Morgunblaðið - 30.08.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 45 -■
FRÉTTIR
Símaráðgjöf
á vegum Um-
sjónarfélags
einhverfra
í TILEFNI 20 ára afmælis Um-
sjónarfélags einhverfra mun fé-
lagið standa fyrir símaráðgjöf.
Markmiðið er að styðja einhverft
fólk, foreldra þess og aðra að-
standendur með ráðgjöf og
fræðslu. Fagfólk á sviði ein-
hverfu mun veita ráðgjöfina en
fyrirmyndin er sótt til hagsmuna-
félaga einhverfra í Danmörku og
Englandi.
I frétt frá Umsjónarfélagi ein-
hverfra segir að reynslan hafi
sýnt að hér á landi sé mikil þörf
á fræðslu um einhverfu og ekki
síst faglegri ráðgjöf til aðstand-
enda.
„Ráðgjöfin er af ýmsum toga
og getur m.a. falist í því hvernig
bregðast eigi við aðstæðum í
daglegu lífi einhverfs barns, þar
sem almennar uppeldisaðferðir
duga skammt, ásamt almennum
upplýsingum um fötlunina.
Símaráðgjöfin er tilraunaverk-
efni og mun hún fyrst um sinn
vera á þriðjudagskvöldum milli
kl. 20 og 22 í september og októ-
ber notendum að kostnaðar-
lausu," segir í fréttatilkynningu.
Umsjónarfélag einhverfra hef-
ur fengið til liðs við sig eftirfar-
andi sérfræðinga í símaráðgjöf-
ina og skipta þeir símavaktinni
á milli sín: Kristín Kristmunds-
dóttir, félagsráðgjafi, Páll Magn-
ússon, sálfræðingur, Sigrún
Hjartardóttir, sérkennari, Sól-
veig Guðlaugsdóttir, geðhjúkran-
arfræðingur og fjölskylduráð-
gjafi, og Svanhildur Svavarsdótt-
ir, sérkennari, boðskipta- og tal-
meinafræðingur.
Jeppaferð
með Utivist
NÝLOKIÐ er átta daga sumar-
leyfisferð hjá Jeppadeild Útivist-
ar um Sprengisand, Gæsavötn,
Kverkfjöll og Snæfell. Næstu
ferðir hjá deildinni era 13.-14.
september í Setrið, skála 4x4
klúbbsins sunnan við Hofsjökul.
20.-21. september verður svo
farið i Veiðivötn og í Hágöngur
27. sept. og segja þeir hjá jeppa-
deildinni að nú fari hver að verða
síðastur að sjá þar eitt mesta
háhitasvæði landsins áður en það
fer undir vatn.
Jeppadeildin stendur svo fyrir
ferð á Tindaijöll 4.-5. okt. og
ætlunin er að ganga á jökulinn
ef veður og aðstæður leyfa. Þeir
sem hafa áhuga á að kynna sér
FÁTT fínnst börnum
skemmtilegra en róa á bát
um lygna tjörn á góðviðris-
ferðirnar nánar er bent á ferða-
áætlun Útivistar fyrir árið 1997.
Subaru-
sýning um
helgina
ÁRGERÐIR 1998 af bílum frá
Subaru verða sýndar um helgina
hjá umboðinu, Ingvari Helgasyni
við Sævarhöfða í Reykjavík.
Verður opið í dag, laugardag og
á morgun milli kl. 14 og 17.
Til sýnis verða Subaru gerðirn-
ar Legacy, Impreza og Outback
en einnig verður til sýnis rallbíll
þeirra Rúnars Jónssonar og Jóns
Ragnarssonar, sem eru marg-
faldir íslandsmeistarar. Er það
sérsmíðaður Subaru Legacy.
Skákdagur
á morgun
HALDIN verður svokallaður
skákdagur sunnudaginn 31. ág-
úst. Hugmyndin er að gefa al-
menningi kost á að kynna sér
starfsemi Skáksambands ís-
lands, Skákskóla íslands og
hinna ýmsu taflfélaga.
Dagskráin er sem hér segir:
Skáksamband íslands kl. 14-17
í Faxafeni 12, Skákskóli íslands
kl. 14-17 í Faxafeni 12, Taflfé-
lag Reykjavíkur kl. 14-17 í
Faxafeni 12, Taflfélagið Hellir
kl. 14-17 í Þönglabakka í
Reykjavík, Taflfélag Kópavogs
kl. 14-17 í Hamraborg 5, Skák-
Siglt á Leirutjörn
degi, eða það á að minnsta
kosti við um þau Maríu og
Dúa sem reru á Leirutjörn
félag Hafnarfjarðar kl. 14-17 í
Dvergshúsinu, Brekkugötu 2,
Hafnarfirði, Taflfélag Garðabæj-
ar kl. 14-17 í Garðaskóla, Taflfé-
lag Akraness, fjöltefli kl. 20 í
Grundaskóla, Skákfélag Selfoss,
opið hús, og Skákfélag Akur-
eyrar kl. 14-17 í félagsheimilinu
Þingvallastræti 18.
Opið hús hjá
Taflfélaginu
Helli
TAFLFÉLAGIÐ Hellir verður
með opið hús fyrir skákáhuga-
menn sunnudaginn 31. ágúst kl.
14-17. Allir era velkomnir en
börn og unglingar eru sérstak-
lega hvattir til að koma og kynna
sér starfsemina og tefla sér til
gamans.
Boðið verður upp á stutt skák-
mót, þátttakendur geta glímt við
skákþrautir undir leiðsögn um-
sjónarmanns og kynnt sér það
sem verður í boði hjá félaginu í
vetur.
Taflfélagið Hellir eru einungis
6 ára gamalt en er engu að síður
orðið eitt öflugasta taflfélag
landsins með fjóra stórmeistara
innan sinna vébanda. Þá hefur
barna- og unglingastarfsemin
vaxið hröðum skrefum á undan-
förnum árum.
Taflfélagið Hellir er til húsa
að Þönglabakka 1, Mjódd. Hellis-
heimilið er þar á efstu hæð og
inngangur er sá sami og hjá
Bridssambandi íslands og Keilu
í Mjódd.
Morgunblaðið/Kristján
á Akureyri í vikunni og
leyfðu hundinum Buslu að
fara með.
Jibbí heitir
ferski kókó-
drykkurinn
í GÆR hóf Sól-Viking hf. sölu
á ferskum kókódrykk undir
nafninu Jibbí. Drykkurinn er
framleiddur úr íslenskum
mjólkurafurðum. Jibbí kemur
í fjórðungs og hálfs lítra um-
búðum. Drykkurinn verður
seldur í verslunum, skólum,
söluturnum og bakaríum.
Minnisvarði
afhjúpaður
AFHJÚPAÐUR verður minnis-
varði af Hermanni Jónassyni,
forsætisráðherra, í dag, laugar-
daginn 30. ágúst.
Athöfnin fer fram kl. 14 í sér-
stökum gróðurreit sem helgaður
hefur verið Hermanni Jónassyni
að Syðri-Brekku í Blönduhlíð í
Skagafirði, en þar fæddist hann
25. desember 1896.
Athugasemd frá
sr. Erni Bárði Jónssyni
og ekki síst í ljósi þess að ég þjón-
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Erni
Bárði Jónssyni:
„Vegna fréttar í RÚV í dag þar
sem vitnað er í Sigurð Garðarsson,
fulltrúa í stjórn íslenska safnaðarins
í Noregi og starfsmanns Manpower
(auk þess að vera frændi sr. Krist-
jáns Björnssonar), vil ég taka eftir-
farandi fram.
Trúnaðarmannaráð safnaðarins
sem í sitja formaður stjómar safn-
aðarins, geðlæknir og heimspeking-
ur komst að þeirri niðurstöðu með
einkunnargjöf fyrir frammistöðu að
ég hafi komið afgerandi best út úr
því prófi. Fullyrðing Sigurðar um
að mín frammistaða byggist á per-
sónulegi mati formannsins er því
ekki byggð á rökum. Af þeim sökum
tel ég rétt að birta niðurstöður sem
ég hef fengið upplýsingar um. Atr-
iðin sem trúnaðarnefndin hafði í
hyggju voru:
1. Menntun, 2. reynsla, 3. fjöl-
breytni reynslu, 3. brautryðjenda-
hæfileikar, 5. trúarlíf, 6. karisma
(útgeislun/persónutöfrar), 7.
mælska, 8. heildarútkoma úr við-
tali, 9. helgistund, 10. viðtal hjá
Manpower (norsk ráningarskrif-
stofa), 11. persónuleg samskipti.
Hvert hinna þriggja áðurnefndu
gaf okkur þremur, mér, Kristjáni
og Sigrúnu 1, 2 eða 3 stig fyrir
hvert ofangreindra atriða. Hæsta
mögulega meðaltal úr þessum 11
þáttum er því 33 stig en lægst 11.
Niðurstöður trúnaðarnefndar
voru sem hér segir: Öm Báður 27,6
stig, Kristján 19,1 stig og Sigrún
19,1 stig.
Umreiknuð á tíu-skala er ég með
8,4 í einkunn, en hin tvö 5,8. At-
hygli veikur að niðurstaða Manpow-
er er tekin inní þessa útreikninga
en þar kom Kristján betur út en við
Sigrún. Þetta er því niðurstaða úr
öllu ferlinu í heild.
Hvað sjálfan mig varðar vil ég
taka fram að það kemur fram mein-
leg villa í niðurstöðu Manpower en
þar er staðhæft að ég hafí ekki
starfað sem prestur frá árinu 1984.
Hið rétta er að ég var sóknarprest-
ur til 1990 er ég hóf störf á Biskups-
stofu. Prestar í þjónustu Biskups-
stofu vinna af og til prestverk og
era því, að ég tel, í ágætri þjálfun
hvað helgihald varðar. Af þessu leið-
ir að ég kem lakar út hvað prest-
skyldu varðar en hin tvö sem bæði
sinna hefðbundinni prestsþjónustu
um þessar mundir. Manpower gekk
út frá líkani (módeli) „sjómanna-
prests“ en norska kirkjan hefur á
að skipa slíkum prestum í mörgum
erlendum borgum og höfnum.
Draga má í efa að það líkan hafi
hentað í þessu sambandi. Villan um
prestsþjónustu mína er afgerandi
aði lengst af (í 5 ár) í útgerðarbæ
við eina hættulegustu innsiglingu
landsins og kynntist því rækilega
kjöram fólks af öllum stigum þjóð-
félagsins andspænis lífsháskanum
sem sífellt var yfirvofandi. Geta má
þess að trúnaðarnefnd safnaðarins
hafði til viðmiðunar skilgreiningu á
embætti prestsins í þessu tiltekna
tilfelli og áætlun um framtíðarstarf
safnaðarins. Því má segja að stjórn-
in hafi verið að máta hin raunvera-
legu kirkjuklæði á umsækjendur en
ekki norska duggarapeysu.
Safnaðarstjómin hefur itrekað
haldið því á lofti að hún hygðist
standa faglega að málum áður en
hún gerði tillögu til biskups. Ljóst
er af framansögðu að ekki var stuðst
við þá faglegu niðurstöðu heldur
■ SIGGUBÆR verður opinn í síð-
asta sinn í sumar nú um helgina.
Siggubær var byggður árið 1902 af
Erlendi Marteinssyni sjómanni. Dóttir
hans Sigríður var 10 ára gömul þeg-
ar hún fluttist í húsið og bjó hún þar
alla sína ævi. Hús hennar er varð-
veitt sem sýnishorn af verkamanns-
og sjómannsheimili í Hafnarfirði á
fyrrihluta þessarar aldar. Siggubær,
Kirkjuvegi 10, heyrir undir Byggða-
safn Hafnarfjarðar svo og Sívertsens-
hús og Smiðjan en þar er nú sýning-
in UndirHamrinum. Af lífi hafnfirskr-
ar alþýðu.
■ JAZZ verður leikinn á veitinga-
staðnum Jómfrúnni við Lækjargötu
í dag, laugardag, kl. 16-18. Fram
kemur tríó skipað þeim Sigurði
Flosasyni, saxafónleikara, Birni •
Thoroddsen, gítarleikara og Þórði
Högnasyni, kontrabassaleikara. Tón-
leikarnir fara fram utandyra á
Jómfrúartorginu á milli Lækjargötu,
Pósthússtrætis og Austurstrætis ef
veður ieyfir en annars inni á Jómfr-
únni. Aðgangur er ókeypis. Þetta
verða síðustu sumaijazztónleikamir á
Jómfrúnni í sumar en leikið hefur
verið á öllum laugardögum í júlí og
ágúst.
LEIÐRÉTT
Athugasemd við úrdrátt
DANÍEL Sigurðsson vill taka fram
að úrdráttur sá sem birtist með grein
hans „Þýski skipstjórinn", og birtist
í blaðinu í gær, var Morgunblaðsins
en ekki hans. Daníel hefði kosið að
úrdrátturinn hefði verið svohljóðandi:
„Það er í besta falli afstæð fullyrð-
ing, segir Daníel Sigurðsson, að þýski
skipstjórinn hafí „loks“ verið fallinn
á tíma þegar hann óskaði eftir að-
stoð.“
Stöðvum einelti
I Morgunblaðinu í gær, föstudag
29. ágúst, var birt grein, „Getum við
ekki frekar verið vinir? - Stöðvum
einelti“ (bls. 36), eftir Guðrúnu Sig-
ríði Jóhannesdóttur og Rún Kormáks-
dóttur. Í þeim kafla greinarinnar, sem
bar yfirskriftina „Hvað er einelti, var
prentvilla, sem nauðsynlegt er að leið-
rétta. Kaflinn fer rétturin hér á eftir:
„Einelti er almennt skilgreint sem
langvarandi áreiti, líkamleg eða and-
leg, stjómað af einstaklingi eða hópi
og er beint gegn einstaklingi, sem
er ekki fær um að veija sjálfan sig
í þannig aðstöðu. Líkamleg áreiti er
þegar sparkað er í einstakling, honum
hrint eða hann laminn. Þá er hin al-
menna merking á andlegu einelti sú'
að um sé að ræða stríðni og útilokun.
Það kallast ekki einelti þegar einstakl-
ingar deila, þ.e. munur er á ágrein-
ingi og einelti. Átök, sem bijótast útf
vegna ágreinings geta hins vegar leitt
til eineltis."
Jón E. Guðmundsson
Til að ekki fari milli mála hvaða ís-
lendingur er með verk í nýja norræna
skemmtigarðinum við rætur Fuji falls
í japan sem sagt var frá í Ferðablað- i
inu sunnudaginn 24. ágúst skal tekið j
fram að það er Jón E. Guðmundsson ,
mynhöggvari.
óskað eftir Sigrúnu á huglægum ,
forsendum. Hún nýtur þeirra forrétt- •
inda að búa á staðnum og hafa haft :
tækifæri til að kynna sig fyrir safn- ,
aðarfólki. Stuðningur við hana af
hálfu námsmanna er skiljanlegur út
frá huglægu sjónarmiði, enda er Sig- ■
rún hin vænsta manneskja að mínu
mati. En það skýtur nokkuð skökku
við þegar námsmenn, sem sjálfir eru
að afla sér menntunar eða jafnvel
framhaldsmenntunar, skuli vilja líta
framhjá menntun og reynslu og taka
einhliða afstöðu með einum umsækj-
enda án þess að þekkja hina.
Reynsla mín af því að sækja um
embætti innan kirkjunnar þar sem
sóknarnefndir hafa úrslitaáhrif er
umhugsunarverð. Sóknamefndar-.
fólk er oft í erfiðri aðstöðu til þess
að meta fólk út frá takmörkuðum ,
upplýsingum og fellur þ.a.l. oft í
grylju hins huglæga í stað þess að
feta veg hlutlægni. Niðurstaða er
því sú að gjörbylta verður veitinga-
kerfi kirkjunnar og finna nýja leið
sem tiyggir faglega niðurstöðu 1
byggða á rökum og réttlæti. Annað 1
sæmir ekki kirkjunni."