Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 13

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 13 Borgarráð samþykkir bráðabirgðaframkvæmdir við Landakot Boltavöllur og bílastæði BORGARRÁÐ hefur samþykkt að ráðist verði í bráðabirgðafram- kvæmdir við gerð bflastæða á lóð Landakotsspítala og boltavallar á austanverðri lóð gamla Stýrimanna- skólans á Öldugötu 23. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkti á fundi sínum 9. júní sl. tillögu að breyttu skipulagi á Landakotsreit. I erindi Stefáns Hermannssonar GREIDD verða atkvæði um sam- einingu sveitarfélaga á tveimur svæðum í dag, annars vegar á Mið- fjörðum Austurlands og hins vegar í Skagafírði. A báðum stöðum verða atkvæði talin strax í kvöld og er bú- ist við að öll úrslit liggi fyrir um klukkan 23. At.kvæðagreiðsla um sameiningu Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar í eitt sveitarfélag hefst á öllum stöðunum klukkan 10 og lýkur klukkan 22 í kvöld. Talið verður á hverjum stað og er búist við að úrslit liggi fyrir um klukkan 23. Til þess að af sameiningu verði þarf tillagan að hljóta meirihluta at- kvæða í hverju sveitarfélagi. Úrslit klukkan 23 Atkvæðagreiðsla um sameiningu ellefu sveitarfélaga í Skagafirði fer fram í dag. Sveitarfélögin eru Sauð- borgarverkfræðings, sem lagt var fyrir fund borgarráðs á þriðjudag, segir að skipulagstillagan hafi ekki enn verið lögð fyrir borgarráð, enda sé talin ástæða til að vinna fyrst að samkomulagi annars vegar við Menningar- og fræðslusam- band alþýðu og menntamálaráðu- neytið vegna breytinga á Stýri- mannaskólalóðinni og hins vegar árkrókskaupstaður og Fljóta-, Hofs-, Hóla-, Lýtingsstaða-, Rípur-, Seylu-, Skarðs-, Skefilsstaða-, Stað- ar- og Viðvíkurhreppur. Eni þetta öll sveitarfélög Skagafjarðarsýslu utan Akrahrepps sem nær yfir Blönduhlíð. Til þess að sameiningin nái fram að ganga þarf meirihluta í hverju og einu þessara ellefu sveit- arfélaga. Verði sameining felld á einum, tveimur eða þremur stöðum hafa sveitarstjórnirnar ákveðið að láta greiða atkvæði að hálfum mán- uði liðnum um sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykkja sam- einingu í dag. Á Sauðárkróki stendur atkvæða- greiðslan frá klukkan 9 til 21 í dag, í Seyluhreppi kl. 10 til 19 en í hinum sveitarfélögunum frá klukkan 12 til 20. Byrjað verður að telja klukkan 21 og er búist við að öll úrslit liggi íyrir klukkan 23. við Sjúki-ahús Reykjavíkur vegna breytinga á lóð Landakotsspítala. „Tillagan byggist á því að aust- urhluta lóðar Stýrimannaskólans verði breytt í boltavöll og að MFA sem notanda hússins verði í stað- inn tryggð afnot af bílastæðum bæði meðfram Hrannarstíg og á lóð Landakotsspítala. Aðkomu að eldhúsi spítalans er breytt og er gert ráð fyrir að tvö timburhús sem standa á baklóð spítalans verði fjarlægð, en þau munu hafa verið reist þar til bráðabirgða,“ segir ennfremur í erindi borgarverk- fræðings. Áætlaður kostnaður 20 milljónir króna Verkhönnun liggur enn ekki fyr- ir en lauslega áætlaður kostnaður er 20 milljónir króna. Inni í þeirri tölu eru ekki bílastæði efst í Hrannarstíg. Drög að samkomu- lagi við MFA og menntamálaráðu- neytið annars vegar og Sjúkrahús Reykjavíkur hins vegar liggja fyr- ir. Þar er miðað við að SHR kosti breytingar á aðkomu og á lóð aust- anverðri og flutning á öðru timbur- húsinu, sem sjúkrahúsið hyggst selja, en auk þess vill SHR fresta framkvæmdum fyrir u.þ.b. eina milljón kr. og verður þá áætlaður kostnaður sem eftir stendur 17 milljónir kr. Borgarráð hefur samþykkt að ráðist verði í bráðabirgðafram- kvæmdir á næstu vikum, sem mið- ist við að fjarlægja vestara timbur- húsið og gera þar bílastæði með bráðabirgðafrágangi, koma fyrir boltaleikjaaðstöðu á austanverðri lóð gamla Stýrimannaskólans og girða boltavöllinn af frá götunni. Að öðru leyti verður verkið sett á framkvæmdaáætlun næsta árs, 5 milljónir á lið umhverfismála og 11 milljónir á lið gatnamálastjóra. Ennfremur er lagt til að deiliskipu- lagsuppdráttur verði yfirfarinn samhliða nánari hönnun. Flaggað á degi ís- lenskrar tungu FORSÆTISRÁÐHERRA hefur ákveðið að flaggað skuli við opinberar stofnanir á degi íslenskrar tungu sunnudaginn 16. nóvebmer. „Jafnframt er til þess mælst að sem flestir aðrir dragi þjóð- fánann að hún nefndan dag af þessu tilefni," segir i frétt frá forsætisráðuneytinu. E Sjúkrahús Reykjavíkur {Landakotsspítali) —i1"1:--• v Austfírðir og Skagafjörður Atkvæði greidd um sameiningu Létt hurð, greið leið Aðgengi fyrir alla Bætt aðgengi fatlaðra er eitt af stóru málun- um hjá hreyfihömluðu fólki í dag. Þótt talsvert hafi áunnist þarf að gera mun betur ef duga skal. „í ÓPINBERUM byggingum, einkum skólum, þarf víða að bæta aðgengi frá því sem er í dag,“ sagði Guðríður Ólafsdóttir formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra. Sjálfsbjörg er að hrinda úr vör átaki, svokölluðum S-dögum, sem á að fara eins og bylgja um allt landið að sögn Guðríðar. Lögð verður megináhersla á að fá sveitarfélög og einstaklinga til að huga að bættu aðgengi að öllum byggingum. „Átakið mun ná há- marki á 40 ára afmæli samtakanna árið 1999,“ sagði Guðríður enn- fremur. „Sjálfsbjargarfélag- ið á Húsavík og félagsmálayfirvöld þar efndu til átaks þar í ágúst 1996 þar sem gerð var athugun á að- gengi í öllum byggingum í bæjarfé- laginu, svo og öllum götum. Endirinn á þessu verkefni var síð- an sá að félagið þar skoraði á Sjálfsbjarg- arfélög í nágrenninu að gera samskonar átak hjá sér og er nú sérstakt verkefni að þessu tagi í gangi á Akureyri undir kjör- orðinu - Létt hurð, greið leið.“ Að lokum sagði Guðríður að oft væri ekki svo mjög kostnaðarsamt að gera úrbætur í þessum efn- um, sem dygðu vel og bendir hún öllum sem þessu vilja sinna að hafa sem fyrst samband við skrifstofur Sjálfsbjargarsamtakanna. AKUREYRI Morgunblaðið/ SÆMUNDUR Ólason fór með sigur af hólmi í hraðskákmóti sem efnt var til á þjóðhátíðardegi Grímseyinga, sem kenndur er við Willard Fiske. Fiskeafmælið í Grímsey „FISKE afmæli“ var haldið há- tíðlegt í félagsheimilinu Múla í Grímsey á þriðjudag, 11. nóv- ember, en þetta er nokkurs kon- ar þjóðhátíðardagur eyja- skeggja sem minnast velgjörða- manns síns Willards Fiske sem heillaðist af eyjunni og gaf tafl inn á hvert heimili í sinni tið. Kvenfélagið Baugur hefur undanfarna áratugi haft um- sjón með hátiðahöldum en nú var breytt út af þeirri venju. Leikarar frá Akureyri komu út í eyju og sýndu leikritið „Hugs- anablaðran" eftir Aðalstein Bergdal. Skólabörn í Grímsey sáu einnig um skemmtiatriði og Skralli trúður skemmti. Að sið- ustu fór fram hraðskákmót og var sigurvegari Sæmundur Olason, sem hlaut að launum farandbikar og annan til eign- ar. Bóndmn á Ytra-Felli skilar Möðrufelli til hreppsnefndar Staðan er tvö núll fyrir Matthías VALDEMAR Jónsson, bóndi á Ytra-Felli, sem keypti jörðina Möðrufell af hreppsnefnd Eyjafjarðarsveitar, sagðist skila jörðinni til hreppsnefndar eftir helgi. Eins og komið hefur fram, samþykkti hreppsnefnd að afhenda Matthíasi Eiðssyni jörðina, eftir að kröfum hreppsnefndar hafði verið hafn að í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ytra-Fell er nýbýli frá Möðrufelli og liggja jarðirnar því saman. „Ég hef engu breytt á Möðrufelli en að- eins fært nautgripi á milli húsa. Hugmyndin hjá mér var að vera með mjólkurkýmar á Möðrufelli en nautgripina á Ytra-Felli.“ Bíð niðurstöðu Hæstaréttar Valdemar segist ekki hafa tekið ákvörðun um framhaldið hjá sér og hann muni bíða þar til niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir. „Staðan er tvö núll fyrir Matthías en þriðja dómstigið er eftir,“ sagði Valdemar en úrskurður landbúnaðarráðuneyt- isins og niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur hafa fallið Matthíasi í vil. „Þótt ég telji minni líkur á að málið fari á annan veg í Hæstarétti, gæti það gerst og þá myndi ég vilja fá jörðina aftur eins og ég skil við hana,“ sagði Valdemar. Matthías, sem keypti jörðina í sumar, hefur hins vegar gert samning um sölu á mjólkurkvóta og kúm og hann hefur sagt að kvót- inn fari strax af jörðinni. Einnig hyggst Matthías breyta fjósinu í hesthús. Björg og Michael syngja SÍÐARI tónleikum Bjargar Þór- hallsdóttir, Michael Jóns Clarke og Richard Simm sem vera átti síðast- liðið sunnudagskvöld var frestað vegna veikinda, en til að koma til móts við vonsvikna tónlistarunn- endur verða tónleikar í dag, laugar- daginn 15. nóvember kl. 15 í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju. Islandsmet í línudansi ÆTLUNIN er að setja íslands- met í línudansi, þ.e. fjölda þátt- takenda í einum línudansi, í flug- skýli Flugfélags Islands á Akur- eyrarflugvelli í dag, laugardag- inn 15. nóvember. Kántrýklúbb- ur Akureyrar og Bjami Hafþór Helgason standa fyrir þessum viðburði og verður dansaður auðveldur h'nudans sem Jóhann Öm Ólafsson danskennari hefur samið við lag Bjarna Hafþórs, sem væntanlegt er á geisladiski. Þeir sem ætla að taka þátt í línu- dansinum skulu mæta í flugskýl- ið kl. 16.30, þar verður dansinn kenndur þannig að allir geta tek- ið þátt óháð fyrri kunnáttu í hnu- dönsum. --------------- Norskur pí- anóleikari NORSKI píanóleikarinn Jan Henrik Kayser kemur fram á tónleikum í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju kl. 20.30 á sunnudagskvöld. Á tónleikunum túlkar hann verk norska tón- skáldsins Hai-alds Sæverud. Eitt hundrað ár eru liðin frá fæðingarafmæli Haralds og af því tilefni eru haldnir tónleikar víða um Norðurlönd og Evrópu. Jan Henrik fer fremstur í flokki norskra túlkenda á pianóverk- um hans. Norska sendiráðið í Reykja- vík efnir til tónleikanna í sam- vinnu við Rikskonsertene og Menningarmálaráðuneytið í Noregi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.