Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
Steinunn Birna & Bryndís Halla:
Ljóð án orð
Rómantísk og lióðræn verk m.a. eftir
frönsk og spænsk tónskáld. Einstaklega
vönduð og innileg plata.
Leiðbeint um vinnu
í lokuðu rými
LOFT í lokuðu rými getur leitt til
hættuástands af ýmsu tagi, segir í
frétt frá Vinnueftirliti ríkisins.
Hefur stofnunin vakið athygli á
leiðbeiningum frá 1995 um þessi mál
og fást hjá stofnuninni. Er það gert
í kjölfar banaslyss sem varð á Akur-
eyri s.l. föstudag.
Hætta er oft mikil í geymum, þróm
og kötlum eins og reynslan hefur
sýnt á undanförnum árum.
Sem dæmi má nefna að efni sem
geymd eru í lokuðu rými geta mynd-
að sprengifima blöndu með lofti og
getur þá minnsti neisti eða núningur
komið af stað sprengingu. Hættan
er einnig fyrir hendi í kornhlöðum
og mjölþurrkurum þar sem rykið
myndar sprengifima blöndu með
lofti.
í tönkum og þróm, þ.á m. loðnu-
þróm, getur orðið rotnun sem mynd-
ar eitraðar lofttegundir. Ein þeirra
er brennisteinsvetni er margir þekkja
sem hveralykt en er einnig tii staðar
á háhitasvæðum og veldur hættu við
sumar hitaveitur.
Súrefni getur eyðst í lokuðu rými
af ýmsum orsökum eins og skýrt frá
í blaðinu í gær t.d. vegna ryðmynd-
unar og er þetta ein mesta hættan
sem getur steðjað að mönnum sem
vinna í lokuðu rými.
Skylda er að loftræsta lokað rými
áður en vinna hefst, einnig skal
mæla súrefni og gas áður en farið
er inn. Nota skal öryggisáhöld á
borð við línu og belti eftir því sem
við á. Atvinnurekanda er samkvæmt
reglunum skylt að sjá til þess að
allrar varúðar sé gætt en undanþegn-
ir reglunum eru slökkviliðsmenn og
sérþjálfaðir björgunaraðilar. Þeir
eiga þó ávailt að nota viðeigandi
öryggisbúnað.
Yndisleg klassík
^ ...og skafmlði með! *1
..
ÍSnaiSK* EINSÚNGSLoatB
og skafmiði með!
Sjómannaskólans, sem er á rishæð
og helgað siglingum og sjómennsku,
vélum og tækni um borð í skipum,
á jarðhæð Sjómannaskólans. Þannig
gæti bókasafnið þjónað enn betur
öllum nemendum og orðið sjómönn-
um raunveruleg menningar- og
fræðslumiðstöð. Þar höfðum við
einnig hugsað okkur að yrði sameig-
inlegt tölvuver fyrir nemendur Sjó-
mannaskólans og KHÍ. Tölvuverið
myndi einnig efla þjónustu skólanna
þriggja sem kjarnaskóla við allt land-
ið og hugsanlega fjarkennslu í náms-
greinum þar sem það hentar. Með
flutningi Bókasafnsins yrði unnt að
nýta rishæð Sjómannaskólans fyrir
vinnuaðstöðu kennara Stýrimanna-
skólans og Vélskólans, sem hefur
lengi verið ófullnægjandi. Gert er ráð
fyrir stækkun vélahúss til norðurs
og sérstakri hermamiðstöð í Raf-
magnshúsi þar sem siglinga- og físk-
veiðisamlíkir Stýrimannaskólans eru,
en samlíkjar eða hermar eru dýr
tæki sem eru notuð til margs konar
kennslu og rannsókna.
Með nýju heimavistarhúsnæði og
dagheimiii á lóð Sjómannaskólans
töldum við að skólarnir gætu þjónað
betur allri landsbyggðinni, kennara-
nemum og nemendum Sjómanna-
skólans, sem vildu koma með fjöl-
skyldur sínar til náms. Við gerð deili-
skipulagsins var rætt um, að ef
smíðadeild KHÍ þyrfti á að halda
járnsmíði eða logsuðu við kennslu í
listgreinum væri vel hugsanlegt að
KHI fengi til þess nýinnréttað hús-
næði V.I. sem kostaði eins og fyrr
segir rúmar 30 milljónir króna að
flytja og innrétta og er nýlega lokið.
Ég trúi því ekki að það hafi verið
ætlunin að nota deiliskipulagið að-
eins fyrir nemendur Uppeldis- og
kennaraháskóla, en ekki í þágu Sjó-
mannaskólans á lóð, sem Bæjarstjórn
Reykjavíkur samþykkti hinn 2. októ-
ber 1941 að gefa sérstaklega fyrir
starfsemi Sjómannaskólans. Bæjar-
stjórnin hét þá jafnframt að ráðstafa
ekki svæðinu þannig að það kæmi í
veg fyrir eðlilega þróun skólans og
gerði þessa samþykkt, þegar Alþingi
hafði tekið ákvörðun um hvar Sjó-
mannaskólinn skyldi standa árið
1941. Flutningur Stýrimannaskólans
og Vélskóla Islands úr Sjómanna-
skólanum eru aðeins hugmyndir, sem
hefur einróma verið hafnað, en hafa
vissulega vakið mjög sterk viðbrögð.
Þau eru öll á sömu lund: Stýrimanna-
skólinn og Vélskóli íslands verði
áfram í Sjómannaskóla íslands á
Rauðarárholti. í fyrr tilvitnaðri ræðu
á Alþingi hinn 5. nóvember s.l. sagði
hæstv. menntamálaráðherra orðrétt:
„Engin ákvörðun hefur verið tekin
um að flytja Vélskóla íslands og
Stýrimannaskólann í Reykjavík í
annað húsnæði. Hugmynd um að
flytja þá í húsið nr. 9 við Höfða-
bakka hefur hins vegar verið lögð
fram til skoðunar og þess er að
vænta að umræður um hana taki
nokkurn tíma.“ Til viðgerðar á Sjó-
mannaskólanum þarf nú hið skjót-
asta um 200 milljónir króna. Þá fjár-
muni sem menn hafa hugsað sér að
nota til ótímabærra flutninga og
leigu á húsnæði sem allir verða
óánægðir með er réttara að nota til
uppbyggingar Sjómannaskólanum
og þeim tveimur skólum sem þar
eru, Stýrimannaskólanum og Vél-
skólanum. Fólk sem vill okkur út úr
Sjómannaskólanum hefur haldið því
fram, að nauðsynlegt sé að tæma
húsið af nemendum eigi að endur-
bæta og lagfæra húsið. Slíkt er iirein
firra og fyrirsláttur. Ef unnið er eft-
ir verkáætlunum, sem taka tillit til
skólastarfsins, má komast hjá
árekstrum, auk þess sem unnt er að
nýta sumartímann til hins ýtrasta.
Verði sjómannamenntunin áfram í
Sjómannaskóla íslands er a.m.k. ekki
nauðsynlegt að breyta húsnæðinu
þannig að ekki standi hér steinn yfir
steini.
Hvers þess menntamálaráðherra,
sem snýr sér af myndarskap og fram-
sýni að endurbótum og uppbyggingu
á Sjómannskóla íslands og Kennara-
háskólanum eftir tillögum og þörfum
þessara skóla, mun verða minnst að
verðleikum.
Hér eftir sem hingað til á Sjó-
mannaskóli íslands að vera fræða-
og menntasetur íslenskra sjómanna
og þeim leiðarviti jafnt til mennta
sem starfa.
FRÉTTIR
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 35^
Það er gaman að grilla á nýju
(í'HTIIl'lflj)
„MINUTU-SNERTIGRILLUNUM"
Nýju „mínútu-snertigrillin"
frá Dé Longhi eru tilvalin
þegar þig langar í gómsætan
grillmat, kjöt, fisk, grænmeti
. eða nánast hvað sem er.
Þú getur valið um 2 stærðir á
stórgóðu jólatilboðsverði,
kr. 7.990,-. eða kr. 8.990, -
iFQniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI S52 4420
Guðmunda Elíasdóttir: Endurómur Björn Thoroddsen: Jazz Guitar
Innileiki og einlæq túlkun eru Óskaplata gítargeggjarans.
aðaleinkenni meðferoar á sönglögum
þeim sem valin eru á geisladisk pennan.
Islenska einsöngslagið
Okkar fremstu söngvarar við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar flytia 59
íslenskar einsöngsperlur. Hrífanai, sígild
tónlist.
Kolbeinn Jón Ketilsson:
Sjá dagar koma
Fallegustu sönglóg okkar íslendinga í
vönduðum flutningi tenórsins Kolbeins Jóns
og Hjálms Sighvatssonar píanóleikara.
Elín Ósk: Söngperlur
"Frábær söngkona. Satt að segja veit
ég ekki um margar jafngóðar söngkonur
og Elinu Osk. ...sannkallaðar
söngperlur." O. B. - MBL
Guðrún Birgis/Peter Maté: Fantasie
"Flutningur er fullur af skilningi og
músík...Hljómdiskur sem mælt er með,
alveg eindregið.” O.B. - Mbl.
Kaupir þú geisladisk í verslunum Japis fyrir jól, ert þú með í
Skafmiðafeik Japis, og það er glaðningur á hverjum miða.
JAPISS
-hljóma betur
BRAUTARHOLTI • KRINGLUNNI
OG LAUGAVEGI 13
SÍMI 562 5200
Kristinn Arnason: Bach
Þriðja útgáfa Kristins Árnasonar,
síöasti diskur hans hlaut íslensku
tónlistarverðlaunin 1996.
Power Flower
‘f'ir
kV tti&s
Pétur Östlund: Power Flower
"Ein heilsteyptasta jazzplata
áratugarins." Orkester Journal
Edda Erlendsdóttir Tchaikovski
Dramatískur seiður í flutningi eins okkar
fremsta píanóleikara.
Manuela Wiesler:
Small is Beautiful
Á þessari qeislaplötu er að finna stutt
einieiksverk í flutningi Manuelu Wiesler.