Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Minnisvarði um
ÞAÐ var löngu tímabært að Fjalla-Eyvindur fengi að tróna á stalli með skagfirskt
guðslamb á herðunum án afskipta yfirvalda . . .
Starfsmannaráð Heilsugæslustöðvarinnar
Vill aðild að stjóm
STARFSMANNARAÐ Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri hefur
sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem
vísað er til laga um heilbrigðisþjón-
ustu, um aðild starfsmanna að
stjórn stöðvarinnar og óvissu þar
um eftir að Akureyrarbær yfírtók
reksturinn.
Starfsmannaráð leggur áherslu á
að þátttaka starfsmanna í stjórn
stöðvarinnar vérði í samræmi við
lögin. Bæjarráð fjallaði um erindið
og bendir á að með lögum um
reynslusveitarfélög sé ráðherra
heimilt að víkja frá framangreindu
ákvæði laga um heilbrigðisþjón-
ustu. Það var og gert með þjónustu-
samnineri milli ráðunevtisins og
Akureyrarbæjar um rekstur heil-
brigðis- og öldrunarþjónustu í Ak-
ureyrarumdæmi frá desember sl.
Bæjarráð leggur hins vegar til
að fulltrúa starfsmanna Heilsu-
gæslustöðvarinnar verði veittur
seturéttur með málfrelsi og tillögu-
rétti á fundum félagsmálaráðs þeg-
ar rætt er um málefni stöðvarinnar.
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
5 ný íslensk leikrit í vetur
Vigdís Grímsdóttir
Sjómannatrúboð Færeyinga 75 ára
Ætla að vitja
Færeyinga
úti á landi
Iár eru 75 ár síðan Færey-
ingar sendu hingað til
lands fyrstu sjómanna-
trúboðana. Þeir aðstoðuðu
færeyska sjómenn sem voru
þá á skútum allt í kringum
landið.
Nú er staddur hér á landi
færeyskur trúboði, Havstein
Erlingsgaard, og mun hann,
ásamt Jens Péturssyni, fara
í ferð kringum landið og
reyna að ná sambandi við
Færeyinga sem þar búa.
Eirný Ásgeirsdóttir for-
stöðumaður Færeyska sjó-
mannaheimilisins segir að
færeyskir sjómenn hafi þegar
mest lét árið 1957 verið um
fjórtán hundruð talsins.
„Tímarnir eru breyttir.
Engu að síður vitum við að
margir færeyskir sjómenn
settust að hér á landi, giftu
sig og eignuðust fjölskyldur.
Þessar fjölskyldur búa nú vítt
og breitt um landið og okkur lang-
ar að hafa samband við þær.“
- Hvernig var starfi trúboð-
anna háttað hér áður fyrr?
„Sjómennirnir þurftu á ýmis-
konar aðstoð að halda og fyrir-
greiðslu, t.d. ef bilun varð um
borð. Þá kom líka upp sú staða
að sjómenn veiktust og lentu á
sjúkrahúsi. Trúboðarnir vitjuðu
þeirra. En þeir voru ekki síst send-
ir hingað til lands til að annast
andlega uppbyggingu sjómann-
anna og fóru gjarnan um borð og
höfðu hugvekjur með færeysku
sjómönnunum."
- Hvernig ætla Jens og Hav-
stein að ná sambandi við Færey-
ingana núna?
„Við kynnum þá í gegnum
bæjarblöð á hveijum stað og svo
vitum við einnig af ýmsum Færey-
ingum víða um landið sem eflaust
vita þá af fleirum og geta látið
berast að þeir séu á ferðinni."
- Verða þeir lengi á þessu
ferðalagi?
„Ætlunin hjá þeim er að vera
2-3 vikur að þessu sinni. Havstein
og Jens fara fyrst um Suðurland
og staldra við á Kirkjubæjar-
klaustri. Að því búnu liggur leiðin
austur á firði og þaðan fara þeir
yfir á Norðurland. Ef tími gefst
til fara þeir á Snæfellsnes líka.
Vestfirðina hyggjast þeir heim-
sækja síðar í vetur.“
- Munu þeir skrá niður Færey-
inga búsetta hér?
„Já, það er meiningin að taka
niður upplýsingar um Færeying-
ana um leið og þeir verða heim-
sóttir. Jens og Havstein fara einn-
ig um borð í báta og kanna hve
margir færeyskir sjómenn eru
starfandi hér á landi.“ --------
Eirný segir að mennirn-
ir muni einnig koma því
til leiðar að sjómanna-
heimilið Örkin í Reykja-
vík sé opið öllum Fær-
eyingum.
- Er einhver staður
á landinu þar sem takmarkað er
vitað um búsetta Færeyinga?
„Það er lítið vitað um Færey-
inga á Norðurlandi því Færey-
ingafélagið á Akureyri hefur ekki
verið starfandi í nokkuð mörg ár
og við erum ekki með sambönd
við marga Færeyinga þar.“
- Erfæreyska sjómannaheimil-
ið Örkin ekki tiltölulega nýtt hús?
„Jú. í kringum 1957 var byggð
hér færeysk sjómannastofa sem
stóð við Skúlagötuna.
Stórhuga og áhugasamir Fær-
eyingar vildu síðan huga að bygg-
Eirný Ásgeirsdóttir
► Eirný Ásgeirsdóttir fæddist
á Seltjarnarnesi 6. október árið
1955. Hún hefur unnið til
margra ára við sjávarútveg en
mest við þjóðkirkjuna undan-
farin tuttugu ár. Þar hefur hún
meðal annars unnið við bama-
starf. Um þessar mundir sér
hún um barnastarf við Grensás-
kirkju. Eirný hefur undanfarin
þrjú ár starfað við færeyska
sjómannaheimilið Örkina við
Brautarholt og veitt því for-
stöðu undanfarin tvö ár.
Eirný er ógift og barnlaus.
Ætla að skrá
alla Færey-
inga sem þeir
finna hér á
landi
ingu stærra heimilis og ráðist var
í byggingu sjómannaheimilisins
sem var vígt og tekið í notkun
árið 1991.“
Eirný segir að heimilið hafi
næstum eingöngu verið byggt af
Færeyingum. „Margir Færeying-
ar komu til landsins með ljölskyld-
ur sínar og bæði konur og karlar
gáfu vinnu sína að mestu leyti.
Jens Pétursson, annar þeirra sem
nú hyggst fara kringum landið,
var starfandi við byggingu hússins
frá byijun.“
- Hvernig er starfi heimilisins
háttað?
„Yfir hásumartímann er húsið
notað sem hótel. Á veturna er
hluti leigður skólafólki. Almennar
samkomur eru haldnar alla sunnu-
daga klukkan 17. Biblíulestrar eru
öll mánudagskvöld og á fimmtu-
dagskvöldum koma Færeyingar
saman í húsinu. Við húsið er einn-
ig starfandi færeyskt kvenfélag,
Kvinnaringurinn, sem hefur stutt
við sjómannatrúboðið á margs-
konar hátt. Sjómannaheimilið
Örkin er að sjálfsögðu
opið fyrir alla sjó-
menn.“
Eirný bendir á, að
færeysk blöð liggi
frammi á heimilinu og
margir nýti sér að koma
og glugga í þau, spila,
fá sér kaffi, skoða myndbönd að
heiman og rabba saman. Hún seg-
ir að margir Færeyingar líti á sjó-
mannaheimilið sem sendiráð sitt
og fólk komi með ýmiskonar fyrir-
spurnir til þeirra sem reynt sé að
leysa úr eftir bestu getu.
„Við höfum líka átt gott sam-
starf við danska sendiráðið. Á
þeirra vegum og í samstarfi við
íslensk yfirvöld hafa til dæmis
búið hjá okkur Grænlendingar
sem hafa komið með ættingja sína
hingað til lands til sjúkrahúsdval-
ar.“