Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ .. 52 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 DflGUR FELflGSRflÐGJflFfl I EVROPU 15. NOVEMBER Dagur félagsrá&gjafa í Evrópu var þann 12. nóvember sl. Að þvi tilefni veröur opiö hús á vegum SÍF og námsbrautar (félagsráögjöf viö H.í. laugardaginn 15. nóvember í Háskólabfói frá kl. 14-16. DncsKRn: kl. 14:00-14:45 Sigurveig H. Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, kynnir íslenskan hluta norrænu rannsóknarinnar „Hvers vegna sjálfboðastörf" sem hún hefur unnið í samvinnu við Sigrúnu Júlíusdóttur. kl. 14:45-15:05 Kristjana Sigmundsdóttir, félagsráðgjafi, kynnir nýja skáldsögu sína „Ósögð orð“. Stofnanir og félög kynna störf félagsráðgjafa. VONUMST TIL RÐ SJR SEM FLESTO. UNDIRBUNINCSNEFND. Reyki-y heilunar- og sjálfstyrkingamámskeið Hvéfúbmk‘nd!iri! ^ # ,ír slíkmn nímskeéuni- ^Læra að nýta sér orku til að lækna sig (meðfæddur eiginleild hjá öllum) og /eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi. ^Læ ra að beita hugarorkunni á jálcvæðan og uppbyggilegan hátt, í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs. ^Læ ra að hjálpa öðrum til þess sama. Námskeið í Reykjavík: 18.—20. nóv. II. stig kvöldnámskeið. 21.—23. nóv. I. stig helgamámskeið. 25.—27. nóv. I. stig kvöldnámskeið. Upplýsingar og skráning í síma 553 3934 kl. 10-12 virka daga. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Kolaportið iesti matarbœrinn í bominni ^NLatarhátíd 3 Mflt arporti Koíaporí^ O Fiskurinn frá Grundarfirdi Útvatnaður saltfiskur kr. 300 kg og reyktur Rauðmagi Rækja og skelfiskur kr. 700 kg, Rauðspr.flök kr. 460 kg, stór- lúða kr. 500 kg og lausftyst línuýsuflök á kr. 310 kg. O Benni býður bestu kiötid Saltkjöt annar flokkur á aðeins kr.798 kg. Gamaldags hrossasperðlar kr. 399 kg. Benni hinn góði er líka mættur með jólahangikjötið í pokanum úr dölunum. 6 Tadreykti silungurinn kominn Gylfi í Hafgull er meö lausfryst línuýsuflök á kr. 350 kg. Taðreyktur, beikireyktur og grafinn lax á góðu verði. Gylfi er líka kominn með Steinbítinn vinsæla að vestan. O Smakkadu Kartöflurnar frá Háfi © Kökuúrval í Kökubásnum O Gratnmetid flutt í midjuna G Hákarlabásinn vid Midstrœtid I N N Opinn um helgar kl. 11-17 og virka daga kl. 10-18 «2 KOLAPORTIÐ Markodstorgið er opið allar helgar fcf. II-17 I DAG BRIPS tlmsjón (iiiðmuiKlur l’áll Arnarson Pass 1 lauf Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar Pass 3 spaðar Pass 4 lauf Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 5 tígiar Pass 7 hjörtu Allir pass SIGURÐUR Sverrisson og Aðalsteinn Jörgensen spila Icerelay kerfið íslenska, sem er svo nákvæmt, að þegar búið er að spytja um skiptingu og styrk, ása, kónga og staðsetningu þeirra, er stundum hægt að spyja um drottningar og gosa. En því miður leyf- ir kerfið ekki að spurt sé um tíur! Sem hefði þó kom- ið sér vel í þessu spili úr Politiken-mótinu í Kaup- mannahöfn: Vestur gefur; enginn á hættu. Vestur 4 10765 V 532 ♦ KDG2 ♦ G5 Norður ♦ KDG V KDG97 ♦ Á6 4 Á94 Austur ♦ 94 V 106 ♦ 973 ♦ D108762 Suður 4 Á832 V Á84 ♦ 10854 4 K3 Andstæðingar Sigurðar og Aðalsteins voru Svíarnir Hallberg og Wrang, sem enduðu í fjórða sæti: Vestur Norður Austur Suður Hallberg Sigurður Wrang Aðal- steinn Sigurður opnar á sterku lauft og með einu hjarta sýnir Aðalsteinn jákvæð spil og jafna skiptingu. All- ar sagnir Sigurðar fram að sjö hjörtum eru síðan spurningar; fyrst um skipt- ingu, síðan um mannspil og loks um staðsetningu þeirra. Þegar Aðalsteinn svarar síðustu spurning- unni, veit Sigurður um skiptinguna, ásana í hálit- unum og laufkóng. Hann sér því tólf slagi með því að trompa lauf á þrílitinn og þrettán ef spaðinn gefur fjóra slagi - en þá þarf makker helst að eiga tíuna! Aðalsteinn fékk út tígul, sem hann tók með ás, iagði niður trompkóng og spilaði svo laufi þrisvar og stakk með áttu. Lauflegan kom á óvart, en austur gat ekki yfirtromað. Aðalsteinn tók svo trompin og spilaði spaða í lokin í þeirri von að liturinn félli 3-3. En því miður, austur átti tíuna fjórðu. Hægt er að vinna sjö hjörtu með því að taka tvisvar tromp, síðan mann- spilin í spaða og stinga svo lauf í borði. Spaðaásinn heldur, því austur er með fjórlit og þriðja trompið. En þetta er verri leið, þótt hún gangi upp í þessu spili. SKÁK Umsjón Margeir l’étursson Svartur mátar í fimmta leik ÞESSI furðulega staða kom upp í þýsku Bundesl- igunni um síðustu helgi. Slóvakinn og bytjanasér- fræðingurinn Lubomir Ftacnik (2.585) var með hvítt, en Króatinn Ognen Cvitan (2.2570) hafði svart og átti leik. 23. - Bxg2+!! 24. Kxg2 - Dh3+! 25. Kxh3 - Rg5+ 26. Kg2 - Rh4+ og Ftacnik gafst upp, því 27. Khl - g2 er mát. Flétt- urnar gerast ekki öllu glæsilegri. Byrjun skák- arinnar var mjög athygl- isverð: Kóngs- indversk vörn: 1. d4 — Rf6 2. Rf3 - g6 3. c4 - Bg7 4. Rc3 - 0-0 5. e4 — d6 6. Be2 - e5 7. 0-0 - Rc6 8. d5 - Re7 9. Rd2 - Re8 10. b4 - f5 11. c5 - Rf6 12. f3 - f4 13. Rc4 - g5 14. a4 - Rg6 15. Ba3 - Hf7 16. b5 - dxc5 17. Bxc5 — h5 18. a5 — g4 19. b6 - g3 20. Khl - Rh7 21. d6 - Dh4 22. Bgl - Bh3 23. bxc7? og nú höfum við stöðuna á stöðumyndinni. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Léleg þjónusta ÉG VIL benda bíleigend- um á einstaklega lélega og fljótfærnislega þjón- ustu hjá dekkjaverk- stæðinu Gúmmívinnu- stofunni í Skipholti. Þar var öðru framhjólinu rétt aðeins tyllt á bílinn hjá mér sem skapaði auðvit- að stórhættu í umferð- inni þegar keyrt var af stað. Fyrir utan óþæg- indin við að þurfa að yf- irfara hin dekkin líka til að vera viss um að allt væri í lagi. Svo þegar hringt var á staðinn og kvartað var ekki einu sinni beðist afsökunar sem hefði nú verið lág- mark með tilliti til þjón- ustu við viðskiptavini sem greiða fyrir ákveðið verk og ætlast til að því sé lokið en ekki hálfklár- að. Adda S. Jóhannsdóttir. „Lækningar og saga“ óskast ER EINHVER sem getur látið mig fá bækurnar Lækningar og saga (2 bindi) eftir Vilmund Jónsson? Uppl. hjá Sigr- únu í síma 568 5070. Tapað/fundið Fiorucci leður- kápa týndist BRÚN Fiorucci leður- kápa týndist á Astro 11. okt. sl. Ásamt kápunni var hvítur trefill og vettl- ingar og gul peysa. Þessi kápa er ein sinnar teg- undar hér á landi og því sárt saknað. Þeir sem hafa einhvetjar upplýs- ingar um flíkina eða hafa orðið varir við hana vin- samlegast hafi samband við Ingu í síma 567 6065 eða Jóa á Astró. Gullhálsfesti TAPAST hefur gullhál- skeðja u.þ.b. 45-50 cm. Gæti hafa tapast í Ár- múla eða í Grafarvogi við Rauðhamra. Festarinnar er sárt saknað. Fundar- laun. Þeir sem hafa orðið varir við festina hafi samband f síma 587 7807 eftir kl. 17. Lyklaveski týndist í Hafnarfirði SVART lyklaveski týnd- ist ' í Hafnarfirði, í Hraununum, sl. sunnu- dag. Veskið er merkt Polar - hart rat monit- ors. Uppl. í síma 565 4655 á kvöldin. Armbandsúr týndist ARMBANDSÚR týndist í Safamýri. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 568 5004 eftir kl. 16 eða tali við bréfbera í Safa- mýri. Kvenúr í óskilum KVENÚR fannst á Soga- vegi milli húsanna nr. 36-44. Uppl. í síma 568 4654. íþróttaskór í óskilum ÍÞRÓTTASKÓR fundust við Skógarbraut (Vals- heimilið). Uppl. í stma 557 9096. COSPER ERTU ekki ánægður að sjá mig. Víkveiji skrifar... NETBÓKABÚÐ Máls ogmenn- ingar er gott framtak að mati Víkverja. Skrifari hefur haft bæði gagn og gaman af því að leita að bókum á heimasíðu verzl- unarinnar. Enn eru upplýsingar um hveija bþk af . skornum skammti, en af tilkynningu á heim- asíðunni má ráða að það standi til bóta. Þessi þjónusta ætti að auð- velda þeim, sem ekki eiga heiman- gengt, til dæmis íbúum lands- byggðarinnar, bókakaup til muna. Hún sparar líka höfuðborgarbúum sporin - nú er hægt að fletta því upp á tölvuskjánum hvort bókin er til, í stað þess að gera sér ferð í Mál og menningu eða einhvetja aðra bókabúð til að leita að henni. xxx VÍKVERJI verður að hrósa borgaryfirvöidum fyrir að hafa staðið gegn niðurrifi gamla verzlunarhússins á horni Klappar- stígs og Laugavegar, sem nú verð- úr þess í stað gert upp í uppruna- legri mynd. Húsið er næstelzta húsið við Laugaveg og á sér merkilega sögu. Miðborgin hefði orðið fátækari, hefði eiganda þess verið leyft að rífa það til að byggja enn einn steinsteypukassann. í svona málum getur það því miður orðið þrautalendingin að opinberir aðilar beiti sér, þegar lóðareigand- inn hefur ekki metnað til að bera að halda menningarverðmætum við. Nóg er búið að ganga í skrokk á menningararfinum í miðborg Reykjavíkur nú þegar og kominn tími til að snúa þróuninni við. Víkveija finnst það dæmalaus skammsýni af minnihluta borgar- stjórnar að standa gegn varðveizlu hússins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur stundum kallað sig „varð- veizluflokk“ og viljað beita sér fyrir rækt við menningararfinn. Lítur flokkurinn ekki á það sem hlutverk sitt að varðveita menn- ingarverðmæti á borð við Lauga- veg 21? xxx INORSKA blaðinu Aftenposten kemur fram að stjórnvöld í Noregi hafi nú til skoðunar tillög- ur þjóðminjavarðar þar í landi, um að fasteignaskattakerfið refsi fólki ekki fyrir að auka verðmæti gamalla húsa, sem falla undir þjóðminjalög, með því að gera þau upp. Þannig geti menn fengið sér- stakan afslátt af sköttum og gjöldum á fasteignir, búi þeir í uppgerðu gömlu húsi og haldi því vel við, í eigin þágu og samborgar- anna. Hafa íslenzk þjóðminjayfir- völd velt þessari leið fyrir sér?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.