Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 52
52 I.AUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
SIGURBJÖRG Jóh. Þórðardóttir eiginkona Gísla B.
Kristjánssonar, Hallfríður Freysteinsdóttir kona Arn-
ar Eiðssonar og Sigríður Jónsdóttir kona Óskars
Jónssonar.
MIKLIR fagnaðarfundir urðu er Örn Clausen og Sig-
urður Steinsson fararstjóri hittust í ÍR-heimilinu. Að
baki þeim eru Finnbjörn Þorvaldsson og Þórarinnn
Gunnarsson.
BOÐHLAUPSSVEITIN sem gerði garðinn frægan fyr-
ir fimmtíu árum. íþróttakapparnir eru frá vinstri
Haukur Clausen, Örn Clausen, Reynir Sigurðsson og
Finnbjörn Þorvaldsson.
Kjaftaskur í gmnnskóla
Hljómsveitin SAGA KLASS og Sigrún Eva
halda uppi fjörinu frá kjj. 23.30. Nú er um
að gera að draga fram dansskóna og skella
sér á ballið.
>_
Minntust fræðgarfarar IR-inga
FRÆKNIR íþróttamenn með forystumönnum ÍR, (f.v.) Kjartan Jóhannsson, Þorberg-
ur Halldórsson formaður ÍR, Reynir Sigurðsson, Finnbjörn Þorvaldsson, Þórarinn
Gunnarsson og Gylfi Magnússon formaður fijálsíþróttadeildar ÍR.
Komdu á ballið!
Frj álsíþróttahópur-
inn, sem keppti á
10 mótum, vakti
mikla athygli nor-
rænna fjölmiðla og
blés þrótti í íslenska
þjóðarvitund.
UM þessar mundir eru 50 ár frá því 15 manna frjáls-
íþróttahópur úr ÍR hélt í nær fjögurra vikna keppnis-
ferð til Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Kepptu þeir
á 10 mótum og í stuttu máli var um mikla sigurför
að ræða sem vakti mikla athygli norrænna fjölmiðla
og blés þrótti í íslenska þjóðarvitund.
Á fyrsta mótinu, alþjóðlegu stórmóti á Bislet í
Ósló, vann Óskar Jónsson einn fræknasta sigur ís-
lensks hlaupara er hann vann 1500 metra hlaup á
3:53,4 mínútum og bætti íslandsmetið um fimm sek-
úndur. Kjartan Jóhannsson varð annar í 800 metrum
og Finnbjöm Þorvaldsson og Haukur Clausen í 3. og
4. sæti í 100 metrunum. Var það vísir þess sem verða
vildi um góðan árangur í ferðinni þar sem nokkur
íslandsmet féllu.
Hámarki náði ferðin á Norðurlandamótinu í Stokk-
hólmi er Haukur Clausen 18 ára að aldri vann fræk-
inn sigur í 200 metra hlaupi á nýju íslandsmeti, 21,9
sek. Vann hann alla bestu hlaupara Norðurlandanna
fyrir troðfullum ólympíuleikvanginum og sögðu
sænsku blöðin að fagnaðarlátunum hefði aldrei ætlað
að linna, svo vinsæll hefði yngsti keppandi mótsins
verið. Finnbjörn Þorvaldsson varð annar í 100 metra
hlaupi á sama móti.
Morgunblaðið flutti fréttir af frammistöðu ÍR-ing-
anna en hún hafði þó aðeins staðið í viku er blaðið
segir frá því, að fólkið hér heima hafi áreiðanlega
_____ haft mikinn áhuga fyrir því hvernig ÍR-ingun-
um gengi úti, því frá því fyrsta fréttin birtist
í Morgunblaðinu af afrekum þeirra hefði upp-
hringingum til þeirra á ritstjórninni varla linnt.
„Allir hafa spurt eftir nýjum fréttum frá Ósló
eða Stokkhólmi.
Og það hafa verið fleiri en félagar þeirra
í íþróttafélagi Reykjavíkur sem hafa spurt.
Gamlir og virðulegir embættismenn, skip-
stjórar og húsameistarar, hafa fullir
eftirvæntingar viljað fá fréttir
úrslitunum í 200 m. hlaupinu
o.s.frv." í vikunni efndi
minntist frj álsíþrótta-
deild ÍR fræðgarfarar-
innar með samsæti fyrir þá sem
þátt tóku 5 ferðinni.
Montgomery
ekki gleymdur
► „LIVE Flesh“, nýjasta kvik-
mynd Pedros Almodovars, verður
heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíð
í New York, sem hefst 26. septem-
ber. Fjallar myndin um samband
tveggja lögreglumanna og daðurs-
fulla eiginkonu og verður hún sýnd
12. október.
Opnunarmynd hátíðarinnar verð-
ur aftur á móti „The Ice Storm,“
sem leikstýrt er af Ang Lee. 28
myndir verða sýndar á hátíðinni
sem fer fram í „Lincoln Center".
► Eddie Murphy og Martin Lawr-
ence sem fyrst léku saman í
myndinni Boomerang munu leika
sama í nýrri mynd Life leikstýrð
af Ted Demme, og fjallar hún um
fangelsisfélaga. Myndir hefst 1940
þegar félagarnir tveir fá lífstíðar-
fangelsisdóm, og er fylgst með þeim
til dagsins í dag.
Hilmar Sverrisson verður í góðum gír á
-þín saga!
►Montgomery heitinn Clift er
ekki alveg gleymdur og grafinn.
Nú á að gera mynd um leikarann
sem dó aðeins 45 ára að aldri árið
1966. Myndin mun fjalla um Holly-
wood ferii hans, og munu því marg-
ar glitta í marga kvikmyndastjörn-
una eins og þau Elizabeth Taylor,
Frank Sinatra og John Wayne.
Monty verður titill myndarinnar,
og þessa dagana eru framleið-
endurnir í óða önn við að finna
þann leikara sem verður full-
kominn í hlutverkið hans Monty.
Martin
Lawrence
► JIM CARREY greinir frá því
í nýlegu viðtali að hann hafi verið
svo mikill kjaftaskur í grunnskóla
að kennarinn hafi leyft honum
að standa fyrir stuttu skemmtiat-
riði í lok hvers skóladags, gegn
því að hann væri til friðs í tímum.
„Á einkunnaspjaldinu mínu
stóð alltaf: Jim er fyrstur til að
ljúka verkefnum og truflar síðan
hina nemendurna," segir háðfugl-
inn með gúmmískoltinn.
í skemmtiatriðinu í lok dagsins
henti Carrey gaman að kennurum
og skólastjóranum. „Eg sendi út-
drátt úr þessum atriðum til „The
Carol Burnett Show“ og vonaðist
til þess að hún myndi ráða mig,“
segir Carrey og bætir við: „Ca-
rol, hvað ætlarðu að láta mig bíða
lengi!?“
FAR NN
Kvikmyndafréttir