Morgunblaðið - 23.11.1997, Side 36
36 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
j
ÞEGAR Óskarsverðlaunum var
úthlutað í ár fór eins og spáð hafi
verið, kvikmyndin Englendingurinn
þótti bera af og fékk mörg verðlaun.
Kvikmyndin er byggð á sögunni „The Engl-
ish Paitent", eftir Michael Ondaatje, sem kom
út árið 1992 og fékk Booker-verðlaunin
bresku á sínum tíma. Bókin var á meðal
þeirra mest seldu í Bretlandi um
mánaðaskeið. í eftirmála sögunnar er tekið
fram að þetta sé skáldsaga, þó þar komi fyrir
nöfn manna sem til voru.
Stór hluti myndarinnar er ástarsaga úr
seinni heimsstyrjöldinni, saga sem minnir
nokkuð á kvikmyndir fyrri tíma.
Af Almasy greifa
Nafn Ladislaus Almasys greifa, elskhugans í
myndinni, kom kunnuglega fyrir. Eftir dálitla
leit fékkst það staðfest að maður með því nafiii
hafði verið meðal lifenda.
Hver var hann þessi maður sem Michael
Ondaatje nefndi sögupersónu sína eftir og
skyldi fleira en nafnið hafa verið fengið að láni?
Hinn raunverulegi Ladislaus Almasy fædd-
ist árið 1896, hann var ungverskur að upp-
runa, landkönnuður sem ferðaðist bæði á
landi og í lofti við að kortleggja eyðimerkur
Afríku, á þriðja og fjórða tug aldarinnar.
Hann gjörþekkti auðnimar, þekkti þar hveija
vin og leitaði þeirra sem horfið höfðu í sand-
inn. Bedúínarnir, hirðingjar eyðimerkurinn-
ar, gáfu honum tignarheitið faðir sandanna.
Almasy hélt fyrirlestra á vegum Hins kon-
unglega breska landfræðifélags í London.
Hann skrifaði nokkrar bækur á ung-
versku um ferðir sínar, þær hafa ekki
verið þýddar á önnur tungumál eftir
því sem best er vitað.
Bernstein-kastali
Þeir voru tveir bræðumir sem báru
Almasy-nafnið, Ladislaus og Janos
sem var tveimur árum eldri. Þeir voru
af aðalstættum og ættaróðal þeirra,
Bemstein-kastali, var á ungversku
landsvæði þar til það var innlimað í Austurríki
við friðarsamningana árið 1919, að fyrri
heimsstyijöldinni lokinni.
Ladislaus var liðþjálfi í ungverska hemum,
hann var konungssinni og tók þátt í tilraun til
að endurheimta krúnu Karls 1. árið 1921, en
sú tilraun mistókst.
Bemstein-kastali stendur í fógni umhverfi í
Burgenlandi, sjálft Bemstein-þorpið stendur
aðeins neðar. Það er um tveggja stunda akst-
ur frá Vínarborg að kastalanum. I kastalanum
bjó Janos Almasy með konu sinni Marie og
þar dvaldi Ladislaus á milli ferðalaga.
A millistríðsámnum var tekið á móti dval-
argestum í Bernstein-kastala, þar á meðal
vora ungir Bretar sem komu til að læra
þýsku. Dvalargestir tóku þátt í „selskapslífi“
gestgjafanna, vora boðnir til aðalsfólks í ná-
grenninu. Heima í kastalanum vora í heiðri
hafðar venjur hefðarfólks svo sem að klæða
sig upp á fyrir kvöldverð dag hvem.
Dvöl í kastalanum þótti eftirsóknarverð
LADISLAUS Almasy. Myndin er úr fréttamynd frá Afríku árið 1929.
JANOS Almasy, Marie
kona hans og Unity
Mitford. Myndin tekin
í garðinum við
Bernstein-kastala.
fyrir ungt fólk, efnaðir foreldrar litu á það
sem lið í menntun barna sinna að þau dveldu
um hríð utan heimahaga.
I kvikmyndinni Englendingurinn neyddist
sögupersóna Almasy gi-eifi til að afhenda
andstæðingunum, Þjóðverjunum, plögg sín til
að komast aftur til ástkonu sinnar. Þar skilja
leiðir hins raunveralega Almasy og
sögupersónu Michaels Ondaatjes því þeir
Alamsy-bræður vora í reynd snemma
hliðhollir nasistum. Þegar Þjóðveijar inn-
limuðu Austurríki árið 1938 blakti fáni nas-
ista, hakakrossinn við hún á Bernstein-kast-
ala. Það fór því ekki á milli mála hver hugur
íbúanna var. Janos Almasy hélt veglega upp á
afmæli Hitlers 20. apríl 1939 með því að bjóða
til garðveislu og bauð þangað frammámönn-
um í nasistaflokknum.
Talið var að Ladislaus Almasy hefði verið
kominn á mála hjá nasistum árið 1935, en þá
kom hann á njósnakeðju frá Berlín og alla
leið til Kaíró. Hann gekk svo í þýska herinn
og hélt þar liðsforingjatign þeirri sem hann
hafði haft í ungverska hemum. Hann gerðist
aðstoðarmaður Roimmels herforingja í Af-
ríkuhernum, þar kom þekking hans á
eyðimörkinni sér vel. Hann var sæmdur hin-
um þýska Jámkrossi fyrir vel unnin störf.
Að stríði loknu
Nokkuð er á huldu um ferðir Ladislaus
Almasys að stríðinu loknu, hann er ýmist
sagður hafa haldið sig í Afríku í öryggis-
skyni eða að hann hafi farið til Tyrklands,
þaðan til Ungverjalands og þar hafi hann
komið fyrir rétt en verið sýknaður. Janos
bróðir hans flúði til Egyptalands eftir að
hafa brennt allt það sem bendlað gat þá
bræður við nasista.
I Bernstein-kastala er enn tekið á mótið
dvalargestum en þangað sækir auðugt fólk
víða að. Sá er þar fer með forræði heitir
Alexander Berger-Almasy, fjarskyldur ætt:
ingi, en þeir bræður áttu ekki afkomendur. I
blaðaviðtali í vor er leið sagðist fyrrnefndur
gestgjafi vera himinlifandi yfir öllu umtalinu
um bók og kvikmynd, Bernstein-kastali hafi
þar verið nefndur, það væri góð
auglýsing og færði þeim fleiri gesti.
nHann gerði lítið úr því að þeir Alma-
sy-bræður hefðu verið nasistar, hann
sagði þá hafa orðið fyrir illum áhrif-
um af ungri, breskri stúlku, Unity
Mitford, sem dvaldi oft og lengi hjá
þeim í kastalanum. Fremur virðist
það máttlaus afsökun, þeir bræður
komnir um og yfir fertugt þegar hún
kom til sögunnar. Vinátta þeirra
þriggja hélst svo lengi sem þau lifðu. Unity
Mitford var af breskum aðalsættum og hafði
verið ákafur nasisti frá unglingsárum. Af
henni er sögu að segja en það bíður betri
tíma.
Astarsambandið örlagaríka í kvikmynd-
inni, milli Almasys og bresku konunnar Kat-
harine Clifford, er ekki hægt að heimfæra á
hinn raunverulega Ladislaus Almasy, hann
var ekki talinn hafa tilhneigingar til kvenna.
Ladislaus hafði oft veikst af
blóðkreppusótt sem varð honum svo að ald-
urtila. Hann lést í Salzburg árið 1951 og var
grafinn þar. Það hvíldi leynd yfir honum í
lifanda lífi svo er einnig með hann látinn. A
gröf hans í Salzburg var látinn stór og fal-
legur marmarasteinn en steinninn hvarf og
nú veit enginn hvar hinsta hvíla Ladislaus
Almasys greifa er.
Heimildir: Unity Mitford a Quest, eftir
David Pryce-Jones. A Life of Contrast, eftir
Diana Mosley. The Daily Mail.
/ið styöjum viö bakið á þér!
JÓLATILBOÐ FRÁ
iWPABBA
^og mommu
Atjur 38.ooo stgr.
STGR.
A.t.h.
Takmarkað magn
Grænn
MörLinni 4 • 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510
WHAT DO VOU
THE MAN WHO HAS
EVER>'THINC...?