Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 1
112 SÍÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 268. TBL. 85. ARG. SUNNUDAGUR 23. NOVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vopnaleit hefst að nýju í Irak Baghdad. Reuters, The Daily Telegraph. UM 75 eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna, þeirra á meðal sex Bandaríkja- menn, hófu í gær leit að hugsanlegum gjör- eyðingarvopnum í Irak eftir þriggja vikna hlé vegna banns íraka við þátttöku Banda- ríkjamanna í vopnaeftirlitinu. írakar reyndu ekki að hindra leitina, að sögn eftirlits- manna, en áhrifamesta dagblað Iraks, Babel, varaði við því að enn væri hætta á árásum Bandaríkjahers á landið. Sameinuðu þjóðirnar og írakar höfðu deilt um vopnaeftirlitið frá 29. október þegar stjórnvöld í Baghdad ákváðu að banna öllum bandarískum vopnaeftirlitsmönnum að fara á staði þar sem grunur leikur á að írakar hafi falið gjöreyðingarvopn eða gögn um vopn, sem þeim er ekki heimilt að eiga sam- kvæmt vopnahlésskilmálum eftir stríðið fyrir botni Persaflóa árið 1991. Irakar vísuðu Bandaríkjamönnunum úr landi 13. þessa mánaðar og sökuðu þá um njósnir í þágu Bandaríkjastjórnar en Sameinuðu þjóðirnar svöruðu með því að flytja allt eftirlitsliðið úr landinu. Að sögn Washington Post beinist leitin einkum að 25 sýklaoddum sem grunur leikur á að írakar hafi falið. Talið er að oddarnir séu hlaðnir miltisbrandi eða bótúlíni, sem veldur taugalömun. Eftirlitsmönnum fjölgað? Ráðgjafarnefnd á vegum Sameinuðu þjóð- anna lauk í gær 12 klukkustunda fundi í New York þar sem rætt var hvemig haga ætti vopnaeftirlitinu í Irak. Nefndin er skipuð vísindamönnum, prófessorum og nokkrum embættismönnum frá fímm heimsálfum og var boðuð til skyndifundar þegar írakar féilust á að heimila Bandaríkjamönnum að taka þátt í eftirlitinu eftir að Rússar lofuðu að beita sér fyrir því að slakað yrði á refsiað- gerðum Sameinuðu þjóðanna gegn Irak. Nefndin hugðist leggja fram tillögur fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í gær og hermt var að hún legði m.a. til að fjölgað yrði í eftirlitssveitum Sameinuðu þjóðanna með því að bæta við mönnum frá öðrum ríkjum en Bandaríkjunum. Bandaríkjamennirnir yrðu því hlutfallslega færri en áður þótt heildarfjöldi þeirra breyttist ekki. Árni Sæberg/Morgunblaðið OK tapaði en var „í lagi“ BANDARÍKJAMENN tóku að nota skammstöfunina „OK“, sem hefur verið notuð í merkingunni „allt í lagi“, fyrir rúmum 150 árum og hún á rætur að rekja til gælunafns áttunda forseta Bandaríkj- anna, ef marka má nýja bandaríska bók. Sagnfræðingar hafa lengi velt fyrir sér uppruna skammstöfunar- innar og ýmsar tilgátur hafa kom- ið fram. Sam- kvæmt nýjustu kenningunni var hún fyrst notuð í forsetakosningun- um í Bandaríkjun- um árið 1840 þeg- ar Martin Van Buren, þáverandi forseti, beið ósigur fyrir William Henry Harrison. Van Buren gekk undir gælunafninu „Old Kinderhook" - eftir heimabæ sínum í New York-ríki - og stuðningsmenn hans kölluðu hann „OK“. Þótt „OK“ hafi tapað í kosningunum fór gælunafnið sigurför um heiminn í merkingunni „allt í lagi“, að sögn Davids Bamharts og Allans Metcalfs, höfunda bókarinnar „In So Many Words“. Bæjarstjóri bannar verjur ALLAR getnaðarvarnir, hveiju nafni sem þær nefnast, hafa verið fjarlægðar úr lyfjabúðum brasiliska bæjarins Bocaiuva do Sul að fyrirmælum bæjarstjórans, Elcios Bertis. Hann greip til þessa ráðs vegna þess að íbúum bæjarins hefur fækkað um helming í rúin 8.000 á tveim- ur áratugum og hann vill að þeir auki kyn sitt til að bjarga bænum. Herferð bæjarstjórans gegn getnaðar- vörnum tengist á engan hátt andstöðu kaþólsku kirkjunnar við þær. Hann komst einfaldlega að þeirri niðurstöðu að ef ekkert yrði að gert myndi bærinn tapa 40% af þeim styrkjum, sem hann hefur fengið frá ríkinu, en þeir eru miðaðir við íbúafjölda sveitarfélaganna. „Frá og með þessum degi er bannað að selja öll lyf eða annan varning sem gerir barnsfæðingar ómögulegar," sagði í til- kynningu frá bæjarsljóranum. Lyfsalinn ævareiður Florismundo Alberti, fyrrverandi bæj- arsljóri Bocaiuva do Sul, er ævareiður yf- ir banninu, enda rekur hann aðra af tveimur lyfjabúðum bæjarins. Heilbrigð- isráðherra Parana-rikis, sem bærinn til- heyrir, sagði að fyrirmælin hefðu ekkert lagalegt gildi og íbúar Bocaiuva do Sul gætu notað getnaðarvarnir að vild. Hutchence látinn Heysterk hross í Kjósinni Talinn hafa svipt sig lífí Sydney. Reuters. ASTRALSKA poppstjaman Michael Hutchence, aðalsöngvari rokkhljómsveit- aiinnar INXS, fannst látinn á hóteli í Sydney í gærmorgun og ástralskir fjöl- miðlar sögðu að hann hefði hengt sig með leðurbelti. Hutchence, sem var 37 ára, var þekktasti popptón- listarmaðm’ Astralíu og stöðugt í sviðs- Ijósinu vegna stormasams einka- lífs. Hann var í tygj- um við nokkrar heimsfrægar fyrirsætur áður en hann kynntist bresku sjónvarps- konunni og rithöfundinum Paulu Yates og þau eignuðust nýlega dóttur. Hutchence og félagar hans í INXS (borið fram eins og „In Excess“) voru að undirbúa tónleikaferð um Ástralíu í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því hljómsveitin var stofnuð. Meðal þekktustu laga hljóm- sveitarinnar eru „Suicide Blonde“ og „New Sensation“ og síðasta plata hennar heitir „Elegantly Wasted“. Michael Hutchence AMENN VERSLA VITTHVAÐ FALLEGT VIÐSKIPTIJaVINNULÍF Á SUNNUDEQI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.