Morgunblaðið - 30.08.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður leikskólakennara segir útlitið dökkt í kjaradeilunni
„Sé ekki annað en
það skelli á verkfall“
ENGINN árangur varð af sátta-
fundi samninganefndar Félags ís-
lenskra leikskólakennara og samn-
inganefndar launanefndar sveitar-
félaga hjá ríkissáttasemjara á
fímmtudag en annar fundur hefur
verið boðaður næstkomandi
fimmtudag. „Með þessu áframhaldi
sé ég ekki annað en það skelli á
verkfall," segir Björg Bjarnadóttir,
formaður Félags leikskólakennara.
Verkfall ríflega 1.000 leikskóla-
kennara á leikskólum, sem reknir
eru af opinberum aðilum á öllu
landinu, hefst 22. september, hafí
ekki samist fyrir þann tíma.
„Við fengum mjög skýr svör þar
sem þeir hafna nánast öllum okkar
kröfum, standa fast við tilboðið
sem þeir lögðu fram í byrjun ágúst
en fallast á að kanna möguleika á
breytingu á þeirri launatöflu sem
lögð var fram í tilboði þeirra,“ seg-
ir Björg.
Tekist á um launahækkanir
og röðun í launatöflu
Tekist er á um launalið væntan-
legra samninga og röðun í launa-
töflu. Leikskólakennarar krefjast
hækkunar byrjunarlauna úr tæp-
um 82 þús. kr. á mánuði í 110 þús.
kr. á samningstímanum sem yrði
fram undir lok ársins 2000, en
sveitarfélögin hafa boðið hækkun
byrjunarlauna í um 95.000 kr. í lok
samningstímans. „I kröfugerð okk-
ar erum við einnig með ýmis atriði
sem við viljum samræma á milli
sveitarfélaga en þeir hafna því al-
farið með þeim rökum að þar sé
um að ræða stjómvaldsákvarðanir
hvers og eins sveitarfélags. Þessi
atriði lúta m.a. að yfirvinnu leik-
skólastjóra, vinnuskyldu leikskóla-
stjóra á deild og afslátt á vinnu-
skyldu fyrir aðstoðarleikskóla-
stjóra,“ segir Björg.
Hún segir einnig að launastigi
leikskólakennara sé svo þjappaður
að félagsmenn í efstu flokkunum
haldi öðrum niðri og því krefjist
leikskólakennarar þess að breyt-
ingar verði gerðar á launastiganum
til að skapa aukið svigrúm til
launabreytinga innan hans.
Á fund með
borgarstjóra í gær
Fulltrúar Félags leikskólakenn-
ara gengu í gær á fund Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra
til að gera henni grein fyrir hversu
alvarleg staða væri komin upp í
kjaradeilunni. Björg segir að af-
staða borgarinnar í viðræðunum að
undanfömu hafi valdið vonbrigð-
um. „Það var höfuðmarkmið hjá
borginni, þegar þeir ákváðu að vísa
samningsumboði sínu til launa-
nefndar sveitarfélaga, að samræma
kjörin og reyna að rétta hlut leik-
skólakennara sem vinna hjá borg-
inni, en þeir hafa haft lakasta
kjarasamninginn. Ég sé ekki þann
vilja við samningaborðið," segir
hún. Björg kveðst ekki hafa fengið
nein sérstök viðbrögð hjá borgar-
stjóra á fundinum í gær.
Komið verulega á móts
við kröfumar
Karl Bjömsson, formaður launa-
nefndar sveitarfélaganna, sagði að
staðan í viðræðunum væri slæm.
Hann sagði að launaneftidin hefði
boðið leikskólakennumm sambæri-
legar hækkanir og aðrir launþegar
hefðu fengið auk leiðréttinga á
launaflokkaröðun. Þá hefði nefndin
boðið fram einn samræmdan samn-
ing fyrir leikskóla á öllu landinu, en
það hefði m.a. í för með sér að leik-
skólakennarar í Reykjavík fengju
hækkanir umfram aðra. Hann
sagði því ekki rétt hjá formanni
leikskólakennara að öllum kröfum
þeirra hefði verið hafnað. Launa-
nefndin hefði komið veralega á
móts við kröfur þeirra.
ítreka níu mánaða
gamlar kröfur
„Viðbrögð leikskólakennara við
útspili okkar var að ítreka níu mán-
aða gamlar kröfur sínar. En sam-
kvæmt útreikningum okkar á þeim
fela þær í sér 35% hækkun lægstu
launa og allt að 70% hækkun hæstu
launa. Á sama tíma hefur allt þjóð-
félagið verið að semja um 15-20%
hækkun launa á samningstímanum
og oft hafa komið á móti breyting-
ar á vinnutíma eða annað til hag-
ræðingar í rekstri. Staðan er því
mjög alvarleg."
Karl sagði að 60-70% útgjalda
sveitarfélaganna væra laun og í
viðræðum sveitarfélaganna við
leikskólakennara yrðu þau að taka
mið af öðram samningum sem þau
hefðu gert við aðra hópa. Ef sveit-
arfélögin samþykktu kröfur leik-
skólakennara og grannskólakenn-
ara yrði útsvar að hækka mjög
mikið eða að skera yrði stórkost-
lega niður í framkvæmdum sveit-
arfélaganna.
Skipting-
Pósts og
síma hf.
samþykkt
HALLDÓR Blöndal sam-
gönguráðherra samþykkti á
hluthafafundi í gær að skipta
Pósti og síma hf. í tvö hlutafé-
lög. Hlutafélagið íslandspóst-
ur verður stofnað um póst-
reksturinn og verður stofn-
fundur félagsins haldinn 27.
desember nk. Starfsemi sím-
ans verður áfram rekin af
sama félagi en undir nýju
nafni; Landssími íslands hf.
Reikningslegur aðskilnaður fé-
laganna miðast við 1. janúar
1988.
Starfsmenn halda
öllum réttindum
f fréttatilkynningu frá Pósti
og síma hf. kemur fram að
nafnverð stofnhlutafjár ís-
landspósts hf. skuli nema 75%
af bókfærðu eigin fé póstsins í
endurskoðuðum stofnefna-
hagsreikingi Pósts og síma hf.
en 25% af eigin fé skal sett í
varasjóð. Starfsmenn póstsins
flytjast yfir til hins nýja hluta-
félags og halda öllum áunnum
réttindum sínum eins og þeir
gerðu þegar þeir fluttust frá
Póst- og símamálastofnun yfir
til Pósts og síma hf.
Forstjóri fyrir íslandspóst
hf. verður ráðinn fljótlega og
gengið frá ráðningu annarra
yfirmanna fyrir 1. október nk.
Aðalfundur Skógræktarfélags Islands
Jákvætt viðhorf
til sjálfboðaliða
Núpi. Morgunblaðið.
„ÞATTASKIL hafa orðið í viðhorfi
stjórnvalda til frjálsra félaga sem
vinna sjálfboðaliðastörf í þágu um-
hverfisvemdar bæði á alþjóða
vettvangi sem og hér á landi,“
sagði Hulda Valtýsdóttir, formað-
ur Skógræktarfélags Islands, við
setningu aðalfundar félagsins á
Núpi í Dýrafirði. Sagði hún að
stjómvöld hlustuðu í æ ríkara
mæli á hvað félögin hefðu fram að
færa og tækju tillit til þeirra við
ákvarðanatöku.
Hulda benti einnig á að breyt-
ingar hafi átt sér stað í starfsemi
aðildarfélaga Skógræktarfélags ís-
lands og að félögin þyrftu að kynna
sér nýjar starfsreglur í tengslum
við gildistöku samkeppnislaganna
árið 1993 og lög um virðisauka-
skatt sem stundum hefði komið
með óréttmætum hætti niður á fé-
lögum sem ynnu sjálfboðaliðastarf.
Loks yrðu félögin að kynna sér á
hvem hátt mæta mætti nýjum lög-
um um umhverfismat. Þakkaði hún
aðild að félögunum sem nú era 63
fyrir ötult starf í heimahéraði og
fyrir að halda á lofti merki Skóg-
ræktar á íslandi.
Gott árferði
Jón Loftsson, skógræktarstjóri
ríkisins, vakti í sínu ávarpi athygli
á að trjá- og viðarvöxtur um allt
land væri með mesta móti í ár.
Hann myndi ekki eftir jafngóðu ár-
ferði.
AKUREYRI, SAUÐÁRKRÓKUR,
ÍSAFJÖRÐUR, VESTURBYGGÐ,
EGILSSTAÐIR OG SIGLUFJÖRÐUR
flðia leiáina ^
þú borgar urn leíö og þú bókar.
Upplýslngar og bókanir I síma:
570 8090
ISLANDSFLUG
gctrir fleirum tært aó fljúga
Morgunblaðið/Keli
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Halldór Blöndal samgönguráðherra
klippa á borða og opna göngubrúna formlega.
Fljót bílaumferðar brúað
GÖNGUBRÚIN yfir Miklubraut
var vígð í gær í blíðskaparveðri af
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra og Halldóri Blöndal
samgönguráðherra. I ávarpi borg-
arstjóra kom fram að ekki hefði
verið fundið nafn á brúna, sem
tengir Vogahverfið við smáíbúða-
hverfið eða Sogamýrina, en hug-
myndir væru uppi um að kalla
hana Sogamýrarbrúna eða Soga-
brúna.
Sogamýrarbrúin er önnur
göngubrúin sem byggð er í borg-
inni og áform eru uppi um að
byggja þá þriðju yfir Kringlumýr-
arbraut hjá Laugarneshverfinu
fyrir næsta vor.
Við vígsluna sungu eldri félagar
Karlakórs Reykjavíkur nokkur lög.
Fulltrúar Sjálfsbjargar, blindra- og
sjónskertra, íslenska fjallahjóla-
klúbbsins og félagsins Iþróttir fyrir
alla komu fylktu liði yfír brúna rétt
eftir vfgsluna.
Brúin er samstarfsverkefni
Vegagerðarinnnar og Reyhjavíkur-
borgar, en borgin sá um fram-
kvæmdina. Heildarkostnaður við
gerð hennar er um 62 milljónir.
Brúin var hönnuð af Verkfræði-
stofu Stefáns Ómarssonar í sam-
vinnu við Baldvin Einarsson verk-
fræðing. Ráðgjafi við útlitshönnun
brúarinnar var Ingimundur Sveins-
son og Ragnhildur Skarphéðins-
dóttir landslagsarkitekt sá um út-
litshönnun göngustfga og næsta
umhverfis.
Við vígslu göngubrúarinnar rifj-
aði borgarstjóri upp æskuárin í
Vogunum og ófáar ferðir þaðan yf-
ir í Sogamýrina sem þá var verið
að ræsta fram. Á þeim tíma sagði
borgarsljóri að mesti farartálminn
hefði verið stórir skurðir. Núna
áratugum seinna væri farartálminn
milli hverfanna fljót bílaumferðar
um Miklubraut sem nú hefði verið
brúað fyrir gangandi vegfarendur.
Þá ávarpaði einnig Ilalldór Blön-
dal samkomuna og þakkaði m.a.
Reykjavíkurborg samstarfið við
byfrginfrn brúarinnar.
I lok athafnar afhenti borgar-
stjóri samgönguráðherra viður-
kenningarskjal með svofelldum
orðum:
Að fötluðum hollt er að hyggja,
yfir hindranir leið þeirra tryggja,
og brúin svo breið,
mun bæta hér leið,
með Halldóri er hagstætt að byggja.
Norðanlands vill hann sig viðra
og vegum og göngum þar hliðra,
því brosum við sæl,
ef sýnir hann stæl,
og gefur í Gullinbrú syðra.