Morgunblaðið - 15.11.1997, Page 43

Morgunblaðið - 15.11.1997, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 43 SIGURÐUR JON HALLDÓRSSON + Sigurður Hall- dórsson fæddist á Sauðárkróki 27. september 1947. Hann lést í Sjúkra- húsi Reykjavíkur 4. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Halldór Gíslason, bóndi á Halldórsstöðum á Langholti, f. 10. september 1909 og Guðrún Sigurðar- dóttir, húsfreyja f. 27. júlí 1914, d. 25. mars 1986. Systkini Sigurðar: Sigurður, f. 4. ágúst 1938, d. 25. ágúst 1938, Ingi- björg, f. 10. júlí 1939, Sigrún, f. 30. mai 1942. Björn, f. 29. nóvember 1943, Efemía, f. 10. júní 1952, Erla, f. 23. desember 1955, Skúli, f. 1. nóvember 1957. Sigurður Halldórsson bjó með foreldrum sínum á Hall- dórsstöðum og bjó sjálfstæðu búi síðari árin. 1988 fluttu þeir feðgar til Sauðárkróks. Sigurð- ur kvæntist Kristínu Jóhannes- dóttur frá Tyrfingsstöðum, f. 27. janúar 1944. Þau giftu sig 22. janúar 1994, en hófu sam- búð 1989. Foreldrar hennar voru Jóhann Eiríksson, f. 19. janúar 1892, d. 8. maí 1970 og Freyja Ólafsdóttir, f. 4. apríl Komið er frændi að kveðjustund. Það er ólýsanleg tilfínning sem því fylgir að setjast niður og minn- ast elskulegs móðurbróður, Sigga á Halldórsstöðum. Siggi var hæglátur maður, einstaklega reglu- og sam- viskusamur. Harðduglegur var hann og vandaði öll sín verk. Hjálpsamur og var fljótur til ef hann vissi að einhver var í vandræðum. Hann hafði gaman af glettni og kunni margar skemmtilegar sögur af skondnum atvikum. í sveitinni á Halldórsstöðum áttum við saman yndisleg ár hjá ömmu, afa og fjöl- skyldunni. Þar var oft margt um manninn á annatímum. Þegar heilsu afa og ömmu fór að hraka tók Siggi við búinu, en þau bjuggu áfram hjá honum. Ætíð var Siggi leiðbeinand- inn í öllu sem unnið var á bænum og stjórnaði af sinni festu og ró, þannig að allir báru ómælda virðingu fyrir honum og gerðu sitt besta. hann treysti okkur krökkunum snemma til að vinna ábyrgðarstörf, s.s. að mjólka, keyra vélar o.fl. Það var oft mikil gleði í heyskap og rétt- arstússi, þannig mætti lengi telja. Gamlárskvöldin á Halldórsstöðum voru einstök. Siggi keypti alltaf einn stóran flugeld sem hann skaut upp eftir kl. 12 þegar allir höfðu sungið saman, Nú árið er liðið. Síðan var dansað fram eftir nóttu, ungir og gamlir og allir skemmtu sér konung- lega. Siggi var góður söngmaður, naut þess mjög að syngja enda alinn upp við söng frá barnæsku. Hann hafði gaman af hestum og átti hest sem hét Háfeti. Hann var ótrúlega vitur en ódæll á köflum. Unun var á að horfa þegar þeir stilltu saman strengi sína. Það væri efni í heila bók að rifja upp eftirminnilegar stundir í sveit- inni, á ég mikinn fjársjóð minninga sem ég ylja mér við. Siggi vann hjá Vegagerðnni á Sauðárkróki með búinu og var vinnudagurinn oft æði langur. Mikil þáttaskil urðu í lífi Sigga þegar hann flutti til Sauðár- króks. Þá var amma látin, en afi flutti með honum og héldu þeir saman heimili meðan heilsa afa leyfði. Umhyggja Sigga fyrir for- eldrum sínum var einstök, hann hugsaði um þau af sérstakri þolin- mæði og tillitssemi. Ein mesta gæfa í lífi Sigga var þegar hann kynntist eftirlifandi konu sinni, Kristínu Jóhannsdóttur frá Tyrfingsstöðum. Samheldni þeirra, vinátta og virðing hvors fyr- 1899, d. 20. júní 1982, búendur á Tyrfingsstöðum á Kjálka. Sigurður og Kristín voru barn- laus. Kristín missti tvo fyrri menn sína. Jóhannes Jónsson bónda, sem lést af slysförum 11. jan- úar 1966. Með hon- um átti Kristín son- inn Jóhannes. Með öðrum manni sínum Ólafi Þorsteinssyni frá Vatni, d. 23. ágúst 1981, dóttur- ina Freyju. Sigurður stundaði bústörf frá blautu barnsbeini og hafði mikið yndi af meðferð véla og tækja. Jafnhliða bú- skapnum var hann starfsmaður Vegagerðarinnar í áratugi og þótti með afbrigðum verkhag- ur. Hann ólst upp við mikið sönglíf á sínu heimili. Söng með Karlakórnum Heimi, Rökkur- kórnum, Kirkjukór Glaumbæj- arsóknar og Kirkjukór Sauðár- króks. Þá skilaði hann miklu starfi við Glaumbæjarkirkju, svo sem foreldrar hans höfðu einnig gert. Utför Sigurðar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Glaumbæjar- kirkjugarði. ir öðru var slík að unun var að vita til. Þau áttu hross á jörð hennar Tyrfingsstöðum og dvöldu þar mik- ið í sínum fríum. Ég var þeirrar gleði aðnjótandi að fá að fóstra fyrir þau folöld undanfarna vetur. Þar sem samverustundunum fækk- aði með árunum voru þessar gleði- stundir dýrmætar. Hinn 23. ágúst í sumar giftu þau sig, Halldór bróð- ir og Sonja, í Sauðárkrókskirkju. Halldór bað Sigga að vera svara- mann, vegna þeirra nánu tengsla og vináttu; það gerði hann þrátt fyrir versnandi heilsu, því loforð sín sveik hann ekki. Getum við verið svo þakklát þeim fyrir þennan dag, sem fjölskyldan átti svo yndislegan. Oft talaði Siggi um að þau ætluðu að byggja hús á Tyrfingsstöðum, til að geta dvalið þar meira. Ég fór með Sigga og Stínu í Tyrfingsstaði síðla sumars 1995. Þau sýndu mér sælureitinn sinn og hvar nýja húsið skyldi rísa. Slíka fegurð er óvíða að finna og líkast ævintýraveröld niðri í gilinu. Að lokinni þessari skoðun hafði Stína orð á hvort við ættum ekki að fá okkur hressingu. Mér fannst ég hrökkva nokkur ár aftur á bak, þegar hún tók upp nestistöskuna. Þar voru ýmsir hlut- ir sem amma hafði notað í réttar- ferðunum forðum. Ég dáðist að hennar rausnarskap og hversu vel hún hélt minningu ömmu í heiðri, með því að nýta gömlu hlutina hennar. Tíminn leið og sl. sumar reis þetta glæsilega hús, sem ber eigendunum fagurt vitni. Húsið er nákvæmlega eins og hans gjörðir, glæsilegt og vandað í alla staði. Dýrmætt var að Siggi skyldi hafa heilsu til að vera með í bygg- ingu hússins, því hann var ekki maður sem sat með hendur í skauti og þurfti að hafa eitthvað að fást við meðan kraftar leyfðu. Ekki eignaðist Siggi börn, en afi varð hann engu að síður. Börn Kristínar eru: Jóhannes Jóhannesson, maki Anna Sveins- dóttir. Freyja Ólafsdóttir, maki Benedikt Ólafsson. Þau og þeirra makar mátu Sigga mjög mikils og voru einstaklega dugleg að rétta þeim hjálparhönd. Siggi átti fimm litla afastráka og ber einn af þeim nafn hans, sem honum þótti mjög vænt um. Þessir litlu snáðar voru hændir að Sigga og sakna nú sárt afa. í veikindum Sigga stóð Stína við hlið hans af sínum einstaka dugnaði og gaf honum styrk og bjartsýni til hinstu stundar. Ég vil þakka starfsfólki á Borgarspítalan- um þá einstöku umönnun, sem þau bæði nutu í erfiðar sex vikur sem þau dvöldu þar fyrir andlát hans. Elsku hjartans Siggi frændi, ég vil þakka þér allt það sem þú kennd- ir mér í sveitinni forðum, ég bý að því alla tíð. Ég vil fyrir hönd móður minnar, eiginmanns míns og barna, þakka þér allar yndislegu stundirn- ar sem við áttum saman. Ég veit að þín bíða mikilvæg verkefni á æðri sviðum og þú hefur fengið fjöl- menna móttöku hinum megin. Móð- ur minni, systkinum hennar, afa, ættingjum öllum og vinum hans votta ég mína dýpstu samúð. Elsku hjartans Stína. Ég á engin orð til að lýsa hversu sárt það er að þið skilduð ekki fá að njóta yndis- lega hússins ykkar og svo ótal margs sem þið áttuð ógert. Við stöndum orðlaus yfir þessum dómi. Megi algóður Guð taka þig, börnin þín og fjölskyldur þeirra í faðminn og styðja ykkur og styrkja. Einnig bið ég góðan Guð að tendra hjá okkur öllum minningarljós um Sigga sem við komum auga á þeg- ar sól fer að hækka á lofti. Guðrún Halldóra Þorvaldsdóttir, Vatni. Ég þekkti Sigurð nánast ekkert fyrr en eftir að hann kvæntist Krist- ínu Jóhannsdóttur, frændkonu minni frá Tyrfingsstöðum. En strax við fyrstu kynni vakti þessi hægláti og yfirlætislausi maður athygli mína og traust. Mér leist maðurinn drengilegur, þéttur á velli og ein- beittur á svip. Ég heimsótti þau hjónin á vor- dögum 1996, þar sem þau voru að planta í dijúgvæna, afgirta spildu lands, norðan við túnið á Tyrfings- stöðum. Þá var ilmur í lofti og heið- ríkja í svip og starfið sótt af kappi, enda verið að hjálpa almættinu við að prýða og bæta fóstuijörðina. A nýliðnu sumri kom ég svo aft- ur til þeirra í Tyrfingsstaði, nú í fylgd með dóttur minni. Þá voru þau að láta smíða reisulega og fal- lega húsið sitt á hæðinni í þessum væntanlega skógarlundi. Þarna er fallegt bæjarstæði, klappir í ná- lægð, þar sem gaman er að leika sem barn, og sýn talsvert vítt yfir, meðal annars gamla bæinn, sem er verðugur fulltrúi norðlenskra sveitabæja á fyrri tíð og þyrfti að varðveitast sem slíkur. Við öll þessi kynni, þó lítil væru, fannst mér Sigurður vaxa. Fyrir um það bil átta mánuðum hafði hann þó gengist undir skurðaðgerð vegna æxlis við heila, aðgerð sem raunar tókst vel eftir atvikum, og gaf von, þó tvísýnt mætti kalla. Þrátt fyrir vafasamt útlit heilsu- farslega var fjarri, að þarna kæmi niðurbrotinn maður til dyra að ljúka upp. Sama æðrulausa rósemin og heiðríkja í svip, þar sem boðið var í bæinn af hefðbundinni reisn, geng- ið um húsið og hvað eina kynnt. Lítið var skrafað um sjúkdóma, miklu heldur um framkvæmdir líð- andi stundar og á komandi tíð. Þannig er engill vonarinnar, þessi trúi förunautur og ljósgeisli í bijósti geðheilbrigðs manns. I samræmi við framanskráða mannlýsingu er mín mynd af Sig- urði Jóni Halldórssyni. Á búskaparárum Sigurðar varð vinnudagurinn oft langur. „Hann vann oft að búinu verulegan hluta nætur en hjá Vegagerðinni á dag- inn,“ segir einn nágranni hans og bætir við óspurður: „Hann var ágætur nágranni og vildi öllum gott gera.“ Sigurður var hagur bæði á tré og járn og bera ýmsar smíðar hans því öruggt vitni. Hann var söngelsk- ur og var bæði í Heimi og Rökkur- kórnum, í stjórn þess síðarnefnda um skeið. Hann söng einnig í kirkju- kór Glaumbæjarsóknar og síðar í Kirkjukór Sauðárkrókskirkju. Sigurður seldi Halldórsstaði 1988 og flutti til Sauðárkróks ásamt föð- ur sínum. Þar kynntist hann eftirlif- andi konu sinni, Kristínu, sem áður er nefnd. Þau gengu í hjónaband 22. jan. 1994. Kristín á jörðina Tyrfingsstaði og hefur þar hross, sem raunar eru ekki mörg. Og nú hófst nýr kapítuli í lífi Sigurðar. Á Tyrfíngsstöðum undi hann sér strax vel og fór þangað oft ýmist einn eða ásamt konu sinni. Hann var skepnuvinur og naut þess að kom- ast aftur í snertingu við lífið í sveit- inni. Nú var hafinn undirbúningur að smíði íbúðarhúss þess er áður getur, jafnframt girt allstór lóð umhverfis, þar sem á að rækta skóg. Þannig iiðu nokkrar dýrmæt- ar vikur undir væng sumarsins, þó ekki án skugga. Þó vonin sé lífsförunautur mannsins og nær ómögulegt án hennar að lifa, er það þó svo, að enginn má sköpum renna. Tíunda september fóru þau hjónin til Reykjavíkur, og skömmu síðar gekkst Sigurður undir aðra skurð- aðgerð, sem ekki bar árangur. Kristín var yfir honum að kalla mátti nótt sem dag allt til síðustu stundar. Sigurður lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 4. nóv. sl., fimmtugur að aldri. Hefur þá Kristín misst þijá eiginmenn sína. Þann fyrsta á sviplegan hátt í slysi. Ég þakka Sigurði stutt en góð kynni og bið honum blessunar á nýjum vegum „... meira að starfa Guðs um geim“. Fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar votta ég Kristínu frænku minni og öðrum aðstandendum dýpstu og innilegustu samúð. „Guð huggi þá sem hryggðin slær ...“ Guðmundur L. Friðfinnsson. í margra huga hafa Skagfirðing- ar, einkum karlmenn, sterk ein- kenni, sagðir gleðimenn, söngmenn, hestamenn. Við þessa ímynd mát- uðum við Sigurð Halldórsson ósjálf- rátt þegar fundum okkar bar fyrst saman á heimili verðandi tengda- dóttur. Hann virtist ekki alveg dæmigerður. Við nánari kynni skýrðust drættirnir. Skagfirskir voru þeir, en fyrst og fremst per- sónulegir. Gleði Sigurðar var kyrr- lát, hávaðalaus og einlæg. Hún birt- ist í hógværu brosi og hlýjunni í þéttu handtaki, svo þéttu að það var ekki alveg í stíl við fíngerðan vöxt hans. Söngur var honum lífsyndi. Kannski sungu þau sig saman Kristín og Sigurður. Víst er um það að frá því sá samhljómur var sleg- inn sungu þau einum dómi og sungu lífinu dýrð. Sá dýrðaróður hljómaði í mörgum tilbrigðum, en skærast í umhyggju fyrir fjölskyldunni og ræktarsemi við skagfirska jörð. Á Tyrfingsstöðum, föðurleifð Kristín- ar, reistu þau sér hús á síðastliðnu sumri. Víðsýnt er af hlaðinu; Mæli- fellshnúkur, Tindastóll og Silfra- staðafjall mynda tignarlega um- gjörð um hvítt hús í grænu túni, þar sem í síðdegiskyrrð á liðnu sumri mátti sjá tvær rauðar hryssur njóta lystisemda lífsins. Ákefð Sigurðar og ósérhlífni við smíðina var við brugðið. Dagsverkið varð langt því framtíðin verður að- eins undirbúin með verkum líðandi stundar. Sú staðreynd blasir við þeim sem veruleikinn minnir svo hastarlega á að öllu er markaður tími. Við þökkum alltof stutt kynni við góðan dreng sem sýndi í verki að kærleikurinn „leitar ekki síns eig- in“. Við vottum Kristínu og fjölskyldu hennar einlæga samúð og biðjum þeim guðs blessunar. Margrét og Ólafur. Er við mættum til vinnu þriðju- daginn 4. nóvember síðastliðinn barst okkur sú sorgarfregn að þá um nóttina hefði einn af vinnufélög- um okkar hjá Vegagerðinni á Sauð- árkróki, Sigurður Halldórsson, látist. Sigurður hóf störf hjá Vegagerð- inni 1970 sem vélamaður. Vann hann fyrstu árin hluta úr árinu, en frá 1988 var hann fastráðinn starfs- maður og flokksstjóri frá 1992. Sigurður háði erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Góður starfsmaður og vinnufélagi er fallinn frá, sem við minnumst með virðingu og þökk fyrir gott samstarf á liðnum árum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tið. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristín, við sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðjur, svo og öðrum nánum ættingjum og vinum hins látna. Starfsfólk Vegagerðarinnar á Sauðárkróki. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURÐUR G. SIGURÐSSON prentari, Blönduhlíð 16, lést á Landspítalanum 13. nóvember. María J. Guðmundsdóttir, Guðmundur Breiðfjörð, Vigdís María Sigurðardóttir, Sören Svensson, Margrét S. Sigurðardóttir, Kjartan Bjarnason og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS PÉTURSSONAR. Guð blessi ykkur öll. Sigurrós Sigtryggsdóttir, Elin Sigurbjörg Jónsdóttir, Helgi Jóhannesson, Sigtryggur Ómar Jónsson, Kolbrún Jóhannsdóttir, Bryndís Rósa Jónsdóttir, Bergþór Guðmundsson, Sigrún Ásta Jónsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.