Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 53

Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 53 FÓLK í FRÉTTUM Aðalleikarar í Sporlaust eru rétt yfir tvítugu og eru að öðlast sína fyrstu reynslu í kvikmyndum Bara eitt tækifæri Upp með veggjum Sundhallarinnar eru Dofri, Þrúður og1 Guðmunchir Inffi að leika í kvik- myndinni Sporlaust undir leikstjórn Hilmars Oddssonar. Hildur Loftsdóttir bað þau að koma niður að spjalla við sig. SPORLAUST fjallar um hóp vina á tvítugsaldri í Reykjavík nútímans. Övæntir og uggvænlegir atburðir verða til þess að vinirnir standa skyndilega andspænis háskalegum vanda sem umturnar lífí þeirra og framtíðaráformum gersamlega. Aðalleikararnir eru flestir rétt yfir tvítugu, og eru að öðlast sína fyrstu reynslu í kvikmyndum. Þeir gefa sig allir í leikinn og það fer ekki á milli mála að þeir hafa gam- an af. Kjöt á beinunum Guðmundur Ingi Þorvaldsson: Ég fer með hlutverk Gunnlaugs Bjöms- sonar, títt nefnds Gulla í myndinni. Hann er sundmaður góður og af- skaplega ljúfur drengur, held ég. Þetta er bara saga um venjulegan strák og vini hans sem lenda í slæm- um málum. Eitthvað sem gæti kom- ið fyrir alla. Þrúður Vilhjálmsdóttir: Ég leik Ellu sem er kærasta Gulla. Stelpa sem á ríka foreldra og hefur fengið allt upp í hendurnar. Hún breytist eftir þessi vandræði og líka við það að þurfa að umgangast mis-hæpna náunga og jafnvel treysta á þá. Þessi breyting er það erfiðasta við að móta þessa persónu. Mér finnst Ella voða sæt þótt hún sé dálítið snobbhænsn í byrjun myndarinnar. Dofri Hermannsson: Ég er svo Beggi sem er trúðurinn, eiginlega þessi sorglegi trúður í hópnum. GIÞ: Það sem er flott við Begga er hvernig hann stendur sig í lífinu, þar sem fjölskyldan hans er dálítið vafasöm. DH: Já, hann er sá sem tengir Gulla og Ellu við fólk sem hefur ekki jafn pottþéttan bakgrunn. Hann getur átt alla að vinum. Það sem gerir handritið að Sporlaust gott er að persónusköpunin er mjög góð; það er kjöt á beinunum. Eitt- hvað meira en bara góð söguflétta. ÞV: Já, þessar ólíku persónur gera handritið litríkt og skemmtilegt. GIÞ: Málið er að viðbrögð og örlög þessa fólks eru sett ofar fléttunni. Hvernig bregst venjulegt fólk við þegar það lendir í svona aðstæðum? Skiptir sköpum að æfa GIÞ: Fólkið sem við erum að vinna með er frábært, Hilmar er leikstjóri sem gefur sér tima til að æfa, þann- ig að við lærum alveg ótrúlega mikið. Ég hefði hvergi annars stað- ar viljað byija. DH: Já, ég segi það sama. Maður hefur heyrt að sumir kvikmynda- leikstjórar á Islandi viti ekki hvað þeir vilji fá frá leikurum. ÞV: Mér finnst svo gott fyrir per- sónusköpunina að hafa æfingar, í stað þess að mæta á upptökustað og vera einungis búin að móta per- sónuna í huganum við lestur hand- ritsins; GIÞ: Ég held að það sé sparnaður fyrir leikstjóra þegar leikari kemur á tökustað og veit hvað hann er að gera. Hilmar útskýrði líka kvik- myndaleik fyrir okkur og kenndi okkur fagmálið svo við skildum hvað væri að gerast á tökustað. DH: Við spjölluðum líka saman um það hvernig við gætum fengið sem mest út úr hverri persónu og hvem- ig hún gæti hjálpað til að gera sög- una spennandi. ÞV: Þannig veit leikstjórinn líka hvað leikararnir era að hugsa í sam- bandi við sínar persónur. Vanmetið nám DH: Ef ég ætlaði að láta byggja skólanum sér maður aðallega leik- hús fyrir sér í framtíðinni, því að bíómyndir hafa verið svo fáar en þeim er farið að fjölga. GIÞ: Ég held að bíómyndir séu framtíðin, þar er þenslan. Ég hef alltaf horft með opnum hug til kvik- myndaleiks ekki síður en til sviðs- leiks. Það sem er samt erfiðara við kvikmyndaleik, er að maður fær bara eitt tækifæri. Maður tekur eitthvert atriði upp og þá þýðir ekki að hugsa um það eftir á að þú hefðir viljað gera hlutinn öðru- vísi. _ ÞV: Í leikhúsi fær maður fleiri tæki- færi. DH: Þetta er stundum flókið, þar sem atriðin í myndinni eru ekki tekin upp í réttri röð. Maður tekur upp eitthvert atriði, og þá þýðir ekki að gera næsta atriði, sem kannski er tekið upp þremur vikum seinna, allt öðruvísi. GIÞ: Svo þarf maður að bíða í heilt Listræn tilþrif? DOFRI, Þrúður og Guðmundur Ingi skemmta sér vel við upptökurnar á kvik- myndinni Sporlaust Hilmar Oddsson horf- ir á leikarana sína og klórar sér í kollinum. Morgunblaðið/Þorkell fyrir mig hús, þá myndi ég vilja fá fagmann í það þótt laghentir menn séu ágætir. ÞV: Ahugaleikarar eru oft fínir í bíómyndum, en oftast hefði orðið miklu betra að nota leikara, því áhugaleikarar eru svo misjafnir. DH: Þegar talað er um að áhuga- leikari standi sig vel, er verið að gera lítið úr þessu námi sem okkur finnst svo merkilegt. ÞV: Já, í alvöru, þetta er vanmetið nám. GIÞ: Við erum ekki fjögur ár í skóla fyrir ekki neitt. ÞV: Mér finnst spennandi að fá að vera í bíómynd með leikhúsinu. í ár til að sjá hvernig atriðið kemur út. ÞV: Ég langar að sjá myndina fyr- ir frumsýningu, annars verð ég með hjartað í buxunum. GIÞ: Við eigum líka eftir að fara í hljóðsetningu til Kaupmannahafn- ar. A.m.k. við Þrúður, manstu Bláa lóns-atriðið? ÞV: Já, einmitt. GIÞ: Já, Sporlaust verður tvímæla- laust góð mynd. ÞV: Þetta er það gott handrit að það lofar góðu. DH: Góður leikstjóri... ÞV: Góðir leikarar... GIÞ: Já, frábærir leikarar! Ha, ha! Stutt Hengdi sig fyrir slysni ^ BRESKUR leikari sem var að leika Júdas í grískri hótelupp- færslu á söngleiknum „Jesus Christ Superstar“ hengdi sjálfan sig fyrir slysni nú á dögunum. Atburðurinn átti sér stað fyrir framan um sex hundruð áhorf- endur í Aþenu en ekki er vitað með vissu hvernig hinn 26 ára gamli Antony Wheeler lenti í _ snörunni. Að sögn hótelsljórans Dimitris Hatziýannakis, hafði ■ Wheeler unnið sem leikari á hót- elinu síðastliðin þijú ár. „Hann var þægilegur, harðduglegur og vinsæll meðal leikaranna,“ sagði hótelstjórinn. Wheeler átti að láta sig svífa ofan af aftökupalli niður á gólf þar sem hann venju- lega losaði sig auðveldlega á meðan ljósin voru slökkt. Áhorf- endum og aðstandendum sýning- arinnar brá því heldur í brún þegar þeir sáu leikarann hang- andi í byrjun næsta atriðis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.