Morgunblaðið - 27.06.1997, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 57
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Draugurinn Susie
(Susie Q)k 'h
Jólin koma
(Jingle All the Way)k k
Leyndarmál Roan Inish
(The Secret ofRoan
Inish)-k k 'h
Eigi skal skaða
(First Do No Harm)-k ★ ★
Ótti
(Fear)k k'h
Jack
(Jack)kk
Vondir menn í vígahug
(Marshall Law)k 'h
Helgi í sveitinni
(A Weekend in the
Country)k k k
Köid eru kvennaráð
(The First Wives CIub)k k k
Ofbeldishefð
(Violent Tradition)k k'h
Óvæntir fjölskyldu-
meðlimir
(An Unexpected
Family) kkk
Flagð undir fögru skinni
(Pretty Poison) k 'h
Eiglnkona efnamanns
(The Rich Man ’s Wife)k 'h
Djöflaeyjan
(Djöfiaeyjan)k k k 'h
Plágan
(The Pest)k k k
Krákan: Borg englanna
(The Crow: City ofAngels)k
Allt fyrir aurana
(IfLooks Could Kill)'h
Nornaklíkan
(TheCraft)kk
Óskastund
(Blue Rodeo)k
Gillian
(To Gillian on Her 37th
Birthday)k k 'h
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
HIV
smitaður
ef tir
nauðgun
Roger Rabbit
snýr aftur
BÍÓGESTIR sem skemmtu sér vel
á „Who Framed Roger Rabbit?“
geta farið að hlakka til að sjá fram-
haldsmyndina. Síðan myndin sló í
gegn árið 1988 hefur Disney-fyrir-
tækið haft framhald á pijónunum
en nú fyrst virðast hjólin vera farin
að snúast. Alan Menken, sem hefur
séð um tónlistina fyrir flestar af
teiknimyndum Disney síðustu árin,
hefur að sögn samið raddskrá fyrir
framhaldsmyndina í anda gömlu
Busby Burkley söngleikjamyndanna.
Framhaldsmyndin verður þó ekki
eiginlegt framhald heldur á að segja
söguna af því hvernig Roger Rabbit
kynntist söngkonunni kynþokkafullu
Jessicu, flutti með henni til Holly-
wood og hóf að leika á móti Baby
Herman í Maroon teiknimyndunum.
Hvort framhaldið hlýtur fern Ósk-
arsverðlaun eins og „Who Framed
Roger Rabbit?" mun tíminn síðan
leiða í ljós.
Kúrekinn Clooney
j NYJASTI Leðurblökumaðurinn
George Clooney er nú í viðræðum
' um að leika á móti Will Smith í
( „Wild Wild West“. Myndin er byggð
á sjónvarpsþáttaröð sem var sýnd
vestanhafs á milli 1965 og 1970.
Aðalsöguhetjur þáttanna voru
leyniþjónustumennirnir Artemus
Gordon og James T. West sem voru
sendir af forsetanum, Ulysses S.
Grant, til þess að rannsaka mál í
villta vestrinu.
| Barry Sonnenfeld ætlar að leik-
I stýra „Wild Wild West“ og Will
Smith ætlar að leika James T.
I West, en hans persóna var aðalhlut-
verkið í þáttunum og þar stendur
hnífurinn í kúnni. Clooney vill ekki
leika aðstoðarmann West, Artemus
Gordon, nema að hlutverkið verði
stækkað og þeir félagar látnir vera
jafnmiklar hetjur.
Ef Clooney samþykkir handritið
eftir breytingar fara tökur af stað
á næsta ári þar sem hann og Smith
eru báðir með samninga sem þarf
að uppfylla fyrst. Clooney er skuld-
bundinn til þess að leika barnalækn-
inn Doug Ross í Bráðavaktinni, og
í spennumyndinni „Out of Sight“ á
móti Jennifer Lopez, en Smith er
með samning um að leika í „Enemy
of the State“ sem Tony Scott ætlar
að leikstýra.
Kvik-
mynda-
fréttir
ilómskeifiö fær falleinkunn
\\. *rs, mi
Kl'fiSW' 688 W. VSk
Forsetafrúin
er frábær
NáMijlyiúi ?)í UuChiíiU KoiiíuU
Yfirgaf mig
fyrir yngri
mánn
líivnwiföyó Ínfc>hí'iJVj uiajuiB:-.-'
Á Kúhunni
ineö Hiu fni
Gunnlmigssyni
<§ Bimi fílöndal
Stórstyrjöld
um iítiö blaö
& Vibnundvir OvIKi-.ua
saklaus!
•••'iiii l'joöin urn Geininns- oti
i ',i iðmundarrnnlið. íslenska
StJaudi fiiðUfötóðiii i
GíjUupkOllluni tviii M.miilíf
Þau voru
TOM Cruise gefur sér góðan tíma til þess að vinna með
Stanley Kubrick.
Hægagangnr
hjá Kubrick
DANNY DeVito er í samninga-
viðræðum um að leikstýra „The
Little Things" hjá Warner Bros.
en til stendur að fá Robert DeN-
iro til þess að leika aðalhlutverkið.
Handritið að „The Little
Things" er skrifað af John Lee
Hancock og fjallar um lífsþreytta
löggu og reglufastan rannsóknar-
lögreglumann sem eltast við rað-
morðingja.
Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni. Kate Hudson, 18 ára
dóttir Goldie Hawn og söngvar-
ans Bill Hudson, hefur fengið
hlutverk í „Ricochet River“. Mynd-
in segir frá uppvexti þriggja skóla-
félaga í norðvesturríkjum Banda-
ríkjanna.
Framleiðandinn Jeremy Thom-
as, sem vann m.a. við „The Last
Emperor", „Stealing Beauty", og
„Crash“, ætlar að reyna sjálfur
við að leikstýra mynd. Hún ber
titilinn „All the Little Animals"
og er spennumynd með John
Hurt, Daniel Benzali, og Christ-
ian Bale í aðalhlutverkunum.
ROBERT DeNiro leikur lík-
lega næst undir stjórn Danny
DeVito.
STANLEY Kubrick er ekkert að
flýta sér þegar hann gerir kvik-
myndir. í Hollywood eru nokkrir
leikstjórar montnir af því að vera
í 100 daga tökuklúbbinum en þeir
komast ekki með tærnar þar sem
Kubrick hefur hælana. Tökur á
„The Shining" tóku í kringum 200
daga og nú virðist kappinn á góðri
leið með að slá það met. Tökur á
nýjustu mynd hans „Eyes Wide
Shut“ með Tom Cruise og Nichole
Kidman í aðalhlutverkunum hófust
í nóvember á síðasta ári og standa
enn. Samkvæmt nýjustu yfirlýsing-
um frá stjórnarformönnum Wamer
Bros., sem framleiða myndina, er
stefnt að því að tökum ljúki í Lond-
on 1. september.
Cruise og Kidman gerðu sér
greinilega grein fýrir því að tökur
kæmu til með að verða tímafrekar
þar sem í samningum þeirra er
enginn lokadagur nefndur. Harvey
Keitel sætti sig hins vegar ekki við
þennan hægagang. Eftir að hafa
dvalið í London heilan mánuð, og
eingöngu farið fram fyrir kvik-
myndatökuvélarnar nokkrum sinn-
um, sagði hann upp. Leikstjórinn
Sidney Pollack hljóp þá í skarðið
og tók við hlutverki Keitel.