Morgunblaðið - 14.09.1997, Page 16

Morgunblaðið - 14.09.1997, Page 16
16 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Golli SKÁLDIÐ, stórleikkonan og fjölmiðlastjarnan hafa komið sér vel fyrir í spjallhorninu og eru klár í slaginn. DIDDI sér til þess að klapp og hlátur áhorfenda heyrist á réttu augnabliki. Bein útsending eftir Þorvald Þorsteinsson frumsýnt í Loftkastalanum Sannleikurmn er ekki alltaf sagna bestur Það gengur á ýmsu áður en þátturínn getur hafíst í beinni útsendingn. Fjölmiðlastjaman Jón Logi var í upptöku en Hulda Stefáns- dóttir ræddi við höfundinn, Þorvald Þor- steinsson, o g leikstjórann, Þór Túliníus, um fjölmiðlaheiminn, ímyndargerð og hlutverkin sem við erum öll að leika. EIN mínúta í útsendingu og Jón Logi æfir töfrandi brosið. BEIN útsending er fyrsta íslenska leikritið sem Flugfélagið Loftur frum- sýnir, en frumsýning verður í kvöld, sunnudagskvöld, í Loftkastalanum. Þorvaidur Þor- steinsson, myndlistarmaður og rit- höfundur, skrifaði leikritið sérstak- lega fyrir Loftkastalann. Hann seg- ir aðstandendur Loftkastalans hafa sýnt mikla dirfsku með því að treysta höfundinum svo algerlega fyrir leikritagerðinni og skapa hon- um með því þá draumaaðstöðu að geta samið leikverk að eigin geð- þótta. Umgjörð leikritsins er sjón- varpsþáttur og leikhúsgestir eru því í hlutverki áhorfenda í sjón- varpssal. Samsetning á sjónvarps- efni og leikriti hefur ekki verið reynd áður í íslensku leikhúsi og Þór Túliníus, leikstjóri, segir mikla vinnu búa að baki tæknilegri um- gjörð sýningarinnar sem hafi bæði verið flókið og skemmtilegt að tak- ast á við. Leikritið gerist í útsendingu á nýjum sjónvarpsþætti „í beinni út- sendingu" undir stjórn fjölmiðla- stjörnunnar Jóns Loga, stundum kallaður Loginn eða Johnny Logan þegar vísa þarf út fyrir landstein- ana. Með hlutverk hans fer Eggert Þorleifsson. í þessum nýja sjón- varpsþætti hyggst Jón Logi taka á málum sem aldrei fyrr, kryfja til mergjar og hlífa engum. Þó ekki þannig að alvaran verði of mikil því Jón Logi veit hvað áhorfendur vilja. Framvinda verksins á þó eftir að leiða í ljós að sannleikurinn af- hjúpast ekki síður þegar slökkt er á upptökuvélunum en þegar Jón Logi gengur á gesti sína í beínni útsendingu. Eins og stórstjarna er siður hefur Jón Logi sér til halds og trausts allsheijarreddara, förðunarmeistara og útsendingarstjórann Didda, sem Ólafur Guðmundsson leikur. Diddi skemmtir gestum þáttarins, áhorf- endum og Jóni Loga með endalaus- um sögum af mönnum og fjölbreyti- legustu málefnum. Hann er fljótur að átta sig á stemmningunni og bjarga því sem bjargað verður. Gestir þáttarins eru skáldið Krist- inn Freyr, sem býr í Berlín en flýg- ur sérstaklega að utan vegna Is- landsfrumsýningar á nýjasta leikriti sínu, Galdri. Eiginkona hans er leik- konan Anna Olsen, sem leikið hefur hvert stórhlutverkið á fætur öðru í verkum eiginmannsins, en þar heitir persóna hennar alltaf María. Sveinn Geirsson og María Ellingsen fara með hlutverk þessara íslensku lista- manna sem gera garðinn frægan erlendis. I för með listamannshjón- unum er ung og upprennandi leik- kona, Freyja Magnúsdóttir, sem Þrúður Vilhjálmsdóttir leikur. Freyja kynntist þeim Kristni Frey og Onnu nánast af tilviljun í Berlín og hefur gengið til samstarfs við þau um uppsetningu á Galdri á ís- landi. í Beinni útsendingu fá áhorf- endur að sjá brot úr þessu nýjasta stórvirki íslenskrar leikritunar. Vald fjölmiðlanna getur verið hættulegt Þorvaldur segir leikritið vera það flóknasta sem hann hefur fengist við. Áður hafa verið sett á svið tvö leikrit hans i fullri lengd, Skilaboða- skjóðan í Þjóðleikhúsinu og Maríu- sögur hjá Nemendaleikhúsinu. Þor- valdur er auk þess leikhússtjóri Vasaleikhússins sem flytur leikverk í útvarpi og sjónvarpi. Þá hefur hann samið þijú sjónvarpsleikrit sem Ríkissjónvarpið sýnir í vetur og unnið barnaefni fyrir sjónvarp. Þó svo að höfundur hafi fengist við að semja bæði fyrir sjónvarp og leik- hús reyndist samruni þessa tveggja miðla vandasamur. Þorvaldur segist hafa notið ómetanlegrar dramat- úrgískrar aðstoðar Ingibjargar Björnsdóttur sem hafi frá upphafi komið með snjallar ábendingar frá sjónarhorni leikhússins. Náin sam- vinna við leikstjórann hafi einnig haft mikil og góð áhrif á verkið. „Það er mikilvægt að nýta leikræna möguleika til hins ýtrasta auk þess að forðast þann pytt höfundarins að ætlast til of mikils af leikhús- inu,“ segir Þorvaldur. „Samspilið var auðvitað flókið því veruleikar leikritsins eru margir og auðvelt að týna sér en ég vona að allir hafí fundið sig.“ Leikritið er byggt í kringum formið, þ.e. sjónvarpsþátt sem er eins og leikrit innan leikritsins. Þor- valdur segir sal Loftkastalans ein- faldlega hafa boðið upp á að þessi óvenjulega leið yrði farin með hrá- leika sínum sem minni á myndver. Persónur og framvindu verksins hafi hann svo unnið inn í leikrita- formið. Persónurnar byggir höfund- ur á tveimur stórum goðsögnum samfélagsins, fjölmiðlastjörnunni og listamanninum sem einangruðum snillingi. „Við tölum mikið um það hversu sterkt afl í samfélaginu fjölmiðlar eru. Það sem vakti fyrir mér var að draga fram vanmátt fjölmiðla til að fjalla um raunveruleikann og jafnframt þau hættulega sterku meðul sem hægt er að beita í fjöl- miðlum með einföldunum," segir Þorvaldur. „Fjölmiðillinn er líka hluti af veruleikanum og er þar af leiðandi ekki fær um að endur- spegla veruleikann heldur fjallar hann um sjálfan sig sem hluta af veruleikanum." Þorvaldur viður- kennir þó að viðfangsefni verksins sé kannski fyrst og fremst afsökun til að fjalla um klassísk viðfangsefni leikritunar: völd, kúgun, undirgefni, frelsisbaráttu einstaklingsins og samskiptamunstur fólks. Hefðbund- in viðfangsefni séu faiin í kunnug- legri umgjörð íjölmiðlaheims sam- tímans. Höfundur óttast ekki við- brögð fjölmiðlafólks við verkinu því hann segist halda að það veki alltaf góða tilfinningu hjá fólki að vita til þess að verið sé að leita í smiðju þeirra. Lifað upp í ímyndir Þór segir að fyrir sér fjalli verkið um það hver við öll erum í þessum fjölmiðlavædda heimi. „Fólk er allt- af að reyna að lifa upp í ímyndir og sveiflast á milli hlutverkanna hver er ég? hvernig sé ég sjálfan mig? og hvernig sjá aðrir mig? og alltaf er þetta spurning um að halda grímunni," segir Þór. Sjónum er beint að listamannsímyndinni, þeim sem eiga að vera fijálsir en eltast svo jafn mikið við ímyndir og aðrir. „Þorvaldur er hugmyndaríkur og lipur penni og hann skrifaði þó- nokkrar útgáfur af einstökum sen- um, hveija annarri betri,“ segir Þór. „Nauðsynlegt var þó að gera upp við sig hvemig verkið skyldi leitt til lykta og það gat því miður ekki farið nema á einhvern einn veg.“ Leikmynd- og búninga hannaði Stígur Steinþórsson. Máni Svavars- son sá um hljóðmynd og samdi titil- lag verksins. Jóhann Pálmason sér um ljósahönnun og tæknihönnun sýningarinnar er í höndum Hjartar Grétarsonar. * Afangar ÁFANGAR, sýning á verkum Sigurðar Nordals, m.a. á ýms- um handritum hans sem ekki hafa komið fyrir almennings sjónir fyrr, frumprentunum á bókum hans og munum úr eigu hans verður opnuð í Ejóðarbók- hlöðunni í dag. Stofnun Sigurðar Nordals og Landsbókasafn íslands, Há- skólabókasafn, gangast fyrir dagskrá um dr. Sigurð Nordal og verk hans í Þjóðarbókhlöð- unni í dag, á fæðingardegi Sig- urðar, sunnudaginn 14. sept- ember kl. 16. Einar Sigurðsson landsbóka- vörður tekur á móti eiginhand- ritum Sigurðar til varðveislu í Landsbókasafni og Páll Skúla- son, rektor Háskóla íslands, opnar sýninguna. Þá flytur Gauti Sigþórsson BA fyrirlestur sem nefnist „Andmæli óskast“. Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals, setur afmælisdagskrána og kynnir. Tréskurðar- sýning BRESKI tréskurðarmeistarinn Ian Norbury, sem um þessar mundir heldur námskeið í Flensborgarskóla fyrir íslenska tréskera, kynnir handverk sitt og listiðn á myndasýningu á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 16. september kl. 20. Ian Nor- bury hefur getið sér orð fyrir frumlegan myndskurð og er einn eftirsóttustu kennara og fyrirlesara um nútímatréskurð, bæði austan hafs og vestan, segir m.a. í fréttatilkynningu. Að sýningunni lokinni verður haldinn aðalfundur Félags áhugamanna um tréskurð. Fyrirlestur um arkitektúr PÉTUR H. Ármannsson arki- tekt flytur erindi á Kjarvals- stöðum mánudagskvöldið 15. september kl. 20. Fyrirlsetur- inn er um listsköpun Sigurðar Guðmundssonar arkitekts í tengslum við yfirlitssýningu á verkum hans í miðrými safns- ins, sem opnuð var 6. septem- ber sl. Auk fyrirlestursins er boðið upp á leiðsögn um sýn- inguna kl. 17 alla föstudaga til 17. október. Aðgangur er að fyrirlestri ókeypis en þátttak- endur í leiðsögn greiða að- gangseyri að sýningunni, kr. 300. Sýningu Aðal- heiðar að ljúka SÍÐASTI sýningardagur Aðal- heiðar Valgeirsdóttur í Lista- safni ASÍ, Ásmundarsal, Freyjugötu 41, er í dag, sunnu- dag. Á sýningunni eru myndir, unnar með blandaðri tækni á pappír. Flestar myndanna eru unnar á árinu 1997. Sýningin er opin frá kl. 14-18. Tónleikar Selfosskirkju ÁRNI Arinbjarnarson verður með stutta tónleika við orgelið í Selfosskirkju í kvöld, þriðju- dag kl. 20. Meðal verka á efnisskrá Árna eru m.a. nokkrir hinna þekktu Schubert-forleikja eftir J.S. Bach og Gotnesk svíta eft- ir Boellman. Aðgangur er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.