Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 18
18 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
EGGERT Björnsson og Ásgeir Árnason við hliðina á nýja bátnum sínum Gísla Gunnarssyni SH 85.
Miklar breytingar hafa verið gerðar á honum og öll vinna við þær fór fram í Stykkishólmi. Þetta
er sjöundi bátur í eigu Eggerts Björnssonar með þessu nafni.
Nýr skelbátur í Hólminn
ÞEIR félagar Eggert Björnsson
og Ásgeir Arnason í Stykkis-
hólmi hafa fengið nýjan bát til
hörpudiskveiða. Þeir keyptu í
vor bátinn Blika sem var í eigu
íshákarls. í sumar var báturinn
lengdur um 2,5 metra hjá Skipa-
smíðastöðinni Skipavík í Stykk-
ishólmi og gerðar í leiðinni
fleiri endurbætur á bátnum.
Miklar breytingar
Báturinn hefur tekið miklum
breytingum og mælist um átján
lestir. Eigendurnir eru mjög
ánægðir með hversu vel hefur
tekist með breytingarnar. Bát-
urinn heitir nú Gísli Gunnars-
son SH 85. Báturinn fór strax
á hörpudisksveiðar og landar
afla sínum hjá Sigurði Ágústs-
syni hf.
Hefur stundað sjóinn
í yfir 60 ár
Eggert Björnsson hefur
stundað sjóinn í yfir sextíu ár.
Allir bátar Eggerts hafa heitið
Gísli Gunnarsson og er nýi bát-
urinn sá sjöundi með þessu
nafni. Gísli Gunnarsson var
langafi Eggerts og segir hann
að heill hafi fylgt nafninu og á
sínum langa sjóferli hafi aldrei
neitt komið fyrir, ekki einu
sinni rekist á sker, þótt hann
hafi oft í misjöfnum veðrum
siglt um skeijóttan Breiða-
fjörðinn. Eggert er orðinn 81
árs og hefur stundað sjó-
mennsku allt sitt líf þar til í
fyrra að hann fór í land.
Sáu á eftir stóru loðn-
unni inn í lokaða hólfið
BOTNINN er nú dottinn úr loðnu-
veiðum og eru öll loðnuskipin kom-
in í land með lítinn sem engan
afla enda hefur nær engin veiði
verið síðustu tíu daga þrátt fyrir
mikla leit á stóru hafsvæði. Hrá-
efni er nú uppurið hjá fiskimjöls-
verksmiðjum og hefur starfsemi
þeirra stöðvast í bráð. Óvissa ríkir
um framhald loðnuveiða, en nokk-
ur skip munu fara til loðnuleitar
að nýju upp úr helginni, að sögn
Viðars Karlssonar, skipstjóra á
Víkingi AK.
Mikið afsmáloðnu
„Eftir að hann brældi um dag-
inn hefur ekkert fengist. Hins veg-
ar er mikið af smáloðnu á stóru
svæði þarna norður frá, en við
sáum á eftir stóru loðnunni og
hnúfubökunum inn í lokaða svæð-
ið þegar við vorum að veiðum við
línuna fyrir um viku,“ sagði Við-
ar, sem hætti leit sl. þriðjudag
eftir víðtæka leit á stóru svæði
fyrir utan lokaða svæðið úti fyrir
Norðurlandi langleiðina til Græn-
lands. Síðustu tvö loðnuskipin,
sem eftir voru á miðunum, Guð-
mundur VE og Þórshamar GK,
héldu svo til hafnar á miðvikudag.
Að mati Viðars voru það regin-
Loðnuleit hefst á
ný eftir helgi
mistök að loka stóra hólfinu úti
fyrir Norðurlandi. Engin vísinda-
leg rök hafi legið þar að baki
enda hafi ekki einu sinni verið
fyrir því haft að skoða ástandið.
„Það þarf annaðhvort að senda
rannsóknaskip á staðinn eða vís-
indamenn um borð í loðnuskipin
til að kanna aðstæður. Við erum
alfarið á móti því að svæðum sé
lokað án þess að fyrir því liggi
rök. Það er alveg ljóst að við veið-
um enga loðnu í haust ef hólfið
verður ekki opnað því að allt okk-
ar haustveiðisvæði er innan þessa
hólfs. Við getum allt eins gleymt
loðnuveiðum fram að áramótum
ef ekki verður opnað. í ágústmán-
uði í fyrra fengum við t.d. fjóra
mjög góða túra í þessu sama hólfi
og nú er lokað.“
Sátum bara eftir
og horfðum á
Viðar segir að sú smáloðna, sem
fengist hafí innan þess svæðis,
sem nú sé lokað, fyrir um þremur
vikum, sé nú komin langt norður
eftir, og væri alveg eins hægt að
banna loðnuveiðar alfarið þar sem
vart hafi orðið smáloðnu mjög víða
utan lokaða svæðisins undanfarið.
Fyrir viku hafi hins vegar stóra
loðnan verið elt upp að lokunarlín-
unni. „Loðnan og hnúfubakarnir
héldu áfram inn í hólfið. Við mátt-
um aftur á móti ekki fara lengra
heldur sátum eftir og horfðum á.“
Að mati Viðars er enginn tilgang-
ur með lokuninni þó hún skipti
svo sem ekki máli til eða frá þessa
dagana enda hefði reynslan sýnt
að fyrrihluti september væri alltaf
lélegur veiðitími. „En strax 1.
október þurfum við að geta byijað
loðnuveiðar norður af Vestfjörð-
um innan lokaða hólfsins. Það er
alveg á hreinu.“ Viðar gerði ráð
fyrir að hefja loðnuleit að nýju á
mánudag eða þriðjudag eftir
langt helgarfrí. Síðan væri ætlun-
in að hefja síldveiðar um miðjan
september.
370 þúsund tonn
komin á land
Heildaraflinn á yfirstandandi
loðnuvertíð, sem hófst 1. júlí, er
kominn í rúm 370 þúsund tonn,
ívið meira en á sama tíma í fyrra,
auk þess sem erlend skip hafa
landað um 60 þúsund tonnum til
bræðslu hér á landi. Af upphafs-
kvótanum er eftir að veiða tæp
200 þúsund tonn, en ákvörðun
um hvort eða hversu miklu verður
bætt við loðnukvótann verður
ekki tekin fyrr en að afloknum
haustleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar.
Tillaga um geymslu kjarnorku-
vopna á Grænlandi
Danir ítreka
andstöðu sína
PAUL Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hefur hafnað
tillögum um að urða kjarnorkuvopn
á Grænlandi eftir tveggja mánaða
umhugsun. í bréfí sem hann sendi
Lars Emil Johansen, formanni
grænlensku landsstjórnarinnar, lýs-
ir Nyrup Rasmussen „þungum
áhyggjum og miklum efasemdum"
vegna tillögunnar um að gera
Grænland að kjarnorkuvopna-
kirkjugarði, að því er fram kemur í
Jyllands-Posten.
í bréfinu rökstyður forsætisráð-
herrann þessa skoðun sína með því
að taka þurfi tillit til „hinnar ein-
stæðu og ósnertu en afar viðkvæmu
náttúru á Norðaustur-Grænlandi"
auk þess sem hann nefnir „alþjóðleg
öryggisvandamál" sem hafa beri í
huga. „Að sjálfsögðu verður að út-
vega nákvæma vitneskju og skjöl
áður en hægt er að taka ákvörðun
- með eða á móti - um að setja í
gang svo umfangsmikil verkefni
eins og það sem rætt er um,“ segir
í bréfinu.
Það var bandaríska RAND stofn-
unin sem lagði það upphaflega til
að úreltum kjarnorkuvopnum yrði
komið fyrir á Grænlandi, þar sem
landið væri langt frá Bandaríkjun-
um og Rússlandi og afar stijálbýlt.
Taldi stofnunin að Thule-herstöðin
á Norðaustur-Grænlandi væri
heppilegasti geymslustaðurinn.
Bandaríkjamenn og Rússar
hafi frumkvæði
Svar Nyrups Rasmussens er við-
brögð við tillögu Lars Emils Johans-
ens um að Grænland og Danmörk
eigi að koma á fót nefnd til að
kanna hvaða afleiðingar slík
geymsla hefði á umhverfis- og ör-
yggismál. Hann bendir á að hvorki
bandarísk né rússnesk yfirvöld hafi
snúið sér til Dana vegna málsins.
Því sé best að bíða átekta. Hann
útilokar þó ekki möguleikann á því
að málið verði tekið upp, berist slík
beiðni frá Rússum og Bandaríkja-
mönnum.
Tillagan um vopnaeftirlit líkt því
sem yrði í Grænlandi, yrði tillagan
að veruleika, er algerlega ný af
nálinni og myndi krefjast samn-
ingaviðræðna Bandaríkjanna og
Rússa. Þá yrðu þær að vera innan
ramma afvopnunarsamkomulags
sem þjóðirnar hafa þegar gert. Svar
danska forsætisráðherrans er á
sömu nótum og svar Niels Helveg
Petersens utanríkisráðherra frá því
fyrr í sumar en hann telur að þeir
sem búi yfir kjarnorkuvopnum,
verði sjálfir að losa sig við þau og
leysa þau vandamál sem því fylgi.
Reuter
Sihanouk
kominn heim
NORODOM Sihanouk, konungur
Kambódíu, kom til heimalands
síns í gær, þar sem honum og
konu hans, Monineath drottn-
ingu, var tekið með kostum og
kynjum. Konungurinn hefur
dvalið í Peking síðan í febrúar
þar sem hann hefur verið undir
læknishendi. I síðasta mánuði
steypti Hun Sen, annar forsætis-
ráðherra landsins, Norodom
Ranariddh prins af stóli fyrsta
forsætisráðherra og tók öll völd
í sínar hendur.
Sihanouk kom til bæjarins Si-
em Reap í norðurhluta landsins,
en þar skammt frá er Angkor
musterið og kveðst konungur
ætla að biðja þar fyrir friði í
landinu og sátt og samlyndi.
Ófriður blossaði upp í norð-
austurhluta landsins um það leyti
sem konungurinn kom til Siem
Reap, en átök hafa staðið í
nokkrar vikur milli stjórnarhers-
ins, undir Hun Sen, og hersveita
sem eru hliðhollar Ranariddh um
bæinn O’Smack.