Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 19
ERLENT
Haraldur Sigurðsson hefur eldfjallafræðingurrannsakað eldvirkni á Montserrat
Gjóskuflóð gæti bor-
ist 50 km á haf út
Reuter
LÍKAMSLEIFAR óþekkts íbúa höfuðstaðar Montserrat, Plymouth, fundust grafnar í ösku í miðborg-
inni í fyrradag. íbúar borgarinnar voru fluttir á brott nokkru áður en eldgos hófst en eftir urðu
nokkrir heimilisleysingjar.
„GOSIÐ á Montserrat gæti átt
eftir að standa yfir í nokkur ár.
Sumir hafa talið að það gæti átt
eftir að vaxa en mér finnst nú
sennilegast að það haldi áfram
með svipuðum hætti. Þeirri hættu
sem stafað getur af gjóskuflóðum
og flóðbylgjum hefur að mínu
mati enginn gaumur verið gefinn,
en ég og félagar mínir hér í Rhode
Island-háskólanum höfum sýnt
fram á að gjóskuflóð getur runnið
eftir yfirborði sjávar allt að 50 kíló-
metra og lagt þar líf og gróður í
rúst,“ sagði Haraldur Sigurðsson,
prófessor í jarðvísindum við haf-
fræðistofnun Rhode Island-háskól-
ans, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Haraldur hefur unnið að rann-
sóknum á Montserrat, var þar
síðast í fyrra en er á leið þangað
upp úr næstu áramótum ásamt
starfsfélögum sínum við haf-
fræðistofnun Rhode Island-
háskóla í Narragansett. „Við för-
um í hafrannsóknarleiðangur í
kringum eyna og við strendur
hennar til að kanna þau gosefni
sem fara í sjóinn. Kanna áhrif
gjóskuflóða á haf út og þeirra
jarðmyndana sem þau mynda á
hafsbotni. Við munum rannsaka
eyrar sem eru að myndast vestan
og austan við eyna en þar er að
hlaðast út nýtt land.
Megnið af gosefnunum fara í
sjóinn, þau streyma sem heit
gjóskuflóð yfir landið og út í sjó.
Það merkilega við þessi flóð er
að þau renna eins og snjóflóð, eru
blanda af vikri, ösku í heitu gasi.
Og þau streyma eftir hafsyfir-
borðinu, renna eftir því langt út
frá landi. Gera má ráð fyrir því
að þau fari marga kílómetra eftir
sjónum hlaupi meiri kraftur í
gosið. Við gerðum þá uppgötvun
þegar við vorum við rannsóknir
í Indónesíu í sumar, á eldfjallinu
Krakatá, sem gaus 1883 og drap
36.000 manns, að svona gjósku-
flóð í því runnu 50 kílómetra út
frá fjallinu eftir sjónum," sagði
Haraldur.
íbúar Antigua í hættu
„Þess vegna teljum við að hinir
60.000 íbúar á Antigua, sem er
um 50 km austur af Montserrat,
séu í hættu þó ekki hafi verið
minnst á það opinberlega ennþá.“
- Gæti gjóskuflóð komist þangað?
„Já, þau gætu það ef gosið er
mjög stórt. Gjóskuflóðin kólna ekk-
ert þótt þau fari yfir sjóinn. I Krak-
atár-gosinu voru þau það heit enn-
þá er þau höfðu farið 50 kílómetra
eftir sjávaryfirborðinu að þau kol-
uðu tré og brenndu 2.000 manns
til bana.“
- En hvað með flóðbylgjur?
„í sambandi við gosið í Mont-
serrat höfum við nokkrar áhyggjur
af hugsanlegum flóðbylgjum. Mikið
gosefni hefur hlaðist út í sjó og
hefur myndað mikla eyri út frá
landi sem er þriggja kílómetra breið
og tveggja kílómetra löng. Hlíðar
hennar neðansjávar eru mjög bratt-
ar og mikil hætta á að þær hrynji;
að eyrin sígi út en við það myndu
flóðbylgjur myndast. Að mínu áliti
hefur ekki verið tekið tillit til þeirr-
ar hættu sem öðrum eyjum í ná-
grenninu kann að stafa af flóðbylgj-
um og frá gjóskuflóði. Það er þátt-
ur sem við ætlum að kanna í leið-
angrinum uppúr áramótum."
- Af hverju rennur gjóskan svo
langt?
„Það er léttleiki gjóskuflóðsins.
Þó grjót sé í flóðinu er heildar
eðlisþyngd þess, vegna hins heita
lofts í því, minni en eðlisþyngd
sjávar. I flóðinu er sandur, aska,
vikur, loft og gas, í afar heitri loft-
kenndri blöndu. Getur hitinn í
henni verið frá 500 og upp í 800
gráður á Celcius. Blandan fær
hreyfikraft er strókurinn fellur aft-
ur niður á fjallið eftir að hafa spýst
upp eins og vatn úr gosbrunni. Er
hann missir máttinn, dettur gos-
efnið niður á fjallið og rennur nið-
ur hlíðar þess eins og snjóflóð.
Leitar niður dali og árfarvegi og
beint út á sjó. Einhver hluti gjósku-
flóðsins fer strax niður á hafsbotn
en töluverður hluti virðist bara
fara með vatnsfletinum því hann
er mjög sléttur og veitir ekkert
viðnám. Það myndast gufupúði á
milli sem flóðið flýtur ofan á er
það rennur út frá ströndinni. Við
höfum sýnt fram á að svona flóð
getur farið 50 kílómetra leið eftir
yfirborðinu áður en það stöðvast."
- Þau hafa ekki náð svo langt í
þessu gosi?
„Nei, þau hafa aðeins_ runnið
nokkra kílómetra á sjó út. Ástæðan
er sú að gosin hafa verið lítil þótt
þau hafi verið stöðug."
- Er búist við stærri gosum í
Montserrat?
„Það veit enginn og ekkert hægt
að spá um það. Á eynni sjálfri er
ekkert sem bendir til að þar hafi
verið risagos. Eldri gos virðast
hafa verið af svipaðri stærð og það
sem nú hefur staðið yfir. Miðað
við lengd gosa í grenndinni gæti
gosið þó átt eftir að standa yfir
nokkur ár í viðbót. Sumir hafa
talið að það gæti átt eftir að vaxa
en mér fínnst nú sennilegast að
það haldi áfram með svipuðum
hætti. Ef mikil kvika væri fyrir
hendi mundi maður ætla að fjallið
hefði bólgnað meira upp en það
hefur gert.“
Reyna að kúga Breta
- Hver er mesta hættan af gosinu
á Montserrat?
„Gjóskuflóðin eru langhættuleg-
ust og þau ský sem fylgja þeim.
Þau hafa þegar eytt öllum gróðri
og lífríki á tæplega helmingi eyj-
unnar svo og byggð. Norðurhlutinn
er enn grænn og í byggð en það
er hætt við því að hann fari einnig
undir gjósku vaxi gosið. Til þess
þarf þó nokkuð stórt gos en það
gæti gerst.“
- Nú er eins og íbúamir vilji ekki
burt og hafi fært sigyfir á norður-
hlutann?
„Jú, jú, og ástæðan er sú að
þeir eru að reyna að ná sem best-
um samningum við Breta, sem
vilja kaupa íbúana burt, að þeir
yfirgefi eyna algerlega. Þetta er
hálfgert pókerspil, íbúarnir reyna
að vera eins lengi í eynni og þeir
þora og meðan þeir þijóskast við
freista þeir þess að fá bresku
stjómina til að bjóða þeim stöðugt
betur.“
Að sögn Haralds hófst eldvirkn-
in í Montserrat í júlí 1995 með því
að stærðar líparítsgúll gekk upp
úr því. í þeim goshrinum sem orð-
ið hafa með reglulegu millibili síð-
an hefur hrunið úr honum.
Zhírínovskíj
gerist mat-
vörukaupmaður
M ATV ORUVERSLUN Zhír-
fnovskíjs er að líkindum ástæða
þess að minna hefur heyrst að
undanförnu af einum litríkasta
stjómmálamanni Rússlands, og
þótt víðar væri leitað, Vladímír
Zhírínovskíj. Fyrir sex áram mdd-
ist hann með skætingi út á stjóm-
málavöllinn og höfðaði til stolts
kjósenda og örvæntingar vegna
hinna erfiðu tíma er fylgdu breyt-
ingunni úr kommúnískum áætl-
anabúskap í kapítalískan markaðs-
búskap. Flokkur hans er, ásamt
kommúnistum, eina stjórnarand-
stöðuaflið sem hefur á að skipa
frambjóðendum um allt land.
Þannig hefur Zhírínovskíj enn
nokkur völd, þrátt fyrir að kannski
hafi ekki gengið sem best í pólitík-
inni.
Mýkt ímynd
Nú hyggst hann mýkja dálítið
ímynd sína, að sögn aðstoðar-
manna, og sá Zhírínovskíj sem
matvömverslun í Moskvu er kennd
við er þægilegri viðskiptis en
hvassyrti pólitíkusinn sem vill gera
Rússland mikið á ný. „Við viljum
sýna að leiðtoga okkar er annt um
það sem almenningi er annt um.
Flestum stendur á sama um stjóm-
mál en hafa mikinn áhuga á að
fá sýrðan ijóma á góðu verði,“
segir Mikhafl Bashaglov, þingmað-
ur flokks Zhírínovskíjs og fram-
kvæmdastjóri matvöruverslunar-
innar, í samtali við Washington
Post.
Stjórnmálaskýrendur segja að
stjarna Zhírínovskíjs skíni sífellt
daufar á stjórnmálafestingunni,
og skoðanakannanir sýni að al-
menningur í Rússlandi líti ekki á
hann sem vænlegt forsetaefni. í
fyrstu umferð forsetakosninganna
í fyrra varð hann í fimmta sæti.
Það er flokkur hans sem á og
rekur matvöruverslunina sem við
Reuter
RÚSSNESKI þjóðernis-
sinninn Vladimír Zhírínovskíj
sýnir hve annt honum er um
lítilmagnann og selur honum
sýrðan ijóma á góðu verði.
hann er kennd, og þar fást rúss-
neskar vörur og einnig erlendar,
til dæmis jógúrt og koníak, þrátt
fyrir að Zhírínovskíj hafi jafnan
talað illa um Vesturlönd. En vodk-
inn er rússneskur, og ber nafn
Zhírínovskíjs. Á merkimiðanum
er mynd af manninum sjálfum.
Juncker fagnar einhug
Frakka og Þjóðverja
Bonn, París. Reuter.
JEAN-CLAUDE Juncker, forsætis-
ráðherra Lúxemborgar, sem nú fer
með forsæti í ráðherraráði Evrópu-
sambandsins (ESB), fagnaði í gær
endurnýjuðum ásetningi franskra
og þýzkra stjórnvalda til að hvika
hvergi frá fyrri áætlunum um Efna-
hags- og myntbandalag Evrópu,
EMU. Sagðist Juncker vera sann-
færður um að þessi tvö ríki, sem
EMU stendur og fellur með, séu
nú samstiga í átt að settu marki.
Juncker sagði yfirlýsingu leið-
toga ríkisstjómanna tveggja, Helm-
uts Kohls og Lionels Jospins, sem
gefin var út eftir fund þeirra í Bonn
í fyrradag, hafa tekið af öll tví-
mæli um hvert stefnan lægi.
„Það var öllum ljóst að evróið
kæmi á tilsettum tíma, 1. janúar
1999. Nú hefur það verið staðfest
á ný án tvímæla,“ sagði Juncker í
viðtali við þýzka sjónvarpið ZDF.
Hann vísaði á bug efasemdum
þess efnis, að Frakklandsstjóm
væri ekki eins ákveðin í stuðningi
sínum við myntbandalagið og fyrir-
hugaða dagsetningu fyrir stofnun
þess. „Engin ákvörðun franskra
stjórnvalda á undanförnum vikum
hefur gefið tilefni til að ætla að þau
væru fylgjandi því að hvika frá
stofndagsetningunni 1. janúar
1999.“
Jospin ítrekar staðfestu
Jospin endurtók við heimkomu
sína úr Þýzkalandsheimsókninni til
Parísar í gær yfirlýsingu um að
Frakkland yrði tilbúið á tilsettum
tíma undir stofnaðild að EMU.
Hann ítrekaði ennfremur ásetning
stjórnarinnar til að halda hallanum
á ríkisrekstrinum innan við þau
mörk sem sett eru í Maastricht-sátt-
málanum. I síðasta mánuði ákvað
stjórn Jospins að hækka skatta á
fyrirtæki í því skyni að ná fjárlaga-
halla ársins í ár niður að 3,0%-
mörkunum, sem kveðið er á um í
sáttmálanum og Þjóðvetjar leggja
mikið upp úr að verði virt.