Morgunblaðið - 14.12.1997, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997
MORGUNBLADIÐ
■*+'*+*+
•tiM WM44I
■ -•■■XXX&li+ííií-.
MmæB
Morgunblaðið/Ásdís
MAGNUS G. Friðgeirsson, eigandi Hljómco, söðlaði um fyrir tæpum þremur árum og fór út í eigin rekstur eftir að hafa
unnið fyrir Samband íslenskra samvinnufélaga í 21 ár.
Stendur og fellur
með starfsmönnunum
eftir Guðrúnu Hólfdanardótlur
ÞEGAR Magnús tók við
forstjórastarfinu hjá
Iceland Seafood voru að-
stæður erfiðar hjá fyrir-
tækinu vegna deilna fyrrverandi
forstjóra og stjómarformanns fyr-
irtækisins.
Fljótlega eftir að Magnús tók við
starfinu þá sögðu nokkrar af helstu
veitingahúsakeðjunum sem voru í
viðskiptum við Iceland Seafood
upp samningum við fyrirtækið
vegna hvalveiðimálsins og Iceland
Seafood varð að endurskipuleggja
framleiðslu sína upp á nýtt og leita
nýrra viðskiptavina. Þegar Magnús
tók við starfi forstjóra hjá Iceland
Seafood hafði fyrirtækið verið rek-
ið með tapi en ári síðar var það far-
ið að skila hagnaði.
Magnús segir að þau sex ár sem
hann starfaði hjá Iceland Seafood
hafi verið ákaflega skemmtilegur
kafli á starfsferlinum og hann hafi í
raun verið helmingi lengur þar en
til stóð. „Það kom ekki til að við
ílentumst lengur en við gerðum í
Bandaríkjunum þar sem við vildum
að bömin okkar fengju íslenska
framhaldsskólamenntum og við
gátum ekki hugsað okkur að
tvístra fjölskyldunni. Eins hafði
orðið mikil breyting á afkomu fé-
lagsins og tími til kominn að huga
að nýjum verkefnum.“
Þróun Sambandsins farsæl
Að sögn Magnúsar kom ekki til
að hann færi aftur að starfa fyrir
SÍS eftir Bandaríkjadvölina enda
höfðu orðið mikil umskipti í reksri
þess frá því að hann tók við for-
stjórastarfinu hjá dótturfélagi Sam-
bandsins í Bandarikjunum. „Ég tel
að sú þróun sem varð á Samband-
inu hafi verið ákaflega farsæl að því
marki að eftir uppstokkunina þurfti
hver deild að standa á eigin fótum
án stuðnings frá móðurfélaginu.
Starfið varð að því leyti faglegra og
beinskeyttara.“
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
► Magnús G. Friðgeirsson fæddist í Reykjavík 1950. Hann lauk
Samvinnuskólaprófí 1971, prófi í „Business Administration"
frá London School of Foreign Trade 1973. Að loknu námi hóf
hann störf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga þar sem
hann var sölustjóri sjávarafurðadeildar til ársins 1983. Magnús
var framkvæmdastjóri búvörudeildar SÍS 1983-1988. Þá flutt-
ist hann ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna þar sem hann
gegndi starfí forstjóra Iceland Seafood Corporation, dótturfé-
lags SÍS, til ársins 1994. Eftir að hafa starfað fyrir SÍS um 21
árs skeið söðlaði hann um og fór á þriggja mánaða námskeið
fyrir reynda stjórnendur í Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.
Síðan lá leiðin heim til íslands á nýjan leik og keypti hann fyr-
irtækið Hljómco hinn 1. apríl 1995 og hefur rekið það síðan.
Magnús er kvæntur Sigrúnu Davíðsdóttur skurðhjúkrunar-
fræðingi og eiga þau þijú börn.
FRIÐGEIR Jónsson, Ingþór Ásgeirsson og Arnór Hannesson, starfs-
menn Hljómco, ráða ráðum si'num en desember er mesti annati'minn
í fyrirtækinu.
Námskeiðið sem Magnús tók hjá
Harvard-háskóla eftir að hann
hætti störfum hjá Iceland Seafood
er ætlað fólki með 15-20 ára
stjómunarreynslu. Að sögn Magn-
úsar er algengt að stórfyrirtæki
sendi starfsmenn í yfirmannsstöð-
um á námskeiðin, m.a. þegar þeir
eru færðir til, í því skyni að auka
víðsýni þeirra þegar þeir eru ráðn-
ir til nýrra verkefna. „Fyrirtæki
eins og General Motors, AT&T,
Hewlett Packard o.fl. eru meðal
þeirra sem notfæra sér námskeiðin
fyrir sína starfsmenn en sá sem
hafði einna sérstæðasta bakgrunn-
inn á námskeiðinu sem ég sótti var
yfirmaður ísraelsku leyniþjónust-
unnar, Mossad. Akaflega geðugur
maður.
Ég lærði mjög margt hagnýtt í
náminu en eftir á að hyggja þá tel
ég að það sem gaf mér bestu
heimssýnina var að læra um og
fara í gegnum efnahag ýmissa
ólíkra landa í mismunandi heims-
álfum, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
Alþjóðabankans og fleiri stofnana.
Aftur á móti kom það mér, sem að-
allega hafði starfað í íslensku við-
skipta- og athafnalífi, mest á óvart
að komast að því að það eru til fjöl-
þjóðafyrirtæki sem eru orðin
þannig að þau lúta engri stjórn
nema sinni eigin. Ástæðan er sú
hve alþjóðleg þau eru. Þau geta í
krafti stærðarinnar flutt sig um set
á milli landa ef yfirvöld einhvers
ríkis hafa afskipti af rekstri þeirra
sem þau telja sér í óhag. Þannig að
þau eru í raun og veru komin út
fyrir póhtískt stjórnunarsvið ein-
stakra landa í heiminum."
Reksturinn á réttri leið
Helstu viðfangsefni Magnúsar á
starfsferlinum hafa verið á sviði
nýsköpunar eða yfirtöku á erfiðum
rekstri og reyna að koma honum í
gott horf. Að hans sögn er Hljómco
áttunda rekstrareiningin sem hann
tekur við og ekki sú best stadda.
„Ég er búinn að eiga Hljómco í tæp
þrjú ár og sem betur fer er fyrir-
tækið farið að ganga vel og skila
arði. En þetta hefur ekki verið auð-
velt og hefði ekki verið mögulegt ef
samstarfsfélagar mínir hjá Hljóm-
co hefðu ekki staðið sig jafnvel og
þeir hafa gert. Enda hef ég alltaf
sagt að reksturinn stendur og fell-
ur með starfsmönnunum. Það er
sama hversu góða vöru er verið að
bjóða, ef ekki eru góðir starfsmenn
og áhugasamir þá gengur dæmið
einfaldlega ekki upp. En ég viður-
kenni það fúslega að það var mjög
skrýtið að taka við smáum rekstri
eftir að hafa í 21 ár verið að fást við
mun hærri upphæðir og þá sér-
staklega þau ár sem ég var for-
stjóri Iceland Seafood en á móti
kemur að í dag er ég að vinna í eig-
in fyrirtæki en ekki fyrir aðra.“
Nýjungar hjá Nintendo
Meðal þeirra vörumerkja sem
Hljómco er með umboð fyrir á Is-
landi eru Olympus myndavélar og
Nintendo leikjatölvur. Miklar
breytingar hafa átt sér stað á
tölvuleikjamarkaðnum á undan-
fömum áram og leikirnir verða sí-
fellt fullkomnari samhliða auknu
vöraframboði.
Hvernig hefur sjónvarpsleikja-
tölvum eins og Nintendo reitt af í
samkeppnini við einkatölvuna og
aðrar leikjatölvm-?
„Fyrir nokkrum áram vora Nin-
tendo vinsælustu leikjatölvurnar
og samkeppni var lítil á þessum
markaði. Síðan dró töluvert úr söl-
unni á Nintendo þegar aðrir leikja-
tölvuframleiðendur vora skrefi á
undan með nýjungar og spennandi
leiki. Nintendo er sérlega öflugt
fyrirtæki sem ætlar að halda for-
ystu sinni á þessu sviði. Nýja Nin-
tendo 64 tölvan er fullkomnasta
leikjatölvan á markaðnum í dag og
Nintendo er nú komin kynslóð á
undan öðram í þessum efnum enda
hefur Nintendo 64 verið valin besta
leikjatölva ársins. Hún var að vísu
allt of dýr í byrjun en hefur lækkað
þó nokkuð í verði að undanfórnu.
Nintendo Super Mario leikurinn
hefur fengið mikið lof gagnrýnenda
og var valinn besti leikur ársins af
ECTS samtökunum. Hjá Nintendo
er unnið að stafrænu diskadrifi í
samvinnu við Netscape og
Microsoft sem kemur til með að
fleyta Nintendo fram í framtíðina
með því að bjóða þann möguleik-
ann að fleiri geti leikið saman.
Það hefur mikið verið fjallað um
að böm og unglingar eyði alltof
miklum tíma í tölvuleiki. Því varð
ég mjög feginn þegar ég las það í
New York Times að Nintendo
tölvuleikir samhæfi hug og hönd,
auki viðbragðsflýti og skerpi hæfi-
leika til að að finna lausnir."
Helstu umsvif Hljómco era í
heildsölu en fyrirtækið er einnig
með umboð fyrir Mitsubishi og
Nokia sjónvörp og myndbandstæki
og Yamaha hljómtæki auk ýmissa
smærri umboða en flest umboðin
fylgdu með kaupunum á Hljómco
auk þess sem Magnús hefur bætt
nokkram við í hópinn. Aðspurður
segir Magnús að þótt hann reki
verslun, þá hafi það lítil áhrif á
samkeppni við aðra smásala. „Ég
tel að með því að standa sjálfur í
verslunarrekstri þá læri maður
betur á þarfir markaðarins á hverj-
um tíma auk þess sem margir við-
skiptavinir heildverslunarinnar era
í verslunarrekstri á landsbyggð-
inni.“
Gæluverkefni af ýmsu tagi
Magnús hefur ekki látið fyrir-
tækjareksturinn einn duga og hef-
ur tekið þátt í nýsköpun af ýmsu
tagi. „Meðfram daglegum fyrir-
tækjarekstri hef ég verið að leika
mér í ýmsum gæluverkefnum.
Meðal þeirra má nefna fyrirtækið
Lintofisk i Njarðvíkum sem var
stofnað í vor meðal annars til að
annast þurrkun á loðnu í gælu-
dýrafóður fyrir Danexport AS.
Síðastliðið sumar seldi ég síðan
Laugafiski Lintofisk en fyrir mörg-