Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 12

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 12
12 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SVR á Kjalarnes Sjömannanefnd telur nauðsynlegt að lækka verð á mjólkurkvóta Tveir milljarðar króna í kaup á mjólkurkvóta Veruleg lækkun fargjalda STRÆTISVAGNAR Reykjavík- ur hefja í dag reglubundnar ferðir á Kjalarnes. Er það liður í sameiningu Reykjavíkur og Kjalarness í eitt sveitarfélag, sem stendur fyrir dyrum. Með þessu fjölgar áætlunar- ferðum á Kjalarnes og verða nú boðnar kvöld- og helgarferðir með strætisvögnum. Um leið og akstur hefst í dag tekur verðskrá SVR gildi á Kjalarnesi. Við það Iækka far- gjöld úr 250 kr. fyrir fullorðna í 120 kr., eða 100 kr. ef keyptir eru miðar. Fargjöld fyrir börn og unglinga, sem áður greiddu 170 kr., lækka í 60 kr. fyrir unglinga og 25 kr. fyrir börn. Kaupi unglingarnir miða kostar hver miði 50 krönur og á sama hátt munu barnamiðar kosta 14 kr. Þá geta Kjalnesingar frá og með deginum í dag keypt Græna kortið, auk þess sem sér- kjör aldraðra og öryrkja gilda nú jafnt fyrir þá og aðra á svæði SVR. Sjömannanefnd hefur skilað landbúnaðarráð- herra skýrslu um mjólkurframleiðslu þar sem lagt er til að dreg- ið verði úr opinberri verðlagningu á mjólk- urvörum. Á ÁRUNUM 1991-1996 skipti 15,1% af öilum mjólkurkvóta í land- inu um eigendur. Fyrir kvótann voru greiddir tæpir tveir milljarðar króna. Þetta jafngildir því að hver mjólkurframleiðandi hafi varið 1,5 milljónum króna til kvótakaupa á þessu tímabili eða að 3-4 krónur af hverjum mjólkurlítra hafi farið til kvótakaupa. Sjömannanefnd segir í skýrslunni að þetta sé of mikið og leggur til að gerðar verði ráðstafan- ir til að lækka verð á kvóta. Þessi skýrsla sjömannanefndar, sem í sitja reyndar sex menn eftir að fulltrúi ASÍ sagði sig úr nefnd- inni, er íyrsti áfangi af þremur. Nefndin á eftir að fjalla um rekstr- arskilyrði landbúnaðarins í saman- burði við nágrannalöndin og um inn- flutningsvemd fyrir landbúnaðinn. Einnig á hún eftir að fjalla um verð- lagningu landbúnaðarvara og sam- keppnislöggjöfina. Nefndin var upphaflega sett á fót Sex varaþing- menn á Alþingi Morgunblaðið/Kristinn SVO ótrúlegt sem það kann að hljóma eiga sex menn sæti í sjömannanefnd. í kjölfar þjóðarsáttarsamninganna og á grundvelli nefndarstarfsins voru gerðar róttækar breytingar á rekstrammhverfi í framleiðslu sauðfjár- og mjólkurafurða 1991 og 1992. Nefndin telur að vemlegur ár- angur hafi náðst með gildandi bú- vömsamningi, sem rennur út 1. september 1998. Opinber framlög til landbúnaðar hafi lækkað frá 1991 til 1997 úr 14,2 milljörðum í 7,4 millj- arða. Mjólkurbúum hafi fækkað úr 17 í 12. Mjólkurframleiðendum hafi fækkað úr 1.509 árið 1991 í 1.291 ár- ið 1996 og meðalbúið hafi á þessu tímabili stækkað úr 69.900 lítra árs- framleiðslu í 78.700 lítra. Verð á mjólkurvörum hafi á tímabilinu hækkað um 0,7% á meðan allar mat- vörar hafi hækkað um 9,3%. Frá 1987 hefur mjólkurverð til bænda lækkað um 5,7%, þar af eru 5% tilkomin vegna framleiðnikröfu sem samið var um í búvömsamningi árið 1992. Frá 1992 hefur geta mjólkurbúa til að greiða bóndanum laun minnkað um 1,7%, sem Guð- mundur Sigþórsson, formaður sjömannanefndar, segir að túlka megi sem viðunandi árangur miðað við stöðuna. Hins vegar verði að líta á það að á þessu tímabili hafi eigið fé búanna lækkað um 20,8%, m.ö.o. hafi bændur verið að ganga á eignir sínar. Skuldir bænda hafi samhliða hækkað um 22,1%. Hann segir at- hyglisvert að á þessu tímabili hafi afskriftir búanna aukist um 26,5%, sem skýrist fyrst og fremst af mikl- um kaupum á mjólkurkvóta. Dregið úr opinberri verðstýringn Sjömannanefnd gerir tillögu um að dregið verði úr opinberri verð- lagningu á mjólkurvömm. Lagt er til að fimmmannanefnd og sex- mannanefnd, sem verðlagt hafa bú- vömr til bænda og á heildsölustigi, verði lagðar niður og stofnuð verði verðlagsnefnd búvara, sem í sitji tveir fulltrúar bænda, fulltrái BSRB, fulltrúai ASÍ, fulltrái mjólkuriðnaðai-ins og fulltrái land- búnaðarráðhen-a, sem fari með oddaatkvæði. Lagt er til að opin- berri verðlagningu á nautakjöti verði hætt eigi síðar en 1. septem- ber 1998. Akveðið verði lágmarks- verð á mjólk til bænda, en mjólkur- búum verði heimilt að greiða viðbótarverð fyrir gæði eða annað. Þess má geta að í dag er mjólkurbúum óheim- ilt að víkja frá gmnd- vallarverði, hvort sem er til hækk- unar eða lækkunar. Þá leggur nefndin til að heildsöluverð mjólkur verði gefið frjálst eigi síðar en 30. júní 2001. Við ákvörðun á lágmarks- verði til bænda á verðlagsnefndin að taka mið af nýjum verðlagsgmnd- velli. Hann skal miðast við vel rekið bú af hagstæðri stærð, en ekki landsmeðaltal eins og gert er í dag. Reynt að minnka verðmæti kvótans Sjömannanefnd telur ekki unnt að afnema kvótakerfi í mjólk að sinni. Nefndin telur hins vegar að hátt verð á mjólkurkvóta vinni að vissu marki gegn upphaflegum markmiðum kvótakerfisins. Nefndin gerir því tillögu um að allur kvóti verði seldur um kvótamarkað, en bein viðskipti milli bænda verði bönnuð. Kúabændur samþykktu þessa tillögu á aðalfundi sínum eftir harðar umræður. Þess má geta að Danir era að taka upp svipað kerfi. Sjömannanefnd leggur einnig til að þeir bændur sem framleiða um- fram kvóta geti aukið kvóta sinni á næsta ári um tiltekið hlutfall af um- framframleiðslunni. Þeir verði hins vegar sjálfir að kosta útflutning á Spáð er fækkun samlaga á Norðurlandi umframframleiðslunni. Jafnframt leggur nefndin til að kvóti þeirra sem ekki framleiða upp í úthlutað framleiðslumark verði skertur. Þórólfur Sveinsson, varaformaður Bændasamtakanna, segir að um þessa tillögu sé bullandi ágreingur, en bændur hafi engu að síður geng- ist inn á að gera úttekt á henni. Guð- björn Amason, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir verulega hættu á að þessi tillaga leiði til framleiðslusprengingar því að vannýtt fram- leiðslugeta sé svo mikil í kerfinu. Hann bendir á í þessu sambandi, að taka þurfi mið af áhrifum af nýrri mjólkurreglugerð, sem leggi nýjar kvaðir á bændur. Guðmundur Bjamason landbún- aðarráherra bendh- á að nauðsyn- legt sé að opna kerfið og auka svig- rám í því. Verði þessi leið farin sé hægt að hafa áhrif á kvótaverð, sem sé mikilvægt að gera. Samkeppni milli samlaga eykst Þær tillögur sem nefndin gerir koma væntanlega til með að auka samkeppni milli mjólkursamlaga. Björn Ai-nórsson, hagfræðingur ASI, segir að samkeppni á heild- sölumarkaði komi til með að aukast og sömuleiðis sé hægt að hugsa sér að samkeppni skapist milli þeirra um kaup á mjólk frá framleiðend- um. Hann segir ljóst að mjög erfitt verði fyrir mjólkursamlögin á Norð- urlandi að standast þessa sam- keppni og þau hljóti að sjá sér hag í að sameinast. Þau hafi ekki nýtt sér þau tækifæri sem gildandi búvöru- samningur gaf til úreldingar. Frá 1975-1994 jókst framleiðni í mjólkuriðnaði um 18,3% sem er minni framleiðniaukning en í al- mennum iðnaði á sama tíma. Stefnumótun í málefnum langsjúkra barna ÁSTA B. Þorsteinsdóttir varaþing- maður Alþýðuflokksins í Reykjavík hefur tekið sæti Jóns Baldvins Hannibalssonar, 9. þingmanns Reykvíkinga, á Alþingi fram tU 25. þessa mánaðar. Aðrir varaþingmenn sem nú sitja á Alþingi era eftirfarandi: Amþráður Karlsdóttir varaþingmaður Fram- sóknarflokksins í Reykjavík, en hún hefur tekið sæti Ólafs Amar Har- aldssonar, 11. þingmanns Reykvík- inga, um óákveðinn tíma. SvanhUdur Kaaber varaþingmaður Alþýðu- bandalags og óháðra í Reykjavík sem hefur tekið sæti Ögmundar Jónas- sonar 17. þingmanns Reykvíkinga fram tU 20. þessa mánaðar. Þá hefur Guðmundur Lárasson, varaþingmaður Alþýðubandalags og óháðra á Suðurlandi, tekið sæti Margrétar Frímannsdóttur, 5. þing- manns Suðurlands, fram til 18. þessa mánaðar og Ingunn St. Svavarsdóttir, varaþingmaður Norðurlands eystra, hefur setið fyr- ir Guðmund Bjamason, umhverfis- ráðherra, síðustu tvær vikur en hann mun taka sæti sitt að nýju á mánudag. Guðrán Helgadóttir varaþing- maður Alþýðubandalags og óháðra í Reykjavík tók sæti Bryndísar Hlöðversdóttur 12. þingmanns Reykvíkinga í upphafi þessa þings um óákveðinn tíma. JÓHANNA Sigurðardóttir, þing- flokki jafnaðarmanna, mælti fyrir þingsályktunartillögu um stefnu- mótun í málefnum langsjúkra barna á þriðjudag. Meginefni tillögunnar er að Alþingi álykti að fela ríkis- stjóminni að undirbúa heildstæða og samræmda stefnu í málefnum langsjúkra bama. í því skyni verði skipuð nefnd með aðild ráðuneyta heilbrigðis-, félags- og menntamála og fulltrúum samtaka um málefni langsjúkra bama. Nefndinni verði falið að leggja mat á hvort þörf sé sérstakrar löggjafar um réttindi langsjúkra bama eða hvort fella eigi þennan hóp undir gildissvið laga um málefni fatlaðra. Niður- stöður og nauðsynlegar lagabreyt- ingar verði lagðar fyrir Alþingi haustið 1998. Miðar tillagan að því að hafínn verði undirbúningur að því að sam- ræma og tryggja betur réttarstöðu langsjúkra bama gagnvart félags- og heilbrigðisþjónustu, dagvist og leikskóla- og skólamálum og þjón- ustu og fjárhagsstuðning við að- standendur þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.