Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 27
AÐSENDAR GREINAR
Að berja
höfðinu við
malbikið
AUKIN áhersla er
nú lögð á það víðast
hvar að vinna gegn
neikvæðum áhrifum
bílaumferðar, slysum,
hávaða og mengun.
Þetta kemur til af því
að mönnum er fullljóst
að bílar eru tæki sem
hafa mikla kosti sem
samgöngutæki. Þeir
eru komnir til að vera
en það þarf að útrýma
neikvæðu þáttunum.
Vegna aukins áhuga
á umhverfismálum og
hertra reglna í mörg-
um löndum, hefur
markaðurinn ötullega
Árni
Sigfússon
leitað að betri lausnum gegn nei-
kvæðum áhrifum umferðar. Þessar
lausnir eru til og sumar þeirra til-
heyra orðið bílaframleiðslunni en
alls ekki allar. Meðal lausna sem
þegar eru algengar má nefna meng-
unarvarnabúnað í bíla, sem eyðir
skaðlegum efnasamböndum í út-
blæstri, tölvustýringu í vélum sem
bætir eldsneytisnýtinguna og ör-
yggisbúnað eins og ABS-bremsur
og líknarbelgi. En tæknin er komin
mikið lengra. Því miður skortir víða
á vilja til að nýta hana.
Kjarni nauðsynlegra aðgerða felst
í að draga úr útblástursmengun,
auka afkastagetu vega og gatna,
að minnka slysahættu og setja háv-
aðamörk. ísland gæti verið og á að
vera í fararbroddi slíkra aðgerða.
Áhrifaríkasta
mengunarvörnin
Fljótlegasta, öruggasta og ódýr-
asta leiðin til að draga úr útblásturs-
mengun er að minnka magn brenni-
steins í eldsneytinu. Sú aðgerð hefur
tafarlaust áhrif á útblástur allra bíla.
Þetta hlutfall brennisteins í eldsneyt-
inu er nú allt að u.þ.b. 1.000 hlutum
af milljón (ppm) í Evrópu. Nýjasta
og öflugasta tækni í mengunarvörn-
um virkar ekki nema brennisteins-
hlutfallið sé undir 50 ppm. Það er
auðvelt að minnka það. Sem dæmi
um svæði sem tekur alvarlega á
málinu má nefna Kaliforníu í Banda-
ríkjunum, en þar er þetta hlutfall
komið niður í 30 ppm. Japanir setja
þær reglur að ppm fari ekki yfír
100. Þá hefur tekist að framleiða
vélar sem draga úr eldsneytiseyðslu
um þriðjung en virka aðeins ef ppm
magnið í eldsneytinu er undir 50.
Með lægra ppm-hlutfalli virkar
hreinsibúnaður bílanna einnig mun
betur. Verði brennisteinshlutfallið
lækkað og nýjasta tækni véla nýtt,
dregur því bæði verulega úr eldsney-
tiskostnaði og útblástursmengun.
Kostnaður við að lækka brenni-
steinshlutfallið er að mati Kaliforn-
íubúa aðeins um 32 aurar á lítra.
Evrópusambandið setur reglur á
þessu sviði og í meginatriðum fara
reglur okkar eftir þeim samkvæmt
EES-samningum. Nýlega sam-
þykktu umhverfísráðherrar EES-
landanna, þar á meðal lslands, að
leggja til að stefnt verði að því að
hiutfallið fari í 150 ppm. Þetta er
óviðunandi þegar tækni til meiri
árangurs er þegar til staðar og al-
þjóðleg hagsmunasamtök bifreiða-
eigenda hafa sjálf lýst yfír að raun-
hæft sé að stefna að því að hlutfall-
ið fari undir 50 ppm.
Það er verðugt verkefni íslenskra
stjórnvalda að berjast fyrir því á
alþjóðavettvangi að brennisteins-
hlutfall í eldsneyti verði lækkað.
Það væri í góðu samræmi við þá
ímynd, sem Islendingar vilja hafa
af landi sínu sem hreinni og tærri
náttúruperlu. Ef opinberir aðilar
geta ekki sameinast um þetta mætti
ætla að það væri ímyndarmál fyrir
olíufélögin að bjóða hér
eldsneyti með mjög
lágu brennisteinshlut-
falli.
Aðrar áhrifaríkar
mengunar- og
slysavarnir
Til að gera umferð
greiðfærari er mikil-
vægt að stuðla að auk-
inni afkastagetu vega
sem fyrir eru og draga
þar með úr þörf fýrir
nýja vegi nærri íbúa-
hverfum. Þess vegna
eru rétt hönnun mann-
virkja og skipulag um-
ferðar afar mikilvægir
þættir til að rask og landnotkun
verði í lágmarki. Þessir þættir hafa
mikil áhrif varðandi varnir gegn
útblástursmengun, vegna þess að
því lengri tíma sem ökuferð tekur,
þeim mun meiri er útblásturinn og
mengunin. Rétt hönnun umferðar-
Á meðan Reykvíkingar
búa við frumstæð við-
horf núverandi meiri-
hluta borgarstjórnar í
garð bíla og umferðar,
--------z------------------
segir Arni Sigfússon,
er ekki að vænta að
umbætur verði á þess-
um sviðum.
inn sér ekki aðra leið til að bregð-
ast við útblástursmengun en að
kosta stórfé í að setja hluta Miklu-
brautar í göng. Ekki fer mengunin
burt við það. Til verður risastórt
púströr í miðri Miklubraut. Hvers
eiga þeir að gjalda sem búa í nánd
við púströrið frá göngunum?
R-listinn hefur ákveðið að auka
ekki umferðarrýmd vestan Elliða-
ánna, eins og það er kallað í nýju
aðalskipulagi. Hluti af þessari áætl-
un R-listans er að hætta við mislæg
gatnamót Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar, sem nú eru einhver
hættulegustu og mengunarmestu
gatnamót landsins. Þannig verður
áfram slysahætta og umferðartappi
með tilheyrandi útblástursmengun
frá bílum í lausagangi meðan beðið
er eftir að komast áfram. Þeir sem
eru óþreyjufullir munu læðast inn
í gegnum nærliggjandi íbúahverfi
og skapa þar með aukna slysa-
hættu. Þörf Reykvíkinga á að kom-
ast leiðar sinnar í Reykjavík, vestan
Elliðaánna, mun ekki minnka í
framtíðinni, heldur aukast.
Það er ekki aðeins vestan Elliða-
ánna sem þarf að auka umferðar-
rýmd en vilji R-listans er afar tak-
markaður hvert sem litið er. Tillögur
okkar sjálfstæðismanna um að hefj-
ast handa við breikkun Gullinbrúar
í Grafarvogi á þessu ári, voru ekki
á forgangslista R-listans þegar
borgarstjóri ræddi við samgöngu-
ráðherra fýrr á árinu. Það verkefni
er nú brýnasta samgöngubót í
Reykjavik að okkar mati. Sam-
gönguráðherra gerði hins vegar sitt
ti! að bæta umferð í borginni með
því að leggja til fjármagn ríkisins
við breikkun brúar yfir Elliðaár og
göngubiýr bæði yfír Kringlumýrar-
brapt og Miklubraut.
Á meðan Reykvíkingar búa við
frumstæð viðhorf núverandi meiri-
hluta í garð bíla og umferðar, er
ekki að vænta að umbætur verði á
þessum sviðum. Lausnirnar eru til
fyrir þá sem þekkja og vilja fram-
kvæma. Við svo búið verða ekki
unnar raunhæfar aðgerðir gegn
útblástursmengun. Við getum ekki
búist við bættu umferðarskipulagi
né mannvirkjum sem draga úr
slysahættu og mengun um leið og
umferðin verður greiðari. Því miður
hafa of margir borgarfulltrúar R-
listans haldið áfram að berja höfð-
inu við malbikið, sem er þó ærið
holótt fyrir, og þverskallast við að
sjá þarfir borgarbúa ef þær tengj-
ast bílum og umferð.
mannvirkja og skipulag umferðar
skiptir sköpum fyrir öruggari um-
ferð. Mislæg gatnamót á fjölförnum
stöðum, þar sem einn vegur liggur
yfir annan í brú, eru talin mikið
öryggisatriði. Umferðin lendir ekki
í tappa við gatnamót með þeim af-
leiðingum að bflstjórar freista nýrra
leiða inn í íbúahverfi, útblásturs-
mengun eykst vegna tafa í umferð-
inni, og streita eykst sem leiðir til
aukinnar slysahættu.
Stjórnvöld setja hávaðamörk um
umferð. Bæði um hávaða frá bílum
og frá umferð, mælt við glugga
íbúða. í skipulagi er gert ráð fyrir
að við nýframkvæmdir verði séð til
þess að umferðarhávaði trufli íbúana
sem minnst. Auk þessa er hægt að
setja upp hljóðvarnir, veggi eða
manir, þar sem umferðaræðar eru
nærri eldri byggð. í sumum tilvikum
þarf að beina þungaumferð annað.
Gerð slitlags vega hefur einnig áhrif
á umferðarhávaða. Á svæðum þar
sem umferðarhávaði er mikill má
draga úr honum með sérgerðu slit-
lagi.
Að berja höfðinu við ...
Þrátt fyrir að mörg skynsamleg
úrræði séu til gegn neikvæðum
áhrifum bílaumferðar, mega borg-
arbúar nú búa við að fjórir vinstri-
flokkar, í nafni R-listans, kjósi að
gefa bílaumferð hornauga og kalla
hana einkabílisma og líta á sem
fyrirbæri sem ekki komi manninum
við. Slíkum fulltrúum borgarbúa er
gjarnt að gleyma því að bílana á
fólk sem notar þá til að komast
leiðar sinnar á öruggan hátt. R-Iist-
Vörulistinn okkar er á netinu: -g • • •
www.nyhenus
Höfundur er oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Jaðarskattar
lækkaðir og dregið
úr tekjutengingu
1 STEFNUYFIR-
LÝSINGU ríkisstjórn-
arinnar frá miðju ári
1995 var boðuð endur-
skoðun á ýmsum veiga-
miklum þáttum skatt-
kerfisins með það að
markmiði að lækka
tekjuskatt einstaklinga
og draga úr jaðaráhrif-
um ýmissa bóta-
greiðslna. í kjölfar
þessarar yfírlýsingar
skipaði ég sérstaka
nefnd, jaðarskatta-
nefndina svokölluðu, til
að undirbúa þetta mál.
í nefndinni sátu fulltrú-
ar aðila vinnumarkað-
arins og ríkisstjórnarinnar, auk emb-
ættismanna. Nefndin ræddi ýmsar
leiðir til að draga úr jaðaráhrifum
skatta- og bótakerfisins sem koma
fram í greinargerð nefndarinnar, en
Stjórnvöld hafa ekki
setið auðum höndum,
segir Friðrik Sophus-
son, hvað varðar lækk-
un jaðarskatta.
hún hefur nú lokið störfum.
í beinum tengslum við undirbún-
ingsstarf nefndarinnar og gerð
kjarasamninga lögfesti Alþingi síð-
astliðið vor umtalsverða lækkun
tekjuskatts einstaklinga. Sam-
kvæmt því lækkar tekjuskattur ein-
staklinga um 4 prósentustig á tæp-
lega tveggja ára tímabili. Fyrsti
áfangi, 1,1 prósentustiga lækkun,
kom strax til framkvæmda á þessu
ári, um næstu áramót lækkar skatt-
hlutfallið um 1,9 stig í viðbót og
loks um 1 stig í ársbyijun 1999.
Auk þess var lögfest að skattleysis-
mörk skyldu hækka um 2,5% á ári
næstu þrjú ár. Loks kemur til fram-
kvæmda á næsta ári breyting á
barnabótakerfinu þar sem skerðing-
arhlutföll verða lækkuð með það
fyrir augum að draga úr jaðaráhrif-
um barnabóta.
Með þessum ákvörðunum eru stig-
in veigamikil skref í átt til þess að
Friðrik
Sophusson
lækka jaðarskatta hér á
landi. Þetta kemur í
kjölfar íyrri ákvörðunar
um að undanþiggja líf-
eyrisiðgjöld launþega
skattlagningu, sem kom
til framkvæmda á árun-
um 1995 og 1996, en
sú ákvörðun jafngilti
1,5-1,7 prósentustiga
lækkun tekjuskatts.
Fyrsta skref í átt til
þess að draga úr jaðar-
áhrifum bamabótakerf-
isins var hins vegar
stigið þegar á árinu
1996.
Til viðbótar þessum
ákvörðunum ákvað rík-
isstjómin síðastliðið vor breytingar
á bótum almannatrygginga sem
draga verulega úr jaðaráhrifum al-
mannatryggingakerfisins, meðal
annars varðandi uppbót á lífeyri
vegna lyfjakostnaðar og niðurfell-
ingu á afnotagjaldi ríkisútvarpsins.
Jafnframt hefur ríkisstjómin ákveð-
ið umtalsverða hækkun á bótum
almannatrygginga, sem nemur um
13% frá ársbyrjun 1997 til ársbyij-
unar 1998. Með þessari ákvörðun
er lífeyrisþegum tryggð einhver
mesta kaupmáttaraukning trygg-
ingabóta á síðustu áratugum, eða
sem nemur 10-11% á þessu tímabili.
Það er einnig ástæða til að vekja
athygli á því að stjórnvöld hafa
nýverið ákveðið að draga úr jaðar-
áhrifum í námslánakerfinu með
lagabreytingu sem lækkar endur-
greiðsluhlutfall lána úr 7% í 4,75%.
Af þessu sést að stjórnvöld hafa
ekki setið auðum höndum hvað
varðar lækkun jaðarskatta eins og
ýmsir hafa gefið í skyn. Þvert á
móti hefur ríkisstjórnin ákveðið og
Alþingi lögfest breytingar á skött-
um og félagslegri aðstoð í bótakerf-
inu sem fela í sér stór skref í átt
til þess að lækka jaðarskatta heimil-
anna og draga úr neikvæðum áhrif-
um tekjutengingar. Þessar aðgerðir
hafa þegar leitt til umtalsverðrar
kaupmáttaraukningar heimilanna
og enn frekari aukningar er að
vænta á næstu árum þeirra vegna.
Höfundur er fjármálaráðherra.