Morgunblaðið - 15.11.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 37 v
_____AÐSENPAR GREIIMAR_
Skottulækningar -
hvað er nú það?
FYRIR nokkru var
fluttur fyrirlestur á
vegum Hollvinafélags
læknadeildar Háskóla
Islands þar sem fyrr-
verandi yfirlæknir
fjallaði um „skottu-
lækningar."
Læknirinn hefur
ákveðna skoðun á því
hvað séu skottulækn-
ingar, telur allt annað
en það sem heyrir
undir hina „akadem-
ísku“ læknisfræði,
skottulækningar.
Sérstaklega að-
spurður um nuddmeð-
ferð og ýmiskonar
böð, eins og tíðkast hjá Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hveragerði og
hundruðum virtra heilsustofnana
erlendis, telur læknirinn að þar sé
um skottulækningar að ræða og
sömu skoðun hefur hann á íslenska
lýsinu, grasalækningum og fæðu-
bótarefnum.
Fram kom, að ekki væri hægt
að væna íslenska lækna um skottu-
lækningar þar sem það orð væri
ekki til í íslenskum lögum og reglu-
gerðum heldur væri talað um
læknamistök ef læknum yrðu á
mistök en frummælandi taldi koll-
ega sína ekki saklausa í þeim efn-
um.
Læknirinn tók skýrt fram, að
skottulækningar þyrftu ekki að
vera slæmar, þær væru í raun
undanfari nútíma, „akadem-
ískrar", læknisfræði.
Þegar talað er um skottulækn-
ingar verða menn að hafa í huga
hvaða skilning almenningur leggur
í orðið. Að mati undirritaðs, telja
flestir að skottulækningar standi
fyrir eitthvað sem beri að varast
enda iðkað af vafasömum aðilum
og séu þær hættulegar eða í besta
falli varasamar.
Náttúrulækningastefnan á ís-
landi kom fyrst fram í fyrirlestri
Jónasar Kristjánssonar læknis árið
1923. Þar benti Jónas ma. á or-
sakasamhengi heilbrigðra lifnaðar-
hátta og heilsu. Hann hélt því fram
að fræðsla um heilbrigt líferni
gæti komið í veg fýrir sjúkdóma
eða a.m.k. seinkað þeim.
Jónas höfðaði til skynsemi
manna, hvatti þá til þess að borða
meira af grænmeti og ávöxtum en
minna af kjöti og að þeir forðuð-
ust tóbak, áfengi, hvítt hveiti og
hvítan sykur.
Aratuga barátta náttúrulækn-
ingamanna gerði það að verkum,
að landsmenn telja NLFf græn-
metisfélag, „vegeterískt" félag
sem það er ekki frekar en fæðubót-
arfélag.
NLFÍ telur náttúrulega fæðu
búa yfir þeim efnum sem maðurinn
þarf á að halda svo fæðubótarefni
séu yfírleitt ekki nauðsynleg að
auki. Félagið tekur þó ekki afstöðu
gegn slíkum efnum til nota við
sérstök skilyrði, að bestu manna
yfirsýn.
Kenningar Jónasar Kristjáns-
sonar læknis áttu ekki upp á pall-
borðið hjá kollegum hans sem
gerðu lítið úr því að
orsakasamhengi væri
á milli heilsu fólks og
lífsstíls þess.
Ekki þarf að fara
langt aftur í tímann
til að sjá greinar eftir
lækna, sem enn eru
starfandi, þar sem því
er haldið fram að rétt
næring og lifnaðar-
hættir hafi ekkert með
heilbrigði að gera. En
lengi má manninn
reyna.
En aftur að fundin-
um um skottulækning-
arnar. í máli fyrirles-
arans kom margt fróð-
legt fram, m.a. var því velt upp,
hvort læknar gæfu sér nægilega
góðan tíma til að ræða við sjúkl-
inga en ef svo væri ekki væru
þeir allt eins að hrekja þá í hendur
leikmanna/skottulækna.
Margir fara til óvandaðra aðila
í leit sinni að líkn þegar annað
þrýtur. Því miður er alltof mikið
um einstaklinga sem gefa sig út
fyrir að geta læknað fólk með
ýmsum töfralausnum eða „krafta-
verkalækningum" eða hvað þetta
nú allt heitir. Náttúrulækningafé-
lag íslands fordæmir alla þá sem
villa á sér heimildir í þessum efnum
pg gera sér neyð fólks að féþúfu.
í þessu sambandi er rétt að benda
Sá tími mun koma, seg-
ir Gunnlaugur K.
Jónsson, að verka Jón-
asar Kristjánssonar
læknis verður minnst að
verðleikum.
á indverskt máltæki sem segir:
„Heilbrigður maður á sér margar
óskir en sjúkur aðeins eina.“
NLFÍ er forvamafélag sem leit-
ar eftir samstarfi við alla þá sem
á ábyrgan hátt hafa heilbrigði al-
mennings að leiðarljósi. Félagið
telur markvissa fræðslu um heil-
brigða/skynsamlega lifnaðarhætti
bestu leiðina til að bæta heilsu al-
mennings auk þess að ná niður
kostnaði við heilbrigðisþjónustuna.
í mikilli einföldum má segja að
náttúrulækningastefnan eins og
NLFÍ flytur hana snúist um matar-
æði, hreyfingu, heilbrigt umhverfí
og slökun.
í þekktum dægurtexta segir
m.a. „Eitt sinn verða allir menn
að deyja“. Dauðinn er yfirleitt
mælikvarði þeirra gæða sem við
búum við en í hugtakinu „Heilsa"
telja margir að í felist hæfileikinn
til að vinna og njóta lífsins.
Það verður aldrei hægt að út-
rýma sjúkdómum og dauðinn verð-
ur ekki umflúinn en það er hægt
að bæta árum við lífið og lífi við
árin með því að bera ábyrgð á eig-
in heilsu en það er grunntónn nátt-
úrulækningastefnunnar sem
sannanlega getur læknað fólk af
ýmsum kvillum, ef eftir er farið,
en samkvæmt því er NLFÍ skottu-
lækningafélag sbr. frásögn áður-
nefnds læknis.
Sá sem þetta skrifar telur skil-
greiningu læknisins um skottu-
lækningar úr takti við raunveru-
leikann og til þess fallna að skipa
mönnum í andstæðar fylkingar
sem er engum til góðs. Virtur
krabbameinslæknir tók til máls í
kjölfar fyrirlestursins og lagði á
smekklegan hátt áherslu á þetta
atriði.
NLFÍ viðurkennir fullkomlega
„akademíska" læknisfræði en telur
hana of einhæfa sjúkdómafræði
og vill bæta við hana fyrirbyggj-
andi aðgerðum heilbrigðra lífs-
hátta.
Það er við hæfi að ljúka þessari
grein á kafla úr ávarpi Jónasar
Kristjánssonar læknis sem birtist
í fyrsta hefti Heilsuverndar, tíma-
rits NLFÍ, árið 1946.
„Náttúrulækningastefnan lítur
svo á, að flestir sjúkdómar stafi
af því, að vér bijótum lögmál þau
eða skilyrði, sem heilbrigði er háð.
Náttúruvísindi framtíðarinnar eiga
án nokkurs vafa, eftir að sýna fram
á þessa staðhæfingu þegar vísinda-
mönnum þjóðanna ber sú gæfa til,
að leita orsaka sjúkdóma í stað
þess að huga nær eingöngu að
meinunum sjálfum. Náttúrulækn-
ingastefnan eins og ég lít á hana,
boðar trú á lífið og heilbrigðina, á
andlega og líkamlega heilbrigði,
jafnvægi og lífsgleði, en afneitar
trúnni á sjúkdómana. Og ég trúi
því, að þar sem ríkir friður, sam-
ræmi og heilbrigði, þar séu guðs
vegir. Til að skapa heilbrigt og
dugandi þjóðfélag, þarf andlega
og líkamlega heilbrigða þegna.
Undirstaða heilbrigðinnar er réttir
lifnaðarhættir og rétt fræðsla. En
heilsurækt og heilsuvernd þarf að
byrja áður en menn verða veikir.
Æsku landsins á að uppfræða um
lögmál heilbrigðs lífs. I þessu starfi
þurfa allir hugsandi menn að taka
þátt, allir góðir synir og dætur
fóstuijarðar vorrar verða að telja
það sína helgustu skyldu að vemda
heilsu sína ættjörðinni til handa.
Og takmark allra þarf að vera það
að deyja frá betri heimi en þeir
fæddust í.“
Boðskapur Jónasar Kristjáns-
sonar læknis átti ekkert skylt við
óraunhæfa draumóra eða öfgar
heldur studdist sannfæring hans
við sterk rök og sumpart við óræk-
ar sannanir sem bomar voru fram
af heilsteyptum mannvini, af hug-
sjónamanni í sönnustu merkingu
þess orðs. - Sá tími mun koma
að verka hans verður minnst að
verðleikum.
Höfundur erforseti NLFÍ.
Gunnlaugur
K. Jónsson
Munift
RáósícíiKidagiiiri I 997
iiovember 1997
að Kjai'valssíöðum
Skráning stendur yfir
RÁÐSTEFNUSKRI FSTOFA
ÍSLANDS
SÍMI: 562 6070
BRÉFASÍMI: 562 6073
Eikarhúsgögn - glæsilegt úrval J
Fjölbreytt litaval,
góðir greiðsluskilmálar
Ertu búinn að
skipta um bremsuklossa?
TOYOTA Nýbýlavegi 4-8
S. 563 4400
Komdu í s