Morgunblaðið - 14.09.1997, Page 47

Morgunblaðið - 14.09.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 47 J- FÓLK í FRÉTTUM Djasshátíðin Djass og trú fyrir hug og hjarta „DJASSINN á rætur sínar að rekja í guðþjónustu og bænasöng svertingja í Ameríku, blús og gospeltónlist," segir séra Sigurjón Ái-ni Eyjólfs- son héraðsprestur í Reykjavíkurprófastdæmi eystra, „og ef marka má ævisögur djassara kemur í ljós að margir þeirra hefja ferihnn sem hljóð- færaleikarar í kirkjum í heimabæjum sínum.“ Djassmessa Sigurjóns er í dag kl. 11:00 í Ár- bæjarkirkju og verður henni jafnframt útvarpað. Hún er hefðbundin að öllu leyti nema því að djass- tónverk koma í stað orgelleiks og kórsöngs. „Djassinn er á heimavelli í guðþjónustunni," segir Sigurjón Árni. Hann segir að líkja megi hljóðfæraleik djass- tónlistarmanna við lofgjörð. „Hjart- sláttur guðþjónustunnar og djassins eni í raun lofgjörð og bæn til guðs yfir neyðinni," segir hann og að djassinn hafi breiðst út þar sem kúgun og erf- iðleikar voru til staðar. „Djassleikarar eru einskonar predikarar.“ Sigurjón segir, að eins og prestar leggi út frá texta dagsins, útleggi djassleikarar lögin í sólóum. í messunni í dag syngur Egill Ólafsson, Bjöm Morgunblaðið/Kristinn SIGURJÓN ÁRNI EYJÓLFSSON er héraðs- prestur í Reykjavíkurprófastdæmi eystra og hef- ur spilað á saxófón í 25 ár og er mikill djass- áhugamaður. I Menntaskóla var hann í hljóm- sveitinni Evusonum með Stefáni S. Stefánssyni. Sigurjón er guðfræðingur frá Háskóla íslands og með doktorspróf uin réttlætingu og trú frá háskólanum í Kiel í Þýskalandi. Hann spilar með lúðrasveit Reykjavíkur. Thoroddsen leikur á gítar, Gunnar Hrafnsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur og taka þeir yfir hlutverk kórsins og organista. Er djassinn fyrir hugann og trúin fyrir hjartað? „Við skírn krossa prestar við höfuð og hjarta barnsins svo hugur og hjarta leiðist að orði guðs,“ svarar sr. Sigurjón sem telur að bæði djass og trú höfði jafnt til tilfinninga og hugs- unar. „Maður verður líka að geta svarað fyrir trú sína með orðum og rökum. Við þurfum að geta orðað hvað kristinn kærleikur stendur fyrir.“ Jafnvægið milli ástar og skynsemi er staðfest. Djassinn er á heimavelli í guðþjónustunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.