Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 45
GUÐLAUG
STEFÁNSDÓTTIR
í dag, 15. nóvember,
eru liðin eitt hundrað
ár frá fæðingu Guð-
I laugar Stefánsdóttur.
• Hún var fædd í Star-
| dal, í Stokkseyrar-
| hreppi, dóttir hjónanna
Vigdísar Gestsdóttur
og Stefáns Þorsteins-
sonar sem þar bjuggu.
Hún ólst upp við kröpp
kjör og erfiðleika hjá
foreldrum sínum ásamt
systur sinni, Guð-
mundu, sem seinna
a varð húsfreyja í Geira-
* koti í Sandvíkurhreppi
( og kona Kristjáns Sveinssonar
i bónda þar.
Pjölskyldan flutti að Breiðumýr-
arholti og átti þar heima til 1915,
að heimilið var leyst upp vegna veik-
inda Vigdísar. Guðlaug flutti þá að
Jaðri í Hrunamannahreppi til föður-
systur sinnar og fór síðan að Tungu-
felli í vist.
Guðlaug réðst í vist að Stóra-
< Núpi hjá séra Ólafi Briem, þegar
’ hún var 20 ára, en árið 1918 geis-
( aði spánska veikin. Guðlaug var
| send frá Stóra-Núpi að bæjum í
sveitinni til þess að hjúkra þeim sem
urðu veikir, en sjálf slapp hún við
pestina. Árið 1919 var hún í vist á
Fjajli á Skeiðum.
Árið 1920 kom Guðlaug til
Keflavíkur og réðst í vist hjá Guð-
mundi Hannessyni og síðan hjá
Eyjólfi Ásberg við matsöluna, sem
i hann rak í mörg ár. Sækja þurfti
’ mjólk daglega og kom það í hlut
( Guðlaugar að ganga inn í Njarðvík
( til þess að kaupa mjólk í Þórukoti.
Þar lágu saman leiðir þeirra Björns
í Þórukoti og þau opinberuðu trú-
lofun sína árið 1922 og gengu í
hjónaband 27. desember 1924. Eft-
ir það var hún alltaf nefnd Lauga
í Þórukoti.
Guðlaug hafði stórt hjarta og bar
velferð samferðafólks síns alltaf
i fyrir bijósti. Hún vísaði aldrei fólki
' frá sér, þó oft hafí hún haft margt
• á sinni könnu, því hún hafði ekki
| gleymt erfiðleikum æsku sinnar.
Hún gladdist með glöðum, hafði
yndi af góðum selskap fólks á öllum
aldri.
Björn og Sigurður
mágur hans í Þórukoti
voru útvegsbændur og
gerðu saman út bát.
Var oft mannmargt á
millistríðsárunum þeg-
ar gátu verið allt að 20
sjómenn í veri í Þóru-
koti, og má ímynda sér
að ekki hafi verið slegið
slöku við, þar sem
þurfti að þjónusta þetta
fólk auk þess að sjá um
búskapinn í Þórukoti.
Oft hef ég hitt fólk sem
dvaldi í Þórukoti, sem
hafði orð á því, hve
gott hafi verið að vera í Þórukoti
og alltaf hafi verið nóg að borða.
Þau hjónin voru umboðsmenn
Morgunblaðsins í tugi ára, og alltaf
þurftu þau að sækja blaðabunkann
upp á veg, þar sem mjólkurbílarnir
skildu blöðin eftir, en keyrðu þau
ekki heim til umboðsmanna.
Guðlaug og Björn voru meðal
stofnenda Sjálfstæðisfélagsins
Njarðvíkingur. Guðlaug var einn af
stofnendum Kvenfélagsins Njarðvík
og var gerð að heiðursfélaga Kven-
félagsins árið 1977. Hún starfaði
einnig ötullega að málefnum Slysa-
varnafélags Islands í Keflavík.
Guðlaug var mjög kirkjurækin og
var mjög áhugasöm um að kirkja
risi í Ytri-Njarðvík og árið 1969 var
hún fengin til að taka fyrstu skóflu-
stungu að nýrri kirkju og er síðan
fyrsta konan sem jarðsungin er frá
þeirri sömu kirkju rúmum tíu árum
síðar. Guðlaug var bænheit og hafði
yndi af sálmasöng, rækti trú sína
með sér og sínum nánustu.
Guðlaug og Björn eignuðust fimm
börn: Þórleif, Gróu, Stefán, Þóri og
Guðrúnu Ástu. Gróa lést 17. ágúst
1948, þá tæplega 15 ára. Þorleifur
lést 24. mars 1991. Barnabörnin
áttu alltaf athvarf í Þórukoti og
minnast þau öll ömmu og afa og
Gunnu frænku, systur Björns, með
hlýhug og virðingu.
Bjöm var fæddur 1884 og lést
árið 1968 og Guðlaug lést á nýárs-
dag árið 1981.
Guð blessi minningu tengdafor-
eldra minna.
Hreinn Óskarsson.
MAGNÚS JÓHANNES
JÓHANNESSON
(
i
* + Magnús Jóhannes Jóhann-
■ esson fæddist í Reykjavík
24. júlí 1957. Hann lést á heim-
ili sínu 2. nóvember síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Langholtskirkju 11. nóvember.
Þá heyri ég hafið hvísla
Ég er tárin, hin söltu tár úr augum mæðr-
I anna
úr augum dætra, úr augum sona ykkar.
Ég er tárin, hin söltu tár úr augum feðranna,
úr augum himins þau falla er ég anda.
Ég er sorgin sem aldrei sefur og ég vaki
við -
ég vaki við strendur allra landa.
(Bubbi M.)
Maggi Jói okkar, þú ert ekki með
okkur í lifanda lífi lengur. En þú
ert ávallt með okkur í minningunni
um þig.
Elsku afi, amma, mamma,
Magný, Sólveig, Svala, Svanhildur
og Sonja og fjölskyldur. Innilegar
samúðarkveðjur sendum við ykkur.
Anna Jóna, Tinna og Peter,
Birna, Anna Bára, Freyja,
Dennis og Tommy.
Afmælis-
o g minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningar-
greina birtist daglega í Morg-
unblaðinu. Til leiðbeiningar
fyrir greinahöfunda skal eftir-
farandi tekið fram um lengd
greina, frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama
einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd,
- eða 2200 slög (um 25 dálks-
entimetrar í blaðinu). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem íjallað er um, er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka,
og börn, skólagöngu og störf
og loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum
sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnamöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Frágangur
og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í text-
amenferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er ennfremur
unnt að senda greinar í sím-
bréfi - 569 1115 - og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is). Vin-
samlegast sendið greinina inni
í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunn-
inn eða eftir að útför hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
Morgunblaðið/Arnór og Þórður
SIGURVEGARARNIR í tvímenningnum í Munaðarnesi um helg-
ina. Talið frá vinstri: Karl Hermannsson, Arnór Ragnarsson,
Garðar Garðarsson, Gunnlaugnr Sævarsson, Óli Þór Kjartansson
og Kjartan Ólason.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bæjarkeppni
í Munaðarnesi
BORGNESINGAR tóku á móti
Suðurnesjamönnum í bæjarkeppni
í Munaðarnesi um helgina. Spiluð
var sveitakeppni á 5 borðum og
unnu gestirnir með nokkrum mun.
Á sunnudag var spilaður 45 spila
tvímenningur og enn höfðu gestirn-
ir betur og röðuðu sér í öll verð-
launasætin. Garðar Garðarsson og
Gunnlaugur Sævarsson voru lan-
gefstir en Karl Hermannsson og
Arnór Ragnarsson nældu sér í 2.
sætið í síðustu umferðinni með því
að vinna_ setuna gegn feðgunum
Kjartani Ólasyni og Ola Þór Kjart-
anssyni. Móttökur Borgnesinga
voru hinar glæsilegustu og þakka
Suðurnesjamenn fyrir sig. Á næsta
ári verður spilað á Suðurnesjum og
ef að líkum lætur hyggja Vestlend-
ingar á hefndir.
Tveggja ára birgðir af spilum
Um leið og Islandsmótið í tví-
menningi var spilað, voru vígð ný
spil sem Trygging hf. lét prenta í
sínu nafni hjá hinu virta spilafyrir-
tæki Fournier á Spáni. Alls lét
Trygging hf. prenta um 1.800 spil
og áætlað er að sá fjöldi nægi til
tveggja ára notkunar í öllum mótum
á vegum sambandsins. Gjöf fyrir-
tækisins hefur því mikið gildi fýrir
bridshreyfinguna í landinu. Spilin
eru sérstaklega götuð fyrir spila-
gjafavél, sem sér um að raða þeim
á orskotsstundu eftir fýrirfram-
gefnum tölvuútskriftum.
Bernhard N. Bogason og
Stefán Kristmannsson
Austurlandsmeistarar í
tvímenningi 1997
Fyrir mistök í sendingu eða mót-
töku á netpósti féllu niður nöfn
tveggja efstu para í Austurlands-
mótinu í tvímenningi. Sigurvegarar
urðu Bernhard N. Bogason og Stef-
án Kristmannsson (BF) með 260
stig og í 2. sæti Ríkharður Jónasson
og Ævar Ármannsson (BSF) með
258 stig. Við biðjumst velvirðingar
á þessum mistökum og birtum frétt-
ina aftur:
Aðaltvímenningur Bridgesam-
bands Austurlands var haldinn á
Egilsstöðum 7. og 8. nóv. 1997.
Til leiks mættu 36 pör og voru spil-
aðar 35 umferðir, 3 spil milli para.
Keppnisstjóri var Sveinbjörn Egils-
son.
Níu efstu pörin fengu silfurstig
og urðu úrslit sem hér segir:
Bernhard N. Bogason
- Stefán Kristmannsson, BF 260
Ævar Ármannsson -
Ríkharður Jónasson, BSF 258
Hafþór Guðmundsson -
Magnús Valgeirsson, BSF 200
Jón H. Guðmundsson -
HjörturUnnarsson, BSey 176
Ágúst V. Sigurðsson -
Sigurpáll Ingibergsson, BH 167
Óttar Ármannsson -
Sigurður Stefánsson, BF 152
Árni Guðmundsson -
Bridsfélag Sauðárkróks
Nú er KS-súrmjólkurleiknum lokið
og eftir æsispennandi lokaumferðir
urðu úrslit þessi:
Gunnar Þórðarson - Bjami Ragnar Brynjólfssonl 10
BirkirJónsson-AriMárArason 95
Eyjólfur Sigurðsson - Skúli Jónsson 92
Nú stendur yfir Fiskiðjumótið í
hraðsveitakeppni með þátttöku 7
sveita og eftir 2 kvöld er staðan þessi:
SveitlnguJónuStefánsdóttur 926
SveitMargrétarÞórðardóttur 918
SveitGuðmundarÁmasonar 907
Sveit Suðurleiða 904
Eftir hraðsveitakeppnina hefst par-
atvímenningur félagsins þar sem
keppt er um veglegan bikar. Spilað er
í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans og
hefst spilamennska stundvíslega kl.
20.00. Nýir félagar eru sérstaklega
velkomnir.
Bridgefélag Kópavogs
Fimmtudaginn 13. nóvember var
spilaður mitchell tvímenningur eitt
kvöld með þátttöku fjórtán para.
N/S:
ÞorsteinnBerg-ÞórðurBjömsson 200
Þorgeir Ingólfsson - Garðar Jónsson 194
Jón Steinar Ingólfsson - Birgir Jónsson 184
A/V:
Helgi Víborg - Oddur Jakobsson 213
Bemódus Kristinsson - Georg Sverrisson 204
KarlÓmar Jónsson - Jón Óskar Carlsson 179
Næsta fimmtudag byijar þriggja
kvöld hraðsveitakeppni. Skráning
er hjá Hermanni Lárussyni í síma
554-1507
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
Fimmta og síðasta umferðin í að-
altvímenningi BRE var spiluð þriðju-
dagskvöldið 4. nóvember og urðu úr-
slit þessi:
Atli Jóhannesson - Jóhann Þórarinsson 25,9
JóhannÞorsteinsson-JónasJónsson 24,5
Ásgeir Metúsalemss. - Kristján Krisjánss. 21,6
BöðvarÞórisson-ÞorbergurHauksson 15,8
Lokastaðan eftir 5 umferðir er á
þessa leið:
Asgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjánss. 112
Ragna Hreinsdóttir - Svala Vignisdóttir 65
AuðbergurJónsson-HafsteinnLarsen 47
Atli Jóhannesson - Jóhann Þórarinsson 36
ALFÍFA ÁGÚSTA
JÓNSDÓTTIR
+ Alfífa Ágústa Jónsdóttir
fæddist í Reykjavík 9. ágúst
1907. Hún lést í Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 27. október síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum 8. nóvember.
Dagurinn kveður mánans bjarta brá.
Blikar í skýja sundi.
Lokkur í blænum, leiftur augum frá.
Loforð um endurfundi.
Góða nótt. Góða nótt.
Gamanið líður fljótt.
Brosin þín biða min
er birtan úr austri skín.
Dreymi þig sólskin og sumarfrí
syngjandi fugla og lækjamið.
Allt er hljótt, allt er hljótt.
Ástin mín, góða nótt, góða nótt.
Það er með söknuði í hjarta sem
við kveðjum hana ömmu okkar í
dag. Margar minningar á ég um
hana ömmu mína. Þessar ljóðlínur
komu mér í huga er mér bárust
fregnir af fráfalli hennar, og
hugurinn fór yfir þær stundir sem
ég átti með henni og þær voru
ekki fáar því hún ól mig upp frá
unga aldri. Hún hafði á takteinum
ráðleggingar og lífsreglur sem ég
hef hugleitt mikið að undanförnu
og ég hef sagt mínum börnum.
Hún var ekkert gefin fyrir um-
stang, meiri áherslu lagði liún á
framkomu og að hafa sitt á hreinu
gagnvart öðru fólki. Það eru marg-
ar minningar sem alltof langt mál
væri að telja upp og atvik sem
gerðust á mínum æskuárum.
Friðrik Björgvinsson.
blaðið
- kjarni málsins!
ftfan^gttiiltliiMfr