Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 10

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 10
10 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Pósti og síma hf. bannað að bjóða félögum í FÍB sérkjör Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að tilboð Pósts og síma hf. á farsímum og afnota- gjöldum á farsímum til félaga í Félagi íslenskra bifreiðaeigenda feli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu Pósts og síma hf. sem hafi skaðleg áhrif á samkeppni. Morgunblaðið/Kristinn BJÖRN Bjarnason ávarpar aðalfund Hins íslenska kennarafélags á Grand Hóteli í gær. Við hlið hans situr Elna Jónsdóttir, formaður HÍK. Aðalfundur HÍK fjallar um sameiningu kennarafélaganna Tillaga um stofnun nýs kennarafélags afgreidd í dag 1 ÁKVÖRÐUN samkeppnisráðs segir að tilboð Ppsts og síma hf. til félagsmanna í FIB sé til þess fallið að viðhalda eða efla markaðsráðandi stöðu Pósts og síma hf. og hrekja keppinauta út af markaðnum eða hindra aðgang nýina að honum, en þess sé að vænta að nýtt fyrirtæki hasli sér völl í farsímaþjónustu snemma á næsta ári. Hefur sam- keppnisráð úrskurðað að ákvæði sem skuldbindur þá sem þegar hafa keypt farsíma samkvæmt tilboðinu til að skipta aðeins við farsímakerfi Pósts og síma hf. næstu tvö árin sé ógilt þar sem með því verði markaðssókn hins nýja fyrirtækis settar skorður þennan tima. í tilboði Pósts og síma hf. er félögum í FÍB boðið að kaupa farsí- matæki ásamt fóstu afnotagjaldi í tvö ár, og í kynningu á þessu tilboði hefur komið fram að það feli í sér 27% til 54% afslátt af almennu heild- arverði þein-a síma og þjónustu sem í boði er. Póstur og sími hf. er eini aðilinn hér á landi sem getur boðið upp á farsímaþjónustu enn sem komið er, og í ákvörðun samkeppnis- ráðs kemur fram að keppendur fyr- irtækisins í verslun með farsíma geti því ekki jafnað þetta tilboð nema með því að kaupa sjálfir afnotagjöld af Pósti og síma hf. og tvinna þau síðan saman við söluverð símanna sem þeir selja. Fram kemur í ákvörðun sam- keppnisráðs að væri tilboð Pósts og síma hf. jafnað með þessum hætti þyrftu keppinautai- fyrirtækisins að borga með hverjum síma sem nemur 12%-18% af innkaupsverði símanna, en þetta svarar til þess að keppinaut- arnir þyrftu að greiða minnst 3.400- 8.250 kr. með hverjum seldum síma. í Ijósi markaðslegrar og fjárhags- legrar stöðu Pósts og síma hf. mælir samkeppnisráð fyi-ir um að fyr- irtækinu sé óheimilt að tvinna saman í viðskiptum fjarskiptaþjónustu og aðra þjónustu fyiiitækisins. í ákvörðun samkeppnisráðs er kveðið á um að fýrirtækinu sé jafnframt því sem að framan greinir óheimilt í ki'afti markaðslegi’ar og fjárhags- legrar stöðu sinnar að aðhafast nokkuð það sem skaðað geti sam- keppnina á markaðnum fyrii- fjar- skiptaþjónustu og tengdum mörkuðum. Skaðleg hegðun geti falist í að krefjast beint eða óbeint ósann- gjarns kaup- eða söluverðs eða ann- arra ósanngjarnra viðskiptaskilmála vegna vöru eða þjónustu sem íýr- irtækið kaupii- eða selur, að tak- marka framboð eða sölu þannig að neytendur skaðist af, og loks að mis- muna viðskiptaaðilum með ólíkum skilmálum í sambærilegum viðskipt- um og rýra þannig samkeppnisstöðu þeirra. Brjóti Póstur og sími hf. gegn þessari ákvörðun samkeppnis- ráðs megi félagið búast við því að ráðið beiti heimildum sínum til álagningar stjórnvaldssekta. Óskað eftir viðræðum við Sam- keppnisstofnun I bréfi sem Guðmundur Björns- son, forstjóri Pósts og síma hf., sendi Samkeppnisstofnun í gær eftir að ákvörðun samkeppnisráðs lá fyrir kemur fram að tilboð Pósts og síma á farsímum og farsímaþjónustu til félaga í FÍB hafi verið dregið til baka. Þá segir að Póstur og sími hf. muni í framhaldi af niðurstöðu sam- keppnisráðs endurskoða þær for- sendur sem verðlagning á far- símaþjónustunni miðaðist við í til- boðinu og þess muni verða gætt við útreikningana að ekki verði með nokkru móti talið að um óeðlilega verðlagningu sé að ræða. Af þessum sökum óski Póstur og sími hf. þegar í stað eftii’ viðræðum við Samkeppnis- stofnun varðandi verðlagningu og aðra þætti tilboðsins. I bréfinu kemur fram að af hálfu Pósts og síma hf. hafi ekki verið ráðgert að tilboðið sem um ræðir fæli í sér niðurgreiðslu á farsímum eða farsímagjöldum. Þess hafi verið gætt að verðlagning not- endabúnaðai’deildar Pósts og síma hf. á farsímum væri með eðlilegri álagningu með tilliti til þess magns og þeirra kjara sem um er að ræða. Þá hafi og verið við það miðað í útreikningum farsímadeildar Pósts og síma hf. að verð og greiðsluskil- málai’ væru í samræmi við þann til- kostnað sem af þjónustunni leiddi. Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi Pósts og síma hf., sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið vildi í einu og öllu fara eftir þeim lögum og reglum sem settar væru og því yrði farið eftir tilmælum samkeppnis- ráðs. „Það er greinilegt að á meðan Póstur og sími hf. er markaðsráðandi fyrirtæki þá verður að bera mál af þessu tagi undir Sam- keppnisstofnun áður en ákvarðanir eru teknar. En það verður að hafa í huga að í þessu tilfelli þá kemur það út í hærra verði fyrir neytendur að fara að tilmælum samkeppnisráðs," sagði hún. FIB grunlaust um að tilboðið færi í bága við samkeppnislög Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra biíreiðaeig- enda, segir að félagið hafi verið al- gerlega grunlaust um að tilboð það sem félagsmönnum bauðst frá Pósti og síma bryti í bága við samkeppn- islög. Sala á farsímunum hefur verið stöðvuð í framhaldi af úrskurði Sam- keppnisráðs, en tilboðið átti að standa til mánaðamóta. Runólfur sagði að FIB tengdist málinu eingöngu vegna þess að það hefði verið að leita eftir hagkvæmum tilboðum í þessum efnum íyrir fé- lagsmenn. Það hefði verið gert með óformlegum hætti á markaðnum og þessi viðbrögð fengist frá Pósti og síma. Þetta væri einn af mörgum þáttum í þjónustu félagsins sem miðaði að því að tryggja félagsmönn- um góð kjör. Runólfur sagði að væntanlega væri enn fjöldi félagsmanna sem hefði hugsað sér að nýta sér þetta tilboð og leitað yrði leiða til að koma til móts við þá félagsmenn sem hefðu haft hug á því að fjárfesta í símum, en gætu það ekki lengur. Óbundnar hendur Aðspurður um það hvernig hann mæti stöðu þeirra félagsmanna sem þegar hefðu keypt sér farsíma sagði Runólfur að þeir hefðu óbundnar hendur gagnvart áskrift að farsíma- kerfi Pósts og síma, en ættu símtækið áfram samkvæmt samn- ingnum. Hins vegar yrði sest yfir þessi mál á næstunni og þau skoðuð betur. Tími hefði ekki gefist til þess, enda hefði úrskurðurinn verið að berast seinnipartinn í gær. Runólfur sagði að FIB hefði aldrei gengist inn á þetta tilboð ef minnsti grunur hefði leikið á því að eðlilegir útreikningar lægju ekki tilboðinu til grundvallar. Þetta væri einungis einn af mörgum kostum sem fé- lagsmönnum byðist þar sem leitað væri eftir hagkvæmum kjörum fyrir þá. Hugmyndin hefði kviknað í tengslum við nýja þjónustu, FÍB- aðstoð, þar sem síminn væri lykil- atriði. Meðal annars hefði fyrir- myndin verið sótt til systurfélaganna erlendis sem hefðu verið að gera svona samninga við símafyrirtæki. TILLAGA um stofnun nýs kenn- arafélags, með sameiningu Hins ís- lenska kennarafélags og Kennara- sambands íslands, er meðal stærstu mála sem til umfjöllunar eru á aðal- fundi HÍK, sem hófst í gær. Tillag- an verður tekin til afgreiðslu á aðal- fundinum í dag. í tfilögunni er lagt til að aðalfund- ur HÍK samþykki að skipa fulltrúa í sameiginlega milliþinganefnd með fulltrúum KÍ, sem vinni áfram að undirbúningi að sameiningu félag- anna. Er tillagan samhljóða tillögu sem samþykkt var á fulltrúaþingi KÍ sl. vor. Unnin hafa verið drög að lögum og skólastefnu fyi-ir nýtt kennarafélag, siðareglum kennara, sameiginlegin stefnu um grunn-, framhalds- og endurmenntun kenn- ara og um endurmenntunarsjóð, sem fylgja tillögunni um stofnun nýs kennarafélags. Hörð gagnrýni á stjórnvöld Elna Katrín Jónsdóttir, formaður HÍK, segir að undirbúningur að sameiningu kennarafélaganna og stofnun nýs kennarafélags hafi staðið yfir í nokkur undanfarin ár. Hún bendir á að síðustu tveir aðal- fundi HÍK hafi falið stjórn félagsins að hafa þetta mál sem forgangs- verkefni. „Það verður að teljast afar líklegt að mikill meirihluti félags- manna sé fylgjandi sameiningu allra gi’unn- og framhalds- skólakennara í einu félagi," segir hún. Elna Katrín gagnrýndi stjórnvöld harkalega þegar hún setti 13. aðal- fund félagsins á Grand Hóteli í gær. Hún sagði að á þeim tveimur árum, sem liðin væru frá síðasta aðalfundi, hefði HIK gert fjóra kjarasamninga og „tekið þátt í víðtækri baráttu op- inberra starfsmanna gegn hatrömmum árásum ríkisstjómar- innar á réttindi þeirra og kjör“. Hún nefndi einnig mikla vinnu við undirbúning að flutningi grunn- skólanna til sveitarfélaganna og undirbúning undir það að sameina alla grunn- og framhaldsskólafélaga í einu félagi, einum samtökum kennara. Hún sagði að ríkisstjórnin hefði farið hamförum árið 1996 með frumvörpum, sem öll hefðu virst miða að því að skerða hlut og rétt- indi opinberra starfsmanna og veikja grundvöllinn fyrir starfsemi stéttarfélaga. Björn Bjamason mennta- málaráðherra kvaðst líta svo á að jákvæðara yfirbragð hefði verið yfir samskiptum kennara og ríkis en komið hefði fram í ræðu Elnu Katrínar. „Það hefur margt áunnist og margt verið gert, sem stuðlar að því að bæta skólastarfið," sagði Björn. „Eg tel að það hafi tekist gott mjög samstarf á milli mennta- málaráðuneytisins og kennarafélag- anna... Að sjálfsögðu er ágreining- ur og skoðanamunur um einstök atriði, en mestu sldptir að menn uni þeirri niðurstöðu, sem fæst að lok- um og það tel ég að menn geri.“ 5521150-5521370 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI JÓHANIU ÞÓRDARSON, HRL. LÖGGILTUR FASTEIGNASALI. Nýjar á söluskrá meðal annarra eigna: „Vestast í Vesturbænum“ Eins og ný 3ja herb. kjíb. um 80 fm í reisulegu steinhúsi. Sérinng. „Húsbréf" um kr. 3 millj. Tilboð óskast. Úrvalseign — Arnarnes — frábært verð Steinhús: Hæð um 150 fm, jarðhæð um 90 fm (séríb.?). Tveir innb. bílskúrar um 60 fm. Ræktuð lóð — skrúðgarður — um 1.300 fm. Teikningar, myndir og nánari uppl. aðeins á skrifst. Neðri hæð — tvíbýli — bílsk./vinnukj. Sólrík neðri hæð neðst í Seljahverfi um 90 fm. Sérinnp. Sérhiti. í kj. fylgja 2 rúmg. herb. Góður bílsk. pneð vinnukj. Tilboð óskast. Vesturborgin — lyftuhús — lækkað verð Mjög stór sólrík 4ra herb. íb. á 4. hæð tæpir 120 fm. 3 stór svefn- herb. Tvennar svalir. Mikið útsýni. Skipti mögul. Tilboð óskast. Höfuðborgin — nágrenni Vegna búferiaflutninga utan af landi óskast húseign með 2 íbúðum. Má vera í smíðum, fullgerð eða þarfnast endurbóta. Traustur, fjár- sterkur kaupandi. Höfum fjársterka kaupendur að: Húseign með 3ja—4 herb. íbúð og 2ja—3ja herb. íbúð. Einbýlis- eða raðhúsi 110—160 fm á einni hæð. Margskonar hag- kvæm skipti. Þjónustuíbúð 2ja—3ja herb. á góðpm stað I borginni. Rúmgóðu einbhúsi á Nesinu og í Ártúnsholti. Opið í dag kl. 10—14. Opið mánudag—föstudag kl. 10—12 og 14—18. Viðskiptunum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar upplýsingar. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 S. 552 1150 - 5521370

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.