Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ Einu sinni var Newman/W oodward ►ÁRIÐ 1968 áttu leikarahjónin Paul Newman og Joanne Woodward tíu ára brúðkaupsafmæli. Þau hittust á skrif- stofu umboðsmanns árið 1952 en Joanne þoldi Paul ekki í fyrstu. Það kemur því ekki á óvart að síðan þau rugluðu saman reytum hafa andstæður einkennt samband þeirra. Hann er til dæmis mikill íþróttaunnandi en hún er unn- - andi lista. Bæði hafa þau fengið Óskarsverðlaun og þykja jafningjar í leiklistinni. Heimili þeirra er í Connecticut en þar reyna þau að halda sig frá fjölmiðlum og frægðinni. Á áttunda áratugnum þegar, leikferill Pauls var á toppn- um, lét Joanne það ekki angra sig. „Mér er stundum illa við það að vera kölluð frú Paul Newman en ég elska að vera frú Paul Newman," sagði þessi ákveðna leikkona. FÓLK í FRÉTTUM FRÉTTIR af fræga og ríka fólkinu eru stöðugt að berast og skiptir ekki alltaf máli hvað viðkomandi er að gera eða hvort hann er yfirleitt að gera eitthvað_ fréttnæmt. Sömu nöfnin ber oft á góma og auðvelt er að fylgjast með lífshlaupi átrúnaðargoðanna. En hvað var sumt af þessu fólki að gera fyrir 25 eða 30 árum? 1971 Melanie Griffith og stjúpbróðir hennar að leika sér við ljónsunga á heimili sínu, aðeins 13 áragömul. 1973 Diana Ross komin á toppinn og fátæktin minningin ein. Melanie Griffith Diana Ross ►ÁRIÐ 1971 var leikkonan Melanie Griffith 13 ára og lék sér við fjörugan Ijónsunga ásamt stjúpbróður sínum Jerry. „Það var ekki auðvelt að alast upp með svona mörgum villiköttum," sagði Melanie en móðir hennar sinnar Tippi Hedren er mikill dýraunnandi. Á búgarði fjölskyldunnar í Acton í Kaliforníu voru 71 ljón, 17 tígrísdýr, 13 hlébarð- ar, 10 fjallaljón, 3 sebrahestar, tveir fílar og tveir jagúarar. Þegar Melanie var aðeins 14 ára hóf hún sambúð með leikaranum Don Johnson. „Hann forðaði mér frá ástarsorg- inni og leiðindunum sem fylgja því að verða skotinn í mörgum strákum," sagði Melanie um Don. Leiðir þeirra skildi en mörgum árum seinna tóku þau saman aftur, eign- uðust dótturina Dakota, og skildu aftur. ►ÁRIÐ 1973 var Diana Ross á hátindi frægðarinnar og lifði í allsnægtum. Hún var næstelst sex systkina og ólst 'upp í fátækrahverfi Detroitborgar. „Þaðan flutti ég í lítið hús í Detroit með móður minni og svo hingað," sagði Díana sem þá var búin að koma sér fyrir í glæsihýsi í Beverly Hills. Hin 29 ára Diana Ross hafði sama ár verið tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni „Lady Sings the Blues“ sem var byggð á ævi söngkonunnar Billie Holiday. Hún vonaði að tilnefning hennar yrði hvatning fyrir unga aðdáendur og sannaði fyrir þeim að allar hindr- anir væru yfirstíganlegar. „Eg sýndi og sannaði að hvaða litla blökkustúlka sem er getur náð á toppinn," sagði Diana. Ef þú ert á aldrinum 9-18 ára og vilt komast í góðan félagsskap, skemmta þér með hressum krökkum við leiki og störf, læra að þjarga þér úti í náttúrunni, fara 1 gönguferðir og útilegur, læra að t)inda hnúta og súrra, læra skyndfhjálp eða rötun, taka þátt í umhverfisverkefnum, kvöldvökum, varðeldum skátamótum, eða jafnvel taka þátt í alþjóðle skátastarfi? Er bá skátastarf ekki eitthvað fvrir big? Hafðu samhand við skátana á þínu heimasvæði. Flest skátafélög hafa opið h laugardaginn 13. sept. milli kl. 13 og 16 BANDALAG ISLENSKRA SKATA rtz&to v—) PAMELA Anderson í mynd- inni Barb Wire. Sjálfsævi- saga Pamelu PAMELA Anderson er hætt að leika í Strandvörðum og þvertekur fyrir að leika í nektaratriðum í kvikmyndum, a.m.k. í „Helio, She Lied“. Þurfti hún nýlega að ganga í gegnum ströng réttarhöld til að komast hjá því að standa við sam- komulag um að leika í þeirri mynd. Pamela situr þó ekki alveg auðum höndum. Hún undirritaði samning við Warner Books árið 1996 um útgáfu á sjálfsævisögu og fær hún 800 þúsund dollara fyrir vikið. I samkomulaginu sagði að í bókinni yrði kafli með yfirskriftinni „Saga bijósta minna“. Þrátt fyrir að réttarhöldin tækju sinn toll hefur Pamela lok- ið við 300 blaðsíðna handrit að bókinni. Er bókin væntanleg í bókabúðir í júní á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.