Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 23
Samkeppnisráð ákvarðar um rekstur hótela í eigu Flugleiða og FI
FRETTIR
Heimilt að stofna
til hótelfélags
SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki
ástæðu til að leggjast gegn því að
Flugleiðir hf. stofni hlutafélag sem
yfirtekur rekstur hótela sem eru í
eigu Ferðaskrifstofu íslands og
Flugleiða. Þetta kemur fram í
ákvörðunarorðum samkeppnisráðs
sl. fimmtudag.
Samkeppnisráð setur þó ákveðin
skilyrði gagnvart Flugleiðum með
þeim rökstuðningi að tryggja þurfi
að þær forsendur haldi sem gerðu
ráðinu kleift á sínum tíma að heim-
ila yfirtöku Flugleiða á Ferðaskrif-
stofu íslands, m.a. að stjórnar- og
starfsmönnum ferðaskrifstofa sem
Flugleiðir eða dótturfélög þess eiga
sé óheimilt að sitja í stjórn hótelfé-
lagsins. Viðskipti Flugleiða og hót-
elfélags skulu verða eins og við-
skipti milli óskyldra aðila og Flug-
leiðum er óheimilt að veita hótelfé-
laginu mikilvægar viðskiptalegar
upplýsingar sem nýst geti í dagleg-
um rekstri nema keppinautum
standi sömu upplýsingar til boða.
Samkeppnisráð og Flugleiðir
gerðu með sér sátt í janúar sl. í til-
efni af yfírtöku Flugleiða á 100%
eignarhlut í Ferðaskrifstofu Islands
hf. í ákvörðunarorðum Samkeppn-
isráðs á þeim tíma kom m.a. fram
að óheimilt væri að færa einstaka
starfsþætti ferðaskrifstofunnar til
félaga sem Flugleiðir hefðu virk
yfirráð í. í síðasta mánuði sendu
Flugleiðir svo erindi til ráðsins þar
sem vísað var til þess að áformað
sé að stofna sérstakt félag í eigu
Flugleiða sem ræki hótel í eigu fé-
lagsins og Ferðaskrifstofu íslands.
Var þess farið á leit við Samkeppn-
isráð að skilyrðið sem sett var í jan-
úar verði endurskoðað eða veitt sér-
stök undanþága frá því.
Samkeppnisráð telur ekki
ástæðu til að leggjast gegn stofnun
félags um rekstur hótelanna. „Telja
verður að þessi aðgerð geti haft
jákvæð áhrif þar sem aðgreining
hótelrekstrarins frá öðrum rekstri
Flugleiða og Ferðaskrifstofunnar
leiðir til þess að hótelreksturinn
verður gagnsærri. Þar að auki get-
ur sú hagræðing sem af þessu kann
að leiða haft í för með sér betri
nýtingu á framleiðsluþáttum
þjóðfélagsins, sbr. l.gr. sam-
keppnislaga," segir m.a. í ákvörð-
unarorðunum.
Jólabjallan 1997
Handmálaður safngripur
úr postulíni kr. 1.980,-
HLUTABRÉFASJÓÐURINN
AUÐLINDHF.
Auðlindarbréf keypt 18/11 '96
Kaupverð (hámark sem nýttist til skattafrádráttar) 260.000
Gengishagnaöur (umfram arð og þóknun) 14.786
10% arður (greiddur út I júll '97) 12.322
Skattafsláttur (endurgreiddur I ágúst '97) 85.030
Eign um mánaðamót nóv./des. 1997 372.138
Síðastliðin sjö ár hefur Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf. skilað bestu
ávöxtun sambærilegra sjóða á Islandi. Sjóðurinn einkennist af virkri
stýringu á innlendu hlutabréfasafni og umtalsverðri eign í erlendum
verðbréfum. Ávallt er leitast við að draga úr sveiflum á gengi og
minnka áhættuna. Árið 1997 héldu eigendur Auðlindabréfa áfram að
njóta betri ávöxtunar en þeir sem bundu fé I öðrum hlutabréfasjóðum.
Tryggðu þér skattafslátt með því að kaupa Auðlindarbréf fyrir áramót
og sjáðu góðærið í hendi þér!
Boðgreiðslur VISA/EURO -afgreiðsla með einu símtali.
SPARISJÓÐIRNIR
KAUPÞING HF
Sölustaðir: Sparisjóðirnir um land allt. Kaupþing Norðurlands hf. Kaupvangsstræti 4, slmi 462 4700. Kaupþing hf. Ármúla 13A, sími 515 1500
„Þetta byrjaði
allt þegar ég
keypti hlutabréf
í Auðlind..."
Ég gafst upp á að bíða eftir góðærinu.
Fyrir jólin í fyrra keypti ég hlutabréf í
Auðlind og þá fór ég loksins að sjá
breytingar. Auðlindarbréfin gáfu arð, veittu
skattafslátt og hækkuðu í verði.
Á einu ári sá ég eignina aukast um 43%!
Eftir að ég eignaðist Auðlindarbréfin hef
ég meira á milli handa og mér er sem ég
sjái mig eftir nokkur ár ef vöxturinn heldur
svona áfram!
Vönduð
kristalsglös
15%
jólaafsláttur
er veitturaf öllum
vörum yjir 2.000,- kr.
gegn staögreiöshi
SILFURBÖÐIN
Kringlunni Sími: 568 9066