Morgunblaðið - 14.09.1997, Side 42

Morgunblaðið - 14.09.1997, Side 42
' 42 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ 4 HUGVEKJA ÍDAG erindisins Gleðiboðskapurinn er hins vegar sá, segir sr. Heimir Steinsson, að Guð lýsir því yfír formlega á torgi him- insins, að þú sért rétt- lát(ur). Ég hef áður í hugvekju nú í sumar minnzt á gríska orðið „evangelíon", sem merkir ánægjuleg tíðindi, gleðilegan boðskap, fagnaðarerindi. Kirkju- deild sú, sem íslenzka þjóðkirkj- an er hluti af, nefnist „evangei- isk lúthersk", m.ö.o. „hin lút- herska kirkja fagnaðarerindis- ins“. Kirkjufaðir vor, Marteinn Lúther, var því þó andvígur, að hin nýja kirkja hans væri kennd við hann, „Lúthersk" kirkja er þar af leiðandi hálfgert ónefni. Eftir stendur „kirkja fagnaðarer- indisins". Það er hið bezta heiti og mætti heyrast oftar. Elzta guðspjall Nýja testa- mentisins, Markúsarguðspjall, hefst á svolátandi orðum: „Upp- haf fagnaðarerindisins um Jes- úm Krist, Guðs son“ (Mark.l:l). í fyrsta kapítula Rómveijabréfs- ins hendir Páll postuli orðið fagn- aðarerindi á lofti: „Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræð- is hverjum þeim sem trúir, Gyð- ingum fyrst, en einnig Grikkjum. Því að réttlæti Guðs opinberast í því fyrir trú til trúar, eins og ritað er: Hinn réttláti mun lifa fyrirtrú." (Róm. 1:16-17). Fagnaðarerindið um Jesúm Krist er frásögn guðspjallanna af því, hvernig Kristur lifði í samræmi við vilja Guðs, var sak- laus píndúr og krossfestur í vorn stað og reis upp frá dauðum sem frumgróði þeirra, er á hann trúa. Fagnaðarerindið er dregið sam- an í stuttu máli í postul legu trúaijátningunni, sem vér öll kunnum og öll förum með í hverri sunnudagsguðsþjónustu íslenzku kirkjunnar nú á dögum. Páll postuli segir, að réttlæti Guðs opinberist í fagnaðarerind- inu fyrir trú til trúar. Vér synd- ugir menn erum alls kostar óréttlátir af eigin rammleik. Fagnaðarerindið er boðskapur til vor um það, að Guð „tilreikni" oss réttlæti sitt (Róm. 4:6). Sá boðskapur opinberast oss „fyrir trú til trúar“. Engin leið er að veita boðskapnum viðtöku nema í trú eða fyrir trú. Þeim sem tekið hefur á móti gleðitíðindun- um í trú, verður fagnaðarerindið síðan enn frekar „til trúar“. Trú hans glæðist og vex, verður ríku- legri en nokkru sinni fyrr. 32. sálmur Davíðs Hvað merkir það, að Guð „til- reikni“ oss réttlæti sitt? Lítum á 32. sálm Davíðs. Þar segir: Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin. Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð... Meðan ég þagði, tærðust bein mín, allan daginn kveinaði ég, því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr sem í sumar- breiskju. Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti: „Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni“, og þú fyrirgafst syndasekt mína. Þegar sálmurinn talar um, að Drottinn tilreikni eigi misgjörð, er átt við það, að Guð hafi ákveð- ið að gefa hinum seka upp sök- ina. Guð lýsir þann mann, sem brot hefur framið, sýknan saka, fyrirgefur yfirsjón hans, hylur synd hans. Undanfari þeirrar fyrirgefningar er syndajátning hins brotlega. Sá sem þegir, tærist og kveinar. Sá sem játar synd sína, fær fyrirgefningu. Slíkum manni tilreiknar Guð réttlæti sitt. Það merkir, að sá maður er í trúnni jafn réttlátur og Guð sjálfur. Á torgi himinsins Þessi gleðiboðskapur tekur öllu öðru fram. Viðleitni góðra manna til nytsamra verka er ól- astanleg. Viðleitni mín og þín til réttlætisástundunar andspænis Guði og mönnum er alls góðs makleg. En öll sú viðleitni er þó og verður aldrei annað en, við- leitni. Réttiátur fyrir Guði og mönnum verð ég aldrei af eigin rammleik. Ég get kappkostað allt hið bezta. En endanlegur árangur verður aldrei hlutskipti mitt. Þeim mun meira sem ég reyni því sárari verða vonbrigðin vegna míns augljósa vanmáttar. Gleðiboðskapurinn er hins vegar sá, að Guð lýsir því yfir formlega á torgi himinsins, að þú sért réttlát(ur), eins og hann sjálfur. Hann nefnir þig með nafni og sýknar þig. Þaðan í frá ert þú hólpin(n) um tíma og um eilífð. Guð hefur tijreiknað þér réttlæti sitt. Allt atferli þitt eftir það einkennist af þakklæti þínu til Guðs fyrir þá grundvallar- breytingu, sem hann hefur gjört á lífi þínu. Þú ert nú í náðar- stöðu. Guð mun krýna viðleitni þína til góðra verka ævidaga þína alla. Þennan boðskap skaltu með- taka í einni saman trú. Tilboð óskast Til sölu Mercedes Benz C220, svartur, árgerð 1995, ekinn 65 þús km. Sjálfskiptur, fjarstýrð samlæsing, sól- lúga, 2 líknarbelgir, rafmagn í rúðum, ABS-bremsur, litað gler, höfuðpúðar o.fl. Upplýsingar í síma 896 0747. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Klassík FM ÉG VIL þakka Ragnari Ólafssyni fyrir ágæta grein í Morgunblaðinu 11. september. Þar hvetur hann fólk til að láta í sér heyra og sýna stuðning við Klassík FM 106,8. Það er ekki erfítt að gera það. Ég vona og treysti á að þessi stöð verði ekki lögð niður. Hún er orðin fastur liður í mínu daglega lífi sem væri snauðara án þessarar dásamlegu tón- listar sem hægt er að treysta á allan sólarhring- inn. Halldór Hauksson er mjög góður. Hann talar fyrir tónlistinni áður en hann leikur hana og það gefur henni meira gildi. Perónulega finnst mér best að hlusta á gömlu snilling- ana, endalaust Það er rétt sem Ragnar Ólafsson seg- ir, stöðin hefur ekki verið auglýst og það eru enn margir sem ekki hafa hug- mynd um að þessi klass- íska stöð sé til. Mín vegna mega ensku fréttirnar missa sig en það er auðvit- að misjafn smekkur manna. Ég vil áfram hvetja fólk til að láta í sér heyra ef það mætti verða til þess að við fengjum að halda í þessa frábæru klassísku tónlist á öldum ljósvakans. Sigríður Einarsdóttir. HYERber ábyrgðina ER HÆGT að láta fólk vera skrifað fyrir síma á heimilisfangi þar sem það hefur ekki lögheimili? Dæmi eru um það að mis- vitgrannt fólk hafi verið skrifað fyrir síma á heimil- isfangi þar sem það ekki býr og hefur þetta fólk síð- an lent í vandræðum því það situr uppi með skuldir og fær jafnvel ekki leyfi til að hafa sinn eigin síma seinna meir. Hver ber ábyrgð á því að þetta getur viðgengist? Munið eftir Kattholti KONA hafði samband við Velvakanda og vildi hún benda því fólki á, sem er að auglýsa eftir kisunum sínum sem eru týndar, að hafa samband við Kattholt og athuga hvort þeirra kisa sér ekki þar. Tapað/fundið Frakki í óskilum DÖKKUR herrafrakki er í óskilum í Askirkju við Vesturbrún. Upplýsingar í síma 688-8870. Armband týndist ARMBAND, breitt víra- virkisarmband, gullhúðað og gamalt, týndist aðfara- nótt 30. ágúst í Óperukjall- aranum eða í grennd. Þeir sem hafa fundið armband- ið vinsamlega hafi sam- band í síma 557-3341 eða 557-9728. Dýrahald Hvít læða týnd! KRUSÍ, sem er hvít læða, týndist frá Óðinsgötu 4 um mánaðamótin ágúst-sept- ember. Hún er 5 mánaða og er með bleika ól og grænt merkispjald. Þeir sem hafa orðið varir við hana hafi samband í síma 561-3272 eða 565-1075. Fundarlaun. Ponsa er týnd Hefur einhver séð kisuna mína? Hún er búin að vera týnd síðan 9. september. Hún er ómerkt og hlýðir nafninu Ponsa. Ef einhver hefur orðið var við hana eða veit um ferðir hennar, þá vinsamlega látið írisi vita í síma 568-0180 eða 555-2702. Hennar er sárt saknað. Fundarlaun OLLA sem er hvít og grá 5 mánaða læða, með svarta hálsól, ljósbláa tunnu með upplýsingum í og bjöllu, týndist 10. sept- ember frá Njálsgötu. Fólk í nágrenninu er beðið að hafa augun opin og athuga í geymslum og bílskúrum hvort þeir verði varir við kisu. Þeir sem sem hafa orðið varir við kisu eru beðnir að hafa samband við Lindu í síma 552-9828 eða 561-4031. Fundar- laun. Arnað heilla ÞESSIR duglegu krakkar héldu hlutaveltu nýlega til styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn 2.654 krón- ur. Þeir heita Daníel Andrés- son, Guðni Páll Kristjánsson, Bjarki Benediktsson, Búi Steinn Kárason, Þórunn Káradóttir, Friðrik Dór Jóns- son, Sveinn Andri Brimar og Brynjar Benediktsson. Víkveiji skrifar. •• IALMANAKI Háskóla Islands segir að réttir byrji 11. septem- ber, sem var fimmtudagur í nýlið- inni viku. A þessum tíma kemur fé af fjöllum með tilheyrandi hausthátíðum í sveitum landsins. Þá kemur jafvel fiðringur í borgar- börnin, enda sveitin og búskapur- inn í erfðavísum þeirra. Smölun og réttir hafa verið fastir liðir í þjóðarbúskapnum í meira en þús- und ár! Hrepparnir, hin fyrstu sveitarfé- lög hér á landi, rekja rætur aftur á fyrri hluta þjóðveldisaldar. Hlut: verk þeirra var í upphafi tvíþætt. í fyrsta lagi var hreppurinn form á eins konar samábyrgð hreppsbúa, sem náði til framfærslu þurfandi og bóta, ef bær brann eða búsmali féll. Sumir segja að þar sé upphaf trygginga meðal germanskra þjóða. í annan stað varð hreppurinn til úr þörf bænda á samvinnu um smölun (fjallskil) og réttir, þegar sauðfé tók að fjölga í landinu. Réttarstemmningin í sveitum Iandsins á sér því gott betur en þúsund ára sögu. Þeir sem gleðjast á góðri hauststundu, eftir göngur á afréttir, standa vörð um gildan þátt í þjóðmenningu okkar. ÞAÐ HAUSTAR að, sögðu gömlu mennirnir. Mörg heiti, sem þeir notuðu, voru kennd til haustsins: haustbati [þegar kindur brögguðust eða fitnuðu á haustin], haustskurður [slátrun að haust- Iagi], haustbirtingur [silungur sem gekk í vötn þegar þau var farið að leggja], haustbæra [kýr sem ber að hausti], haustbygg og haust- hveiti [bygg og hveiti sem sáð var að hausti], haustjafndægur [þegar dagur og nótt eru jafnlöng] o.s.frv. í heiðnum sið voru sérstök haust- blót, haustveizlur, samkvæmt hefð- um ásatrúar. Þar var öl til vinar drukkið. Ekki má gleyma haustvertíðinni, veiðitíma að hausti, sem hófst 29. september og stóð til 23. desember. Haustannir hétu einu nafni hefð- bundin bústörf áður en vetur gekk í garð. Haustþing voru og haldin í héraði að loknu Alþingi. IMBRUDAGAR - hvaða dagar eru nú það? Þrír upphafsdagar hvers fjórðungs kirkjuársins í kaþ- ólskum sið, „þriggja daga fasta“, miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur - eftir öskudag, hvíta- sunnudag, krossmessu á hausti og lúsíumessu. Krossmessa á hausti er einmitt í dag, 14. september, sem er 16. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Imbrudagar hefjast því komandi miðvikudag. Víkveiji gerir því ekki skóna að íslendingar á tækni- og tölvuöld fasti imbrudagana, eins og áar þeirra gerðu í kaþólskum sið. Þó hefðu þeir, sumir hveijir að minnsta kosti, gott af því að leggja feit- og kjötmeti til hliðar fáeina daga og snæða í staðinn hollmeti haustupp- skerunnar, grænt og gotL Þá bragðaðist og trúlega rautt kjötið - og máski rautt vínið sem með- læti - enn betur í vikulokin. IEFTIRMÆLUM góðskálds um annað góðskáld er talað um „hrungjörn lauf í haustskógi". Já, sá tími er ekki langt undan að tré felli lauf. Barrtré standa á hinn bóginn áfram sígræn, vetur sem sumar, nema lerkið, sem fellir barr- ið. Að vori laufgast birkið, reynir- inn, öspin og viðirinn á nýjan leik. Og skógarfuglar bregða á leik. Það er feikn mikil lífsorka í hing§ðkomu farfuglanna - og „upprisu“ tijánna til _nýs sumars. í garði Víkvetja er urt af hvann- arætt, Bjarnarkló trúi ég hún heiti, sem verður góðir tveir metrar að hæð og breiðir úr sér í toppinn. Hún fellur niður í rót haust hvert en vex á nýjan leik næsta sumar - og öll sumur - sína tvo metra eða svo í átt til himins. Vaxtarkraftur- inn, hvaðan sem hann kemur, er ótrúlegur! Öll verðum við „hrungjörn lauf í haustskógi". Og allir haustskógar vakna til nýs sumars þegar vorsólin rís. i ð i i * i I € fl 4 4 i 3 fl 4 é 4 i i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.