Morgunblaðið - 23.11.1997, Page 42

Morgunblaðið - 23.11.1997, Page 42
42 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 MINNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ > * V Elskulegur faðir okkar og bróðir, HAFSTEINN GUÐMUNDSSON prentari, Fannaborg 1, lést sunnudaginn 16. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánu- daginn 24. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Rannveig og Þórunn Hafsteinsdætur, Bjarni Bender, Guðbjörg G. Hornböl, Bragi H. Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Elísabet B. Guðmundsdóttir, Edda S. Guðmundsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANNAJOENSEN, Eyjahrauni 31, Þorlákshöfn, áður búsett í Vestmannaeyjum, lést í Noregi miðvikudaginn 19. nóvember. Friðbjörg Joensen, Bogi Leifs Sigurðsson, Jenný Joensen, Jógvan Daníel Joensen, Eva Joensen, Ruth Dyresen, Arve Dyresen, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDÍNA Þ. BJÖRNSDÓTTIR (ína), hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Dunhaga 20, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 25. nóvember kl. 13.30. Ólafur Th. Ólafsson, Gyða Sveinbjörnsdóttir, Jónína Björg Gísladóttir, Bryndís Gísladóttir, Eyþór Jónsson, Kristín E. Gísladóttir, Örn Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkirtil allra þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns og þróður okkar, ARNLJÓTS BALDURSSONAR Sérstakar þakkir færum við starfsfólki nýrnadeildar Landspítalans og öðru starfsfóiki. Björk Berglind Arnljótsdóttir, Edda Baldursdóttir, Jón Baldursson, Klara Baldursdóttir, Björk Baldursdóttir, og fjölskyldur. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar, syst- ur, barnabarns og frænku, ÁLFHEIÐAR ÁSTMARSDÓTTUR, Hraunteigi 19. Ástmar Örn Arnarsson, Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, Björn Ástmarsson, afar, ömmur og fjölskyldur. + Við hjónin viljum þakka ykkur öllum fyrir stuðning, framlag og hlýhug í okkar garð við fráfall dóttur okkar, GUÐBJARGAR MARÍU. Guð blessi ykkur öll. We, the couple, wish to thank everybody who have supported us and shared their sympathy for the death of our dear daughter, Guðbjörg María. God bless you all. Guðbrandur R. Axelsson, Margret Andrelin og fjölskylda. SVEINN ÓLAFSSON + Sveinn Ólafsson var fæddur á Eskifirði 18. sept- ember 1919. Hann lést í Kaliforníu 18. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Ingvarsdóttir Pálmasonar alþm. og Ólafur Sveins- son, sonur Sveins Ólafssonar alþm. frá Firði í Mjóa- firði. Sveinn heit- inn var næstelstur 13 systkina, sem ólust upp á Eskifirði, en einn drengur dó á barnsaldri. Tíu systkinanna eru nú á lífi. Sveinn fluttist til Reykjavík- ur 1935. Hinn 2. júní 1943 kvæntist Sveinn Astu Lóu Bjarnadóttur og sigldu þau daginn eftir með Dettifossi til New York. Þaðan fóru þau til Kaliforniu og hafa búið þar síðan. Börn þeirra eru fjögur: 1) Ólafur, kvæntur Janet Williams. Þau búa í Scottsdale, Arizona, og eiga tvö börn, Bud og Heat- her, og tvo barna- börn. Hin börnin þijú búa öll í Kali- forníu. 2) Sveinn Eric, ókv., á heima í Emeryville. 3) Gréta Ingibjörg á heima í Sonora, gift Jeff Manke. Þau eiga eina dóttur, Nínu. 4) Katr- ín Guðrún býr í Sebastopol. Sambýlismaður hennar er Marshall Goldberg. Þau eiga tvær dætur, Emmu og Erin. Bálför Sveins fór fram í Bandarikjunum og mun askan verða flutt til greftrunar á ís- landi. Vinur minn Sveinn Ólafsson hef- ur kvatt okkur, hafði verið veikur síðustu mánuði. Við Guðrún sökn- um hans sárlega, og svo mun um marga. Þau hjónin Sveinn og Ásta Lóa Bjarnadóttir hafa dvaldið í Kaliforn- íu hvað lengst allra íslendinga að- fluttra þangað um og eftir stríð. Fyrstu árin bjuggu þau í Berkeley- borg, voru þar leiguliðar, en svo réðust þau í húsakaup í Orinda-bæ og áttu þar heimili upp frá því. Þar ólu þau upp börn sín fjögur, tvo syni og tvær dætur, öll hið mesta afbragðsfólk. Sveinn var gagnfræðingur að heiman og aflaði sér leyfis til að standa fyrir húsbyggingum eftir að vestur kom. Var um skeið við nám í verkfræðideild Berkeley-háskóla. Tók hann að sér þó nokkur verk á því sviði og þótti vandvirkur vel. Byggði nokkur hús í Oakland, Or- inda og víðar. Geta má þess að ís- Btómastofa Friðfitms SuðurlandsbrautlO 108 Reykjavík • Sími 5531099 Opið öll kvöld til kl. 22 - cinnig um hclgar. Skrcytingar fyrir öll tílefni. Gjafavörur. lendingar voru athafnasamir við húsbyggingar á San Francisco- svæðinu á millistríðsárunum og lengur. Má telja að með Sveini heitnum hafi fallið frá einhver hinn síðasti í þeirri grein. Sveinn var frjálslyndur umbóta- maður, glaðsinna og skemmtilegur. Honum var um nokkurt árabil falin formennska í Islendingafélagi Norður-Kalifomíu, og skilst mér að félagslífið hafi verið blómlegt á þeim árum. Þegar fram liðu stundir og tölvan gerðist handhægur gripur við gagnavinnslu, tók Sveinn hana í þjónustu sína við skráningu á ætt- fræðiupplýsingum, en það svið varð honum hugfólgnara, þegar árin liðu. Sveinn átti til merkisfólks að telja í báðar ættir, og fyrst varð honum vitaskuld fyrir að leggja sig eftir skyldfólki aftur í aldir. Föðurættin var kennd við bæinn Fjörð í Mjóa- firði, en móðurættin hins vegar húnvetnsk. Afar hans báðir voru alþingismenn á sama tíma, þ.e. á fyrsta og öðrum fjórðungi aldarinn- ar, Sveinn Ólafsson í Firði og Ing- var Pálmason frá Litla-Búrfelli í Austur-Húnavatnssýslu. Sveinn heitinn kvaðst vera kominn með upp undir 10 þúsund mannanöfn á tölvudiska síns. Er þar saman kom- ið mikið efni, sem getur orðið uppi- staða í markvert ættfræðirit. Er skyldfólki hans og venslafólki trú- andi til að gera því verkefni fullnað- arskil til útgáfu. Eins og nærri má geta fór ætt- fólk eiginkonunnar ekki varhluta af skráningarstarfi Sveins. Ásta Lóa á rætur vítt um Suður- og Crfisclrykkjur GAPI-mn Sími 555-4477 + Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi, uppeldisbróðir og mágur, ÁSGEIR KRÖYER, Krummahólum 4, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 24. nóvember kl. 15.00. Anton Kröyer, Elín Hekla Klemenzdóttir, Ásgeir Kröyer Antonsson, Eva Ólafsdóttir, Heiðdís Helga Antonsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Hulda Þorgeirsdóttir, barnabarnabörn og vandamenn. Suðvesturland, og eru hennar ættir vel metnar. Nokkur síðustu árin eftir að eg fór að dveljast tíma og tíma í Kali- forníu, gat eg gaukað Morgunblað- inu að þeim hjónum, úr því að eg fékk það sent þangað vestur. Þar í blaðinu náði Sveinn í þó nokkrar upplýsingar fyrir fræðagrúsk sitt, þökk sé minningargreinunum. Eitt sinn kvað eg vísukorn um Svein á þessa leið: I Orinda býr Islendingur efldur margri dyggð. Og enginn meiri ættfræðingur er í þeirri byggð. Bærinn Orinda, einn hinna minni í grennd San Francisco-flóans, er aðskilinn frá flóasvæðinu af all- bröttum hæðum eða fellum. Þétt- býli staðarins Iiggur í dalverpi aust- an við fellin, en íbúðarhús dreifast um hæðirnar, og er þar víða skemmtilegt útsýni. Hús þeirra hjónanna Ástu Lóu og Sveins stend- ur allhátt. Er góður spölur þangað upp eftir neðan frá kauptúninu og vegurinn bugðóttur mjög. Þessa leið ók Sveinn næstum svo greitt sem á jafnsléttu væri, því að hann þekkti hana út í æsar og var góður bílstjóri. Skóglendi er allt um kring á þessum slóðum, og höfðu þau hjónin yndi af ræktun blómjurta og aldintijáa. Mjög voru þau hjónin gestrisin, og var gaman að sækja þau heim. Kunnu þau frá mörgu að segja eft- ir hina löngu dvöl vestra og fjöl- þætt kynni af íslendingum, sem þarna dvöldu lengur eða skemur, sumir námsmenn í háskólum þar um slóðir. Hendingin í kvæði Gríms Thoms- ens um íslenzka karlmennsku, „þéttir á velli og þéttir í lund“, átti sérlega vel við um Svein Olafsson, og þegar eg kom að rúmi hans á hjúkrunarhæli um miðjan október, fór ekki á milli mála að næsta hend- ing „þrautgóðir á raunastund" var ekki síður viðeigandi. Hann sagði að nú væri svo komið að hann ætti skammt eftir ólifað og væri ekki um það að fást. Handtak hans var þó furðu þétt, en aftur á móti var hinn viðfeldni og karlmannlegi róm- ur hans orðinn annar en var. Svo fór að Sveinn heitinn lézt á þriðja degi eftir fund okkar. Telja verður það ávinning að hann losn- aði við lengra veikindastríð, sem hlaut að tapast. Með honum er fallinn frá hinn mætasti maður, er verið hafði góð- ur fulltrúi íslendinga á erlendri grund langa hríð og lætur eftir sig minningar, sem lengi lifa meðal ættingja og vina. Við Guðrún vottum eiginkonu hans, Ástu Lóu Bjarnadóttur, og börnum þeirra innilega hluttekn- ingu, svo og systkinum hans. Baldur Pálmason. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áratöng reynsla. Sverrír Etnarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 551 3300 Attan sótarhrínginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.