Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eldfimt ástand á
meðal Bosníu-Serba
VALDABARÁTTAN á meðal Bos-
níu-Serba hefur tekið á sig blóð-
uga mynd og virðist lausnin verða
sífellt fjarlægari með harðnandi
átökum. Vesturlönd hafa skipað
sér í lið með öðrum deiluaðilanum,
Biljönu Plavsic, forseta Bosníu-
Serba, sem hefur orðið til þess að
ímynd hennar hefur gjörbreyst í
augum Vesturlandabúa en þeir líta
nú á hana sem bandamann. Og
vissulega er hún það í samanburði
við harðlínumennina á meðal Bos-
níu-Serba, sem takast á við hana
um völdin. En því má ekki gleyma
að hún var í flokki þeirra, sagði
sig ekki sjálfviljug úr honum, og
er ekki fylgjandi Dayton-friðar-
samkomulaginu, þrátt fyrir að hún
hafi kosið að framfylgja því.
Serbneski lýðræðisflokkurinn,
SDS, er stærsti stjórnmálaflokkur
Bosníu-Serba og höfðar mjög til
þjóðernishyggju þeirra. Flokkur-
inn naut um 52% fylgis í síðustu
kosningum og voru nær allir
áhrifamenn Bosníu-Serba úr hans
röðum, m.a. Radovan Karadzic,
sem var neyddur til að láta af for-
setaembætti fyrir ári og er eftir-
lýstur af stríðsglæpadómstólnum
í Haag. Varaforseti hans, 65 ára
líffræðiprófessor, Biljana Plavsic,
tók þá við embættinu og áttu fáir
von á því að hún yrði til stórræð-
anna.
Fyrstu mánuðir hennar í emb-
ætti voru tíðindalitlir. í byijun júlí
réðst hún hins vegar harkalega á
ýmsa stjórnarmenn í SDS, sér í
íagi Karadzic og nánustu sam-
starfsmenn hans, og sakaði þá um
svartamarkaðsbrask og smygl.
Leysti hún þing Bosníu-Serba upp
og boðaði til kosninga í október en
með þessu skapaði hún sér mikla
reiði flokksmannanna. Þeir boðuðu
til fundar í trássi við tilskipanir
hennar og ráku hana úr flokknum.
Skipting í austur og vestur
Plavsic hefur haft aðsetur sitt í
Banja Luka, sem er í vesturhluta
svæðis Bosníu-Serba, en Karadzic
hefur ævinlega haldið sig í bænum
Pale, sem er í austurhluta Bosníu,
skammt frá Sarajevo. Plavsic hefur
lengi átt erfítt uppdráttar þar sem
Karadzic hafði töglin og hagldirnar
í her og hjá lögreglu Bosníu-Serba,
auk þess sem hann drottnaði yfir
stjómlagadómstól þeirra. Einræð-
istilburðir hans hafa hins vegar
grafið undan honum á meðal
flokksmanna hans, og hafa æ fleiri
yfírgefíð Serbneska lýðræðisflokk-
inn vegna skorts á lýðræði og sann-
girni.
Einn þeirra var Dragoljub Miij-
anic, varaforseti Bosníu-Serba og
einn af æðstu mönnum SDS, sem
gekk yfir í raðir Plavsic í vikunni.
Kvaðst hann ekki lengur geta þolað
framferði Karadzic, sem hafi látið
leynilögregluna beita dómara
stjórnlagadómstólsins ofbeldi til að
neyða þá til að úrskurða þingrof
Plavsic ólöglegt.
Biljana Plavsic hefur reynt að
ná stjórn lögreglu og hers í sínar
hendur. Bosníu-Serbar em um
900.000 og stór hluti 40.000
manna lögregluliðs fylgir Karadzic
að málum. Þá eru um 50.000
manns í her Bosníu-Serba en skipt-
ar skoðanir eru á meðal fréttaský-
renda um hvort Plavsic hafi tekist
að vinna herinn á sitt band. Á
þriðjudag boðaði hún yfirmenn
hersins á sinn fund og mætti hluti
herforingjanna en yfírmaður herr-
áðsins, Pero Colic, neitaði að koma.
Þrátt fyrir þetta ganga æ fleiri
harðlínumenn i lið með Plavsic, sem
stofnaði eigin stjórnmálaflokk á
fímmtudag, Serbneska þjóðar-
bandalagið. Hét hún því að brúa
bilið á milli þjóðarbrotanna og
draga úr spillingu er hún tilkynnti
um stofnun flokksins. Fullyrða
heimildir úr röðum Bosníu-Serba
að allt að fjörutíu núverandi og
fyrrverandi SDS-flokksmenn hygg-
ist ganga í lið með Plavsic, auk
Qölda andstæðinga SDS.
Milosevic dregur lappirnar
Enn er þó óljóst hver staða for-
setans er og tilraunir Vesturveld-
anna til að fá Slobodan Milosevic,
forseta Júgóslavíu, til að hafa af-
skipti af málinu hafa litlu skilað.
Milosevic hefur lagt til að Bosníu-
Serbar gangi til forsetakosninga
að nýju og að kosið verði um forset-
ann, þrátt fyrir að aðeins sé ár frá
því að Plavsic var kjörin. Telja
ýmsir stjórnmálaskýrendur þetta
kunna að vera til marks um að
staða Milosevic hafi veikst.
Bosníu-Serbar voru frá upphafí
andsnúnir Dayton-friðarsamkomu-
laginu. Tilraunir SFOR, fjölþjóða-
liðs Atlantshafsbandalagsins
(NATO) og fleiri þjóða til að hafa
hendur í hári eftirlýstra stríðs-
glæpamanna hafa kynt undir reiði
margra Bcsníu-Serba, sem hafa
hvað eftir annað gert aðsúg að
hermönnum SFOR.
Þá hafa hermenn fjölþjóðaliðsins
neyðst til að grípa til aðgerða vegna
átaka fylgismanna Plavsic og
Karadzic, sem hafa tekist á um
völd í her, lögreglu og fjölmiðlum.
Var sú raunin m.a. í Brcko, Bijelina
og Doboj, eftir að þeir höfðu veður
af því að menn hliðhollir Plavsic
hygðust reyna að ná lögreglustöðv-
um og fjölmiðlum á svæðinu.
Kosningar eina lýðræðislega
lausnin
Ástandið á svæðum Bosníu-
Serba verður æ eldfímara, eins og
atburðir síðustu daga eru til marks
um. Vesturveldin og ýmis alþjóða-
samtök hafa lýst því yfir að kosn-
ingar séu eina lýðræðislega leiðin
til að binda enda á valdabaráttuna
en því miður bendir margt til þess
að það sé með öllu óraunsætt. Og
þá horfa margir til þess með ótta
hvað gerist þegar fjölþjóðaliðið
heldur á brott frá Bosníu, en
Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að
bandarískir hermenn verði farnir á
braut í júní á næsta ári.
Byggt á: The Daily Telegraph, Was-
hington Post og Reuter.
E1 Nino býr sig undir
að losna úr læðingi
E1 Nino nefnist hafstraumur, sem með vissu millibili setur veðrakerfíð yfír
Kyrrahafi á annan endann. Nú virðist fyrirbærið ætla að verða óvenju kröft-
ugt og má búast við að það hafí áhrif á veðurfar á allri hnattkúlunni.
HAFSTRAUMURINN E1 Nino hefur
áhrif um allan heim. Hans gætir á
tveggja til sjö ára fresti og getur
staðið yfír í allt að 22 mánuði. í
þessari viku hafði hann áhrif á verð
á kaffi, kakói og hveiti og í gær
vöruðu vísindamenn við því að hann
gæti haft alvarleg veðurfarsleg áhrif
um allan heim á næstu mánuðum.
Bændur, sjómenn, tryggingafyrir-
tæki og fjárfestar ættu að leggja
eyrun við.
Hafi vísindamenn rétt fyrir sér
má búast við þurrkum í suður- og
austurhluta Áfríku, langvinnum
þurrki í Ástralíu og Indónesíu og
flóðum í Suður-Ameríku. Sérfræð-
ingar á loftslagsráðstefnu, sem nú
er haldin í Genf, sögðu að nú væri
einnig rétti tíminn til að taka malar-
íutöflur í Kenýa, búa sig undir vinda-
saman vetur í Kaliforníu og þrálátar
rigningar í Evrópu.
„E1 Nino hefur hrikaleg áhrif,“
sagði Jagadish Shukla, yfírmaður
bandarískrar stofnunar, sem rann-
sakar umhverfís- og þjóðfélagsmál.
„Okkar módel sýna mjög greinileg
merki, sérstaklega í Suðaustur-Asíu
og Suður-Ameríku.“
Nær hámarki um jólaleytíð
E1 Nino er spænska og merkir
„barnið“. Veiðimenn í Perú gáfu
straumnum þetta nafn vegna þess
að hann nær hámarki um jólaleytið.
Allajafna streymir Humboldt-
straumurinn fram hjá ströndum
Perú og flytur kalt vatn frá Suður-
heimskautinu allt að miðbaug. Hum-
boldt-straumurinn er kaldur og meg-
inástæðan fyrir því að undirlendi
Perú er gróðurlaust. Þessi straumur
er grundvöllur einna af gjöfulustu
fiskimiðum heims, sem enn veita vel
þrátt fyrir mikla rányrkju. Straum-
urinn skapar góð skilyrði fyrir svif
og endalausar torfur af ansjósum
og makríl. Það er engin furða að
Perú er helsti útflytjandi fískimjöls
I heimi. Tekjur Perú af útflutningi
sjávarafurða námu árið 1996 72
milljörðum króna.
E1 Nino setur loftslagið í Perú á
annan endann. Það sem gerist þegar
E1 Nino skellur á þykir ljóst. Þegar
allt er með felldu blása staðvindar
frá austri til vesturs um Kyrrahafið.
Þeir ýta volgu yfírborðsvatni frá
ströndum Perú og Chile við austur-
enda hafsins og hleypa köldum sjó
upp á yfirborðið. Heita yfirborðs-
vatnið safnast saman í vestri, um-
hverfís Ástralíu og Filippseyjar, og
gerir að verkum að þar er sjórinn
nokkrum gráðum hlýrri og yfírborð-
ið um einum metra hærra en í aust-
urhlutanum. Þegar dregur úr stað-
vindunum, þótt ekki sé nema í stutt-
an tíma, leiðir það til þess að þessi
hlýi sjór tekur að renna til baka
samfara því að þrýstingurinn frá
austri minnkar.
Samspil andrúmslofts og
sjávar
Þegar þessi þróun hefst leiðir
samspil andrúmsloftsins og sjávarins
til þess að ekki verður snúið við.
Eftir því sem sjórinn verður hlýrri í
austurhluta Kyrrahafsins, þeim mun
hlýrra verður ioftið fyrir ofan það.
Um leið verður hitastig loftsins svip-
aðra því, sem gerist yfír vestanverðu
Kyrrahafi. Þetta dregur úr þrýst-
ingsmun yfír úthafínu öllu. Það er
hins vegar þessi þrýstingsmunur,
sem gerir það að verkum að stað-
vindarnir blása. Staðvindarnir yfir
austurhluta Kyrrahafsins halda því
áfram að veikjast og hlýi sjórinn
heldur áfram að renna í austur. í
raun má segja að vesturhluti Kyrra-
hafsins og loftslagið, sem þar ríkir,
flytjist eftir hafinu endilöngu í aust-
ur. Afleiðingin er sú að hitabeltisúr-
hellin, sem venjulega eiga sér stað
í Indónesíu, á Filippseyjum og norð-
urhluta Ástralíu, flytjast yfír á vest-
urströnd Suður-Ameríku, þar sem
sjórinn er undir venjulegum kring-
umstæðum of kaldur til að uppgufun
sé nægileg til að framkalla rigningu.
Þessi uppstokkun í veðrakerfinu
hefur ýmsar aðrar breytingar í för
með sér. Óveður, sem myndast í
Kyrrahafínu, skella nú sunnar á
ströndum Norður-Ameríku en ella.
Fyrir vikið rignir meira í Kaliforníu
en í meðalári. Þá má búast við meiri
rigningu en ella í Mið-Austurlöndum
vegna E1 Nino.
Hastarleg áhrif fyrir 15 árum
Áhrifín af E1 Nino eru mismikil.
Síðast þegar straumurinn skall á af
fullum þunga var veturinn 1982 til
1983. Þegar heita vatnið berst að
ströndum Perú drepst svifið og físk-
urinn í sjónum drepst úr hungri.
Veturinn 1982/83 dróst sjávarút-
vegur í Perú saman um 40%. Land-
búnaðarframleiðsla minnkaði um
8,5%. í eyðimörkunum upp af
ströndunum var rigningin slík að
víða flæddi og aurskriður rifu með
sér heilu þorpin. Á hásléttunni við
Titicaca-vatn brustu hins vegar á
þurrkar. Uppskerur eyðilögðust og
mæður reyndu að gefa sveltandi
börn sín til að bjarga þeim. Talið
er að þá hafi E1 Nino kostað 2000
manns lífið og valdið tjóni að and-
virði 936 milljarða króna um allan
heim.
Breytingar byrjaðar að koma
fram
Nú hafa menn verið að spá því
að E1 Nino skelli á með offorsi um
nokkurt skeið og hafa bændur því
haft tækifæri til að undirbúa sig
undir breyttar aðstæður. Fyrir 15
árum var engin viðvörun. Ljóst er
að breytingamar, sem E1 Nino fýlgja,
eru þegar byijaðar að koma fram. Á
ráðstefnunni í Genf var því haldið
fram að flóðin í Póllandi, Þýskalandi
og Tékklandi í sumar tengdust E1
Nino. Sjórinn við strendur Perú hefur
þegar hlýnað um fimm gráður við
miðbaug. Hann er nú þegar orðinn
jafnhlýr og hann varð hlýjastur vetur-
inn 1982/83. Telja sérfræðingar að
búast megi við að E1 Nino fari meiri
hamförum nú en þá.
Heimildir: Reuter, The New York Times
og The EconomisL
El Nino að verki
El Nino er nafn á hafstraumi í Kyrrahafi, sem veldur miklum
veöurfarsbreytingum. Nú virðist El Nifio vera að losna úr læðingi og
gæti haft áhrif víða um heim. Hér sést hvernig El Nino verður til.
Venjulegt ástand
Staðvindar ýta hlýjum sjó frá
austri til vesturs þannig að
yfirborð sjávarins hækkar í
vesturhluta Kyrrahafsins.
Þrumuveður leysa úr læðingi
hita og steypiregn. Þetta eykur
hitamuninn milli austur-
og vesturhluta Kyrra-
hafsins og viðheldur
hringrásinni. I um
10 km hæð blása
síðan hraðir vestan-
vindar, svokallaðir
skotvindar, frá Norður-
Asíu til vesturstrandar
Norður-Ameríku með allt
að 300 km hraða.
El Nifío
N-Am’erika\
Kyrrahaf
Skotvindar
Miðbaugur
Staðvindar veikjast
þannig að hlýr sjór
færist í austur. Þetta
dregur úr hitamismun
milli austurs og
vesturs. Skotvindarnir
færast sunnar og
taka með sér óveður, |N .
sem venjulega yrðu . N
ekki á leið þeir, og
bera þau til Kanada
eða Kaliforníu. Hlýi
sjórinn berst að
lokum til Suður-
Ameríku.
-WMUI
HDUiT \
"tu>
Hlýr
s or