Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Frá Kristni Snæland:
FLESTUM er kunn sú staðreynd að
í hálku leita ökutæki gjarnan út úr
beygju. Á íslandi getum við átt von
á hálku 8 til 9 mánuði ársins.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir virð-
ast hönnuðir umferðarmannvirkja á
höfuðborgarsvæðinu miða mannvirk-
in við veðurfar í suðrænum sólarlönd-
um, því ekki er hægt að sjá að hönn-
unin vinni gegn hálkuslysum.
I sumar var unnið að breytingum
við illræmda^ hálkubeygju efst á
Höfðabakka. í villtri bjartsýni bjóst
ég við að nú ætti loks að laga beygj-
una og vinna gegn miðflóttaaflinu
með því að halla akbrautinni um
beygjuna þannig að hallinn ynni
gegn hálkunni og nær því stýrði bíl-
um um beygjuna í hálku. Vonirnar
brugðust. Ekki var hreyft við beygj-
unni en í staðinn kom ágætis útskot
fyrir hópferðabifreiðar rétt við
beygjuna (vissulega þarft verk).
í hálku og snjó hefur fjöldi bif-
reiða runnið uppá og yfir umferðar-
eyju þá er þarna skilur milli ak-
brauta og þá gjarnan sallað niður
skilti á eyjunni með tilheyrandi
skemmdum á ökutækinu, auk þeirr-
ar hættu að árekstur yrði við bifreið-
ar sem komu upp brekkuna.
Á öðrum stað í Breiðholti hafa
hönnuðir borgarinnar látið vinna
sömu beygjuna þrisvar, það er beygj-
an á Skógarseli upp brekkuna frá
íþróttasvæði ÍR. Þessi beygja er enn
vansköpuð enda hefur miðflóttaaflið
ekki verið viðurkennt enn af hönnuð-
um borgarinnar. Þetta sést einnig í
því að enn planta hönnuðir Rafmagn-
sveitu Reykjavíkur ljósastaurum ut-
anvert í beygjur, síðasta dæmið um
það má sjá í nýju umferðarmannvirkj-
unum við Elliðaár. Rafveitumenn
þykjast að vísu þekkja miðflóttaaflið
en skýra gerð sína með því að ljósa-
staurar séu settir utanvert í beygjur
Abyrgð
vegagerð-
armanna
samkvæmt evrópskum hraðbrautar-
staðli - hvaða erindi svo sem hann
á innanbæjar í Reykjavík við 8-9
mánaða hálku á ári. Einhveijum kann
að vera huggun að því að limlestast
í hálkuslysi á ljósastaur sem er í
veginum samkvæmt evrópskum
hraðbrautarstaðli. Ekki mér og þess
vegna mótmæli ég því að ljósastaurar
séu settir utanvert í beygjur. Einna
svakalegasta dæmið í staurafargani
rafveitunnar eru staurarnir tveir sem
eru rétt hlið við hlið þegar komið er
í krappasta hluta beygjunnar af
Reykjanesbraut á leið úr Breiðholti
og inn á Miklubraut. Þar sem öku-
maður er að ljúka hringnum og
ástæða til að auka hraða til þess að
auðvelda innkomu á Miklubraut er
beygjan kröppust og tveir staurar þar
við. Nú skal það játað að stundum
verður að setja staur utanvert við
beygju og látum svo vera að þama
sé um slíka undantekningu að ræða.
Þarna hefði þá átt að setja upp
vegrið sem hefði beint ökutæki sem
komið var í rennsli framhjá staurun-
um. Með réttum halla á akbrautinni
þarna væri líka miklu minni hætta
á hliðarrennsli og þá óhöppum.
Gatnakerfi á að hanna þannig að
sem minnst hætta sé á óhöppum,
og einnig að verði óhapp, þá verði
tjón og slys í lágmarki.
Ljós má setja á stálvíra frá möstr-
um sem standa fjarri akbraut, Ijósa-
staura á að setja innanvert í beygjur
samkvæmt íslenskum hálkureglum,
slysaskilti á, svo sem byijað er að
gera nú, að setja á mjúka og tiltölu-
lega auðbtjótanlega staura og ak-
braut á að halla um beygjur, svo sem
unnt er, til að vinna gegn hálkuslys-
um. Hugsunarhátturinn má ekki vera
sá sem stundum virðist: Þetta er
mátulegt á fíflin sem aka hugsunar-
laust um borgina.. Góðir hönnuðir
gera góð umferðarmannvirki - líka
fyrir klaufana.
ICRISTINN SNÆLAND,
leigubílstjóri.
Veggsamstæða kr. 69.000 (Beyki)
Kirsuber kr. 75.000,-stgr
Margir möguleikar á uppsetningu
Kommóður, mikið úival, gott verð
Svart / Hvítt / beyki / kirsuber
Skrifstofulínan
Gott urval af tiilvuborðum
Verðtó fe 3.500
Borðstofuhorð +
Beyki kr.78.000,- stgr.
Kirsuber kr. 86.000,- stgr.
Glerskápur / skenkur
Beykikr. 29.700,- stgr.
Kirsuber kr. 32.700,- stgr.
tlýjar gerðir sjónvarpsskápa
Svart / beyki/mahoni /kirsuber
Hirzlan
Auðbrekku 19 200 Kópavogur
Sími 564 5040 ■ Fax 564 5041
Kæru viðskiptavinir
Okkur þykir leitt að tjá ykkur að vegna breytinga verðum við að
loka staðnum í þrjá daga, frá mánudeginum 24. nóvember til
miðvikudagsins 26. nóvember. Við opnum aftur fimmtudaginn
27. nóvember kl. 11.45.
Við biðjumst innilegrar velvirðingar á þessari lokun en við
vonumst til að þið njótið staðarins enn betur eftir þessar
breytingar sem munu verða stór andlitslyfting fyrir staðinn.
. Starfsfólk Hard Rock Café .
k A
HAGSTOFA ÍSLANDS - ÞJÓÐSKRÁ
Er lögheimili yðar rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember.
Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum frá árinu 1991 er lögheimili
sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð
sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimil-
ismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lög-
heimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á
hverjum tíma.
Hvað er ekki föst búseta?
Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnu-
ferða og veikinda er ekki breyting á fastri búsetu og þar
af leiðandi ekki breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um
dvöl í gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistarskólum og
fangelsum.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá
flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til.
Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu íslands-
Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykjavík. Tilkynningar
skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðum.
Hagstofa íslands - Þjóðskrá
Skuggasundi 3,
150 Reykjavík,
sími 560 9800, bréfsími 562 3312.