Morgunblaðið - 14.09.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 31
SKOÐUN
fyrirtæki munu auka tekjur sínar. í
kjölfar þess auka þau starfsemi sína,
bjóða betri laun, taka til sín fjár-
magn o.s.frv. Raungengið fer því
strax að færast upp á við og endar
í svipaðri stöðu og áður. Niðurstaðan
verður því að iðnaðurinn stendur í
sömu sporum og fyrir.
Ef nafngengið er fellt þarf að
bæta almenningi upp kjaraskerðing-
una sem er óumflýjanleg vegna dýr-
ari innflutnings og hefur verið
stungið upp á að lækka tekjuskatt.
Fyrst er til að taka að áfram standa
þau rök að raungengið þokist upp á
við; gengislækkunin hefur aðeins
tímabundin áhrif. Hitt er að erfitt
kann að reynast að tryggja óbreytt-
an kaupmátt með tekjuskattslækk-
un. Hvað með þá hópa sem nú borga
lítinn sem engan tekjuskatt? Má þar
nefna aldraða, öryrkja og láglauna-
fólk. Framfærslukostnaður þessa
fólks mun hækka töluvert, en skatta-
lækkunin koma því að litlum notum.
Vestræn ríki hafa gert sér grein
fyrir þeirri hagkvæmni sem fylgir
því að öll fyrirtæki, hvaða grein sem
þau tilheyra, séu háð sömu leikregl-
um, s.s. skattareglum og tollalögum.
Það er almannahagur að mismuna
ekki atvinnugreinum.
Það var í samræmi við þessa hug-
mynd að Alþingi ákvað að iðnaður
og sjávarútvegur greiði sama trygg-
ingargjald. Það gengi í þveröfuga
átt að setja sérstakan skatt á sjávar-
útveg. Það er ekki hlutverk ríkisins
að jafna aðstöðu allra atvinnuvega,
heldur að sjá til þess að allir atvinnu-
vegir séu jafnir fyrir lögum. Það
hefði í för með sér skrifræðislegan
frumskóg að ætla að jafna aðstöðu
allra greina með því að skattleggja
eða styrkja aðföng með ýmsum
hætti. Að auki er takmarkið um
jafna aðstöðu afar óskynsamlegt,
sumir atvinnuvegir eru einfaldlega
arðbærari en aðrir og eiga að njóta
þess. Ef staða iðnaðar gagnvart
sjávarútvegi er sérstakt áhyggjuefni
má einnig benda á að iðnaður stend-
ur alls ekki verr en sjávarútvegur á
þeim aðfangamörkuðum sem báðar
greinar keppa á. Þannig hefur iðn-
aði gengið betur í samkeppninni um
fjármagn; hlutabréfavísitala í iðnaði
hefur fjórfaldast á árunum 1991 til
1996 en þrefaldast í sjávarútvegi.
Einnig er aðeins um 1,5% starfsfólks
sjávarútvegs og fiskvinnslu háskóla-
menntað en um 4% starfsfólk í iðn-
aði og 13% alls starfsfólks í landinu
hefur háskólapróf og fer því greini-
lega fjarri að sjávarútvegurinn sé í
betri aðstöðu en aðrar greinar til
að ráða fólk. Allt þetta sýnir óyggj-
andi að ríkisvaldið þarf ekki að
veikja sjávarútveginn sérstaklega til
að gefa iðnaði tækifæri.
Þrautin þyngri
Það hefur vafist nokkuð fyrir tals-
mönnum auðlindagjaldsins að greina
frá því hversu hár auðlindaskattur-
inn á að vera og hvernig eigi að
leggja hann á. Það eina sem hönd
á festir er að slíkur skattur á að
verða bæði „réttlátur" og „hag-
kvæmur". Lítið hefur farið fyrir
umræðu um það hvort allir eigi að
borga sama gjald eða vera háðir
sömu uppboðsreglum. Á t.d. útgerð-
armaður sem s.k. auðlindaskatts-
sinnum fékk veiðiréttindi sín „ókeyp-
is“ að borga sama gjald og sá sem
keypti sín réttindi fullu verði á mark-
aði. Slík gjaldtaka á lítið skylt við
réttlæti. Og á skatturinn að vera sá
sami í einstökum greinum sjávarút-
vegsins. Nú er afkoma í sjávarút-
vegi mjög mismunandi eftir grein-
um. Verður það „réttlátt" og „hag-
kvæmt“ ef sami skattur verði lagður
jafnt á mismunandi greinar? Og ef
ekki hvert á hlutfallið að vera? í
þessu sambandi má minna á tilraun-
ir sem gerðar voru til að jafna að-
stöðu innan sjávarútvegsins með
mismunandi skráningu gjaldeyris
s.k. bátagjaldeyriskerfi. Ekki þarf
að fjölyrða um hvernig það kerfi fór
gersamlega úr böndunum.
Sjávarútvegurinn borgi
Enginn ágreiningur er um það að
sjávarútvegur á að borga skatta til
jafns við aðrar atvinnugreinar í land-
inu. Einnig hlýtur að teljast eðlilegt
að útgerðarmenn greiði eignaskatta
af kvótaeign sinni rétt eins og af
öðrum eignum. Jafnframt eiga
kvótahafar að greiða fyrir allan
kostnað af fiskveiðistjórnunarkerf-
inu sjálfir. Aðalatriðið er að greinin
fái sömu meðferð og aðrar atvinnu-
greinar. Sjávarútvegur á að greiða
til samfélagsins það sem honum
ber. Ekki má rugla saman andstöðu
við auðlindaskatt og almennar skatt-
greiðslur á greinina.
Orrí er verkfræðingur,
Illugi er hagfræðingur.
BUIÐ OG STARFIÐ
í BANDARÍKJUNUM
55.000 innflytjendaáritanir (Green Card) eru í boði í nýju
Ríkishappdrætli "U.S. Government Lottery". Opinbert
happdrætti, ókeypis þáttaka.
LOKAFRESTUR: 14. NOVENIBER 1997
Upplýsingar: Sendið einungis póstkort með eigin nafni og heimilisfangi til:
4200 WISCONSIN AVENUE N.W.
WASHINGTON, D.C. - 20016 U.S.A.
FAX 00 1 202 298-5601 - Sími 00 1 202 298-5600
www.nationalvisacenter.com
NATIONALtW
VISA SERVICE
01997 IMMIGRATION SERVICES
1 VAhökkm. I
| veislur allt ário I
- árshátíðir, afmæli, brúðkaup, fundi,
; fermingar, ráðstefnur, jólahlaðborð,
kynningar, þorrablót...
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1 9 35.
Upplýsingasími 567-2020, fax 587-2337.
- kjarni málsins!
OOÍÖ
PPa
Esjunaz
Skátabúðin hvetur alla viðskiptavini sína fyrr og síðar að taka boði Hjálparsveitar
skáta um samfylgd upp á Esjuna í dag. Skátabúðin, sem er 50 ára um þessar mundir,
mun leggja sitt af mörkum til að gera daginn eftirminnilegan.
Þeir sem mæta á Scarpa skóm fá Nikwax leðurfeiti og barmmerki Skátabúðarinnar.
Við gefum fólki kost á að prófa Leki göngustafí auk þess sem við kynnum 1998 árgerðirnar
afADIDAS og Scarpa gönguskónum vinsælu.
Þú gengur að gæðunum vísum í Skátabúðinni!
NIKWAX
WATERPROOFING
-SKAKAK fKAMUK