Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 21
ERLEIMT
Fjöldamorð
í fangelsi í
Venezúela
E1 Dorado. Reuter.
TUTTUGU og níu fangar í af-
skekktu fangelsi í Venezúela voru
höggnir og stungnir til bana í
grimmilegum átökum milli tveggja
glæpagengja innan fangelsis-
múranna á fimmtudag að sögn
yfirvalda.
„Það eru 29 látnir og 13 særð-
ir,“ sagði Sait Rodriguez, aðstoðar-
héraðsstjóri í héraðinu Bolivar, í
samtali við /feuíer.s-fréttastofuna
fyrir utan Ei Dorado-fangelsið,
sem er um 700 km suðaustur af
Caracas.
Embættismenn í dómsmálaráðu-
neytinu höfðu áður sagt að 49
hefðu látið lífið, en það var dregið
til baka. Morðingjarnir notuðu
sveðjur og frumstæða hnífa.
Nokkrir hinna látnu höfðu verið
hálshöggnir. Aðrir höfðu brennst
illa þegar árásarmennirnir kveiktu
í dýnum. Að minnsta kosti tveir
höfðu verið skornir á háls. Blóð
var upp um alla veggi og höfuð
og útlimir lágu eins og hráviði á
gólfum.
Átökin í fangelsinu eru rakin til
þess að leiðtogi eins gengis var
myrtur nýverið. Hópur fanga
braust út úr klefum sínum og stóð
árásin yfir í 20 mínútur. Fangarn-
ir, sem frömdu morðin, eru úr
gengi á staðnum, en fórnarlömbin
voru öll úr öðru gengi og höfðu
verið í La Sabaneta-fangelsinu,
sem er í vesturhluta landsins. Þeir
höfðu verið fluttir til E1 Dorado.
E1 Dorado-fangelsið var reist
árið 1958 og stendur við ána Cuy-
uni. Hinum megin árinnar stendur
gullnámubær, sem heitir sama
nafni og fangelsið og er reyndar
einnig samnefndur hinni goðsögu-
legu suður-amerisku gullborg, E1
Dorado. Umhverfis fangelsið leyn-
ast ýmsar hættur. Sagt er að þar
séu mannætufiskar og krókódílar.
Frakkinn Henri Charrier, sem
þekktari er undir nafninu Papillon
eða „fiðrildið“, var þar í haldi og
tókst að sleppa.
„Þetta er versti staður, sem
hægt er að ímynda sér,“ sagði fyrr-
verandi fangavörður í E1 Dorado.
„Þetta eru hættulegustu glæpa-
menn landsins, alger villidýr,
dreggjar þjóðfélagsins.“
Myrti ástkon-
una fyrir að
kalla sig
dverg
Hong Kong. Reuter.
CHAN Wing-hong, sem er nú
fyrir rétti fyrir að hafa myrt
ástkonu sína, sagði í gær að
hann hefði framið verknaðinn
af því að hún hefði kallað hann
dverg.
Chan er 38 ára gamall og
aðeins 1,37 metrar á hæð. Hann
sagði að samband sitt við gleði-
konuna Chow Mei-hing hefði
staðið í fimm vikur, sem hefðu
verið mesti hamingjutími lífs
síns. Þegar pyngja Chans tók
að léttast þvarr áhugi Chow á
sambandinu.
„Hún sagði: „Fjárans dverg-
urinn þinn, ég sé enga ástæðu
til að þykja vænt um þig,““
sagði Chan fyrir réttinum.
„Þetta voru mér mikil von-
brigði."
Chan kvaðst hafa eytt öllum
sínum peningum í Chow, en
þegar hún móðgaði hann tók
hann hníf og stakk hana í hjart-
að. Hann bútaði Chow því næst
í sundur, skildi höfuð hennar
eftir úti í skógi og henti öðrum
líkamshlutum í ruslatunnur.
Réttarhaldi í málinu er ekki lok-
ið.
IMPREZA
Fyrir þinn lífstíl!
Kynning um helgina
Laugardag og sunnudag kl. 14 -17.
LEGACY
Hönnun sem veitir þér
ánægjulegan akstur.
QUTBACK
Færir þig á vit
ævintýranna.
Rúnar Jónsson og
Jón Ragnarsson
margfaldir íslandsmeistarar
í rallyeru komnirá
sérsmíðaðan Subaru
Lagacy rallbíl sem við
sýnum um helgina.
SUBARU 1998
• Kraftmiklir
• Fjórhjóladrifnir
• Mikil veghæð
• Hátt og lágt drif
• Frábær búnaður
Komdu og prófaðu
-Finndu kraftinn
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 525 8000