Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 35
Upplýsingar á alneti -
magn eða gæði?
FBR boðar til málþings
11. september næst-
komandi. Hrafnhildur
Hreinsdóttir segir
markmiðið vera að
kynna leiðir til að nýta
sem best gagnagrunna
og upplýsingakerfi.
skammt. Menn reka sig á að marg-
ir gagnagrunnar á Internet eru lok-
aðir, þ.e. til þess að leita þarf að
hafa lykilorð og fyrir upplýsingarn-
ar og aðgang þarf að borga.
Gagnagrunnar eru safn upplýs-
inga sem aðallega byggist á tíma-
ritagreinum og hafa oftast að
geyma vandaðar upplýsingar á
ákveðnum sviðum, t.d. læknis-
fræði. Einnig eru til alfræðigagna-
grunnar eins og t.d. Britannica. í
upphafi voru gagnagrunnarnir til-
tölulega fáir en með aukinni sér-
hæfingu hefur þeim fjölgað.
Gagnagrunnar fást annaðhvort á
prenti, eða á geisladiskum og einn-
ig eru margir orðnir aðgengilegir
á Internet.
Tölvutengdir gagnagrunnar eru
um 6.000 talsins en um helmingi
fleiri á geisladiskum eða prentuðu
formi. Þessir gagnagrunnar hafa
að geyma upplýsingar úr 4-500
ur því miklu fjölbreyttara og
skemmtilegra en áður og við kynn-
umst börnunum betur, öllum aldurs-
hópum.
Hvað sjálfa mig áhrærir finnst
mér mun áhugaverðara og eftirsókn-
arverðara að fá nú tækifæri til þess
að vinna nú margbreytileg störf og
í félagi við aðra, í stað þess að vinna
ein afmarkað verk eins og ég gerði
áður. Ég var áður eini gangavörður-
inn í barnaskólanum og sá um allt
sem þurfti að gera þar. Það var
enginn annar að vinna með mér og
það var auðvitað ekkert skemmtiiegt
og oft einmanalegt. Nú vinn ég með
öðrum að miklu fjölbreyttari verk-
efnum en áður.
Komum að starfi
með opnum hug
Við skólaliðarnir úr þessum þrem-
ur skólum vorum á námskeiði í fyrra-
dag þar sem sálfræðingur ræddi við
okkur m.a. um einelti og þarfir
barna, ræstitæknir talaði um ræst-
ingu og efnin og hvernig þau virka.
Farið var yfir hjálp í viðlögum. For-
maður Starfsmannafélags Reykja-
vikur skýrði okkur frá laununum og
fleiru sem því viðkemur. Okkur er
lofað að ræstingarkonur sem fara í
þessi störf haldi sínum lífeyris- og
veikindarétti sem er mjög mikil-
vægt. Á námskeiðið kom einnig kona
sem vinnur við þetta skipulag í
Kópavogi og hefur gert í sex ár.
Hún sagði okkur að hún vildi alls
ekki skipta til fyrra fyrirkomulags,
þetta væri miklu skemmtilegra og
fjölbreyttara starf. Því miður erum
við með lægri laun en þær og þær
hafa líka laun allt árið. Vonandi
fáum við brátt sömu kjör!
Ég vil vinna skólanum mínum vel
og mér þykir vænt um þennan vinnu-
stað minn. Þar er gott fólk, góðir
stjórnendur og góður andi auk þess
sem ég á þar mína bestu vini. Ég
vona bara að skólaliðar allir komi
að þessu starfi með opnum huga og
átök milli stéttarfélaga verði ekki
til þess að spilla fyrir þessari til-
raun. Þá vinnst þetta vel og skólum
okkar til heilla.
Höfundur er skólalidi í
Langholtsskóla.
0
lis ^HUJ
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
GQC
. plasthuöun
• Fjölbreytt vandaö úrval af efnum
• Fullkomnar plasthuöunarvélar
• Vönduö vara - betra verö
J. RSTVFHDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík, sími 533 3535.
ALHLIÐATOLVUKERFI
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrír WINDOWS
Sjáðu frábæran hugbúnað:
www.treknet.is/throun
0 KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur
Uéuntv
tískuverslun
m V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 ■
VIÐ sem vinnum á
bókasöfnum höfum
upplifað miklar breyt-
ingar á skömmum
tíma. Starf bókasafns-
og upplýsingafræð-
inga hefur breyst frá
því að leggja mikla
vinnu í leit að upplýs-
ingum í það að draga
fram nothæfar upplýs-
ingar úr öllu flóðinu.
Það sem veldur þessari
byltingu er auðvitað
Internet. Bókasafns-
og upplýsingafræðing-
ar hafa m.a. mikla
reynslu og þekkingu í
að, leita að upplýsing-
um, ekki síst í gagna-
grunnum hvort sem er á Internet
eða með beinlínutengingum og hjá
mörgum verður þessi þjónusta sí-
fellt stærri hluti af vinnu þeirra.
Mjög margir íslendingar þurfa á
Internet að halda í námi og starfi.
Internet er net sem getur tengt
saman tölvur um allan heim. Það
er byggt upp af gagnagrunnum og
vefsíðum og hefur hver síða sitt
veffang. Hver og einn getur sett
upp vefsíðu og enginn skráir eða
hefur eftirlit með því hvað birtist.
En hvergi er að finna slíkan hafsjó
af upplýsingum sem á Internet og
því finnst flestum eðlilegt að leita
fanga þar. Oft er þó erfitt að finna
það sem leitað er að.
Nú eru síðurnar orðnar svo
margar að leit að upplýsingum er
miklu flóknari en fyrir t.d. ári. Nú
munu um 82 milljónir vefsíða vera
á Internet og árið 2001
er spáð að þær verði
orðnar um 268 milljón-
ir talsins. Algengt er
að sem svar við leit-
arorði komi um 10.000
síður þar sem orðið
kemur fyrir og ekki
sjálfgefið að viðkom-
andi finni það sem leit-
að er að. Gervigreind
leitarvélanna er nefni-
lega önnur en mann-
anna. Flestar leitarvél-
arnar finna einfaldlega
allar þær síður þar sem
viðkomandi orð kemur
fyrir án nokkurs tillits
til samhengis í texta.
Það eru til fjölmarg-
ar leitarvélar, þær þekktustu eru
kannske Alta Vista, InfoSeek, Lyc-
os, Web Crawler, Excite og Yahoo.
Mikill munur er á því hvernig leitar-
vélarnar vinna. Sumar leitarvélar
leita að póstföngum eða hugbún-
aði. Aðrar flakka um netið og safna
upplýsingum í leitargrunn og enn
aðrar leita eftir lykilorðum. Sem
dæmi má nefna Yahoo sem hefur
til langs tíma haft marga bóka-
safns- og upplýsingafræðinga í
starfi við að fara skipulega yfir
vefsíður og flokka efnið þar.
Það skiptir líka miklu máli að
hvers konar upplýsingum menn eru
að leita. Einfalt er að finna t.d.
heimilisfang fyrirtækis, eða upplýs-
ingar um starfsemi þess. Hins veg-
ar vandast málið ef verið er að leita
að góðum heimildum um sérhæft
efni. Þá duga leitarvélarnar
Hrafnhildur
Hreinsdóttir
þúsund tímaritum af margvíslegum
toga. Til að einfalda aðgang að
þeim hafa fyrirtæki selt sameigin-
lega aðgang að mörgum gagna-
grunnum. Sem dæmi má nefna
Knight Ridder sem býður upp á
um 650 mismunandi gagnagrunna.
Þeir eru þó ekki ennþá allir að-
gengilegir á Internet, en fyrir um
það bil tveimur mánuðum voru um
250 vinsælir Dialog-gagnagrunnar
komnir þar inn. En kostnaður
vegna aðgangs að gagnagrunnum
er mikill og hefur það hamlað að-
gengi manna að þeim.
Það er einmitt þetta aðgengi sem
er svo mikilvægt. Það er ljóst að
smærri fyrirtæki og bókasöfn hafa
ekki fjárhagsiegt bolmagn til að
kaupa aðgang að mikilvægum upp-
lýsingum. Þá er um marga sér-
hæfða gagnagrunna að ræða sem
kannski eru notaðir af örfáum ein-
staklingum sem starfa alls ekki
allir hjá sama fyrirtækinu. Einnig
má taka sem dæmi að íslenskir
vísindamenn hafa alls ekki sama
aðgang að upplýsingum og t.d. vís-
indamenn á hinum Norðurlöndun-
um. Þar er boðið upp á aðgang að
rannsóknartengdum upplýsingum
þeim að kostnaðarlausu í gegnum
þeirra tölvur.
Við sem vinnum á bókasöfnum,
viljum hafa áhrif á þróun mála og
hrinda af stað umræðu um stöðu
íslendinga varðandi aðgang að upp-
lýsingum. Tryggja þarf jafnrétti ís-
lensks atvinnulífs, menntunar og S
vísinda á við erlenda aðila. Því er
það að FBR (Félag bókavarða í
rannsóknarsöfnun) boðar til mál-
þings 11. september næstkomandi
um þessi mál sem ber yfirskriftina:
Upplýsingar á Internet, málþing um
aðgang atvinnulífs og vísindasam-
félags að upplýsingum.
Markmið þingsins er að kynna
og ræða hvaða leiðir eru færar til
að nýta sem best gagnagrunna og
upplýsingakerfi til að efla atvinnu-
líf og rannsóknir á íslandi. Ætlun-
in er að ljúka málþinginu með pall-
borðsumræðum um sameiginlega
stefnu - hvað viljum við og hver
á að semja fyrir Island. Því vegna
smæðar okkar verðum við á ein-
hvern hátt að sameinast um aðgang
og kaup á upplýsingum. Við hvetj-
um því alla þá sem vilja nýta upp-
lýsingar í tölvum til að leggja okk-
ur lið og sameinast um leiðir til
framfara í þágu framtíðar.
Höfundur er yfirbóka vörður hjá
Pósti og síma og í stjórn FBR.
K9ANDI
v
KVEÐJA
og keppnin um
sterkosta mann íslands!
Sunnudaginn 31. ágúst verður mikið um að vera í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum fyrir alla fjölskylduna. Vöðvafjöll, leikrit,
brúður, grin og flugeldar. Garðurinn opnar kl. 10:00 og fjörið
heldur áfram allt til kl. 21:00. Komið og njótið dagsins.
Kl. 14:00 • Keppni um sterkasta mann íslands
• Brúðubíllinn
Kl. 15:00 • Skari Skrípó
• Leikritið „Undir Breiðholtinu"
• Hljómsveitin Geirfuglamir
Kl. 20:00 • Varðeldur*
Kl. 21:00 • Flugeldasýning*
* í boði Skátasambands Reykjavíkur
og Hjálparsveit skáta Reykjavík
Allir sem mæta í skátabúningi fá
frítt inn eftir kl. 19:00
Ath! Vetraropnun frá 1. september:
Kl. 10:00 -17:00 alla daga nema miðvikudaga.
spíÆ' '
FJÖISKYLDU-OC
HUSDÝRACARPURINN