Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SÍMON Sigurnionssoii ferðaþjón-
ustubóndi, íbygginn á svip.
iað drolla of lengi upp í húsi, hugur
iþeirra var kominn niður í fjöru
löngu áður en þeir renndu í hlað á
Görðum. Það er góð áreynsla og
styrkjandi að ráfa um fjöruna í leit
að eldiviði og öðru því sem nothæft
er til að gera daginn í fjörunni sem
ánægjulegastan í nánum samskipt-
um við kríuna sem þar hefur helg-
að sér óðal. Börnin stóðu með stóru
strákunum í því að drífa sig niður í
fjöru. Þeirra beið kapphlaupið við
öldurnar, sem stundum höfðu bet-
ur. Oftar en ekki varð einhver að
ifara heim og skipta um föt. Guli
sandurínn er einnig ótæmandi efni-
viður í kastalabyggingar og virkis-
gerð, og stundum áttu áveituskurð-
arkerfín allan hug ungu verkfræð-
íinganna.
Þegar þeir sem blotnað höfðu
vegna sjávarágangs voru komnir
til baka ofan úr húsi þuwir og fínir
tók við eldmessa. Stóru stelpurnar
höfðu einnig sagt skilið við vanda-
mál tölvuheimsins og voru búnar
að koma sér vel fyrir innst í skýli
|sem risið var í fjörukambinum og
minnti einna helst á eyðimerk-
urtjald araba. Tjaldið var gert úr
staur og netadræsu sem fannst á
staðnum, kaðalspottum, nokkrum
stögum og vörubretti. Bekkirnir
komnir, eins og áður sagði, sunnan
'af Skeiðarársandi.
Það logaði glatt þetta kvöld,
:bæði í barnabáli og alvörubáli.
Eldstrúktúrar lýstu himininn og
yljuðu „sexunmum“ og húsráðend-
unum á Görðum langt fram í nótt-
ina.
frændi minn og hann hefði gert
hana þannig. Eg reiddist honum
mjög að vera með þessa vitleysu.
Síðan verður mér gengið inn í eld-
hús og sé son frænda míns liggj-
andi á eldhúsborðinu, hvítan og
máttfarinn, mér fannst hann vera
12 ára en hann er helmingi yngri.
Ég ákvað að hjálpa honum og mér
tókst það. Ég sagði við alla í kast-
alanum að það væri víst hægt að
hjálpa vampýrum og dóttur minni
væri borgið. Drauminum lauk
þegar ég og yngri frændi minn
flugum saman út um gluggann,
allt var bjart og fallegt."
Ráðning
Draumurinn fjallar um svarta
sauðinn (svertinginn) í fjölskyld-
unni sem þú á laun hyggur mun
betri mann (frægur á íslandi) en
sagt er. Hugmyndir þínar og hug-
arangur um þennan svarta (kastal-
inn ljóti og vampýran frændi þinn)
sauð fara ekki saman því þér finnst
hann í raun ekkert slæmur en þú
virðist vel uppfrætt um illt innræti
hans svo að þú býrð þér til hinar
voðalegustu myndir af honum. En
undir niðri langar þig að brjóta
hlekkina af þessari bölvun, hitta
frænda þinn (frændur) og fljúga
frjáls á eigin skoðunum.
0Þeir lesendur sem ví(/a fi drauma
sína birta og riðna sendi þi með fullu
nafni, fæðingardegi og ári isamt heim-
ilisfangi og duinefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni I
103 Reykjavlk.
LAGT í hann, afslappaður og
búinn að kaupa miðann ...
ÚTSÝNIÐ úr krananum var
fagurt og víðáttumikið...
STUNDIN nálgast og stressið aðeins
farið að gera vart við sig ...
5myglaði mynda-
“ÉG VIÐURKENNI fúslega að ég
var dálítið stressaður í fyrstu, en
ekki beint hræddur," segir Kjartan
Þorbjörnsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins, sem nýlega vann
það afrek að mynda sjálfan sig í
teygjustökki, fyrstur Islendinga
svo vitað sé. Kjartan, sem gegnir
listamannsnafninu Golli, var
staddur í sumarleyfi á grísku
eyjunni Rhodos þegar hann ákvað
að drífa sig í teygjustökk og tók
ljósmyndavélina með.
„Ég var búinn að velta þessu
fyrir mér um skeið hvernig svona
myndir kæmu út og ákvað að láta
slag standa. Ég þurfti að nota
minnstu myndavélina inína, Fuji
Super Mini, til að hafa búnaðinn
sem allra léttastan og eins til að
geta smyglað vélinni með í
Morgunblaðið/Golli
HORFT til himins í 30 metra falli.
stökkið, því þetta er bannað,"
sagði Golli. „Ég var svo dreginn
upp í krana, og fannst þetta ekkert
mál, fyrr en ég stóð allt í einu á
brúninni og horfði niður. Þá fann
ég aðeins fyrir stressi. Um leið og
maður stekkur fer maður í smá
„panik“, en síðan verður maður
bara ruglaður, sem lagast ekki
fyrr en klukkutíma eftir að þetta
er búið. En það var gaman að hafa
drifið í þessu og skemmtilegt að
eiga þessar myndir í
heimilisalbúminu."
Golli kvaðst ekki vita til að
teygjustökkvari hefði áður myndað
sjálfan sig í stökkinu, og í trausti
þess birtum við þessar myndir úr
teygjustökki ljósmyndarans, og
erum því væntanlega að brjóta blað
í sögu teygjustökks á Islandi.
vélinni í stökkið
w
U TS Alk^ALA
Stök teppi
o g m o t t u r
s t g r.af sI
ú t á g ú s t
Persía
Suðurlandsbraut 46 við Faxafen Sími: S68 6999