Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 15
Rauð áskriftarröð 6 tónleikar
Vinsælustu einleikskonsertar tónlistarsögunnar.
Gul áskriftarröð 6 tónleikar
Voldug hljómsveitarverk.
Græn áskriftarröð 4 tónleikarar
Aðgengileg og sígild tónlist fyrir alla.
Jónas Ingimundarson kynnir hljómsveitina
og tónverk þessara tónleika.
Skemmtun - fræðsla - upplifun
Frikir kj.Hi
i Reykj.nuk
Guðsþjónusta kl. 14.00.
Skráning í safnaðarferð
6. september stendur yfir
á skrifstofu safnaðarins.
Góður árangur hjá Skógrækt-
arfélagi Stykkishólms
Stykkishólmi - Skógræktarfélag
Stykkishólms var stofnað fyrir 50
árum. Undanfarin ár hefur mikið
verið starfað á vegum félagsins und-
ir stjórn Sigurðar Ágústssonar frá
Vík. Sigurður hefur umsjón með
skógræktarfélaginu í 24 ár en á
undan honum var Guðmundur
Bjarnason í forystusveit félagsins.
Skógræktarsvæði félagsins eru 5
þ.e. í Grensási í Stykkishólmslandi,
Tíðás, Laugás og Setberg í Saura-
landi pg í Vatnsdal í Drápuhlíðar-
íjalli. í Vatnsdal var hinn forni Sel-
skógur sem sagt er frá í Eyr-
byggju. Innan skógræktargirðinga
eru um 100 ha og er helmingur af
því svæði í Vatnsdal. Árlega eru
gróðursettar frá 2.500 upp í 17.000
plöntur. Mest var gróðursett árið
1990 þegar skógræktarátakið
Landgræðsluskógar hófst. Trén á
elstu svæðunum hafa dafnað vel og
eru stærstu trén um 10 metra há.
I sumar hefur verið unnið m.a.
við að lagfæra aðstöðuna í skóg-
ræktinni í Grensási. Kurlað hefur
verið mikið af tijám sem falla til við
grisjun og kurlið notað í göngustíga.
Aðstaðan í Grensási er orðin mjög
skemmtileg. Þar er hægt að grilla
og setjast við borð í skógarlundum
og er tilvalið fyrir Hólmara að ganga
þangað með nestið sitt á góðum
sumardögum og njóta þess að vera
í fallegu umhverfi.
Frá árinu 1988 hefur Skógrækt-
arfélagið tekið á móti erlendum
ferðamönnum sem hafa komið hér
við í skipulögðum ferðum og gróð-
ursett tré í landi félagsins. Að með-
altali hafa komið árlega um 500
erlendir gestir.
Laugardaginn 23. ágúst var bæj-
arbúum boðið að skoða skógræktar-
svæðið í Grensási. Þar tók á móti
gestum Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Is-
lands, ásamt forystufólki Skógrækt-
arfélags Stykkishólms. Þar var gest-
um kynnt starfsemi félagsins og sá
árangur sem félagið hefur náð í
skógrækt.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
SIGURÐUR Ágústsson frá Vík hefur sljórnað starfi Skógræktar-
félagsins í 24 ár. Hér er hann á myndinni í skógarreit félagsins
í Grensási við Stykkishólm ásamt Guðmundi Þór Guðþórssyni sem
unnið hefur með honum undanfarin ár.
S/oná&fr ó ö/áim/
Ný þjónusta fyrir
skotveiðimenn á
Austurlandi
Skipuleggur
veiðidaga í
samráði við
landeigendur
NÝR eigandi sem tók við Hótel Blá-
felli á Breiðdalsvík fyrr í sumar býð-
ur nú í haust nýja þjónustu fyrir
skotveiðimenn: Að skipuleggja fyrir
þá veiðidaga í samráði við bændur
jafnframt því sem hann býður gist-
ingu.
Vilhjálmur H. Waltersson, hót-
elstjóri, segir mikilvægt að skipu-
leggja sókn í gæs og ijúpu og því
hafi hann ákveðið að bjóða þessa
þjónustu. Segir hann að stjórna þurfi
skotveiðum á sama hátt og laxveið-
um.
„Þá vita menn hvað búið er að
veiðast, hvort veitt hefur verið á
iandinu deginum áður og þar fram
eftir götunum því nauðsynlegt er að
hvi'la landið öðru hveiju," segir Vil-
hjálmur.
Hann fær úthlutað leyfum hjá
bændum þegar menn hafa samband
við hann og skipuleggur veiðiskap-
inn. Hann segir hægt að stunda
gæsa- o g ijúpnaveiðar bæði í Breiðd-
al og Berufirði en íjúpnaveiðitíminn
byijar 15. október.
Vilhjálmur er nú að skipuleggja
fyrir menn sem hafa óskað eftir
veiði í lok september. Eru það íslend-
ingar en á næsta ári á hann von á
erlendum veiðimönnum sem stund-
uðu laxveiðar í Breiðdalnum í sumar
og sýndu líka áhuga á skotveiði.
Viihjálmur hefur stundað skot-
veiði í nærri tvo áratugi og segir
að menn séu að koma auga á að
ekki borgi sig að ofhlaða veiðilöndin.
Áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands er skipt í fjórar raðir eftir litum regnbogans, til að minna á að
hljómsveitin leitast við að flytja tónlist sem spannar ailt litasvið tónbókmenntannna.
SinfóníuKljómsveion
\of«
óðu1"
Skrifstofa Sinfónfuhljómsveitar íslands
Háskólabíói við Hagatorg
Sími 562 2255, fax 562 4475
Veffang: www.sinfonia.is
Ofeíáf c/cuf Al. 70-74/
Áskrifendur fá allt að 25% afslátt af miðaverði,sem jafngildir
því að fá fjórðu hverja tónleika frítt.
í dag er síðasta tækifærið fyrir áskrifendur að endurnýja áskrift
að sætunum sínum.
Almenn sala áskriftarskírteina hefst á mánudaginn.
Þú getur notað símann
Handhöfum greiðslukorta er gefinn kostur á að hringja í síma
562 2255, gefa upp númer á kortinu og vitja skírteinanna síðar
eða fá þau send í pósti.
Einnig er boðið upp á léttgreiðslur og greiðslukortasamning um
mánaðarlegar greiðslur fyrir þá sem þess óska.
Upphafstónleikar
Hinir sívinsælu upphafstónleikar verða í Háskólabíói 11. 12. og
13. september.
Hljómsveitarstjóri: Keri Lynn Wilson.
Einsöngvari: Hanna Dóra Sturludóttir.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Mozart, Puccini, RachmaninofF,
Lehar og Ravel.