Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 36

Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 36
36 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Domus Medica - Kringlunni Teg: Galway : 11.990,- 2 ■ .■ Teg: Parana Verð: 11.990,- Frábær þáttur um LlllYli skó sýndur á Stöð 2 kl. 16:20 í dag, sunnudag — SKOR FYRIR KARLMENN SKOÐUIM UPPBYGGINGAR- STARFIÐ í BOSNÍU OG HERZEGOVÍNU í DAG eru liðin tvö ár frá því að Dayton-friðarsamningurinn var und- irritaður í París. Á þessum tímamót- um er við hæfi að beina sjónum að því mikilvæga uppbyggingarstarfí sem nú fer fram í Bosníu og Herzegó- vínu. Við undirritun samningsins hafði blóðugt borgarastríð geisað í landinu í meira en þrjú ár. í þessu stríði er áætlað að 250.000 manns hafí látið lífíð, 200.000 hafí særst og a.m.k. 13.000 manns orðið fyrir varanlegu heilsutjóni. Strax að lok- inni undirritun hófst öflugt uppbygg- ingarstarf sem í megin dráttum er þríþætt: Samkvæmt umboði öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna tryggir herlið Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess, SFOR, frið og skapar öruggt umhverfi fyrir aðrar alþjóðastofnanir er sinna uppbygg- ingarstarfí. í öðru lagi gegnir Orygg- is- og samvinnustofnun Evrópu, OSE, veigamiklu hlutverki varðandi undir- búning og eftirlit með framkvæmd kosninga í landinu, stuðlar að eflingu mannréttinda og er vettvangur af- vopnunarviðræðna. í þriðja lagi leiða Evrópusambandið og Alþjóðabankinn samstarf u.þ.b. 50 ríkjaog 10 alþjóða- stofnana um að koma_ efnahagslífí landsins á réttan kjöl. í mars 1996 samþykkti ríkisstjóm íslands að verja 110 miiljónum króna til uppbygging- arstarfsins. Tíu milljónir fóra til bráðabirgðaaðgerða og vora þær lagðar í sérstakan neyðarsjóð Al- þjóðabankans. Jafnframt var ákveðið allt að 100 milljóna króna framlag sem varið yrði til endurreisnar og uppbyggingar á áranum 1996 til 1999. Þessu til viðbótar starfar nú íslensk heilsugæslusveit, skipuð tveimur læknum og tveimur hjúkran- arfræðingum, í SFOR undir verk- stjóm breska hersins. Auk þess sem þrír íslenskir lögreglumenn starfa í alþjóðalögreglu Sameinuðu þjóðanna. íslensk aðstoð við fórnarlömb stríðsins Uppbyggingarstarfíð í Bosníu og | Dýnur eftir máli, margar gerðir og útfcerslur 3000 m1 sýningarsalur TM - HÚSGÖGN SíSumúla 30 - Sími 568 6822 Herzegóvínu er um- fangsmikið og flókið. Það er því mikilvægt fyrir lítil ríki eins og ísland að aðstoð þeirra sé skýrt af- mörkuð og vel skil- greind. Strax í upp- hafí mörkuðu íslensk stjórnvöld þá stefnu að beina meginþorra framlaga að tveimur verkefnum á sviði heilbrigðismála og hefur gott samstarf myndast við Alþjóða- bankann um fram- kvæmd og eftirlit með framvindu þessara verkefna. Að höfðu samráði við heilbrigðisyfirvöld í Bos- níu og Herzegóvtnu var boðin aðstoð við þau fómarlömb stríðsins sem misst hafa fætur neðan við hné. Stoðtækjafyrirtækið Össur hf. er á meðal hinna fremstu á sínu sviði Þátttaka íslands snýst ekki einungis um krónur og aura, segir Halldór Asgrímsson, heldur einnig um siðferði og _ Halldór Ásgrímsson samkennd. í heiminum og þótti því tilvalið að leita eftir samstarfí við fyrirtækið um framkvæmd verkefnisins. Gerður var samningur um að Össur hf. þjálfí starfsmenn á stoðtækjaverkstæðum í Bosníu og Herzegóvínu og leggi til allan búnað til framleiðslu gervifóta. Nú þegar hafa sérfræðingar Össurar hf. þjálfað starfsfólk á þremur stoð- tækjaverkstæðum og er meðferð sjúklinga sem þarfnast gervifóta í fullum gangi. Þegar verkefninu lýkur munu allt að 600 einstaklingar hafa notið góðs af framkvæði Islendinga. Það er samdóma álit þeirra er koma að þessu verkefni að árangur- inn sé ótvíræður og er það skoðun mín að vel hafí tekist til af hálfu íslendinga. Þörfín á þessu sviði er mikil og íslensk sérfræðiþekking í hæsta gæðaflokki. Ég var svo hepp- inn að hafa tækifæri til að heim- sækja Bosníu og Herzegóvínu í júnf síðastliðnum. Þar sá ég með eigin augum hvers vænta má af þessu starfí. Stór hluti sjúklinga era böm sem misst hafa útlimi af völdum jarð- sprengna og era örkuml þeirra yfír- leitt slæm og vandasöm meðhöndlun- ar. Með réttri aðstoð gerast lítil kraftaverk og börn sem misst hafa báða fætur geta nú hlaupið um og tekið þátt í leikjum jafnaldra sinna. Eins sá ég hvemig ungt fólk með brostna framtíð öðlast nýtt líf með aðstoð stoðtækja og getur tekið full- an þátt í enduruppbyggingu landsins. Sálarkvöl fómarlamba stríðsins er inu, en skortur er á vinnu- reglum og þjálfuðum mannafla. Auk þess er aðbúnaður á sjúkrastofn- unum ekki viðunandi. Frá lokum stríðsins hefur þessum málaflokki ekki verið sinnt sem skyldi og því er ísland að taka þarft framkvæði. Aðstoð íslands mun fyrst og fremst beinast að þjálfun og endurmennt- un. Hópur lækna, hjúkr- unarfræðinga og ljós- mæðra frá þremur borg- um í Bosníu og Herzegó- vínu, Sarajevo, Mostar og Tuzla kemur tii íslands til að endumýja þekkingu sína á þessu sviði. í framhaldi af því munu íslenskir sérfræðingar og hjúkranarfólk heimsælqa Bosníu og Herzegóvínu til að fýlgja málum eft- ir og annast þjálfun og kennslu í samvinnu við þarlenda aðila. íslensk stjómvöld munu leggja til allan nauð- synlegan kennslubúnað og þýdd kennslugögn. íslensk þekking á sviði læknavís- inda er með því besta sem þekkist og í þessu verkefni mun hún nýtast einstaklega vel. Heimamenn í Bosníu og Herzegóvínu era afskaplega áhugasamir um framkvæmd verk- efnisins og viðbrögð annarra landa er sinna hjálparstörfum era mjög jákvæð. Ég er því vongóður um árangur og sannfærður að með þess- um hætti sé framlagi íslands vel varið. Það er þó nauðsynlegt að sýna þolinmæði, því hér er hugsað til framtíðar, og áþreifanlegur árangur mun ekki koma í ljós fyrr en að nokkram árum liðnum. Til viðbótar fyiTnefndum verkefn- um er vert að minnast á stuðning stjómvalda við lofsvert framtak Blindrafélags íslands til aðstoðar systurfélögum í Bosníu og Herzegó- vínu, og átak Stúdentaráðs íslands, sem safnað hefur kennslugögnum og tækjum og sent háskólum í hinu fyrram stríðshijáða landi. Allir þurfa að leggjast á eitt Uppbyggingarstarfíð í Bosníu og Herzegóvínu mun taka mörg ár og hörmungar stríðsins munu lifa með íbúum landsins um ókomna framtíð. Á þeim tveimur árum sem nú era liðin frá undirritun friðarsamningsins hefur ýmislegt áunnist með góðri samvinnu heimamanna og samfélags þjóðanna. Lögð hefur verið áhersla á húsnæðis- og menntamál, ríkis- stofnanir hafa verið endurreistar og félagsleg þjónusta styrkt. Þá hefur mikil áhersla verið lögð á uppbygg- ingu atvinnulífsins og sköpun nýrra atvinnutækifæra. í heild má segja að árangur uppbyggingarstarfsins sé ásættanlegur og hefur efnahags- bati Bosníu og Herzegóvínu verið hraðari en vonir stóðu til. En betur má ef duga skal. Ótryggt stjómmála- ástand hefur hamlað ábyrgri efna- hagsstjórn og enn er langt í land á sviði samgöngumála, orkumála, fjar- mikilog þáu sár gróa séint. En þakk- lætið í augum þess fólks sem ég hitti skiptamála og heilbrigðismála, svo á ferðalagi mínu sánnaði sVo ekki verður um villst að hvert framlag getur skipt sköpum. Áframhald aðstoðar íslands Annar meginþátturinn í aðstoð íslendinga er á sviði barnalækninga, kvensjúkdómalækninga og mæðra- verndar. Nýlega var íslensk sendi- nefnd á ferð í Bosníu og Herzegóvínu til að leggja drög að þessu verkefni sem mun hefjast á fyrri hluta næsta árs. Ástand heilbrigðismála í landinu er mjög alvarlegt og sem dæmi hefur ungbarnadauði tvöfaldast frá árinu 1990. Verkkunnátta á sviði barna- lækninga, kvensjúkdómalækninga og mæðravemdar er til staðar í Iand- dæmi séu tekin: Það er mikilvægt að ísland taki þátt í uppbyggingarstarfínu sem nú fer fram í Bosníu og Herzegóvínu og skorist ekki undan ábyrgð á al- þjóðavettvangi. Áætlað er að það uppbyggingarstarf sem nú stendur yfír muni kosta rúmlega 5 milljarða bandaríkjadala. I því samhengi virð- ast framlög íslands lítilvæg. En hér snýst þátttakan ekki einungis um krónur og aura, heldur einnig um siðferði og samkennd. Aðstoð íslands getur skipt sköpum fyrir þúsundir íbúa landsins og ég þori að fullyrða að þeim peningum er vel varið. Höfundur er utanrikisrádherrn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.