Morgunblaðið - 23.11.1997, Page 34
$4 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ODDNÝ Erlendsdóttir dvelur
rúman áratug í Edinborg við
nám og störf og þar kynnist
hún kínverskum námsmanni, Kwei
Ting Sen, sem hún giftist árið 1917.
Fimm árum síðar flytja þau til Kína
með son sinn, Erlend Ping Hwa, og
setjast að í borginni Amoy. Um-
skiptin eru mikil fyrir Oddnýju og
þungt áfall ríður yfir er Erlendur
sonur hennar smitast af hundaæði
og deyr, sex ára gamall. Hjónin hafa
þá nýlega eignast annan son og fá-
um árum síðar fæðist þeim dóttir.
Sonarmissirinn er Oddnýju þung-
bær og henni gengur ekki vel að
laga sig að háttum tengdafjölskyldu
sinnar í Kína. Árekstrar eru óhjá-
kvæmilegir og með árunum koma
brestir í hjónaband þeirra Kwei
Tings. Dag einn er ókunn kona
stödd á heimili þeirra þegar Oddný
jjemur heim.
Önnur kona
Eftir kvöldmatinn fór Oddný með
börnin í háttinn. Hún gaf fóstrunni
frí og háttaði þau og svæfði. Þegar
þau voru sofnuð stóð hún upp og
horfði á þau með stolti og hamingju.
Jón Hai Hwa hafði sofnað með litla
bátinn með rauðu seglunum ofan á
hvítri sænginni og Signý Una hélt ut-
an um hvíta kínverska tuskubrúðu í
svefninum. Oddný kyssti þau á ennið
og læddist síðan á tánum niður í
setustofu þar sem dauf birtan af kín-
versku Ijóskeri myndaði dularfulla
skugga.
Hún var of spennt eftir atburði eft-
irmiðdagsins til að fara að sofa og
fékk sér sígarettu. Húsið var hljótt;
enginn virtist vera á ferli. Engir
spilafélagar voru í heimsókn hjá
Kwei Ting og engir söngleikir heyrð-
ust úr herbergjum Unu. Hún velti
fyrir sér hvort konan væri farin eða
myndi gista yfir nóttina. Hún gat enn
ekki losað sig við hina óútskýranlegu
ónotatilfinningu sem hafði gripið
hana um leið og þær voru kynntar.
Eftir dálitla stund fór hún á stjá.
Hana langaði til að ræða við Sjá-Mei
um trúlofun Mei-Mei og reyna um
!eið að fá frekari upplýsingar um
Tsjang Li. Hún gekk fram í setu-
stofu fjölskyldunnar en þar var eng-
inn. Hún hringdi bjöllunni og Yliang
birtist hljóðlaust eins og skuggi.
„Yliang, hvar eru Sjá-Mei og Mei-
Mei?“
„Þær fóru í heimsókn ásamt Unu,“
sagði Yliang og hneigði sig.
„En Tzu?“
„Eg veit ekki hvar hann er, frú.“
„Þakka þér fyrir, Yliang, þú mátt
fara.“
Yliang hneigði sig og hvarf. Ónota-
tilfinningin kom aftur og hríslaðist
um Oddnýju af fullum krafti. Hún
fékk sér aðra sígarettu í auðri setu-
stofunni þar sem daufir lampamir
mynduðu dansandi skugga. Þeir
höfðu óþægileg áhrif á Oddnýju. Hún
gat ekki fest hugann við bók og fann
sér ekkert til að gera, svo hún ákvað
að reyna að finna eiginmann sinn.
Hún fór fram á gang og læddist
framhjá gestaherberginu til að vekja
ekki Tsjang Li, ef hún væri þar enn.
Þá heyrði hún lágt muldur.
Einhver var inni í gestaherberg-
inu. I fyrstu heyrði hún lágværa
kvenmannsrödd; síðan rödd sem hún
þekkti einkar vel.
Grunurinn staðfestur
Kwei Ting var inni í herberginu.
Oddný vissi að innan við dymar
vora þykk, purpurarauð flauelstjöld.
Hjartað barðist svo harkalega í
brjósti hennar að hana svimaði og
maginn herptist saman í sáran hnút.
Henni fannst hún ekki vera með
sjálfri sér af ótta og vanlíðan. En
hún varð að vita vissu sína. Hún opn-
aði dymar hljóðlaust og gægðist í
gegnum tjöldin.
Tsjang Li lá í rúminu með hægri
höndina vafða fínu líni og glært glas
með ópíum stóð á náttborðinu. Kwei
Ting sat við rúmstokkinn og lét blíð-
lega að henni; kyssti andlit hennar
og hendur. Oddný heyrði ástarorð
fara á milli þeirra. Hún stóð eins og
njörvuð niður og gat ekki hreyft sig.
Fyrst gat hún ekki trúað eigin aug-
um. Kwei Ting, sem var svo form-
fastur og siðavandur! Síðan gerði
hún sér grein fyrir að hún hafði búist
við þessu lengi en neitað að trúa því.
Hún var í rauninni ekki hissa þar
sem sambandið á milli þeirra Kwei
Tings hafði ekki verið sérlega ástríkt
um tíma, heldur fyrst og fremst vin-
skapur. Það kom samt ekki í veg fyr-
ODDNÝ Erlendsdóttir frá Breiðabófstað var haldin brennandi útþrá
sem leiddi hana til Edinborgar árið 1909, þar sem hún kynntist kín-
verskum námsmanni og hélt með honum yfir hálfan hnöttinn til Kína.
Þar kynntist hún töfrum og fegurð framandi menningarheims en
einnig átökum og grimmd; hún átti margar hamingjustundir í þessu
ævintýralandi en mátti einnig reyna missi, svik og sorg, segir í
bókarkynningu.
Kínverskir
skuggar
Kínverskir skuggar er örlagasaga Oddnýj-
ar Erlendsdóttur frá Breiðabólsstöðum á
Alftanesi sem átti viðburðaríkari og sér-
stæðari ævi en flestar íslenskar samtíðar-
-----------7-------------
konur hennar. Arið 1909 hélt hún út 1
heim, tvítug að aldri, og dvaldi fjarri ætt-
jörðinni í nær þrjá áratugi; fyrst í
Skotlandi og síðan hinum megin á hnettin-
um, í Kína, föðurlandi mannsins sem hún
giftist. Sonardóttir hennar, Oddný Sen,
dregur í bók sinni upp persónulega mynd
------------------7------
af þessari aldamótastúlku af Alftanesinu
sem örlögin báru yfír höf og lönd
ir að henni fannst jörðin skjálfa und-
ir fótum sér.
Mitt í allri þessari vanlíðan upp-
götvaði hún að Kwei Ting var í raun
haldreipi hennar í Kína, styrkurinn
sem hún hafði alla tíð reitt sig á eftir
flutninginn frá Vesturlöndum og lát
Erlendar. Hún fann til hryllings þeg-
ar hún gerði sér grein fyrir því hvað
hún hafði leyft sér að verða ósjálf-
stæð.
Hún fann áhrifin af áfallinu breið-
ast um líkamann eins og doða. Hún
lokaði dyranum ofurhægt og tók síð-
an til fótanna. Hún flúði til herbergis
síns og lét fallast á rúmið.
Leitað til gyðju miskunn-
seminnar
Um nóttina, þegar hún festi loksins
svefh, dreymdi hana að hún væri
heima á Breiðabólsstöðum. Hún
dansaði um stofuna meðan skugg-
arnir lengdust og klukkan tifaði, glöð
og hamingjusöm vegna þess að faðir
hennar ætlaði að kaupa handa henni
harmónikku, sem hana hafði svo
lengi langað til að eignast. I draumn-
um sá hún föður sinn koma inn í hús-
ið og sjálfa sig í fangið á honum og
spyrja:
„Elsku pabbi minn, hvar er nikkan
mín?“
„Leitaðu í sekkjunum," svaraði
hann. Hún sá sig setjast á gólfið og
leita að harmónikkunni innan um
mjöl og járnvarning. Hún sá föður
sinn standa yfir sér með stríðnis-
bros á vöram. Þá skildist henni að
hann hafði svikið hana. Hún spratt á
fætur og hrópaði:
„Þú sveikst mig! Þú sveikst mig!“
EIGINMAÐURINN Kwei Ting ODDNÝ með frumburðinn Er-
Sen gat ekki sagt skilið við lend Ping Hwa, sem hún missti í
fornar siðvenjur. Kína af völdum hundaæðis.
FJÖLSKYLDAN á Breiðabólstöðum á Álftanesi.
HEIMILI Sen-hjónanna í Amoy i Kína.