Morgunblaðið - 30.08.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 47
■
»
I
y
I
»
»
»
;
I
8
J
I
I
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Lefolii listsýning- á
Eyrarbakka
Frá Steingrími St.Th. Sigurðssyni:
HANN heitir Halidór Forni og er
úr Gaflarafirði. Hann er listamað-
ur. Sýnir nú
verk af ýms-
um gerðum í
Lefolii á Eyr-
arbakka.
Forni er list-
menntaður,
bæði af lífiriu
sjálfu og af
fimm ára
menntadvöl í
Normandí og
París. Þessar
myndir listamannsins sýna óvenju-
legan karakter. Þær eru gæddar
sérstöku viðmóti, sem lýsir sér í
sérstakri birtu og ákveðnu formi.
Enda ekki skrýtið, því maðurinn fór
upphafiega til Frakklands til að
læra að gera við gömul húsgögn,
sem er sérstök list. Að hætti iista-
gallería sýnir Forni aðeins tuttugu
verk, sem er meginregla, þar sem
kúltúr þrífst í sýningarhaldi. Högg-
myndirnar eru grípandi og þær má
ekki skýra nánar frekar en kvæði
samanber það sem enskt stórskáld
sagði: „A poem should not mean
but be“ (kvæði á ekki að þýða held-
ur að vera).
Gamli Lefolii-andinn á Eyrar-
bakka virðist endurlífgaður!
STEINGRÍMUR ST. TH.
SIGURÐSSON,
listmálari og skáld.
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Of margir bíða
eftir leig’uhúsnæði
hjá Reykjavíkurborg'
Frá Kristínu A. Árnadóttur:
BORGHILDUR Antonsdóttir gagn-
rýndi borgaryfírvöld harðlega í bréfi
til Morgunblaðsins 24. ágúst. Hún
er einstæð móðir með tvö börn, flutti
heim til íslands í apríl og hefur ekki
tekist að útvega sér og börnum sínum
húsnæði. Borghildur hefur leitað án
árangurs að húsnæði á hinum fijáisa
leigumarkaði og jafnframt leitað til
borgarinnar eftir félagslegu leiguhús-
næði. Hún er afar ósátt við að fá
þau svör hjá Reykjavíkurborg að þar
sé biðtími eftir félagslegu leiguhús-
næði tvö til þtjú ár.
Borghildur virðist telja að þessi
staða sé til komin vegna aðgerða eða
aðgerðaleysis Reykjavíkurlistans.
Þetta var hins vegar sá veruleiki sem
við blasti þegar Reykjavíkurlistinn
tók við stjóm borgarinnar og er hluti
viðskilnaðar Sjálfstæðisflokksins eft-
ir áratuga stjórn Reykjavíkurborgar.
Að mati núverandi borgaryfírvalda
er þetta óviðunandi ástand. Þess
vegna er nú verið að breyta félags-
lega Ieiguíbúðakerfínu með það fyrir
augum að það þjóni þeim tilgangi
sínum að koma til móts við þá ein-
staklinga og fjölskyidur sem ekki eru
talin ráða við þau kjör sem bjóðast
á almennum leigu- eða fasteigna-
markaði.
Um 1200 leiguíbúðir eru leigðar
út á vegum húsnæðisdeildar Félags-
málastofnunar. Að meðaltali voru
keyptar um 20 nýjar íbúðir inn í
kerfið árlega en sífellt lengdust bið-
listamir engu að síður. Leigusamn-
ingar voru ótímabundnir þar til árið
1995 en þá voru sett inn endurskoð-
unarákvæði og farið að gera samn-
inga til þriggja ára. Jafnframt var
innheimtukerfið endurbætt til þess
að koma í veg fyrir að margra ára
húsaleiguskuldir héldu áfram að
hlaðast upp hjá leigjendum. Mjög
fáar íbúðir losnuðu á ári hveiju, enda
vart við því að búast að fólk flytjist
úr niðurgreiddu, tryggu húsnæði þótt
hagur þess vænkist ef ekki er kallað
eftir því. Fyrir vikið styttust biðraðir
eftir húsnæði ekki þótt nýjar íbúðir
bættust í kerfið á hveiju ári.
Um síðustu áramót vom um 350
manns á biðlista eftir leiguhúsnæði.
Um helmingur umsækjenda er ein-
hleypir öryrkjar og einstæðir foreldr-
ar um þriðjungur. Um 60% umsækj-
enda búa á almennum leigumarkaði
en um 20% búa hjá aðstandendum
eða eru því sem næst húsnæðislausir.
í vor var stofnað hlutafélagið Fé-
Iagsbústaðir hf. sem tekur við um-
sýslu og viðhaldi félagslegra Ieigu-
íbúða Reykjavíkurborgar 1. septem-
ber næstkomandi. Útreikningur hú-
saleigu breytist þannig með tilkomu
félagsins að krafist verður svokall-
aðrar raunleigu fyrir íbúðir borgar-
innar. Þeir sem ekki uppfylla skilyrði
Félagsmálastofnunar til niður-
greiðslu á leigunni munu greiða raun-
leigu sem gerir það að verkum að
aukin hreyfing mun skapast innan
félagslega íbúðakerfisins og biðlist-
amir styttast. Þetta tryggir einnig
að niðurgreiðslur úr sameiginlegum
sjóðum borgarbúa nýtast þeim sem
til er ætlast enda verður leigan áfram
niðurgreidd til skjólstæðinga Félags-
málastofnunar. Hinu nýja félagi er
ætlað að annast allan rekstur fast-
eignanna sem til þessa hefur verið
sinnt á mismunandi stöðum í borgar-
kerfinu. Þannig mun jafnframt nást
aukin hagræðing og bætt þjónusta
við leigutaka.
Nýtt fyrirkomulag við rekstur
leiguhúsnæðis hefur vonandi í för
með sér að fólk í vanda þarf ekki
að bíða svo árum skiptir eftir félags-
legum íbúðum á vegum Reykjavík-
urborgar. Einhvern tíma tekur að
vinda ofan af þessu ástandi sem skap-
ast hefur á liðnum árum og breyting-
ar skila tilætluðum árangri. Það er
því tæpast við því að búast að allir
sem í vanda eru fái skjóta úrlausn
sinna mála. En vonandi þurfa þeir
sem þegar hafa beðið í tvö til þijú
ár ekki að bíða annað eins.
KRISTÍN A. ÁRNADÓTTIR,
aðstoðarkona borgarstjóra.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Ferdinand
CHARLE5 TH0U6HT 'COUR
LOVE LETTER UJAS JUNK
MAIL50HETHREU) ITAWAV!
HAMAHAHAHA'í
YOU 5H0ULPN T BE
LAU6HIN5,MARCIE..
YOU 5H0ULP BE
FEELIN6 50RRY FORME
H0LU5 THI5,5IR?
5EE? l'M FEELIN6
50RRY FOR YOU..
Kalli hélt að ástarbréfið
frá þér væri ruslpóstur
svo að hann fleygði því!
Ha ha ha ha ha!!
Þú ættir ekki að Hvernig híjómar
hlægja, Magga... - þetta, herra?
þú ættir að finna til Eg finn til með
með mér. þér ...
Ruslpóstur!
Ha ha ha ha!
Ég þoli þetta ekki...
Jf