Morgunblaðið - 01.07.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1997 45
traust. Orð hans stóðu. Að Oddi
stóðu traustar ættir merkra gáfu-
og athafnamanna.
Fundum Eyvarar og Odds bar
fyrst saman um sumarsólstöður, 21.
júní, er þau heitbundust á björtum
sumardegi á aðdraganda Jóns-
messu. Sumarhátíð þessi var því
ætíð sveipuð rómantískum ljóma
hjá þessum glæsilegu hjónum og
er ekki að efa, að endurfundir þeirra
nú á Jónsmessu hafa verið ljúfir.
Heimili Eyvarar og Odds var hlý-
legt og glæsilegt menningarheimili.
Bar það glögg merki smekkvísi og
listfengi húsráðenda. Þar ríkti frá-
bær gestrisni og ljúfmennska. Inn-
an fjölskyldunnar var ástúðleg sam-
heldni og engin hátíð þar á bæ var
með öðrum hætti en að börnin
væru þar þátttakendur.
Æskuheimili Eyvarar var í Garð-
húsum við Bakkastíg í Reykjavík.
Að henni stóðu listfengar og dug-
miklar ættir, þar sem tónlistin skip-
aði öndvegi. Móðir frú Eyvarar varð
ung ekkja. Faðir hennar dó úr
spönsku veikinni 1918, er hann
vann að hjálparstörfum í Reykjavík
á fátækum heimilum er illa höfðu
orðið úti af völdum hennar. Þor-
steinn skipstjóri, faðir Eyvarar,
hafði m.a. starfað sem leiðsögu-
maður á íslands Falk og var einn
helstu hvatamanna um stofnun
slysavarnarfélaga hér á landi. Með
óhemjudugnaði stóð Kristín móðir
Eyvarar eftir með sinn stóra barna-
hóp. Kom hún öllum börnum sínum
til mennta og jafnhliða heimilishaldi
stóð hún fyrir ýmsum atvinnu-
rekstri s.s. fiskverkun á lóðinni við
Garðhús. Sögu Kristínar svipar
þannig að mörgu leyti til sögu
móður hennar, Kristrúnar á Bjargi
á Akranesi, sem er þjóðkunn.
Eftir fráfall Odds Jónssonar bjó
Eyvör áfram á heimili sínu þar til
hún veiktist skyndilega 18. júní
1996. Gekk hún óskipt og af áhuga
til allra verka. Síðustu árin stund-
aði hún m.a. saumaskap á heimili
sínu. Á yngri árum starfaði Eyvör
sem leiðsögumaður fyrir erlenda
ferðamenn um ísland og hafði
næmt auga fyrir náttúrufegurð
landsins og kunni vel að meta ljóðl-
ínur Klettafjallaskáldsins, Stephans
G. Stephanssonar, úr íslendinga-
dagsræðu hans, sem henni þótti
fegurst vísna, þar segir;
Yfir heim eða himin
hvort sem hugar þín önd
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þín framtíðar lönd!
Pjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín;
nóttlaus voraldar veröld
þar sem víðsýnið skín.
Við Lúlú þökkum frú Eyvöru að
leiðarlokum frábærlega góð kynni
og vináttu í rúmlega fjóra áratugi.
Börnum hennar, tengdabörnum og
fjölskyldum þeirra vottum við inni-
lega samúð.
Blessuð sé minning frú Eyvarar
Ingibjargar Þorsteinsdóttur.
Barði Friðriksson.
í dag kveðjum við hjónin Eyvöru
Þorsteinsdóttur, sem við kynntumst
fyrir tveimur áratugum. Um leið
og við þökkum henni samfylgdina
rifjast upp minningabrot og atvik
frá þessu tímaskeiði, sem við geym-
um í hjörtum okkar. Það voru okk-
ur ákveðin forréttindi að fá að
ganga þennan spöl með Eyvöru og
kynnast mannkostum hennar.
Kveðjustundin er sár, en við trúum
því að hún gangi nú til fagnaðar-
fundar við þá sem á undan fóru,
og jafnframt að hún taki á móti
okkur jafn fagnandi og hún gerði
alltaf, þegar þar að kemur.
Kveðjustund, er sála mætir sál,
menn sjá það best,
að sætin auð þau eiga skýrra mál,
en annað flest.
Og börn og vinir blessa minning þá,
sem brosa við þeim arni þeirra þá.
(Kristín Sigfúsdóttir.)
Elsku Jón og systur. Við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð á þess-
ari sorgarstund.
Bonnie Laufey Dupuis og
Guðmundur Baldursson.
Við viljum minnast hér með fá-
einum orðum elskulegrar ömmu
okkar, Eyvarar, sem jarðsungin
verður frá Dómkirkjunni í dag.
Er við hugsum til baka sjáum
við fyrir okkur ömmu geislandi af
ánægju vegna heimsóknar frá
barnabörnum á fallegt heimili
þeirra afa Odds á Grenimel 25 og
síðar á heimili ömmu á Hjarðarhaga
46, eftir að afi var fallinn frá. Hana
varðaði miklu að fylgjast sem allra
best með því sem við barnabörnin
hefðum fyrir stafni, í námi, starfi
og leik. Hún var ávallt góður vinur
okkar sem gaf okkur ráð og velti
vöngum yfir hlútunum með okkur.
Þegar hún amma fann stunda-
glasið sitt brátt vera að tæmast,
nú fyrir skemmstu, skrifaði hún
tveimur langömmubörnum sínum,
þeim Margréti Erlu og Gunnari
Jóni, sendibréf vegna þess að þetta
árið komst hún ekki í afmælin
þeirra, en örugg vildi hún vera um
að afmælisgjafir frá henni kæmust
til skila á réttum tíma. Hún hafði
alltaf getað samglaðst þeim við slík
tækifæri og þótti þetta því afar leitt.
Þessi umhyggja hennar fyrir
langömmubörnunum, á sama tíma
og hún lá sjálf mikið veik á hjúkrun-
ardeildinni á Hrafnistu í Hafnar-
firði, sýnir vel hverjum amma vildi
helga starfskrafta sína og líf.
Fram til þess dags er hún veikt-
ist, fyrir rúmu ári, var hún fær um
að sjá um sig sjálf og sinna störfum
sínum. Þessi snögga breyting skap-
aði henni því mikil viðbrigði og
okkur hinum reyndist erfitt að upp-
lifa það að geta ekkert gert til að
endurheimta heilsu hennar. Amma
Eyvör var okkur þó áfram góð fyrir-
mynd, því hún varðveitti lífsgieði
sína og þrótt allt til loka.
Við systkinin erum þakklát henni
fyrir allt sem hún gerði fyrir okk-
ur. Eftir stendur minningin um
góða og fallega ömmu og lang-
ömmu sem hafði vakandi auga með
velferð sinna barnabarna og
langömmubarna. Amma var mikill
unnandi ljóðlistar Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi og viljum við
því enda þessi skrif okkar með
kvæði úr ljóðasafninu hans:
Hvert lítið orð,
sem lífinu fagnar,
er ljóð um sönginn,
sem aldrei þagnar.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín Anna og Björgvin.
Svo djúp er þögnin við þina sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo bijóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumamótt
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson.)
Elskuleg Eyja amma hefur nú
kvatt. Hún hefur alla tíð staðið
okkur bræðrunum mjög nærri.
Amma var svo lánsöm að eiga langa
og góða ævi, hún var heilsuhraust
allt fram á síðustu daga.
Það var ætíð mjög bjart yfir
ömmu. Hún var brosmild, hlý og
endalaus væntumþykja streymdi
frá henni. Við vorum svo heppnir
að njóta samvista við hana lengi
og brunnur dásamlegra minninga
er óþrjótandi.
Nær daglega hittum við Eyju
ömmu og á skólaárum okkar fórum
við til hennar í hverju hádegi.
Amma bar kræsingarnar fram á
dúkalagt borð. Hún sá til þess að
ætíð væri nóg á diskum. Ekkert var
til sparað, ekkert var of gott fyrir
„strákana hennar“. Eyja amma vildi
að við borðuðum vel. Oft vildi teygj-
ast úr þessum hádegisheimsóknum
hjá ömmu, enda margt sem bar á
góma. Amma var mikill vinur og
fylgdist vel með öllu sem við tókum
okkur fyrir hendur. Það var alltaf
jafn gaman að tala við Eyju ömmu
enda var hún mjög fróð og vel les-
in. Hún var ung í anda og ótrúlega
nálæg okkur yngra fólkinu í hugsun
og hugðarefnum. Eyja amma var
sérstaklega vel að sér um mál líð-
andi stundar, gilti þar einu hvort
um var að ræða fréttir úr atvinnulíf-
inu, menningu eða léttari dægur-
málum eins og popptónlist og íþrótt-
um.
Eyja amma var mikil brids-
manneskja og spilaði yfirleitt tvisv-
ar í viku. Við nutum góðs af spila-
áhuga hennar því ósjaldan tókum
við í spil með ömmu. Þær stundir
eru ógleymanlegar. Þá voru margar
sögur sagðar. Amma var góður
sögumaður og fátt var skemmti-
legra en þegar hún sagði frá æsku-
árum sínum og lífinu í Reykjavík í
þá daga. Þá kom glöggt í ljós það
leiftrandi skopskyn og léttleiki sem
bjó með henni alla tíð.
Auk þess að þykja óendanlega
vænt um ömmu, bárum við mikla
virðingu fyrir henni. Hún var kraft-
mikil kona og dugnaður einkenndi
allt sem hún tók sér fyrir hendur.
Við fáum Eyju ömmu aldrei full-
þakkað öll þau yndislegu ár sem
við áttum með henni. Hún mótaði
okkur og minningarnar um hana
munu lifa að eilífu. Við vitum að
Eyja amma verður okkur alltaf
nálæg. Blessuð sé minning hennar.
Árni Oddur Þórðarson,
Magnús Geir Þórðarson.
• Fleirí minningargreinar um
Eyvör Ingibjörgu Þorsteinsdóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG DAVÍÐSDÓTTIR
Aðalgötu 14,
Keflavík,
lést á heimili sínu að morgni mánudagsins 30. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Eyjólfsdóttir, Magnús Hvanndal Hannesson,
Hafsteinn Eyjólfsson, Ingaló Hallgrímsdóttir,
Bragi Eyjólfsson, Elísabet Dröfn Ástvaldsdóttir.
t
Faðir minn, tengdafaðir og bróðir,
ÞÓRODDUR HINRIK SÍMONARSSON
(Doddi)
frá Grímsey,
til heimilis á Kirkjubraut 21,
Innri-Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Innri-Njarðvikurkirkju
miðvikudaginn 2. júlí, kl. 11.00.
Minningarathöfn verður í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 3. júlí kl. 13.30.
Jarðsett verður í Akureyrarkirkjugarði sama dag,
Ragnar Þ. Þóroddsson,
Joyce M. Þóroddsson,
Jóntna Sfmonardóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn,
MAGNÚS GUÐMUNDSSON
bóndi,
Blésastöðum,
Skeiðum,
lést á hjartadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur 29. júni sl.
Anna Bergsveinsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fóstur-
faðir, sonur, tengdasonur og bróðir,
ÁGÚST KARL GUÐMUNDSSON,
Leynisbraut 6,
Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju
miðvikudaginn 2. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega
bent á Björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík.
Þórdís Gunnarsdóttir,
Kristín Karlsdóttir,
Bára Karlsdóttir,
Jenný Lovísa Árnadóttir,
Guðmundur (varsson, Guðfinna Óskarsdóttir,
Gunnar Páll Guðjónsson, Þórdís Þorbergsdóttir
og systkini.
t
Útför ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
GUÐBJARGAR RAGNHEIÐAR
SIGURÐARDÓTTUR,
Furugrund 48,
Kópavogi,
fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 3. júlí
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Heiðar Albertsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Ingibjörg Heiðarsdóttir, Guðmundur Jónasson,
Lilja Björk Heiðarsdóttir, Guðmundur Stefánsson,
Jón Grétar Heiðarsson, Hólmfríður Björnsdóttir,
barnabarn og systkini.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÁSGERÐUR BJARNADÓTTIR,
Giljalandi 33,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðviku-
daginn 2. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
Karitas eða Krabbameinsfélag (slands.
Þorsteinn Jakobsson,
Unnur Þorsteinsdóttir, Bjöm L. Örvar,
Bjarni Þorsteinsson, Annetta A. Ingimundardóttir,
Haraldur S. Þorsteinsson, Ingunn Hansdóttir,
Jakob F. Þorsteinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN FRIÐSTEINSSON
löggiltur endurskoðandi,
Faxatúni 23,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju, Garða-
bæ, miðvikudáginn 2. júli kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast Kristjáns, er bent á að láta Heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins eða önnur líknarfélög njóta þess.
Emilía Emilsdóttir,
Lóa Kristjánsdóttir,
Emil Örn Kristjánsson, Guðrún Erla Guðjónsdóttir,
Lóa Steinunn Kristjánsdóttir, Baldvin Einarsson
og barnabörn.