Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 23
Listaklúbbur Leikhúskjallarans á mánudagskvöld
Bandamenn flytja elsta
leikrit á íslensku
LEIKHÓPURINN Bandamenn flytur elsta leik-
rit sem til er á íslensku í Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans á morgun, Belíalsþátt sem samin
var af Þjóðverjanum Sebastian Wild árið 1566.
LEIKHÓPURINN Banda-
menn flytur í fyrsta sinn svo
vitað sé elsta leikrit sem til
er á íslensku, Belíaisþátt, í
Listaklúbbi Leikhúskjallar-
ans á morgun, mánudags-
kvöld kl. 20.30. Belíalsþátt-
ur er til á handritadeild
Landsbókasafns-Háskóla-
bókasafns í íjórum upp-
skriftum og hefur það verið
mönnum mikil ráðgáta
hvaðan hann er ættaður.
Sveinn Einarsson, sem stýr-
ir leiklestrinum á morgun,
hefur hins vegar komist að
þeirri niðurstöðu að leikur-
inn sé eftir þýskan mann
að nafni Sebastian Wild og
hann hafi verið þýddur á
íslensku um 1630.
„Þetta er síðhelgileikur,"
segir Sveinn, „eins konar
siðbótarleikur skrifaður ein-
mitt á þeim tímum þegar
siðaskipti verða í mörgum
Evrópulöndum. Uppskrift-
irnar sem leikurinn er til í
eru að vísu ungar, þær elstu
frá seinni hluta átjándu ald-
ar en tungutakið og Biblíut-
ilvitnanir í íslenska textan-
um benda til þess að hann
sé eldri, eða frá því þegar
Þorláksbiblía var að taka
við af Guðbrandsbiblíu. Leikurinn
kom hins vegar fyrst út árið 1566
í Augsburg í Þýskalandi. Hvernig
hann hefur borist hingað er með
öllu óskilianleert en trúleea hefur bað
komist í Skálholt og þar hafa skóla-
strákar kannski notað það til
skemmtunar eða kennslu."
Leikurinn heitir fullu nafni Ein
föeur traeedía. um löesókn Belíals
gegn Christo fyrir niðurbrot
djöfulsins ríkis. Sveinn segir
að efni hans sé kátlegt. „I
trúarjátningunni er sagt frá
því er Jesús steig niður til
heljar. Koma þá púkar til
guðs og segja að það gangi
ekki, Jesús sé búinn að
brjóta niður þeirra ríki og
látið lausar heiðnar sálir
sem þeir eru búnir að safna
samviskusamlega saman.
Þeir eru mjög reiðir yfir
þessu og fínnst þetta órétt-
læti. Óska þeir eftir því að
þetta sé tekið fyrir dóm-
stól. Er sá þeirra sem þykir
mestur lagamaður, Belíal,
fenginn til að heíja laga-
flækjur á móti Kristi. Og
um þetta fjallar leikurinn,
hvernig þeim púkum vegnar
í málsókninni gegn almætt-
inu. Eru ýmsir kallaðir til
vitnis, þar á meðal spámenn
gamla testamentisins og
heiðnir heimspekingar og
keisarar."
Þeir sem taka þátt í að
flytja Belíalsþátt eru
Bandamennimir Ragnheið-
ur Elfa Arnardóttir, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Jak-
ob Þór Einarsson, Stefán
Sturla Sigurjónsson og
Sveinn Einarsson. Bandamenn
þeirra í þessari sýningu verða Guðni
Franzson og Ólafur Örn Thoroddsen.
Leikurinn er mikið styttur í flutn-
inmum.
■^r
2X
Málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins
um upplýsingamál
A/lálJ?í
ins
Tölvumenntaður starfsmaður óskast!!!
Málþing málefnanefndar Sjálfstæðisflokksins um
skort á sérfræðingum á sviði upplýsingatækni.
Miðvikudaginn 26. nóvember kl. 17-19.
á Hótel Sögu, A-sal.
Dagskrá:
Eftirtaldir aðilar flytja stutt inngangserindi:
— Hjálmtýr Hafsteinsson, lektor við Háskóla íslands.
— Skúli Valberg, verkfræðingur EJS hf.
— Helga Waage, formaður Félags tölvunarfræðinga.
— Þorvaður Elíasson, rektor Verslunarskóla íslands.
— Páll Skúlason, háskólarektor.
— Björn Bjarnason, menntamálaráðherra.
Umræður verða á eftir inngangserindum.
Fundarstjóri verður Halldór Kristjánsson, forstjóri.
- kjarni málsins!
Eg læt ekki senda mig.
Eg fer þegar mér henta.r!
Þess vegna er ég í Vörðunni!
Landsbanki íslands
Elnstaklingsvlðskipti
Traustið er h j á |)ér og ábi/rgðifi hjí okkur