Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 2
2 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
h
Formaður stjórnarnefndar Ríkisspítala
Beinmergs- og nýrna-
flutningar undirbúnir
Leikur með
Helsingborg
HILMAR Björnsson, sem um ára-
bil hefur leikið knattspymu fyrir
KR, hefur skrifað undir þriggja
ára samning við sænska úrvals-
deildarliðið Helsingborg.
Sænska liðið og vesturbæjarfé-
lagið eiga eftir ganga frá samningi
um sölu og félagaskipti, en Morg-
unblaðið hefur heimildir fyrir því
að Helsingborg sé reiðubúið að
greiða sömu upphæð fyrir Hilmar
og KR fór fram á þegar til stóð að
hann færi til Tromso á haustdög-
um. Er því líklegt að félögin gangi
frá sölunni á morgun, mánudag.
Gangi það eftir má gera ráð fyiir
því að átta Islendingar verði í at-
vinnumennsku í sænsku úrvals-
deildinni á næsta ári. Níu íslenskir
knattspyrnumenn eru nú samn-
ingsbundnir liðum í Noregi og einn
í Danmörku.
Hefur ekki
borist sam-
göngu-
ráðuneyti
„ÁLIT samkeppnisráðs virðist
hafa borist öllum fjölmiðlum en það
hefur ekki borist samgönguráðu-
neytinu," sagði Halldór Blöndal
samgönguráðherra í gær, aðspurð-
ur um skoðun hans á því áliti sam-
keppnisráðs að innheimta elds-
neytisgjalds raski samkeppni í
áætlunarflugi til Norður-Ameríku.
Vildi ráðherrann ekki tjá sig
frekar um málið.
Braust inn en
komst ekki út
MAÐUR braust inn í Þjóðleikhús-
kjallarann aðfaranótt laugardags
og var stáðinn þar að verki. Hafði
hann komist inn með einhverjum
hætti og þegar styggð kom að
manninum komst hann ekki út, all-
ar dyr voru harðlæstar og gluggar
of þröngir. Lögreglan hafði spurnir
af ferðum kauða og gómaði hann á
staðnum.
Ályktun Hlífar
Atvinnulausir
fái desember-
uppbót
STJÓRN Verkamannafélagsins
HJífar í Hafnarfirði skorar á
stjómvöld að hlutast til um að
greidd verði jólauppbót á atvinnu-
leysisbætur, segir í ályktun sem
samþykkt var á stjómarfundi fé-
lagsins í gær.
I ályktuninni segir einnig að aðrir
launamenn hafi samningsbundinn
rétt til desembergreiðslu og að það
sé óviðunandi að atvinnulausir njóti
ekki hliðstæðra réttinda því ekki
séu atvinnuleysisbætur það háar.
" +
Akvörðun um
tryggingamál
eftir helgi
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segir að bréf dómsmálaráð-
herra um að hann beiti sér fyrir því
að nefnd, sem vinnur að endur-
skoðun skaðabótalaga, fái upplýs-
ingar um tjónakostnað trygginga-
félaganna vegna 921 máls frá árinu
1993 sé til umfjöllunar í ráðuneyt-
inu.
Bréfinu verði svarað eftir helg-
ina, en á þessari stundu sé ekki
hægt að segja til um hvemig málið
verði afgreitt.
FJÖLGUN sjúklinga á Ríkisspítöl-
um árin 1993 til 1997 var 17,3% en á
sama tíma hefur kostnaður á hvem
sjúkling lækkað um 12,3% og
rekstrarkostnaður hækkað um 2,9%
á þessum tíma. I undirbúningi er að
unnt verði að annast hérlendis bein-
mergs- og nýrnaflutninga. Þetta var
meðal þess sem Guðmundur G. Þór-
arinsson, formaður stjómarnefndar
Ríkisspítala, dró fram úr ársskýrslu
RQdsspítala á ársfundi á fóstudag.
Vigdís Magnúsdóttir forstjóri
setti fundinn og sagði fagnaðarefni
að nú væri bamapítalinn í höfn og
sagði að þar hefðu margir lagst á
eitt. Þakkaði hún bæði heilbrigðis-
ráðherra og Hringskonum fyrir
þátt þeirra í framgangi málsins.
Guðmundur G. Þórarinsson sagði
að samkvæmt talningu á árinu
kæmu daglega um sex þúsund
manns ýmissa erinda á Landspítala-
lóðina og 3.750 bílar sem segði tals-
vert um þá þjónustu sem þar væri
veitt. Stöðugilda hefur fækkað um
um 4,4% á síðustu fimm árum og
starfsmönnum fækkað um 116 á
VÖRUSÝNINGAFYRIRTÆKIÐ
Sýningar ehf. er nú með þrjár stór-
ar sýningar í undirbúningi á þrem-
ur mismunandi sviðum, samskipt-
um, sjávarútvegi og landbúnaði.
Ekki hefur verið haldin landbúnað-
arsýning hér um nokkurt skeið.
„Við erum nú að kanna mögu-
leika á því að halda landbúnaðar-
sýningu í Reykjavík árið 2000 í
Laugardalnum," sagði Jón Hákon
Magnússon, framkvæmdastjóri hjá
Kynningu og markaði, sem stofn-
aði Sýningar ehf. ásamt íslenskum
iðnaði og fleiri aðiljum.
Sýningar ehf. hyggjast standa
íyrir samskiptasýningu í Laugar-
dalshöll haustið 1998 þar sem
prentiðnaðar-, hugbúnaðar- og
tölvufyrirtæki munu sýna fram-
leiðslu sína.
Jón Hákon nefndi einnig sjávar-
útvegssýninguna Fishtech, sem til
stæði að halda haustið 1999, en
ekki hefði þó verið tekin ákvörðun
þessum tíma. Fjöldi sjúklinga á
hvert stöðugildi hefur aukist um
tæp 23% og sagði Guðmundur að
stjómendur Ríkisspítalanna væru
upp með sér af þessum tölum sem
sýndu að vel hefði verið haldið á
spöðunum varðandi hagræðingu og
þær sýndu einnig hversu mikið
starfsfólkið hefði lagt sig fram.
Af nýjum verkefnum sem nú er
unnið að sagði Guðmundur að stefnt
væri að því að koma upp innritunar-
miðstöð sem myndi bæta skipulag
og rekstur, í undirbúningi væri að
taka hér upp beinmergsflutninga en
10-15 Islendingar þyrftu á þeim að
halda árlega, svo og nýmaflutninga
en 5-6 íslendingar þurfa á þeim að
halda á hverju ári. Þá sagði hann að
í undirbúningi væri að flytja skrif-
stofu Ríkisspítalanna frá Rauðarár-
stíg og nær Landspítala sem þýða
myndi hagræðingu.
Lyfjaútboð spöruðu
40 milljónir króna
Guðmundur nefndi að aðstaða all-
margra deilda hefði verið bætt og
um það hver héldi hana. Hann
sagði að landbúnaðarsýningin yrði
sú fyrsta í nokkrun tíma hér á
landi og yrði hún haldin í júlí árið
2000.
„Þar verður lögð áhersla á land-
búnaðinn, tengsl borgar og strjál-
býlis og að byggja upp skilning og
stækkuð, m.a. glasafrjóvgunardeild-
ar, gjörgæslu, bráðamóttöku og
göngudeilda, augndeild hefði verið
flutt frá Landakoti, hjartarann-
sóknastofu hefði verið komið á fót,
svo og gigtarrannsóknastofu, svo
dæmi séu tekin. Þá sagði hann sam-
vinnu um útboð lyfja hafa sparað
um 40 milljónir króna.
Guðmudur sagði jafnan nokkra
óvissu um ýmsa þætti í rekstri Rík-
isspítalanna, ekki væri hægt að
skipuleggja allt þegar atriði eins og
fjöldi sjúklinga eða óvænt atvik
vegna slysa kæmu sífellt upp. Þá
sagði hann vinnutímatilskipun ESB
valda nokkurri óvissu og að nýleg
lög um réttindi sjúklinga gætu leitt
til kostnaðarhækkana.
Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri flutti erindi um hjúkmn á
Landspítala við aldahvörf, stiklaði á
nokkmm sögulegum atriðum og
sagði markmið hjúkmnar enn hin
sömu, þekkingu, kærleika og virð-
ingu fyrir sjúklingnum. Þá vom
nokkrir starfsmenn Ríkisspítala
heiðraðir fyrir farsæl störf.
gagnkvæma virðingu milli íbúa
borga og sveita,“ sagði Jón Hákon.
„Um svipað leyti verður landsmót
hestamanna haldið í Reykjavík og
þangað koma tíu til tólf þúsund út-
íendingar þannig að það yrði gífur-
leg landkynning, kæmu þeir á
landbúnaðarsýningu."
Morgunblaðið/Kristinn
MEÐAL þeirra sem fluttu ávarp á ársfundi Ríkisspítala voru Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Siv
Friðleifsdóttir sem kynnti úrslit í samkeppni um hönnun nýs barnaspftala og Guðmundur G. Þórarinsson sem
rakti nokkur atriði ársskýrslunnar.
Undirbúa landbúnað-
arsýningn árið 2000
fimmunnar
►Upplýsinga- og menningarmið-
stöð nýbúa hefur verið að slíta
barnsskónum undanfarin rúm
fjögur ár. Starfsemin hefur verið
að margfaldast og festa sig í sessi.
/10
Sáttahugur í Castro
fyrir heimsókn páfa
►Fidel Castro Kúbuleiðtogi hefur
ákveðið að fleiri katólskum prest-
um og nunnum skuli heimilað að
starfa á eyjunni. /12
Af reksverk deyj-
andibyggðar
►Fimmtíu ár eru nú liðin frá
björgunarafrekinu við Látrabjarg,
en vera má að sagan verði lífsseig-
ari en byggðin. /26
Stendur og fellur
með starfsmönnunum
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Magnús
Friðgeirsson í Hljómco. /30
B
► 1-32
Stálístál
►Hnífasmiðurinn gefur ekkert
eftir. Úr dýrahornum og stálgormi
af bílhræi skal verða til hnífur og
úrleðrinu slíður. /1&16-17
Verðugirfulltrúar
►Næstkomandi laugardag halda
hér tónleika útsendarar Wu-Tang
klíkunnar bandarísku, áhrifamestu
rappsveit sögunnar. /4
Öðruvísi sinfóníu-
hljómsveit
►Ef hljóðfæraleikaramir eru
ánægðir er hljómurinn fallegur.
/12
FERÐALÖG
► 1-4
ítalska leyndar-
málið í London
► Að detta niðrá gott veitingahús
í heimsborginni. /2
Pitztal
►Skíðasvæðið á jöklinum bjargaði
afkomu dalsins. /4
BÍLAR____________
► 1-4
RallundurToyota
► Bílaframleiðendur eyða hundr-
uðum milljóna kr. í rallakstur á
hveijum ári. /2
Reynsluakstur
►BMW 750i - hið fullkomna öku-
tæki. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-16
Hitt húsið fyrir-
mynd Breta
►Starfsþjálfun Hins hússins teyg-
ir anga sína víða. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Frétúr 1/2/4/8/bak Brids 50
Leiðari 32 Stjömuspá 50
Helgispjall 32 Skák 50
Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54
Skoðun 34&36 Útv./sjónv. 52,62
Minningar 40 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Dsegurtónl. 20b
Bréf til blaðsins 48 Mannlífsstr. 26b
Hugvekja 50 Gárar 26b
ídag 50
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
i
I