Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 11 Við viljum binda enda á umræðuna um öryggi A-línunnar í eitt skipti fyrir öll. ► Hvort A-línan standist sænska „elgs- prófið” er ekki lengur vafamál. Bæði TÚV og ADAC í Þýskalandi staðfestu þann 26. október og 5. nóvember sl. að bíllinn okkar stenst svona próf ekki síður en aðrir bílar í sama flokki. Aðrir sérfræðingar hafa líka komist að sömu niðurstöðu. Þar voru bílarnir bæði prófaðir með ESP-búnaði (Electronic Stability Program) og eins án slíks búnaðar. Við nokkrar prófanir, án ESP-búnaðar, en á mun meiri hraða urðu aðstæður hins vegar tvísýnar. En viöfangsefni okkar nú er ekki hvort það sé yfirhöfuð eitthvert vit eða gagn af ýktum og jafnvel óraunhæfum prófunum eða hver útkoma annarra bíla er í slíkum prófunum sem allt eins gæti gefiö sömu niðurstöðu og þá heldur ekki hvort ESP-búnaður hefði getað afstýrt óhappinu. Bara sú staðreynd að efast sé um öryggi Mercedes-Benz stangast algerlega á við okkar stefnu. ► Þess vegna viljum við nú binda enda á umræðuna með lausn sem sæmir fyrirtæki eins og Mercedes-Benz: Við höfum gert breytingar þannig að aksturseiginleikarnir standast ofurpróf a.m.k. ekki síður en hjá öðrum bílum í sama flokki. ► Við göngum enn lengra þar sem ESP- búnaður verður staðalbúnaður. ESP-búnaður er viðbót við ABS-hemlakerfið sem gerir ökumanninum betur kieift að ráða við akstur í hálku, snjó og bleytu. Þetta er búnaður sem aðrir bílar í þessum stærðarflokki hafa ekki. Mercedes-Benz nægir ekki aö uppfylla sömu öryggiskröfur og aðrir framleiðendur. Af Mercedes-Benz ætlast þú til meira en af öðrum og það meó réttu. ► Að bornar hafi verið brigður á öryggi A-línunnar og aó niðurstöður prófana hafi verið tilefni til neikvæðrar umræðu harmar enginn meira en viö. Að okkar hætti höfum við því leyst málið í eitt skipti fyrir öll. ► Breytingar á framleiðslu A-línunnar taka um það bil tólf vikur. Við biðjum ykkur að sýna þolinmæði, jafnvel þó að ykkur þyki ráðstafanir okkar kannski fullmiklar. A-línan er fullkomlega örugg við allar akstursaðstæður eins og sýnt hefur verið fram á í prófunum 1400 bílablaðamanna víðs vegar um heim. A- línan hlaut auk þess nú nýverið tvenn verðlaun: Gullna stýrið í Þýskalandi og gullverólaun í Austurríki þar sem borið var lof á árekstraröryggi og tækninýjungar bílsins. ► Við vonum að endir sé nú bundinn á umræðuna og að aftur standi það upp úr sem A-línan hefur fengið einróma lof fyrir víðs vegar um heiminn: hugmyndin, línurnar, rýmið, tæknin og þessi tilfinning að vera með hluta af framtíðinni fyrir framan sig í formi bíls. Mercedes-Benz RÆ SI H ' Skúlagötu 59, Reykjavtk, sími: 540 5400, heimasiða: www.raesir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.