Morgunblaðið - 27.06.1997, Page 56

Morgunblaðið - 27.06.1997, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 I_____________________ MORGUNBLAÐIÐ ÍP ÍP Sersending af BSM-símum á otruiegu verði!!! • Fæst í fjölmörgum litum • Þyngd 21 Og /’pSkfc' • Símanúmera- í f ipc birting I cWÖjef • 70 tíma hleðsla (200 tíma fáanleg) • Möguleiki á fax/modem- tengingu íp íí • Þyngd 169g • 85 tíma hleðsla (2ja vikna hleðsla fáanleg) • 100 númera símaskrá • Símanúmerabirting • Möguleiki á fax/modem- tengingu • Tekur bæði stórt og lítið símakort ffer CffO/C£ GSM-aukahlutir: SUMARTILBOD BÚMMl Heimilistæki hf GSM-hulstur, bnkveikjarasnöf§É£- og sumarbolur. Ómissandi í ferðalagicfc-S TÆKNI-OC TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is umboðsmenn um land allt « I ® « MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP Stórstjörnur eru kröfuharðar STÓRSTJÖRNUR Hollywood fá ekki eingöngu borgaðar svimandi háar upphæðir fyrir leik sinn, þær fara einnig fram á að ýmsum skil- yrðum sé fullnægt ef þær sam- þykkja að leika í kvikmynd. Tökum John Travolta sem dæmi. Nýlega tók Variety saman hvaða kröfur sá sjarmur gerði þegar hann ætlaði að leika fyrir Roman Polanski í „The Double" á síðasta ári. Kröf- umar sem eru ótrúlegar og sérvitr- ingslegar voru allar samþykktar en engu að síður hætti Travolta við að leika í myndinni á síðustu stundu. Travolta átti að fá greiddar 17 milljónir Bandaríkjadala fyrir „The Double" en það eru hans hefð- bundnu laun þessa dagana. Auk þess fór hann fram á að Mandalay Entertainment, sem ætlaði að fram- leiða myndina, borgaði laun og uppihald fjölmargra aðstoðar- manna. Travolta ferðast ekki einn. Hann hefur með sér her aðstoðar- manna, þjálfara, förðunarmeistara, öryggisvarða, nuddara, áhættuleik- ara, og bílstjóra. Einnig fylgir Tra- volta hans einkakokkur en það var ekki nóg í þetta skipti. Travolta fór líka fram á að fá að stjóma hverjir hefðu umsjón með fæðinu fyrir allt starfsliðið við upptökur. Travolta neitaði að hanga á töku- stað meira en 12 tíma á dag, og aðeins einn eða tvo daga í viku mátti fara fram á að stjaman skil- aði af sér löngum samtölum fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar. Upptökur áttu að fara fram í Par- ís, og til þess að komast þangað heimtaði Travolta að Mandaley leigði einkaþotu hans og borgaði jafnframt fyrir að hafa hana til taks allan upptökutímann. Að lok- um vildi stjarnan að Mandaley flytti einkahjólhýsi hans til Parísar. Venjulegar kröfur Travolta er ekki einn um að gera slíkar kröfur. Framleiðendur sem þurfa að semja við stórstjörnur Hollywood segja að kröfur Travolta séu nokkuð hefðbundnar. Bmce Willis, Demi Moore, Arnold Sehwarzenegger, Julia Roberts, Jack Nicholson, Melanie Griffith, Eddie Murphy, Michelle Pfeiffer, Harrison Ford, Denzel Washington, Tom Cruise, Mel Gibson, Barbra Streisand, og fleiri virðast geta far- ið fram á hvað sem er og fengið það í gegn í samningum. Til þess að halda stjörnunum í góðu skapi verða framleiðslufyrir- tækin oft að leggja út allt að tvær milljónir í ýmsan kostnað í viðbót við launaávísun sem er á bilinu 12 til 20 miiljónir. Sylvester Stallone og Sharon Stone vilja t.d. ekki ein- SHARON Stone og fleiri stjörnur mæta ekki á tökustað nema fyrsta flokks líkams- ræktaraðstaða sé á staðnum. JOHN Travolta er ekki lítil- látur, ljúfur, kátur þegar kemur að sérkröfum í samn- ingum. göngu að einkaþjálfararnir fylgi þeim hvert fótmál. Þau fara einnig fram á að komið sé upp veglegri líkamsræktaraðstöðu þar sem tökur fara fram. í hvað fleira fer kostnaðurinn? Jim Carrey réði sérstakan kokk fyrir gæludýrið sitt, litla eðlu, þegar hann lék í „Ace Ventura 2“ og lét framleiðandann borga helminginn af launum og kostnaði. Geena Dav- is var með fjóra förðunarmeistara þegar upptökur fyrir „Cuttthroat Island“ fóru fram á Möltu. Hún var samt ekki ánægð og lét senda eftir þeim fimmta frá Los Angeles, og framleiðslufyrirtækið borgaði að sjálfsögðu brúsann. Robin Williams vill alltaf hafa BMW eða aðra glæsi- bifreið til umráða á tökustað, og svona mætti lengi telja. Allar stjörnur hafa þó ekki svona dýran smekk. Það eina sem Jack Lemmon fer alltaf fram á er að fá tvö eintök af New York Times send á hótelherbergið á tökustað, og glæný rúmföt á rúmið. MYMDBOMP Misheppnuð mynd Regnboginn (Rainbow) Fjölskyldumynd ★ Framleiðandi: Nicholas Clermont og Robert Sidaway. Leikstjóri: Bob Hoskins. Handritshöfundur: Ashley og Robert Sidaway eftir bók þeirr- ar fyrrnefndu. Kvikmyndataka: John Palmer. Aðalhiutverk: Bob Hoskins, Terry Finn, Jakob Tiern- ey, Saul Rubinek og Dan Akroyd. 90 niín. Bandaríkin. Háskólabíó 1997. MYNDIN er öllum leyfð. Saga um hinn tíu ára Mike sem sér regn- bogann koma við jörðina. Hann kallar til vini sína og bróður, sem öll fara upp í regnbogann og lenda á hinum enda hans. Regnboginn hef- ur eflaust verið ágætis bók með fallegum boð- skap, en þessi kvikmynd er misheppnuð og klisja í alla staði. Leikstjórnin er þar fremst í flokki, en hún er ótrú- lega léleg. Handritið er bæði lang- dregið og persónurnar óspennandi. Það hefði þurft að ýkja allar hliðar þessarar myndar svo hún virki og ljá henni meiri ævintýrablæ í alla staði. Hoskins hefur fengið Saul Rubinek og Dan Akroyd til að fara með minniháttar hlutverk. Þeir eru menn sem yfirleitt skila sínu skammlaust, en það verður ekki sagt um frammistöðu þeirra hér. Börnin hefðu líka mátt vera betri leikarar, því útgeislun þeirra hefði getað lyft myndinni ögn upp. Mynd- in er sönnun þess að hinn stórgóði leikari Bob Hoskins á ekki að fara út fyrir sitt sérsvið aftur. Hildur Loftsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.