreyfingar. Ámi Elíasson var ýrúnaðarmaður á sínum vinnustað ísbirninum um árabil, en hann hóf störf hjá þvi fyrir- tæki 1945 og vann þar allar götur til áramóta 1978-1979, þá 74 ára. Mest vann Ámi í móttöku á fiski og í flökun og urðu oft langir vinnudag- amir og myndu ekki samræmast Evrópustöðlum sem nú gilda. Börnin hans minnast þess þegar hann kom heim undir morgun eftir að hafa alla nóttina unnið við að koma afla í hús, fékk sér hressingu með fjölskyldunni, fór svo aftur í vinnuna og stóð við flökun allan daginn. Ætla mætti að eftir slíkt vinnuá- lag væri allt þrek horfið mönnum langt um aldur fram en sú varð ekki raunin með Árna. Þvert á móti hélt hann andlegu atgervi sínu til hinsta dags og miklu þreki og gekk þó ekki heill til skógar því allt frá sautján ár aldri bjó Árni við ólæknandi fötlun. Eftir veikindi varð honum styttri annar fóturinn, kölkun settist og bagaði mjög upp frá því. Þó var hann flestum óhölt- um meiri og drýgri verkmaður. Páll Guðmundsson sem var verk- stjóri hjá ísbirninum í áratugi minn- ist atorku Árna og elju og fróðlegt væri mörgum að fá að líta í dagbækur hans, en Árni skráði allt- af hjá sér vinnutíma og kaupgjald hveiju sinni. Árni Elíasson sat mörg ASÍ-þing sem fulltrúi Dagsbrúnar og átti sæti í trúnaðarráði Dagsbrúnar í meira en fjóra áratugi. Ekki veit ég til þess að hann væri formlega skráður í neinn stjórnmálaflokk en það fór ekkert á milli mála að stjórnmálaskoðanir hans voru vel vinstra megin við línuna og hann lá ekkert á því. Hann bar félagið sitt Dagsbrún fyrir bijósti og vildi hag þess sem mestan og bestan og fylgdist vel með mönnum og mál- efnum fram á síðasta dag. Kona Árna var Fanney Gunn- laugsdóttir sem einnig starfaði árum saman í ísbirninum og síðar í Granda. Þau komu saman upp hópi mannvænlegra barna sem voru stolt og styrkur foreldra sinna. Við kveðjum okkar góða félaga með virðingu og þökkum honum samfylgdina og vottum fjölskyldu hans samúð okkar og hlýhug. Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.